Morgunblaðið - 18.10.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.10.1959, Blaðsíða 11
Sunnudagur 18. okt. 1959 MOKCjnsnT. 4 f)1Ð 11 Landsbankinn hnekkir í tilkynn- ingu fullyrðingum Tímans um gjaldeyrisstöðuna ALLMIKLAR umræður hafa orð- ið í dagblöðum undanfarna daga um gjaldeyrisstöðu bankanna, og hafa verið birtar tölur, sem í fljótu bragði virðast stangast á. Sannleikurinn er sá, að töl- ur þær, sem eru birtar um aðstöðu bankanna úr á við, eru ósundurliðaðar og gefa því oft ófullnægjandi mynd af gjaldeyrisstöðu bankanna, ef ekki fylgja þeim sér- stakar skýringar. Hefur því þótt ástæða til að senda dagblöðum og útvarpi greinargerð til upplýsing- ar fyrir almenning. Tölur þær, sem birtar eru um aðstöðu bankanna út á við í Hag- tíðindum, eru fengnar með því að taka saman alla erlenda liði á reikningum bankanna. Þetta getur gefið villandi mynd af hinni raunverulegu greiðsluað- stöðu bankanna út á við, ef á reikningum bankanna eru t.d. löng lán, sem raunverulega ætti að telja með öðrum erlendum lánum þjóðarbúsins til langs tíma. Einnig getur það valdið misræmi, ef ákveðnar upphæðir koma einhverra hluta vegna inn í gjaldeyrisstöðuna á einu tíma- bili, en ekki öðru. Frá þessum sjónarmiðum væri mjög æskilegt að leiðrétta þær tölur, sem birt- ar eru um aðstöðu bankanna út á við í Hagtiðindum, til þess að gefa raunverulegri samanburð á gjaldeyrisstöðu bankanna milli ára. Er hér sérstaklega um að ræða eftirtalda þrjá liði. 1) Ónotað lánsfé af lánum, sem tekin voru hjá Export Import bankanum í árslok 1956 og 1957, hefur verið talið til eignar á reikningum bankanna, þar sem viðkomandi lán voru endurkeypt af Seðlabankanum. Bætti þetta mjög gjaldeyrisstöðuna árið 1956 og 1957. í vor var tekið eitt-slíkt lán til viðbótar, að upphæð 49 millj. kr., en það hefur ekki ver- ið talið með í gjaldeyrisstöðunni, þar sem Seðlabankinn endur- keypti ekki lánsupphæðina. Tii þess að fá eðlilegri samanburð væri því réttast að taka hið ó- notaða lánsfé út úr gjaldeyris- stöðunni, enda er hér um raun- verulega innkominn gjaldeyri að ræða. 2) Skuld við E.P.U. hefur ver- ið talin með í gjaldeyrisstöðu bankanna. Nú er hins vegar bú- ið að leggja E.P.U. niður og gera samning um þessa skuld til langs tíma, svo að þessi upphæð ætti raunverulega að teljast til er lendra lána til langs tíma. Hins vegar er ekki hægt að gera þetta í ár án þess að skapa villandi samanburð við fyrri ár, og væri því heppilegast að taka E.P.U.- skuldina út úr gjaldeyrisstöðunni aftur í tímann til þess að fá raun verulegan samanburð. 3) Á síðasta ári var gerður samningur um 50 millj. kr. lán frá Rússlandi til tólf ára. Af þessu láni voru 25 millj. kr. not- aðar fyrir síðustu áramót. Þessi upphæð hefur ekki verið talin með löngum erlendum lánum, þar sem hún á raunverul. heima, vegna þess áð húii var að formi til yfirdráttúr Seðlabankans hjá Ríkisbanka Ráðstjórnarríkjanna. Raunverulega er því þessi skuld óháð gjaldeyrisstöðu bankanna, og ætti því að taka hana út. Eftirfarandi tafla sýnir upp- hæð þessara þriggja liða mánað- arlega frá árslokum 1957 til seþtemberloka 1959. 