Morgunblaðið - 11.10.1959, Blaðsíða 2
2
MORWTKBJ/AÐ1Ð
Sunnudagur 11. okt. 1959
8000
laxar á
stöng í
10 ám
1 NÝJU blaði „Veiðimannsins"
blaðs stangaveiðimanna, eru
margar skemmtilegar og fróðleg-
ar greinar. l>ar er t. d. skýrt frá
hver laxveiðin hafi orðið í sum-
ar. Segir þar, áður en birtar eru
tölur um veiðina í hinum ýmsu
ám, að veiðin hafi orðið meiri í
Elliðaánum en í fyrra. Þá er þess
t. d. getið, að aldrei hafi veiðzt
annað eins í Miðíjarðará og nú
í sumar.
Bráðabirgðatölur Veiðimanns-
ins yfir laxveiðina, eru sem hér
segir: Elliðaár 1000 laxar, Laxá
í Kjós 1018 og Bugða 202, Laxá
í Leirársveit 480, Norðurá 785,
Laukadalsá 500, Laxá í Dölum
780, Miðfjarðará 1910, Blanda og
Svartá 1153 og Laxá x Aðaldal
1100.
í þessum 10 laxveiðiám hafa
því verið veiddir á stöng í sumar
8148 laxar.
Námskeið nm umfeiðamál
og hjálp í viðlögnm á flkureyri
AKUREYRI, 10. okt. — Á mánu-
daginn hefjast hér á Akureyri
námskeið £ hjálp í viðlögum, sem
ætluð eru fyrir almenning. Eru
námskeið þessi endurgjaldslaus
og öllum heimil.
Slysavarnafélagið og Rauði
Krossin hér gangast fyrir nám-
skeiðum þessum, en Guðm. Pét-
ursson, fulltrúi Slysavarnafélags
íslands, annast kennslu. I>au
Sesselia Eldjárn og Guðmundur
Karl Pétursson yfirlæknir höfðu
forustu um að námskeiðum þess-
um væri komið á.
//
Eðlilegast að bíða með
endanlega afgreiðslu "
Forsætisráðherra skrifar stéttar-
sambandi bænda
Forsætisráðherra hefur ritað
stjórn Stéttarsambands bænda
bréf, og fer afrit af því hér á
eftir:
Ég hefi móttekið bréf stjórnai
Stéttarsambands bænda, dags. 1.
þ. m., þar sem þess er krafizt,
að ríkisstjórnin hlutist til um að
yfirnefnd sú, sem um ræðir í 5.
gr, laga um framleiðsluráð land-
búnaðarins verði nú þegar gerð
starfhæf, svo fundinn verði nýr
grundvöllur til að byggja verð-
lagningu á.
Jafnframt er frá því skýrt, að
fundur Stéttarsambandsins 30.
sept. sl. hafi eftir atvikum getað
fallist á að frestað verði til 15.
des. nk. að láta kom til fram-
kvæmda þá hækkun á verði land
búnaðarafurða, sem bændur beri.
Út af þessu skal ég leyfa mér
að taka fram eftirfarandi:
Með brottför neytendafulltrú-
anna úr verðlagsnefndinni, og
neitun þeirra á því að tilnefna
mann í yfirnefndina hefur skap-
azt ástand, sem ekki er gert ráð
fyrir í lögunum um framleiðslu-
ráð landbúnaðarins o. fl. og sem
nokkuð virðist geta orkað tví-
mælis um hvemig við skuli
KOSNINGASKRIF-
STOFA SJÁLF-
STÆÐISFLOKKSINS
í REYKJAVÍK
er í Morgunblaðshús-
inu, Aðalstræti 6, II.
hæð. — Skrifstofan er
opin alla daga frá kl.
10_22. —
★ ★ ★
Stuðningsfólk flokksins
bregðast. Ríkisstjórnin hefur tal-
ið að eðlilegast sé, að bíða með
endanlega afgreiðslu málsins
þangað til að hið nýkjörna þing
kemur saman og láta það skera
úr. Þetta er þeim mun eðlilegra,
þar sem upplýst er, að þetta muni
ekki valda neinum töfum að ráði
á greiðslum bóta, ef samþykktar
verða, enda nú á það fallizt af
fundi Stéttarsambandsins að
fresta framkvæmdum til 15. des.
