Morgunblaðið - 18.10.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.10.1959, Blaðsíða 22
22 MORGUPiBLAÐlÐ Sunnudagur 18. okt. 1959 Frd hilltrúardði Sjúlfstæðis- ... féldgúnna í Reykjavík OPNAÐAR hafa verið á vegum Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfé- laganna hverfaskrifstofur á eftirtöldum stöðum í ReykjavÍK VESTURBÆJARHVERFI, Aðalstræti 6 (Morgunblaðshúsinu), sími 23113. NES- OG MELAHVERFI, KR-húsið, Kaplaskjólsvegi, sími 24178. MIÐBÆJARHVERFI, sími 24176. AUSTURBÆJARHVERFI. Breiðfirðingabúð (uppi), Skólavörðustíg 22 A, sími 24175. NORÐURMÝRARHVERFI, Skátaheimilið við Snorrabraut, sími 24177. HLÍÐA- OG HOLTAHVERFI, Skipholti 15, sími 10628. LAU GARNESH VERFI, Sigtúni 23, sími 35240. LANGHOLTS- OG VOGAHVERFI, Langholtsvegi 165, sími 35241. SMÁÍBÚÐA-, BÚSTAÐAVEGS- OG BLESUGRÓFARHVERFI, Breiðagerði 13, simi 35242. Allar skrifstofurnar eru opnar daglega kl. 16—22 og veita aílar venjulegar upplýsingar um kosningarnar. ^ '.■.■.■.■/.■.■.,.V.v!’.‘.^!,‘/jfljíW,'..... ... .V,v!'.1.v2........V...'.......V.V.,.’.1.'.,.V.'.,.,.VA,>/C,;,.,.,...,.'.,.,.,.,..X'.,.'>WWWWW.’^'.,.,.VW.V.V//.V.V.V/A///AW.'rt^yy,.v,, . . . ................................... V erzt unars tjóri Verzlunarstjóri óskast í nýja glæsilega kjörbúð í ná- grenni Reykjavíkur. Góð skilyrði. Gott kaup. Um- sóknir ásamt upplýsingum sendast afgreiðslu blaðs- ins fyrir 25. þ.m. merkt: „Kjörbúð — 4407“. Dömur Hinar margeftirspurðu ANGORAHÚFUR komnar aftur. Einnig ANGORAHANZKAR Fyrir börn: Fallegar og góða KULDAHÚFUR Hjá Báru Austurstræti 14. HÖFUM OPNAÐ tannlækningastofu að Þingholtsstræti 11 (áður Pálmi Möller tannl. Viðtalstími: kl. 10—12 og 14—21. laugardaga kl. 10—12 og 14—18. Sími: 10699. Guðmundur Ámason Þorgrímur Jónsson tannlæknir tannlæknir Tvœr 3/o herb. íbúðir á sömu hæð (gæti verið 2ja og 3ja herb.) í stein- húsi við Nesveg til sölu. íbúðirnar eru báðar ný standsettar og líta vel út og eru lausar til íbúðar nú þegar. Sér hitastillir fyrir hvora íbúð. Útb. ca. kr. 150 þús. í hvorri íbúð eða eftir samkomulagi. Nýja Fasleignasalan Bankastræti 7. Sími 24300 og kl. 7,30—8,30 e.h. Sími 18546 Ég kraup við steininn og tók myndir. -A hreindýraveiðum Frh. af bls. 3. menn höfðu skilið eftir fyrir fá- einum dögum og ætluðum að at- huga þær, en þær voru allar horfnar. Höfðu refir og hrafnar gengið svo rækilega frá þeim að ekki sást tangur né tetur eftir. Höfðu refimir klárað vambirnar og hrfanarnir hreinsað gorið. Hrafnar sveimuðu yfir blóðvell- inum, því enn voru lappir óhirt- ar af einu dýri. Þar sem engar vambir var að fá urðum við nú að leita lifandi dýra. Við höfðum nokkra viðdvöl þarna meðan við vorum að skyggnast um og beina sjónauk- anum á hverja hæð og laut, skoðandi hvern stein og poll, sem villt gat sýn. Hreindýrin heyra betur en þau sjá. Þvínæst héldum við aftur vest- ur að Hölkná og ókum suður með henniístefnu á Nálhúsahnúkaallt upp að Sauðafelli. Skammt þar frá, sem Laugará á upptök sín, er flóasund milli árkvísla. Kom-, um við þar auga á hóp með um 90 hreindýrum. Suðvestanátt var á, og hafði svo verið undanfarna daga. Stóð nú vindur af dýrun- um. Við leyndumst bak við mel- öldu norðan við flóann og hug- uðum að ferðum þeirra. Aðal- hópurinn var í 6—700 m fjarlægð frá okkur. Dýrin voru á beit og á talsverðri hreyfingu. Mest var þarna um kýr og kálfa, en þó þótt ist ég sjá þar nokkra tarfa. Við skoðuðum dýrin um stund og reyndum að finna færa leið til að nálgast þau. En þau voru þarna á flatneskjuflóa og ekkert bar á milli nema melraninn, sem við stóðum undir. Færið var það langt, að ekki var veruleg hætta á því, að við sæjumst, samt fór- um við hljóðlega, því að hrein- dýr heyra betur en þau sjá og einkum er þefskynjun þeirra afar næm. Það var því ógjörningur að komast í urðina suðvestur af fló- anum, og áttum við ekki annars kosta að skríða upp á melölduna, híma þar í skjóli nokkurra stórra steina og bíða þess að dýrin kæmu í færi. Þess var heldur ekki langt að bíða. Féll í sporum sínum. Nokkur dýr tóku sig út úr aðal hópnum og lölluðu norður fló- ann, niður nesið milli kvíslanna og voru þar á beit. Sum fóru að ánni og drukku og óðu þvínæst yfir hana í flesjurnar gegnt okk- ur. Þau nálgðust meir og meir Ég kraup við steininn og tók myndir. Aðalsteinn kraup við annan stein og miðaði rifflinum. Dýrin héldu enn niður með ánni og voru komin í