Morgunblaðið - 18.10.1959, Side 23

Morgunblaðið - 18.10.1959, Side 23
Sunnudagur 18. okt. 1959 MORGVNBLAÐIÐ 23 IMeyðaróp FYRIR skömmu fóru 84 nem- endur í Trenton State College í Bandaríkjunum, ásamt kenn ara sínum, prófessor Ernest Sixta, til New York til þess að horfa á hið kunna leikrit Archibald MacLeish, „JB“ sem byggt er á sögu Biblíunn ar um Job. — Þetta annars ánaegjulega ferðalag endaði með hörmulegum hætti. Skólafólkið var á heimleið í tveim langferðavögnum síðla kvölds. Myrkur var á og þokusuddi í lofti. Framljós bif reiðanna dönsuðu á rennvotri akbrautinni og áttu drauga- legan leik við dökka skugga þokumettaðs loftsins. — 1 seinni vagninum voru 39 nem endur, ásamt prófessor Sixta og konu hans. Inni var hlýtt og notalegt. Sumir voru hálf- sofandi, en cðrir röbbuðu sam an um leiksýninguna eða raul uðu nýjustu dægurlögin. Rétt á eftir vagninum ók Roscoe nokkur Poe á olíubíl sínum, þ. e. a. s. stórum „trukk“ með olíugeyma á aft- anívagni. Poe þessi á „brog- aða“ sögu sem bifreiðastjóri __hefur iðulega hlotið sektir fyrir ógætilegan akstur og tvisvar eða þrisvar valdið slysum — minni háttar þó. í»rátt fyrir það var hann hér enn á ferð á þungum bíl — með lélega hemla. inn. Við áreksturinn sprungu olíugeýmarnir, olían skvettist á heita vél langferðavagnsins, og elduh gaus upp — logarnir stóðu brátt hátt í loft upp. — inum reyndi að róa nemendur sína. — Róleg, reynið að vera róleg, hrópaði hann. — Bíl stjórinn, Carmen Nini, reif opnar dyrnar að framan og tókst að bjarga allmörgum nemendum þar út. Síðan brauzt hann aftur í brennandi vagninn, tókst að opna neyðar útgangana og koma nokkrum þar út — en skyndilega varð mikil sprenging.... Eftir áreksturinn — bílarnir standa í björtu báli. Slysvald- urinn, Roscoe Poe, situr fastur með annan fótinn í logandi bíl sínum .... Eftir andartak stóðu báðar bifreiðirnar í ljósum loga. — Og brennandi olían rann eins og eldfljót eftir akveginum. Við áreksturinn köstuðust farþegarnir fram í vagninn, og þegar eldurinn gaus upp Slysvaldurinn, Roscoe Poe, var fastrr með annan fótinn í brennandi bíl sínum. Þegar björgunarmenn komu á vett- vang, hrópaði hann: „Látið mig ekki deyja svona! Guði sé í náttmyrkri Farþegavagninn á undan honum kom að krossgötum og stanzaði við rautt umferðar- ljós. En Roscoe Poe stöðvaði ekki hinn þunga „trukk“ — hann rakst með miklum þunga aftan á farþegavagn- greip um sig skelfingaræði meðal unga fólksins, og það reyndi að ryðjast út. — Níst- andi angistaróp bárust út í myrka nóttina. — Prófessor Sixta, sem sat aftast í vagn- lof, að þið eruð komnir.... Hann var fluttur í sjúkrahús, ásamt fjórum nemendum, sem voru skaðbrenndir. — Níu nemendur og kennari þeirra prófessor Sixta, biðu bana. Ógnaröld í París PARlS, 17. okt. Reuter: — Ógn- aröld virðist nú vera að hefjast í Frakklandi. Henni veldur leyni hreyfing hægrimanna og land- nema í Alsír, sem hótar að myrða tilgreinda tölu franskra stjórn- málamanna og blaðamanna, sem Enska knattspyrnan ÞRETTÁNDA umferð ensku deilrakeppninnar fór fram í gær og urðu úrslit leikjanna þessi: 1. deild: Arsenal — Preston 0:3 Blackburn — Burnley 3:2 Blackpoal — Leeds 3:3 Bolton — W.B.A. 0:0 Everton — West Ham 0:1 Fulham — Newcastle 4:3 Luton — Chelsea 1:2 Manchester City — Leichester 3:2 