Morgunblaðið - 11.10.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.10.1959, Blaðsíða 24
224. tbl. — Sunnudagur II. október 1959 Hvað skal til varnar verBa? spyrja Skaftfellingar Samgöngur tepptar i sláturtibinni 1 GÆR var enn rigning og óhemju vatnavextir á Mýr- dalssandi. Hafði vatnsflaum- urinn brotizt fram hjá brúnni á Blautukvísl og rofið breitt skarð í varnargarðinn vest- an brúarinnar. Er lítið eða ekkert hægt að aðhafast við varnargarðinn, eins og sakir standa. Fréttaritari blaðsins á Kirkjubæjarklaustri símaði eftirfarandi um erfiðleika bænda austan sandsins í gær: Sauðfjárslátrun stendur sem ) taæzt — Hvað skal nú til varnar verða? spurði ég Siggeir Lárus- son, sláturhússtjóra á Klaústri, þegar varnargarðurinn á Mýr- dalssandi hafði brostið og veg- urinn tepptur á ný. Enn stendur sauðfjárslátrun sem hæst og bíl- ar þurfa að fara á hverjum degi til Reykjavíkur með slátur og gærur. Þegar þessi válegu tíðindi bár- ust var réttin full af fé frá Holti og Skál og eftir helgina' á að slátra frá Klaustri. Reynt verð- ur að halda slátrun áfram næstu daga, sagði Siggeir, og frysta af- urðirnar í_bili, en ef ekki rætist úr með samgöngurnar, hlýtur slátrun að stöðvast fljótlega. Úr Álftaveri og Skaptártungu og vesturhluta Meðallands hafa lömbin verið flutt á bílum út yfir Mýrdalssand, til'Víkur und- anfarin haust. Voru þeir flutning ar rétt að byrja, þegar vegurinn tepptist, svo að slátrun mun nú hafa stöðvazt í Vík. En hvernig sem allt þetta fer, þá er eitt víst, einhver úrræði munu Skaptfell- ingar finna, enda þótt ískyggi- lega horfi í bili. — G. Br. Tveir möguleikar taugsanlegir Mbl. átti í gær tal við Ragnar Jónsson í Vík. Sagði hann að möguleikar á fjárflutningum vestur yfir sandinn væru nú í athugun. Er helzt talað um að reka féð yfir Mýrdalssand, en það var gert hér áður fyrr og voru þá að sjálfsögðu oft vatna- vextir. Nú er þó alveg óvenju- legt tíðarfar, og ekki er enn vit- að hvort tiltækt þykir að fara þá leið. Einnig er hugsanlegt að stærstu trukkar geti ekið austur yfir miklu ofar en vegurinn liggur, eða nær jöklinum. Þar er botninn harðari. Fór ýta í gær þangað upp eftir, til að athuga þánn möguleika. í gærkvöldi vor enn beðið UM HADEGI á föstudag var stóri borinn kominn niður á 2155 m. dýpi á gatnamótum Nóatúns og Hátúns og var þá hætt að bora, eins og skýrt var frá í blaðinu í gær. Er þetta dýpsta hola sem boruð hefur verið. í allan gærdag biðu menn spenntir eftir að vita hvort hol- an gysi gufu eða heitu vatni, en er blaðið fór í perntun í gær- kvöldi um 8 leytið hafði ekkert gerzt og biðu menn enn eftir að sjá árangurinn af boruninni. Stofuborð Einars Ben. slegið á Var self 1907 SIGURÐUR Benediktsson hélt málverka og minjagripaupp- boð í Sjálfstæðishúsinu í fyrra- dag. Þar voru seldir ýmsir munir, sem voru í eigu Grims Thomsen, Matthíasar Joc- humssonar og Einars Benedikts- sonar, auk málverka eftir Ás- grím Jónsson og Jóhannes Kjar- val o. fl. Blekbytta Gríms Thom- Birgir Kjaran rœðir efna- hagsmálin á kjósenda- fundi Óðins kl. 2 í dag 2600 kr. á rúmar 26 kr. sen var slegin á 2800 krónur, beizlisstengur á 2500 krónur, pappírshnífur hans á 1000 krón- ur og borðvínsflaska á 600 krón- ur. Stofusófi Matthíasar sem