Ótímabærar ákvarðanir í þessu
máli nú gætu einnig valdið ó-
heppilegu kapphlaupi við laun-
þegasamtökin, sem ríkisstjórnin
telur höfuðnauðsyn að koma í veg
fyrir. Að því hlýtur því að
verða stefnt að leysa þessi mál
öll með samkomulagi, þegar hið
nýkjörna þing kemur saman, og
einn þátturinn í því samkomu-
lagi mun sjálfsagt verða að koma
á þeiri skipan verðlagsmála land-
búnarins, sem báðir aðilar, fram-
leiðendur og neytendur geta stað-'
ið saman að, eins og verið hefur.
Virðist því eðlilegt að bíða að-
gerða Alþingis.
Virðingarfyllst,
Emil Jónsson,
(sign).
(Frétt frá forsætisráðuneytinu).
er beðið að hafa sam-
band við skrifstofuna
og gefa henni upplýs-
ingar varðandi kosn-
ingarnar.
★ ★ ★
Athugið hvort þér séuð
á kjörskrá í síma
12757.
★ ★ ★
Gefið skrifstofunni upp-
lýsingar um fólk sem
verður fjarverandi á
kjördag, innanlands og
utan.
★ ★ ★
Símar skrifstofunnar eru
13560 og 10450
Kvikmyndir um slysavarnir
Auk þessa mun Guðm. Péturs-
son sýna kvikmyndir um slysa-
varnir á þjóðvegum í skólum bæj
arins. Gísli Ólafsson yfirlögreglu-
þjónn annast hins vegar umferð-
arkennslu þar. Jafnframt gefur
Slysavarnarfélagið skólabörnum
smekklega stundaskrá, sem jafn-
framt hefur að geyma leiðbein-
ingar um umferðarreglur. Þá
mun Guðmudur hafa leiðbeining-
ar fyrir atvinnubifreiðarstjóra,
sýna þeim kvikmyndir og kynna
breytingar, sem orðið hafa með
nýju umferðalögunum. Er þetta
svipuð leiðbeining og umferðar-
nefnd annaðist í Reykjavík s.l
ár.
Slysavarnir á vinnustöðum.
Þá mun Guðmundur og heim-
sækja stærstu verksmiðjur bæj-
arins og leiðbeina um slysavarn-
ir á vinnustöðvum. Undanfarið
hefur Guðmundur Pétursson
heimsótt ýmsar slysavarnardeild-
ir hér f nágrenninu, svo sem á
Svalbarðseyri og Árskógsströnd
Arnarnes- og Öngulsstaða- og
Hrafnagils- og Saurbæjarhrepp-
um. Á öllum þessum stöðum hef-
ur hann sýnt kvikmyndina Björg
unarafrekið við Látrabjarg, auk
fræðslukvikmynda um umferða-
mál og hjálp í viðlögum. Guð-
rnundur kveður móttökur þær
er hann hefur fengið vera ágæt-
ar og mikill áhugi sé rxkjandi fyr
ir eflingu slysavarna. Hann seg-
ir að margir hafi fyrst og fremst
litið á starfsemi Slysavarnafé-
lagsins sem björgunarstarf við
sjávarsíðuna, en hins vegar sé
skilningur vaxandi fyrir því að
ekki sé síður nauðsyn þessarar
starfsemi upp til sveita og inn
til dala.
D-llstn-fundii
í Reykjunes-
kjöidæmi
FRAMBJÓÐENDUR D listans í
Reykjaneskjördæmi boða til
stjórnmálafundar í Bíóhöllinni í
Keflavík þriðjudaginn 13. okt. kl.
8,30 s.d.
Ræður og ávörp flytja:
Ólafur Thors, Matthías Á. Matt
hiasens, Aflreð Gíslason, Sveinn
S. Einarsson, Séra Bjarni Sigurðs
son, Karvel Ögmundsson og
Guðm. Guðmundsson.
Fundarstjóri: Eggert Jónsson.
Á miðvikudag verða fundir á
Seltjamamesi í samkomusal hrað
frystihússins fsbjömsins og í
Garðahreppi í samkomuhúsinu
Garðaholti.
Á fimmtudag í félagsheimili
Kópavogs og Hlégarði í Mosfells-
sveit.
Allt stuðningsfólk D-listans
velkomið.
