Morgunblaðið - 18.10.1959, Side 8

Morgunblaðið - 18.10.1959, Side 8
8 MOPcrnvnrJÐiÐ Sunnudagur 18. okt. 1959 f ' : I i 9 í*i*l*p DRENGURINN á myndinni heitir Amos Zeeb og er auðvit að Grænlendingur eins og sést á brúnum, skásettum augunum. Þegar ljósmjmdari Morgunblaðsins og blaðamað- ur gengu niður að höfn, sáu þeir Amos litla ásamt þrem grænlenzkum yngismeyjum um borð í Drottningunni, sem er á leið til Grænlands frá Danmörku. Stúlkurnar þrjár hlupu í felur, þegar þær sáu ljósmyndavélina, en Amos var hvergi smeikur við tæknina lensku er nú lokið. Ámos Amos litli þráir snjóinn litli gefur það greinilega í skyn, því hann er aftur orð- inn önnum kafinn við að fylgjast með affermingu skips ins, sem á að bera hann til Grænlands. Þegair Ijósmyndarinn og blaðamaðurinn halda í land með feng sinn, sjá þeir hvar grænl. blómarósirnar gaegj- ast brosmildar út um dyrn- ar á 2. farrými, en það er að- eins andartak, og þá eru þær horfnar, en bamslegt bros þeirra hlýtur að géta brætt eitthvað af ísnum á Græn- landi. gaman er að virða fyrir sér. Þó getur hann ekki neitað því, með hreinni samvizku, að hann hafi þráð snjóinn heima á Satut. En á Islandi vill hann ekki vera. Það er of nálægt Grænlandi, og auk þess ein- hvern veginn meira framandi. Þessum viðræðum milli Amos, sem er ekki sleipur í dönskunni, og blaðamannsins, sem er enn verri í Græn- mánuði verið á heilsuhæli í Danmörku, því honum var alltaf svo illt í höfðinu. En nú er honum batnað og er á leið- inni heim til mömmu og pabba, sem er fiskimaður í Satut, Umanak á Grænlandi. Hann hefði þó helzt viljað vera áfram í Danmörku — ekki veikur — heldur frísk- ur. Þar eru svo margir bílar og margir menn og margt sem og brosti lítilsháttar framan í myndavélina. — Blaðamað- urinn færði sig þá upp á skaft ið og tók til að spyrja hann spjölunum úr. En Amos er satt að segja ekki málgefinn. Eftir alls konar krókaleiðum tókst blaðamanninum þó að ná af honum nokkrum „spjör- Amos litli er átta ára gam- all og hefur undanfarna þrjá Sjálfstæðisflokkurinn boð aði nýja efnahagsstefnu Studdi Alþýðuflokkinn til bráðabirgða Eftir Jóhsiiui Hafstein bankastjóra EKKI ætla ég mér þá dul, að þessar fáu línur geti talizt „að- vörun til stjórnmálaflokkanna á síðustu stundu“. Þaðan af síður „um leið aðvörun til þjóðarinnar i heild“. Ég ætla mér ekki að jafnast við Alþýðublaðið og Eggert Þorsteinsson, varaforseta Alþýðusambands íslands, þegar mannalætin eru hvað mest, eins og í viðtalinu í Alþýðublaðinu í fyrrad., þegar Eggert var að að- Jóhann Hafstein. vara stjómmálaflokkana og gleymdi svo ekki þjóðinni í heild — rétt í leiðinni- Því þessi mannalæti? Þó eru þessar línur skrifaðar af nokkru tilefni. Alþýðublaðið hefur nú æ ofan í æ, í viðtölum við hitt og þetta Alþýðuflokks- fólk verið að miklast af ein- hverri stefnufestu og karl- mennsku, sem þessum aðilum finnst bersýnilega að þeir sjálfir og Alþýðuflokkurinn vera skyndilega haldinn. Og sá hæ- verski maður, „Hannes á horn- inu“, er ekki með minnst manna- lætin. Þetta sjálfglaða fólk segir, að ríkisstjórn Alþýðuflokksins „hafi þorað að gera það, sem þurfti að gera, en hinir flokkarnir þorðu ekki að gera en vildu hafa gert“. Jæja, — man nú ekki Alþýðu- flokksfólkið lengur að það var vinstri fylkingin sællar minningar, sem öll var að „steypast fram af brúninni“ í svelg verðbólgunnar á síðast- liðnu hausti, þegar vinstri stjórnin hans Hermanns og Hannibals gafst upp? Því fór ekki Alþýðuflokkurinn fram af brúninni? Skyldi hafa ver- ið kippt í hann? Var það ekki þá ,sem Sjálfstæðisflokkurinn boðaði nýja efnahagsmála- stefnu, sem hlaut að fela í sér nokkrar fórnir í bili, bæði kauplækkun og verðlækkun, — en lagði þó grundvöll að því, að hægt var að snúa inn á nýja leið til bættra lífs- kjara í framtíðinni? Og var það ekki eftir það, — eftir að Sjálfstæðisflokkurinn hafði „þorað“ að boða kauplækkun og verðlækkun, — sem Alþýðu flokkurinn myndaði sína