Morgunblaðið - 18.10.1959, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 18.10.1959, Qupperneq 13
Sunnudagur 18. okt. 1959 MORGVNBLAÐIB 13 1 Þessi mynd er af pólsku skipi, sem var hér í höfninni nú í vikunni. Pólverjar hafa tekið upp fastar skipaferðir hingað, þó að íslenzku-skipin anni fullkomlega f lutningum. á milli landanna. Pólverjar beina eins miklum hluta flutninganna til sinna skipa og þeir geta. Þeir hafa að engu skeytt mála- leitunum íslenzkra stjórnvalda um að hætta við þessar ferðir. REYKJAVÍKURBRÉF Laugard. 17. okt. Fyrirlitning S.Í.S. á sérhyggju Mörgum varð á að brosa, þeg* ar aðalfundur SÍS í sumar lýsti fyrst „undrun sinni og fyrirlitn- ingu á pólitískum áróðursmönn- um er ganga erinda sérhags- munahyggju og gróðabralls“ og kaus síðan þessu til staðfestingar Egil Thorarensen í stjórn SIS. Um Egil Thorarensen má margt gott segja. En aldrei hefur hann fyrr verið kenndur við andúð á sérhagsmunahyggju og gróða- bralli. Svo að ekki sé minnzt á pólitíska áróðursmenn, ef þeir starfa fyrir Framsókn. Senmlega á Egill um þetta sammerkt við fjölda stéttarbræð.ra sinnna. En eðlilegt er, að framferði hans sé tekið til sérstakrar athugunar, einmitt vegna þess ,hvernig á stóð, þegar aðalfundur SÍS í fyrsta skipti sýndi honum það traust að velja hann í stjórn Sam bandsins. „Myrkfælni maðurinn" á Sel- fossi er nú orðinn þjóðkunnur. Hann gerði sér að vísu grein fyrir, að hann var að vinna verk, sem ekki var gott fyrir hann sjálf an eða þann, sem bað hann, ef upp kæmist. Fæstir munu þó ætla, að hann hefði lagt stund á þessa iðju, nema því aðeins, að hann hefði hugboð um, að hún væri í samræmi við óskir hús- bóndans. Það var fordæmi ann- arra, sem fékk „myrkfælna manninn" til þess að fara á giap- stigu. Þá sögu segja margir, sem fyrir hrösun hafa orðið. „Bjart og hreint Eir Selfossi44? yfi Njósnirnar, sem Þráinn Valdi- marsson og Hannes Pálsson höfðu milligöngu um, voru eng- in einstakur atburður. Ungur maður, Magnús L. Sveinsson, sem til skamms tíma vann hjá KauD- félagi Árnesinga, hefur nýlega sagt svo frá: „--------þarf ég ekki að vera hissa, þó að einn af pólitískum agentum Kaupfélags Árnesinga spyrði mig að því fyrir síðustu hreppsnefndarkosningar, en bá starfaði ég hjá Kaupfélagi Árnes- inga, „hvers vegna ég segði ekki upp starfi hjá kaupfélaginu, úr því ég stæði ekki með þeim í kosningunum“. Sá sem spurði er í innsta bar- áttu hring Framsóknarmanna inn an kaupfélagsins og núverandi fulltrúi Framsóknarflokksins hér á Selfossi í úthlutun pólitískx-a lána til íbúðahúsabygginga. Þessi drengur var ekki myrkfælinn þá. Hann hefur kannske séð sama bjarmann og kaupfélagsstjónnn hér sá, þegar hann ók inn í Sel- fossbæ að afloknum hreppsneEnd- arkosningum. En hann sagði, að hann hefði aldrei séð eins bjart og hreint yfir Selfossi og þá.