var seldur í Odda 1887 á 18 kr. og 30 aura var sleginn á 2500 krón- ur, og stofuborð Einars Benedikts sonar, sem hann seldi, þegar hann flutti frá Stóra-Hofi 1907 á 26 kr. og 50 aura á 2600 krónur. Drykkjarhorn eftir Stefán Eiríks son hinn oddhaga fró á 2300 kr. Málverk Ásgríms Jónssonar, af Arnarfellí við Þingvallavatn, seldist á 2100 krónur, en dýrasti hluturinn á uppboðinu var franskur bókaskápur, sem sleg- inn var á 26000 krónur. MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Óðinn gengst fyrir almennum kjósenda- fundi í dag kl. 2. e. h. Á fundinum mun Birgir Kjar- an, hagfræðingur, sem skipar baráttusætið á lista Sjálfstæð's- flokksins í Reykjavík í þessum kosningum, ræða efnahagsmála- stefnu Sjálfstæðisflokksins. Efnahagsmálin eru ofarlega í hugum almennings fyrir þessar kosningar, sem fyrst og fremst snúast um hvernig ráðið verði fram úr því öngþveiti, sem V- stjórnin leiddi yfir þjóðina. Mun Birgir Kjaran ræða þessi mál ítarlega og rekja þær leiðir, sem Sjálfstæðismenn telja vænleg- Hæstu vinningar í happdrættinu 1 GÆR var dregið í 10. flokki Happdrættis Háskóla íslands. Dregnir voru 1047 vinningar, að upphæð kr. 1,315,000. Hæsti vinn- ingurinn 100,000 krónur kom á % miða nr. 34,768 og eru miðarn- ir báðir í umboði Arndísar >or- raldsdóttur, Vcsturgötu 10 50,000 kr. vimningur kom á nr. 48,512 og eru það miðar seldir f Keflavík. Eftirtalin aúmer hlutu 10,000 kr. vinning hvert: 6450 7882 17873 25925 32072 34145 39690 46628. 5000 krónu vinningar: 7733 14831 20479 28332 31711 32679 35690 39822 46411. Aukavinningar 5000 krónur komu á nr. 34767 34769. astar til bættra lífskjara allra landsmanna. Sjálfstæðisfólk er hvatt til að fjölmenna á þennan fund og undirstrika með því þann ásetn- ing reykvískra kjósenda að tryggja glæsilegan sigur D-list- ans. Friðrik gerði jafn- tefli við Fischer JÚGÓSLAFNESKA útvarpið skýrði frá því í gærkvöldi að úr- slit 19. umferðar á skákmótinu í Zagreb taefðu orðið þessi: Friðrik Ólafsson jafntefli Fischer. Petrosjan jafntefli Tal. Gligoric biðskák Smyslov. Keres biskák Benkö. Forsíða „Berlingske Tidende" í gær. Hvaða leið barsí hringurinn til íslands? — spyrja Danir ENGIN íslandsfregn hefur um langt skeið vakið jafn- mikla athygli í danska blaða- taeiminum og fréttin um fund björgunarhringsins af Grænlandsfarinu Hans Hed- toft, sem fórst í janúar í vetur undan Hvarfi með öllum, sem Korkeinangrun úr skipi rekur á Hrauns-fjörur SUM dönsku blöðin draga það i efa, að hugsanlegt sé að bjarg- hringurinn, sem fannst á dögun- um á Hraunsfjörum í Grindavík, hafi losnað frá Grænlandsfarinu Hans Hedtoft, er það sökk. Hafa danskir blaðamenn fremur látið sér í hug koma, að bjarghring- urinn hafi fallið í sjóinn með ein- hverjum hætti, áður en skip.