rík- isstóm með stuðningi Sjálf- stæðisfiokksins, að þvi til- skildu, að hann uppfyllti þau skilyrði, sem Sjálfstæðisflokk urinn setti? Ég geri ráð fyrir, að menn muni þetta allt fullveí og það gefi Alþýuflokksfólki furðu lítið til- efni til mikilla mannláta, þó að hitt sé hárrétt, að Alþýðuflokk- urinn hafi þá, á elleftu stundu, sýnt ábyrgðartilfinningu langt umfram fyrri samherja í vinstri stjórninni. Sjálfstæðismenn efna gefin ' fyrirheit. Það kann að vera að Alþýðu- flokksfólkið segi: Það var ekki þetta, sem við vorum að hæla okkur af. Við meintum setningu bráðabirgðalaganna núna í haust, sem bannaði verðhækkun, land- búnaðarvaranna! Já, lítum á það mál. Eggert Þorsteinn segir í viðtalinu mikla í Alþýðubl. í fyrradag, að Sjálfstæðisflokkurinn sé „svo laf hræddur, að hann láti andstæð- inginn ráða sinni eigin stefnu“. — „Framsóknarflokkurinn heimt ar hækkun landbúnaðarvara", segir Eggert, „og Sjálfstæðis- flokkurinn segir já og amen af hrcinum og beinum ótta“. Ekki er það fagurt, ef satt væri, — og munur að vera kjarkmaður eins og Krati! Eggert veit eins vel og Emil forsætisráðherra að samkvæmt lögum, sem gilt hafa frá 1947, áttu bændur rétt á verðhækkun nú í september, vegna kauphækkana, sem urðu í fyrrahaust, eftir að verð landbúnaðarafurða var ákveðið þá. Þessum rétti var ekki haggað með stöðvunarlögunum í vetur, en við setningu þeirra miðað við þessa réttarstöðu bænda. Þegar lagt var til, að bændur fengju hækkunina strax í vetur við setningu stöðvunarlag anna, sagði ég m. a. í umræðum um málið á Alþingi: „Til umræddrar hækkunar eiga bændur rétt — en ekki fyrr en á næsta hausti.----- Við Sjálfstæðismenn styðjum heils hugar málstað bænda til jafns við allar stéttir. — — Þetta er verðhækkun, sem bændur eiga tvímælalausan rétt til að óbreyttum lögum, hins vegar myndi hún ekki koma inn í verðlagsgrundvöll þeirra fyrr en 1. september á þessu ári“. Um þessa skoðun var eng- inn ágreiningur milli okkar Sjálfstæðismanna og Alþýðu- flokksmanna í vetur. Sá er hins vegar munur nú, að við höfum viljað standa við okkar fyrirheit — þeir hafa ekki hirt um það, þegar bændur einir áttu hlut að máli. Nýju fötin keisarans. Og hver er þá hin nýja stefna Alþýðuflokksins? Það er víst út af henni, sem öll lætin eru. „Hannes á horninu“ segir: „Þó að ekki væri um nema eina til tvær milljónir að ræða, sem uppbætur til einn- ar stéttar, hvað þá ef um hærri uppbætur væri að ræða, þá þýddi það, að aðrar stéttir færu af stað“. Eggert segir í viðtalinu mikla „við krefj- umst status quo, óbreytts á- stands. En ef opnuð verður nokkur gátt fyrir dýrtíðar- flóðið, þá munum við ekki sitja hjá, heldur fara af stað með okkar kröfur“. Báðir vilja láta skilja, að ekki hafi komið til mála að greiða niður verðhækkun til bænda nú í haust — eins og Sjálfstæðis- menn lögðu til. Það hefði verið að opna „gátt fyrir dýrtíðarflóð- ið“. Víst gat það kostað ríkissjóð 3—5 milljónir króna. En hvað var fremur í samræmi við þá stefnu, sem Alþýðuflokksstjórn- in hefur fylgt á þessu ári? Veit ekki þetta Alþýðuflokksfólk með stóru myndimar og stóru orðin í Alýðublaðinu hvað hefur veriZ að gerast? í apríl-hefti Hagtíðinda á bls. 62, segir svo orðrétt: „Frá ársbyrjun 1959 voru niðurgreiðslur auknar sem hér segir: Á kindakjöti um kr.5,35 á kg., á nýmjólk frá mjólkur- búum um kr. 0,90 á lítra, á smjör gegn miðum um kr. 8,80 á kg., á kartöflum 1. flokks um kr. 0,47 á kg., á saltfiski um kr. 1,30 á kg. og á smjörlíki um kr. 1,53 á kg. Frá 1. marx 1959 var enn hækkuð niður- greiðsla á kjöti, mjólk og nýj- um fiski. Niðurgreiðsla á kjöti um kr. 1,20 á kg., á ný- mjólk frá mjólkurbúum um kr. 0.02 á lítra, og á nýjum þorski og ýsu um kr. 1,00 og 1,04 á kg., hvort tveggja miðað við slægðan fisk með haus. Frá sama tíma var ákveðin niðurgreiðsla á sjúkrasamlags gjaldi, sem nemur 13 kr. aí mánaðargjaldi Sjúkrasamlags Framh. á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.