“ Framsóknarmenn eru ófeimnir við að fórna minniháttar mönn- um, sem gengið hafa erinda höfð- ingjanna, þegar upp kemst um klækina. Fjálglegt tal þeirra, sem nú þykjast hvergi hafa nærri komið, þegar myrkraverkin Kom- ast upp, er lítils virði. Ljósbjarm- inn, sem þeir þóttust eygja, er notaður til þess, að þeir sjálfir geti enn tryggilegar en áður starfað óáreittir í skugganum. „Stórhrotinn athafnamaðnr66 Hvers eðlis þeirra iðja er, sést af sögunni um stórveldið á Sel- fossi. í bókinni „íslenzkt sam- vinnustarf", sem SÍS lét gefa út snemma á þessu ári, segir m. a.: „Hlutur kaupfélaganna í sam- göngumálum á landi er orðinn miklu meiri en flestir gera sér grein fyrir. Þau hafa mikla þörf fyrir vöruflutninga og mun vart til það kaupfélag, er ekki á vöru- bíla til eigin nota, sum þeirra marga. Kaupfélag Árnesinga er stærst á þessu sviði. Á 25 ára af- mæli félagsins 1955 hafði það fastar ferðir 75000 km. á degi hverjum eða sem svarar vega- lengdinni suður til Túnis og heim aftur“. í sérstökum kafla, þar sem greint er frá starfsemi hvers kaupfélags innan SÍS fyrir sig segir: „Síðast en ekki sízt verður getið eins stærsta kaupfélags landsins, Kaupfélags Árnesinga, sem er aðeins aldurfjórðungs gamalt, hefur mjög litla afurða- sölu, en hefur samt 88,1 milljón króna heildarveltu. Félagið hc-f- ur 13 búðir og verzlar meðal ann- ars í Hveragerði, Þorlákshöfn, á Eyrarbakka og Stokkseyri. Það hefur brauðgerð, efnagerð og apótek. Félagið á og rekur hita- veitu fyrir Selfoss úr eigin landi utan við bæinn, svo og þvotta- hús. Frystihús á félagið og eru þá ótaldar samgöngurnar, þar sem KÁ er stórveldi á landi. Félagið annast mjög mikla fólks- og vöruflutninga, á yfir 60 bíla og mikil bifreiðaverkstæði, auk annarra verkstæða, sem nýbúið er að byggja yfir stórhýsi. Hér hefur stórbrotinn athafna- maður, Egill Thorarensen, fundið mátt samvinnusamtaka og séð möguleika Suðurlandsundirlend- isins. Þegar þetta þrennt kom saman, varð árangurinn glæsi- legur.“ Stórveldis-staðan völt Ekki leynir sér, að SlS telur Kaupfélag Árnesinga ná hámarki veldis síns í samgöngum á landi. í þeim efnum er þetta kaupfélag, sem getið eru um „síðast en ekki sízt“ af öllum kaupfélögum landsins, berum orðum kallað „stórveldi." Það fer og ekki milli mála, hver stórveldið hafi skapað. Það er hinn „stórbrotni athafnamaður Egill Thoraren- sen“. En hvernig er þetta stár- veldi til orðið? Upp er komið, að Kaupfé^ag Árnesinga á einungis 16 bifreið- ar skrásettar á Selfossi. Mjólkur- bú Flóamanna hins vegar 56. Augljóst er þess vegna, að í gorti sínu telur SÍS Kaupfélag Árnes- inga beinlínis vera eiganda að öllum eða meginhluta bílafjölda Mjólkurbús Flóamanna. Hver er orsökin til þess, að hinir nákunnugu forráðamenn SÍS skuli ruglast á eignum þess- ara tveggja ólíku aðila? Skýr- ingin á því er einföld. Mjólkurbú Flóamanna fær raunar að reka sína eigin bíla að nafninu til, en öll verzlun til þeirra gengur um hendur Kaup- félags Árnesinga. Það selur Mjólkurbúinu t. d. benzín og olí- ur til bílanna með venjulegu út- söluverði. Það annast allar við- gerðir fyrir bíla mjólkurbúsins og hefur þess vegna getað reist hið „mikla bifreiðaverkstæði, auk annarra verkstæða, sem ný- búið er að byggja yfir stór- hýsi“. Ekki þarf að eyða orðum að því, að venjulegur atvinnurek- andi hefði a. m. k. komið sér upp eigin benzíntank fyrir svo mikinn bílafjölda, sem Flóabiiið á. Sjálfsagt hefði einnig flögrað að ýmsum, að hyggilegt væri að hafa sitt eigið bifreiðaverkstæði. Af öllu þessu hefur Kaupfélag Árnesinga hirt gróðann, „byggt stórhýsi" og gert sjálft sig að „stórveldi.