1957: Júní Júlí Ágúst Sept. 73,2 73,2 73,2 73,2 Október 45,5 Nóv. 45,5 4- 83,8 -r- 86,3 -í-87,0 4- 93,9 4-103,0 4-105,7 Des. 33,8 -í-113,1 Gjaldeyrisstaða bankanna Aðstað. bankanna 1959: leiBrétt út á við 1957 Ónotað láns- fé á reikn. E.U.P. Rússn. Des. -=-17,8 4- 23,4 bankanna skutd lán 1958: Janúar 21,8 4-117,1 4-25,0 Jan. -r-35,9 4- 41,0 Febr. 21,8 4-117,1 4-25,0 Febr. 4-62,3 4- 67,5 Marz 21,8 4-117,3 4-25,0 Marz 4-65,0 4- 70,4 Apríl 17,4 4-123,6 4-25,0 Apríl 4-95,5 4- 99,1 Maí 16,8 4-123,1 4-25,0 Maí 4-75,1 4- 78,4 Júní 2,0 4-123,1 4-25,0 Júní 4-75,6 4- 86,2 Júlí 2,0 4-123,1 4-25,0 Júlí 4-34,7 4- 47,8 Ágúst 2,0 -f-121,3 -f-25,0 Sept. 2,0 -=-121,3 -=-25,0 Sé nú afstaða bankaana út á við leiðrétt með því að taka þessa þrjá liði út úr, fást tölur, sem sýndar eru á eftirfarandi töflu, en til samanburðar er birt að- staða bankanna út á við, eins og hún er birt í Hagtíðindum. Ágúst 4-43,0 4- 56,8 Sept. 4-61,2 4- 81,9 Okt. 1,0 4- 56,5 Nóv. 28,4 4- 31,8 Des. 36,3 4- 43,0 1959: Jan. 56,4 4- 63,9 Febr. 70,3 4- 50,0 Marz 46,2 4- 74,3 Ápríl 37,7 4- 93.5 Maí 13,9 4-117,4 Júní 4-16,1 4-162,2 Júlí 4-14,0 4-160,1 Ágúst 4-38,7 4-183,0 Sept. 4-77,4 4-221,7 Vonandi verður þessi greinar- greð til þess að skýra nokkuð, hvernig þessi mál standa. Sann- leikurinn er sá, að það er mjög erfitt að fá neina eina tölu, sem gefur fullnægjandi upplýsingar um svo flókið mál sem gjaldeyr- isstöðu bankanna. Aðstæður eru þar að auki sífellt að breytast, svo að endurskoða þarf tölur til að fá réttan samanburð milli ára. Hins vegar er enginn vafi á því, að hinar leiðréttu tölur um gjald eyrisstöðu bankanna hér að ofan gefa miklu réttari mynd af þró- un mála undanfarin tvö ár held- ur en þær tölur, sem birtar eru mánaðarlega í Hagtíðindum und- ir nafninu: Aðstaða bankanna gagnvart útlöndum. Það skal tek ið frrr.-i, «ð birgðir af út/lutnmgs- afurðum eru að sjálfsögðu ekki taldar með í þessum tölum. Reykjavík, 17. okt. 1959. LANDSBANKI ÍSLANDS HAGDEILD Leiðrétting 1 GREININNI „Stórveldi" á al- menningskostnað, sem birtist í blaðinu í fyrrad. varð sú villa, að í öðrum kaflanum átti setningin „Með þeim fyrirvara — —“ að hljóða svo: Með þeim fyrirvara þó, að kostnaðurinn er fyrirfram íætl- aður, svo að ef hann reynist lægri eða hærri tiltekið tímabil, þá kemur það bændum til góðs eða tjóns á því tímabili. :—• • • ;; ■ • y- ■;■1 ■1 ....-• -------------- ywv..............................................• ■ ■■•■■'■ Hvítarí þvoftur/ Nýja Sparr er mildara, freyðir betur, þvær betur og er ódýrara. Sparr gerir þvottinn bragglegri, bjartari, ilmandi, og hvítan eins og hrím á haustmorgni. Sparr inniheldur C M C, sem ver þvottinn óhreinindum og sliti. Sparr inniheldúr Hrímhvítu, sem hefur þann eiginleika að breyta hinum ósýnilegu útfjólubláa geislum sólarinnar í sýnilega bláhvíta geisla, sem gera hvítan þvott hvítari og mislitan litsterkari. Sparr er ódýrt. Kynnið yður verð- muninn á Sparr og erlendum þvottaefnum og yður mun ekki koma til hugar að nota annað en Sparr upp frá því. Des. 81,3 1958: Janúar 81,3 Febr. 81,3 Marz 81,3 Apríl 81,3 Maí 81,3 -=- 86,9 4- 86,4 -í- 86,5 -í- 86,7 •4- 84,9 -í- 84,6 Sparið og notið Sparr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.