ð fórst. Hér á landi telja menn þessar skýringar heldur ósennilegar. — Undanfarið, er Magnús Hafliða- son á Hrauni, hefur gengið á fjör ur, hefur hann veitt því eftir- tekt, að nokkru hefur skolað þar Auður, Ragnhildur og Ragnheiður tala á Hvat- arfundinum annað kvöld S J ÁLFSTÆÐISK VENN AFÉ- LAGIÐ HVÖT heldur íund í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld, sem hefst kl. 8,30. Þrjár konur, sem eru í fram- boði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík, tala á fundinum. Eru það frú Auður Auðuns, forseti bæjarstjórnar, og frú Ragnhildur Helgadóttir, alþm., sem báðar skipa örugg sæti á lista Sjálf- stæðismanna, og frú Ragnheiður Guðmundsdóttir, læknir, sem er í varamannssæti á listanum. — Munu þær ræða stjórnmálavið- horfið almennt. Að ræðum þeirra löknum verður kaffidrykkja og kvik- myndasýning. á land af tjörusoðnu einangr- unarkorki. Segist hann ekki hafa séð það rekið nema rétt stöku sinnum, siðan á stríðsárunum, en þá rak mikið af því. Einangrunarkorkbrotin, sem Magnús hefir fundið, eru í tvenn- um þykktum. Er hið þykkra 4 tommur, en þynnri kortbrotin 2 tommur. Þykkari gerðin er notuð í þak botntanksins í skipum, en þynnri gerðin er notuð til ein- angrunar í kælilestum. Er full ástæða til þess að ætla að einmitt sams konar kork og það, sem rekið hefur undanfarna daga, hafi vcrið notað um borð í Græn- landsfarinu Hans Hedtoft. Athyglisvert er það, að korkið skuli vart hafa sézt á Hraunsf jór- um siðan á styrjaldarárunum, en nú, um leið og bjarghringurinn af Grænlandsfarinu finnst, rekur einnig nokkurt magn af skips- einangrunarkorki. Það er því engin furða þótt menn velti því fyrir sér, hvort samband kunni að vera á milli bjarghringsins og kork-brotanna á Hraunsfjörum. Þá má geta þess að lokum, að daginn eftir að Magnús fann bjarghringinn, fann hann í fjöru- borðinuu sams konar efni, og er í bjarghringnum, en það brot er að lögun til þannig, að ætla mætti að það sé úr bjarghring. I innan borðs voru, 95 manns. Þetta hörmulega sjóslys er enn í svo fersku minni Dana ©g Grænlendinga, að fyrsta brakið, sem finnst, vekur sára minningu og kemur mönnum til að itauga hvernig þessi björgunarhringnr hefur bor izt hingað norður til íslands. f gær ræddu dönsk blöð málið enn og Berlingske Tidende birti yfir nær þvera forsíðu mynd þá, sem ljósmyndari Mbl. Ól. K. M. tók af Magnúsi Hafliðasyni í fjör unni í Grindavík — þar, sem hann hafði fundið hringinn. Líka dálksmynd af Magnúsi. Berlingur hafði tryggt sér og öðr- um blöðum samsteypunnar mynd ina strax eftir að fundurinn vitnaðist — og var hún bæði send símleiðis og flugleiðis til Hafnar á föstudagsmorguninn. Við fyrstu fregnir komu upp efasemdir. Haft er eftir Janus Sörensen, skipstjóra hjá Laurit- zens-útgerðinni, en hann hefur mikla reynzlu af Grænlandssigl- ingum, að fundur bjarghringsins brjóti í bága þær kenningar, sem stuðzt hefur verið við í marga mannsaldra í Grænlandssigling- um. En hann sagðist samt hafa hugboð um það hvernig bjarg- hringurinn hefði getað borizt á móti straumnum sem liggur frá íslandi til Grænlands, hafði Berl- ingur eftir honum. T.d. fyrir stormum. Fleiri skýringar hafa komið fram ytra. Ein sú, að fyrst hafi hringurinn borizt með pól- straumnum suður á bógi-nn, inn á Labradorstrauminn, sem fyrst stefnir í austur, en greinist síð- ar. Ein greinin nær til Islands, umhverfis landið, líka in,n í Grindavík segir Berlingske Tid- ende. B.T. birtir jafnframt í dag myndina af Magnúsi með hring- inn. Og blaðið setur fram margar getgátur með uppdráttum af því hvaða leið bjarghringurinn frá Hans Hedtoft hafi borizt á land við bæ Magnúsar Hafliðasonar í Grindavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.