“ Enda bætist ofan á annað, að Kaupfélagið er látið hafa forréttindi um flutninga með bifreiðum Mjólkurbúsins til allra bænda, þar sem bílarnir komaot. Sú aðstaða ein er ómetanleg. Óánæ«ja bænda Það er bændum Austanfjalls til lofs, að margir þeirra hafa verið óánægðir með þessar oð- farir. Óánægjuraddirnar hafa þó ætíð verið kveðnar niður. Hugs- unin, sem á bak við liggur, er sú, að félagsmenn Kaupfélags Ár nesinga hagnist á gróða þess fé- lags, en kostnaðurinn við mjó'k- urflutninga lendi á neytendum. Þess vegna geri það ekki til, þó að sá kostnaður verði hár, af bví að hagur Kaupfélags Árnesinga verði þeim mun betri. Að vonum hefur mörgum bændum blöskrað þessi hugsun- arháttur. Þeir skilja, að hagur bænda og neytenda fer til fram- búðar saman. Þess vegna vinna þeir menn illt verk, er sá sundr- ungu á milli, eða halda þannig á málum annars hvort aðila, að hann hlýtur að fyllast tortryggni. Kunnugir fara ekki dult með, að einmitt tortryggni út af hinum mikla milliliðakostnaði á land- búnaðarvörum hafi átt drjúgan þátt í, að upp úr slitnaði nú á 'milli fulltrúa bænda og neytenda um verðlagningu landbúnaðar- vara. Ágengni og skammsýni hefna sín oft furðu fljótt. Ágengni „stórveld- isins44 öllum til ills Úr því sem komið er, verður ekki hjá því komizt, að neytend- ur fái íhlutunarrétt um ákvörð- un milliliðakostnaðar á þessum vörum. „Stórveldið“ á Selíossi hefur gert það með öllu óum- flýjanlegt. Framleiðsluráð vill áreiðanlega vinna verk sitt vel. En það hefur ekki skilyrði til þess að leysa það af hendi, auk þess sem neytend- ur eiga hér í fyrstu atrennu meira í húfi en framleiðendur. Að lokum hlýtur þó að bitna á framleiðendum, ef verð fram- leiðslu þeirra er of hátt. Umfram allt verður að gæta þess að halda þannig á, að sameiginlegir hags- munir beggja séu tryggðir. „Sérhagsmunahyggja, gróða brall og pólitískur áróður" á borð við það, sem tíðkast hjá „stór- veldinu" á Selfossi er öllum til ills, en engum þó fremur en beim, sem una því, að þannig sé mis- farið með trúnað yfir samtökum almennings. hjá Alþýðublaðinu, að hún sé engu að síður til, er víst, að hún er ekki ætluð nema öruggustu trúnaðarmönnum. Einhver í þeim hópi hefur þá sagt Alþýðublað- inu frá leyniskjalinu. Ekki verð- ur því að óreyndu trúað, að Al- þýðublaðið sé búið að taka upp starfshættina úr' húsnæðismá'a- - stjórn að stela leyniskjölum. Og þó, hver veit? Sigurður Sig- mundsson hafði verið einn þeirra, sem sótti fund Alþýðuflokksins í Iðnó á dögunum. E. t. v. hefur hann afhent þetta trúnaðarplagg sem aðgönguskírteini, þegar hann sneri heim til föðurhúsa. Eru þeir aS sjá að * Hittast hjá sakadómaral I Alþýðublaðinu á fimmtudag er komizt svo að orði: „Alþýðubandalagið langar ó- sköpin öll í stjórn með Fram- sóknarflokknum eftir kosningar. Stefnuskrár þessarra tveggja flokka í kosningabaráttunni er líka eins og frumrit og afrit, svo að einhvers staðar hafa þeir orð'ð sér úti um kalkipappír. Hins veg- ar er eftir að semja um fram- kvæmd einstakra mála. Færi vel á því að fela þá samningsgerð vinunum úr húsnæðismálastjóm, Hannesi Pálssyni og Sigurði Sig- mundssyni. Fundarstjórnin kynni raunar að verða ágreiningsefni, en þann vanda má leysa með því að fela hana hlutlausum þriðja aðila. I því efni eru hæg heimatökin. Hér skal stungið upp á virðulegum, opinberum emb- ættismanni — sakadómaranum í Reykjavík." Heldur eru þetta kaldar kveðj- ur frá einum V-stjórnarflokknum til hinna tveggja. Er það raunar í