Morgunblaðið - 18.10.1959, Síða 6

Morgunblaðið - 18.10.1959, Síða 6
6 MORGVNBLAÐ1L Sunmidagur 18. olct. 1959 Stefna Sjálfstæðísflokksins og málefni launafólks Rætt við Einar Jónsson, múrara sem segir m.a.: Frelsi i bygging- orstarisemi er öllum til góðs 1 GÆR átti Mbl. tal við Einar Jónsson, formann Múrarafé- lags Reykjavíkur og spurði um álit hans á ýmsum þeim vandamálum, sem eru efst á baugi nu við þessar kosning- ar. — Hvað segja múrarar um það atriði i stefnuskrá Sjálf- í- stæðisflokksins, að stöðva beri / víxlhækkanir kaupgjalds og* verðiags? — Þetta er atriði, sem mik- ið er rætt og hugsað og er það yfirieitt álit allra, jafnt múrara sem annarra, að þetta kapphlaup beri að stöðva og hefði raunar átt að vera búið að stöðva það fyrir löngu. Við teljum að þær að- gerðir, sem gerðar voru í vet- ur hafi verið spor í rétta átt. — Þið lítið þá ekki lengur á kauphækkun sem kjarabæt- ur? — Hagnýtustu kjarabætur launþega í dag er niðurfærsla dýrtíðarinnar. Það mun yfir- leitt vera skoðun manna, að það sé æskilegt, að krónan, sem menn fá, sé verðmeiri, en hún hefur verið hingað til. Öll i um er það ljóst, að krónu- / f jöldinn einn segir ekki til um 1 hvort menn hafa fengið kjara- ( bætur eða ekki. i — Þú telur þá, að halda < beri áfram á sömu braut. — J Hvernig telurðu að það verði I bezt tryggt? i — Það verður auðvitað bezt i tryggt með því að fela þeim mönnum stjórn landsins, sem hafa sýnt það, að þeir vilja ráða þessum málum til lykta með raunhæfum aðgerðum. Sjálfstæðisflokkurinn mark- aði stöðvunarstefnuna í vetur og honum einum er trúandi til að standa við hana eftir kosn- ingar. — Hefur verið mikil at- vinna hjá múrurum undanfar- ið? i — Atvinna hefur verið geysimikil við múrhúðun í sumar og er enn. Auðvitað helzt það í hendur, að áfram hald verður á því, ef ekki koma til neinar hömlur á bygg ingarframkvæmdum. — Þið eruð þá hlynntir frelsi í byggíngarframkvæmd- um? — Athafnafrelsi í bygging- arstarfsemi er ákaflega þýð- ingarmikið og til góðs jafnt þeim sem eru að láta reisa byggingarnar og þeim sem vinna við þær og svo ekki sizt | þeim sem koma til með að búa í þeim. Hins vegar má þetta frelsi ekki ganga svo langt, að það komi niður á byggingun- um sjálfum og þær verði lak- ari og óvandaðri fyrir þá sök. — Þú ert formaður Múr- arafélags Reykjavíkur. Hvað viltu segja mér frá starfsemi félagsins? — í dag mun vera um 180 manns í félaginu og mjög margir eru í námi. Félagið hefur nýlega komið sér upp félagsheimili með Félagi ísl. rafvirkja Félagsheimilið ger- ir það að verkum að félags- starfsemin getur nú orðið mik ið fjölþættari og á enn eftir að færast inn á víðtækara svið. Þetta er allt á byrjunar stigi enn, þvi félagsheimilið er svo ungt, byggt 1957 til ’58. í sambandi við félagsstarf- semina má geta þess, að múr- arar urðu fyrstir til að taka upp verðskrárvinnu og má eig inlega telja undarlegt að þetta fyrirkomulag skuli ekki vera tíðkað miklu víðar en gert er. Stjórnmálafundir í Grenivík og Ólafsfirði GRENIVÍK. Sjálfstæðisflokkurinn heldur almennan stjórnmálafund í Greni vík mánudaginn 19. okt. Kl. 9 sd. Frummælendur á fundinum verða: Bjartmar Guðmundsson, Jónas G. Rafnar og Magnús Jóns- son. ÓLAFSFJÖRÐUR. Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í samkomuhúsinu Ólafsfirði sunnudaginn 18. okt. kl. 4 sd. Frummælendur: Gísli Jónsson, Vésteinn Guðmundsson og Magn- Ús Jónsson. Kvennagullin á kvikmynda- tjaldinu týna nú ört tölunni. Fyrir skömmu lézt Marío Lanza, og nú fyrir nokkrum dögum Errol Flynn, fimmtugur að aldri. Sumir þeirra eru líka nokkuð komnir til ára sinna, búnir að leika kvennagull £ 20—30 ár. Þannig er það t.d. með Cary Grant, sem er búinn að leika I Hollywood síðan 1933. Það ár lék hann liðsforingja í kvik- myndinni „Leyniþjónustan“ á móti Gertrude Michael (sjá meðfylgjandi mynd). Nýjasta myndin hans er „Klaufalegur", þar sem hann leikur á móti Ing- rid Bergman. Þau sjást hér á hinni mýndinni. Finnst ykkkur hann ekki hafa breyzt svolítið. ★ Jasmin litla, dóttir kvikmynda leikkonunnar Ritu Hayworth og Ali Khans, ætlar að likjast pabba sínum að einu leyti a.m.k. Hún