N. Forest — Birmingham 0:2 Sheffield W. — Tottenham 2:1 Wolverhampton — Manch. U. 3:2 2. deild Aston Villa — Middlesborough 1:0 Brighton — Charlton 1:1 Bristol Rovers — Scunthorpe 1:1 Huddersfield — Cardiff 0:1 Ipswich — Rotherham 2:3 Leyton Orient — Hull 3:1 Lincoln — Sheffield U. 2:0 Portsmouth — Plymouth 1:0 Stoke — Liverpool 1:1 Sunderland — Derby 3:1 Landsleikurinn milli Wales og Englands er fram fór í gær í Car- diff endaði með jafntefli, 1:1. — Leikurinn var frekar lélegur og er reiknað með að nokkrar breyt- ingar verði gerðar á enska liðinu, sem leika á við Svíþjóð um næstu mánaðamót. 1. deild (efstu og neðstu liðin) Tottenham 13 6 6 1 32:15 18 Wolverhampton 13 8 2 3 40:25 18 West. Ham. 13 6 5 2 26:18 17 Blackburn 13 7 2 4 26:20 16 Manchester City 13 8 0 5 31:25 16 Birmingham 13 3 4 6 18:21 10 Everton 13 3 4 6 18:23 10 Leichester 13 3 4 6 21:32 10 Leeds 13 3 4 6 20:31 10 Luton 13 2 3 8 11:23 7 2. deild (efstu og neðstu liðin) Aston Villa 14 9 4 1 24:11 22 Cardiff 13 8 4 1 27:16 20 Rotherham 13 6 5 2 25:19 17 Middles borough 13 6 4 3 30:15 16 Charlton 13 s 6 2 33:25 16 Plymouth 13 3 3 7 21:32 9 Bristol City 12 3 1 8 17:28 7 Portsmouth 13 2 2 9 14:28 6 HuU 13 2 2 9 11:36 6 Enginn póstur SIGGEIR Björnsson, bóndi í Holti í Vestur-Skaftafells- sýslu, hringdi í blaðið í gær- kvöldi og skýrði frá því, að enginn póstur hefði borizt austur á Síðu það sem af er þessum mánuði. Ekki kvaðst hann geta gefið neina skýr- ingu á þessu, en sagði, að menn þar austur frá væru orðnir þreyttir á póstleys- inu. — IVfirmkandi afli I HINIJ brezka fiskveiðiviku- blaði The Fishing News, er ný- lega skýrt frá minnkandi afla- brögðum brezkra togara hér við land. Gerir blaðið samanburð á íslands-miða-aflanum á tímabil- inu 1. jan til ágústloka á árun- um 1958. Fyrra árið varð aflinn alls 571.331 vætt, en á þessu sjö- mánaða tímabili í ár er aflinn 448.068. Er um 21,05% minni afla að ræða í ár. Ekki liggur minkandi afli tog- aranna í því að Bretar hafi fækk- að togurum sínum hér við land. Pétur Sigurðsson yfirmaður land helgisgæzlunnar sagði Mbl. í gær að fleiri brezkir togarar hefðu verið hér við land nú í ár, en í fyrra. Daglega yfir vrdalssand Mý: KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 17. okt: — Samgöngur eru nú dag- lega yfir Mýrdalssand, en ekki er hann fær nema stórum bílum með fjögurrahjóla drifi. Er nú lokið að flytja sláturfé úr Skaft- artungu, til Víkur og hafnir eru aftur flutningar á sláturafurð- um héðan til Reykjavíkur. Ekki þurfti að hætta slátrun hér á Klaustri nema einn dag, vegna samgöngutruflana. — G.B. Kvikmynd um Kofoed-skólann í DAG kl. 1.30 verður athyglis- verð kvikmynd um fangahjálp sýnd í Tjarnarbíói. Kvikmynd in fjallar um Kofoed-skólann danska, víðfræga hjálparstofn- un, sem aðstoðar fólk á glapstig- um. Er það markmið skólans að endurvekja traust mannsins á sjálfan sig og efla sjálfsbjargar- viðleitni hans. Stofnandi skólans var Hans Christian Kofoed, sérstæður per- sónuleiki og frábær fyrirlesari, sem tók ungur þá ákvörðun að helga líf sitt þeim meðbræðrum sem verst eru á vegi staddir. Kvikmyndin er sýnd í sam- bandi við stofnun samtaka um fangahjálp. Er aðgangur að sýn- ingunni öllum heimill. Leiðrétting í GREIN um kornrækt á Egils- stöðum, sem birtist í blaðinu