samræmi við það, sem Alþýðu- blaðið hefur áður sagt frá sam- skiptum við sína gömlu sam- starfsflokka. Allir minnast þess, þegar Alþýðublaðið í vor ljóstr? að því upp, að viðbrögð Fram- sóknar í stjórnarslitum og til- raunum til stjórnarmyndunar í vetur hefðu mótazt af ótta henn- ar við rannsókn á olíuhneykslinu á Keflavíkurflugvelli. Störf saka- dómara og rannsóknarlögreglu blandast óhugnanlega í öll sam- skipti V-þrenningarinnar. Leyniþráður Alþýðublaðið vill nú hvítbvo sig af sínum fyrri félögum. Það er ekki nema vorkunnarmál. En þó er ljóst, að enn hangir leyni- þráðurinn á milli Alþýðuflokks og Framsóknar. Hræðslubandx- lagstengslin slitna seint. Eða með hverju öðru móti hefur Alþýðu- blaðið fengið vitneskju um kosn- ingastefnuskrá Framsóknar? Sú stefnuskrá hefur enn ekki verið birt. Tíminn segir m. a. o. á föstudag, að hún muni aldrei sjá dagsins ljós. Ef það er satt Svo er að sjá sem munurinn á Alþýðuflokk og kommúnist- um sé ekki jafn mikill og rifrild- inu þeirra á milli er ætlað að gefa til kynna. Á miðvikudaginn birti Þjóðviljinn forsíðugrein, sem byrjaði svo: ,Verkalýðsmálgagnið“ Alþýðu- blaðið birtir í gær viðtal við einn helzta atvinurekenda bæj- arins, Baldur Eyþórsson, formann Félags íslenzkra prentsmiðjueig- enda, sem er deild í atvinnurek- endasambandinu. Blaðið spyr atvinnurekendann að því, hvern- ig gangi að reka gróðafyrirtæki á íslandi undir Alþýðuflokksstjórn og atvinnurekandinn svarar því himinlifandi, að það hafi ekki verið eins auðvelt að reka slíkt fyrirtæki um árabil!“ t Daginn eftir birtir hins vegar Þjóðviljinn sjálfur viðtal við ungan frambjóðanda, Lárus Valdi marsson, sem er 3. maður á lista Alþýðubandalagsins í Norður- landskjördæmi vestra. Hann býr á Skagaströnd, „er verðgæzlu- maður og hefur fengizt við út- gerð um skeið“. „Atvinnuvegirnir standa undir öllum lífsþörfum64. Fyrsta spurningin, sem Þjóð- viljinn leggur fyrir þennan fram- bjóðanda kommúnista, er á þessa leið: „— Hvað vilt þú svo sem út- gerðarmaður og atvinnurekandi segja um kjör sjómanna og verkamanna?" í svari sínu segir útgerðarmað- urinn og atvinnurekandinn m. a,: „Atvinnuvegirnir standa undir öllxxm lífsþörfum olckar, þaðan eru alir fjármunir okkar komnir, til hvers sem við notum þá“. Engu er líkara en þetta hefði staðið í Morgunblaðinu. Það er auðsjáanlega ekki Alþýðuflokk- urinn einn, sem telur vænlegast að taka upp stefnu Sjálfstæðis- flokksins, heldur eru frambjóð- endur kommúnista nú einnig farnir að boða kenningar hans. Þeim dylzt ekki, hvert straum- urinn liggur og reyna þess vegna að gera hosur sínar grænar með lánsspjörum frá Sjálfstæðis- mönnum. „Þurfa að koma til mótsviðfólkið46 ' Hinn ungi atvinnurekandi á framboðslista kommúnista segir fleira skynsamlegt: „Annars tel ég eitt höfuð- vandamál verkalýðshreyfingar- innar í dag, það hve meðlimir verkalýðsfélaganna eru orðnir skeytingarlausir um þau. Þetta er þó skiljanlegt, því að stjórnir og sambönd annast orðið samn- inga um kaup og kjör, án mik- illa afskipta meðlimanna sjálfra. Starf verkalýðsfélaganna þarf að snerta menn meira persónulega. Þau þurfa að koma til móts við fólkið------ Allt er þetta hárrétt athugað. Gallinn á allt of mörgum verka- lýðsfélögum er sá, að þar hefur Framh. á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.