var um daginn á veðreið- um og varð svo æst, þegar hest ar pabba hennar kepptu, að hún hló og skrækti, ef þeir voru á undan og stökk upp úr sætinu, en reif hár sitt og gretti sig fer- lega, ef aðrir hestar fóru fram úr þeim. Þegar þessi mynd var tekin, virðist réttum hestum ganga vel. SAGAN um kínversku stúlkuna Suzie Wong, eftir brezka rithöf- höfundinn Richard Mason, birt- ist sem framhaldssaga hér í blað inu á sínum tíma. Leikrit, sem byggt var á sögunni, gekk við metaðsókn í New York, og hefj- ast sýningar á því í London í haust. Sú leiksýning gerði France Nuyen, sem lék Suzie, fræga á örskömmum tíma. Móð ir hennar var frönsk, en faðir hennar var kínversku sjómað- ur, svo hún er all kínversk { út- liti, eins og þið sjáið á meðfylgj andi mynd. í fréttunum skrifar úr dagiega lífinu Mér Iagðist til góður liðsmaður. „CJVEFNPURKA" skrifar Vel- »3 vakanda og ber sig illa: „Til þess að menn skilji betur vandræði mín, verð ég að taka það fram, að ég er einn af þeim mörgu, sem á ákafiega erfitt með að vakna á morgnana. Á hverj- um morgni hái ég harða baráttu við augnalokin, sem alltaf vilja síga aftur, hvernig sem ég reyni að glenna þau upp. Um alllangt skeið hefi ég þó borið sigur úr býtum, enda lagzt til ágætur liðsmaður. Það er sá, sem sendi mér til skamms tíma kl. 8 á morgnana, eða nánar til tekið kl. 8,05, dillandi tónlist gegnum útvarpið. Þegar vekjaraklukkan hringdi á mínútunni 8, tókst mér venju- lega að rétta út höndina og kveikja á útvarpinu. Skömmu seinna tók ég að greina líflega tóna gegnum svefninn. Brátt fóru stóru tærnar á mér, sem venju- lega standa út undan sænginni, að hamra á rúmgaflinn í takt við músíkina, og fyrr en varði var ég allur kominn á ið í rúminu. Þar með var sigurinn unninn, og ég stökk fram úr. Liðsmaðurinn brást. EN svo dundi ógæfan yfir. Frá því um síðustu mánaðamót hafa stóru tærnar á mér ekki lát- ið á sér bæra og ég held áfram að móka hreyfingarlaus í bólinu, fi seinn í vinnuna. Vekjaraklukkan mín er þó ekki biluð og ekki út- varpið heldur. Mér tekst enn að kveikja á því kl. 8. En áhrifin eru bara ekki þau sömu. Tökum t. d. sl. miðvikudags- morgun. Mig var einmitt að dreyma uppáhaldsdrauminn minn, þennan með englafansinn. Unaðslegu fiðlutónarnir, sem léku við eyrun á mér, gerðu það aðeins að verkum að allar meyj- amar fóru að dansa slæðudans, eins og þær gera í kvennabúrun- um í Hollywoodkvikmyndunum, og þegar kvennaraddir tóku mjúk lega undir, varð draumurinn bara ennþá sætari. Eitthvað rankaði ég þó við mér, þegar hrjúfari karla- raddir tóku við í þessari „tónlist við sjónleikinn Rósamunda" eftir Schubert, því seinna frétti ég að það hefði verið tónlistin, sem átti að vekja mig þann morguninn. Sjálfsagt hef ég í svefnrofunum komizt að þeirri niðurstöðu að geldingarnir, sem ku alltaf gæta kvennabúranna, gætu vel sungið þó tungulausir væru. Eitt er það, að ég sváf værum svefni gegnum alla Rósamundutónlistina og líka gegnum fréttirnar, en eintómar útlendar Lundúnafréttir megna ekki að vekja athygli mína svo um muni. Eftir fréttir mun hafa komið Marche Slave eftir Tsjai- kovski og Andante Cantabile eftir sama. Það var a. m. k. vanda laust að sofa undir þvi. Loks kom „Stundadansinn“ eftir Ponchielli, fiðluleikur og finerí, en einhvern veginn hlýt ég að hafa skynjað að ellefta stundin væri komin, þegar þulurinn tilkynnti þetta lag, því ég stökk á fætur. En auð- vitað var ég orðinn of seinn í vinnuna. Ég hefði þó orðið ennþá seinni, ef þulurinn hefði ekki minnzt á stund, því mér hefur verið sagt að frá kl. 9 til 9.14 hafi verið leikin unaðsleg tónlist á hörpu, regluleg englamúsik. Und- ir því hefði ég vafalaust heldur kosið að láta mig dreyma um englameyjar en að fara á fætur og mæta öskureiðum vinnuveit- anda. Neyðarkall til morgun- tónleikamannsins SVONA hefur þetta nú gengið undanfarnar þrjár vikur. Og því sendi ég neyðarkall til þess sem velur morguntónleikana. Ef það er einhver nýr maður, bið ég hann blessaðan um að geyma svona angurværa og fina tónlist þangað til maður á að fara að sofa á kvöldin". _—

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.