Þutigavatiisofn
HALDEN, 10. okt. — Ólafur kon-
ungur opnaði í dag formlega
fyrsta þungavatnsofninn, sem
byggður er í heiminum. Er ofn-
inn og stöðvarhúsið höggvið inn
í fjall við Halden, skammt frá
sænsku landamærunum.
Æðisgengin ökuför
drukkins manns
ÆÐISGENGIN ökuför drukkins
manns á Hafnarfjarðarveginum
í fyrrinótt, þar sem hann stofnaði
lífi fólks í beinan voða, lauk
með því að hann ók bílnum sín-
um upp á stóran stein og dó
brennivínsdauða undir stýri bíls-
ins.
Það var um kl. 2.50 í fyrrinótt
að lögreglunni hér í Reykjavík
var tilkynnt að við stórslysi hefði
legið suður á Hafnarfjarðarvegi.
Hefði stórum amerískum bíl ver-
ið ekið á ofsahraða aftan á lítinn
Austinbíl og kastað honum lang-
ar leiðir. Ökufanturinn hafði
ekki sinnt þessu slysi, heldur ekið
í loftinu suður yfir Kópavogsháls.
Rvíkurlögreglan sendi þegar
bíl á vettvang og eins var Hafn-
arfjarðarlögreglunni gert aðvart
og var hugmyndin að reyna að
loka ökufantinn inni. En honum
tókst að ganga úr greipum lög-
reglunnar þá.
Hrein mildi að ekki
hlaust verra af
Á slysstað hittu lögreglumenn
Einar M. Guðmundsson, Kópa
vogsbraut 6 A. Hann hafði verið
á leið heim í Austinbílnum ásamt
konu sinni. Skýrði hann svo
frá, að er stóri bíllinn hefði
komið aftan á litla bílinn
hans og kastað honum áfram,
hefði það verið hrein mildi
að bíllinn lenti ekki á tveim
ur konum, sem voru á gangi á.
veginum. Svo mikið hafði högg-
ið verið, að sætið sem Einar sat
í ásamt konu sinni, hafði slitnað
upp úr gólfinu og þau kastazt
fram á stýri og mælaborð. Ekki
taldi Einar sig eða konu sína
þurfa að vitja læknis. Við athug-
un kom í ljóst að litli bíllinn
hafði kastast 50 m. út af vegin-
um og út í grjóturð og var þarm
mikið skemmdur.
Aftan við bílinn fann lögregl-
an sönnunargagnið, framstuðar-
ann, af bílnum, sem brotnað
hafði af við áreksturinn og var
númer bílsins á stuðaranum,
R 4198. Hófst nú leit að bílnura.
Ökufanturinn strandaði á steinl
Suður í Silfurtúni fann lög-
reglan bílinn „strandaðan'* uppi
á stærðar steini. Ökumaðurinn
steinsvaf undir stýri bílsins, ofur
ölvi og hafði hann bersýnilega
„dáið“ brennivínsdauða við
strandið.
Lögreglan flutti hann í gæzlu-
varðháld í Hafnarfirði.
Danski töframaðurinn og dávaldurinn Frisinette sýnir nú í
Austurbæjarbíói. Hér glímir einn hinna dáleiddu við meistarann.
Æskulýðsfundur Heim-
dallar á fimmtudag
NÆSTKOMANDI fimmtudagskvöld efnir Heimdallur, F.U.S., til
almenns stjómmálafúndar, þar sem níu ungir menn og konur ræða
helztu mál kosningabaráttunnar. Verður fundurinn í Sjálfstæðis-
húsinu og hefst klukkan 20.30.
Ræðumenn á fundinum verða:
Fétur Sigurðsson, sjómaður,
Hörður Einarsson, stud. jur„
Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður,
Þórður Óskarsson, verzlunarskóianemi,
Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur,
Ólafur Davíðsson, menntaskólanemi,
Katrín Hákonardóttir, verzlunarmær,
Birgir I. Gunnarsson, stud. jur.,
Geir Hallgrímsson, formaður S.UJ5.
Fundarstjóri verður Baldvin Tryggvason, formaðUr Heimdaliar.
Heimdellingar og annað Sjálfstæðisfólk er hvatt til þess aS
fjölmenna til fundarins, sem hefst, eins og áður er sagt, kL 20.30
a fimmtudagskvöld.