slakkann á eyr- arnar, sem lágu beint undan sand öldunni, sem við leyndumst á. Þá var Aðalsteinn orðinn óþolin- móður að bíða eftir myndatök- unni og sagðist mundu skjóta. Skotið hvein og dýrið, sem fremst hafði gengið féll í sporum sínum á eyrina. Ég sleppti myndavél- inni og greip riffilinn, miðaði á dýrin, sem hlupu óttaslegin fram og aftur um slakkann og kom skoti á eitt þeirra áður en þau lögðu á flótta yfir flóann til hinna dýranna. Þar hnöppuðu þau sig saman, skimuðu í kringum sig til þess að átta sig á því, hvað rofið hafði fjallakyrrðina. Síð- an héldu þau á brokki suður fló- ann og voru komin úr færi áður en varði. Athuganir og mælingar. Við héldum nú að skrokkunum og mynduðum þá, skárum síðan og tókum innan úr þeim. Þá hófum við mælingar á einstökum líkamshlutum, tókum sýnishorn af gorinu og settum sum innýfli í formalin til síðari rannsóknar. Þá mældum við og vógum upp- skeru mismunandi gróðurlendis, en héldum loks, sem leið liggur niður af heiðunum að Vaðbrekku. Þegar þangað kom, tókum við Stefán Aðalsteinsson til að flá dýrin, mældum vöðva þeirra og vógum kjötið. Hafði fengur okkar verið heldur rýr, ef meta skal eftir fallþunga dýranna og horna stærð að hætti veiðimanna, því fallið höfðu tvær kýr og önnur æði gömul. Um hætti hreindýranna. Á sumrin halda hreindýrin að mestu leyti til á svonefndum Ve^turöræfum og í Kringilsár- rana norðan undir Vatnajökli. Kýrnar bera upp úr miðjum maí og eru þá í smáhópum með kálfa sína. Tarfarnir halda sig annars staðar, einkum austur á Múlaaf- rétt. Kálfarnir eru mög bráðþroska og komast sumar kvígurnar í gagnið strax á fyrsta hausti. Seinnihluta sumars fara dýrin að safnast saman í stærri hjarðir. Um fengitímann, sem er í októ- ber, eru hörð átök milli tarfanna, og berjast þeir harkalega um kýrnar. Endar sú viðureign ekki ósjaldan með því að einum tarf- inum tekst að ganga að and- stæðingunum dauðum, rífa þá á hol með hornunum eða flæma þá burtu úr hjörðinni. Sigurveg- arinn hópar kúm sínum saman og skipta þær oft fleiri tugum. Veitist honum þá oft torvelt að gæta þeirra fyrir áleitni annarra keppinauta í ástum. Krafsa tveggja feta harðfenni. Eftir fengitímann fella tarf- arnir hornin, og er því rangt, sem margir ætla, að stórir tarfar gangi fyrir hópnum á vetrum og berji snjó ofan af með horn- unum. Aftur á móti eru þeir ulir að krafsa snjó með fram- fótum. Er talið að hreindýr getl krafsað tveggja feta harðfenni til þess að ná til beitar. Þegar snjó- ar leggjast að, halda dýrin út á heiðarnar og í harðindavetruœ leita þau allt fram til byggða. Seinni hluta vetrar renna kýrn ar suður á öræfin, til þess aS bera, en tarfarnir verða viðskila og lalla á eftir. Á útmánuðum fer geldpening- ur að fella hornin, en kýrnar ekki fyrr en nokkrum dögum eftir burð. Hornin taka fljótlega a8 vaxa að nýju, verða svampkennd, blóðmikil og loðin og fjölgar nú um eina grein frá fyrra ári. Greinaföldinn er þó ekki öruggt merki um aldur dýra, því elli og vanþrif raska tölunni. Loðnan fellur af hornunum við þroskann og ryðja þau sig seinni hluta sumars. Verða þau þá hörð og gljáandi. Veiðibráðir menn stukku á bak hreindýrum. Þegar dýr flæktust til byggða, var oft áður fyrr uppi fótur og fit til þess að ráða niðurlögum þeirra. Voru þau hundelt, pekin fram af björgum og skorin eða skotin. Ýmsir lentu þá í návígi við tarfa, sem veittu atlögu, þeg- ar á þá var ráðist, og þóttust menn góðir að sleppa lifandi úr þeirri viðureign. Stundum henti það, að veiðibráðir menn hugð- ust klófesta særð eða jafnvel bráð kvik dýr, en klemmdust fastir í hornum þeirra og urðu að þeysast nauðugir á baki þeirra um holt og hæðir. Mun fæsta hafa fýst að hleypa þeim reiðskjót- um oftar en einu sinni, og hafa lofað sirm sæla að sleppa af baki, áður en dýrin æddu fyr- ir björg eða steyptust í jökul- fljótin. Eftirminnilegt ævintýri. Nú eru hreindýraskyttur betri vopnum búnar, enda leyfir eftir- litsmaður aðeins ákveðna stærð af rifflum og skotum við veið- arnar. En hvort sem menn halda á byssu, sjónauka eða myndavél, er jafn unaðslegt að ferðast um öræfin, þegar íslenzk náttúra skartar sínu fegursta. Og slík ferðalög verða að eftirminnilegu ævintýri hverjum þeim, sem hlotnast það að líta ýturvaxinn hreindýrstarf speglast í tæru fjaliavatni eða marggreinda hornakórónu bera við himin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.