í fyrradag varð sú prentvilla, að þar stóð, að bændur landsins væru hátt á annað þúsund, en átti auðvitað að standa hátt á sjöunda þúsund. Leiðréttist þetta hér með. — Utan úr heimi Framh. af bls. 12. irspurnin hefir aukizt gífur- lega, má geta þess, að á fjár- hagsárinu 1959 (sem lauk um sl. mánaðamót) seldust 351.317 bílar af hinum ýmsu Rambler-gerðum — en það er hvorki meira né minna en 128% meira en næsta ár á undan, en þá seldi fyrirtækið 154.372 bifreiðir. — Enn meiri varð aukningin, ef miðað er við septembermánuð einan. í sept. í fyrra seldust 8.227 Rambler-bílar, en nú 21,693, eða 164% meira. Ýmsir telja, að nú muni sigurgöngu AMC lokið, er „hinir þrír stóru“ hafa byrjað framleiðslu smærri bíla einn- ig. Aðrir hafa tröllatrú á George Romney — segja, að hann muni áreiðanlega halda velli, eins og honum tókst að rétta fyrirtæki sitt við á erfið- um tímum. Reynslan ein sker úr því. hafa fylgt frjálslyndri stefnu 1 Alsír-málinu. í fyrrinótt var gerð tilraun til að myrða öldungardeildarþing- manninn Mitterand, en hann komst undan við illan leik. En í dag bárust fjölda stjórnmála- manna og blaðamanna nafnlaus bréf með hótunum og enn aðrir fengu símahringingu, þar sem sömu hótanir voru settar fram. Til dæmis skýrir þingmaður- inn Charles Henru frá því að til hans hafi verið hringt í morgun og ókunnur maður sagði £ sím- ann: — Við misstum Mitterand, en við gómum þig á næstu tveim ur sólarhringum. I einu hótanabréfinu er sagt að samtök landnema í Alsír hafi ákveðið að myrða fjóra stjórn- málamenn og fjóra blaðamenn. sem hlynntir eru málstað Serkja. Lögreglan í París hefur ákveð- ið að veita þeim sem taldir eru í mestri hættu lögreglufylgd. Þeirra á meðal er Mendés-France fyrrum forsætisráðherra. sem ætíð hefur verið hlynntur samn- ingum við Serki. Hinsvegar neitar innanriki*- ráðuneytið því að öryggisráðstaf anir vegna de Gaulles forseta hafi verið auknar. Gólfslípunin Barmahlið 33. — Sími 136OT AELT 1 RAFKERFIÐ Bílaraftækjaverzlun Halldórs Ólatssonar Rauðarárstíg 20. — Simi 14771. Hjartans þökk til allra nær og fjær, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 70 áýa afmæli mínu. Guð blessi ykkur öll. Matthildur Gunnarsdótir, Rauðalæk 49, Reykjavík. Eiginmaður minn JÓHANN B. HJÖRLEIFSSON yfirverkstjóri lézt á Bæjarspitalanum í Reykjavík hinn 1T. þ.m. Sveinbjörg Kristinsdóttlr Eiginmaður mlnn, faðir og tengdafaðir DANlEL JÓN TÓMASSON frá Kollsá, Tómasarhaga 9, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mápud. 19. þ.m. kl. 1,30. Athöfninni verður útvarpað. Herdís Einarsdóttir, börn og tengdabðra. Eiginmaður minn og faðir okkar JÓN KRISTGEIRSSON kennari, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 20. þ.m. kl. 1,30 e.h. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Menningarsjóð kennara, (minningarspjöld fást hjá skólastjóra Melaskólans) eða Krabbameinsfélagið. Athöfninni verður útvarpað. Kristín Tómasdóttir Guðný Jónsdóttir, Ágúst Þór Jónsson. Alúðar þakkir til allra fjær og nær, sem auðsýndu vináttu og samúð við andiát og jarðarför okkar elsku- legu móður, fósturmóður, tengdamóður og ömmu VALGERÐAR INGIBJARGAR JÓHANNESDÓTTUR .. frá Bíldudal. F.h. vandamanna. Margrét Finnbogadóttir og Ragnar Jóhannsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.