Morgunblaðið - 18.10.1959, Síða 24

Morgunblaðið - 18.10.1959, Síða 24
230. tbl. — Sunnudagur 18. október 1959 Stoða þjóðar- búsins stórlega Uvað heíur svo skyndilega rofið fjallakyrrðina? — Sjá grein um hreindýr á blaðsíðu 3. ----- (Ljósm.: Sturla Friðriksson) D-listinn heldur almennan kjós endafund í Hafnarfirði, mánu- dagskvöldið 19. okt. kl. 8,30. — Ræðumenn verða Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, Matthías Á. Matthiesen, þingmað ur Hafnfirðinga, Alfreð Gíslason, bæjarfógeti, Sveinn Einarsson, verkfræðingur og séra Bjami Hafnfirðingar Sigurðsson á Mosfelli. — Fundar- stjóri verður Stefán Jónsson, form. fulltrúaráðs Sjálfstæðisfé- .aganna í Hafnarfirði. — Hljóm- sveit leikur í fundarbyrjun. Hafnfirðingar eru hvattir til að fjölmenna á kjósendafund D-list- ans. — Togarar skipta um nafn TVEIR belgiskir togarar, sem komið hafa við sögu í sambandi við landhelgisbrot, báðir fyrir daga 12-mílna fiskveiðitakmark- anna, hafa skipt um nafn. Þeir hafa verið hér við land undan- farið. Heitir nú sá sem áður hét Van Eyck, North Holme. Hinn togarinn hét áður Van Oost en hefur nú hlotið nafnið North Cape. Frá fundinum í stjórnarnefnd hafnarverkamanna í Grimsby 13. október, þar sem samþykkt var einróma að lýsa löndunarbannið ólöglegt. S. W. Mills, sem mest reyndi að hamla gegn banninu er þriðji maður frá vinstri. botnað t TÍMINN heldur enn áfram i ) að birta villandi tölur um > $ gjaldeyrisstöðuna, í bví ( S skyni að telja mönnum trú i 5 um að ástandið í efnahags- ) t málunum sé miklu verra en < ( undir „fyrirmyndarstjórn“ s ) þeirra Hermanns og Luð- ) ? víks. Þessar staðhæfingar \ ( Tímans eru fullkomlega s S hraktar í fréttatilkynningu ) • um gjaldeyrisstöðuna, sem } ( Landsbanki sendi Mbl. í gær s S og birt er á bls. 14. i | í fréttatilkynningu Lands- • ^ bankans er birt leiðrétt ( s gjaldeyrisstaða bankanna s ) þar sem tekið hefur verið til ■ ^ lit til ýmissa atriða, sem ( S gera samanburð milli ára, S ) óverulegan, en á nokkur ) | þessara atriða var bent hér ^ S í Mbl. í gærdag. s ) Samkvæmt þessum tölum ) | bankans var gjaldeyrisstað • ^ S an mínus 77 milljónir í sept. s S sl. á móti mínus 61 millj. í ) | sept. 1058. Þetta er rýrnun • S um aðeins 16 milljónir, á s S móti 140 milljón króna rýrn S | un sem Tíminn vill leggja • ^ til grundvallar. Við þetta ( S bætist svo að birgðir af út- S } flutningsafurðum eru nú 03 • ^ millj. króna meiri en á sama ( S sima í fyrra. Hefur því raun * veruleg staða þjóðarbúsins ( ^ út á við batnað stórlega á s i undanförnum 12 mánuðurn. ) stórmál í Frá Cuxhaven í Þýzkalandi er Mbl. símað, að Harðbakur hafi fengið 97.992 mörk fyrir aflann sem nam 167,2 tonnum. Lætur nærri að það sé aðeins % af því verði sem togarinn hefði fengið í Grimsby. Gekk löndunin vel þar, en verðið var ekki gott, enda segir skipstjórinn, að samsetning aflans, langmest þorskur hafi verið ætluð brezkum markaði. Hvað gerist á mánudag? Umboðsmenn togarans i Grimsby hafa kært þetta mál fyrir hafnarstjórninni, sem ber ábyrgð á því að nægilegt vinnuafl sé fyrir hendi til að afgreiða skip í höfninni og er það á valdi hennar að bcita refsiaðgerðum þegar hafnar- verkamenn bregðast skyldum sínum um affermingu skipa. Á mánudaginn verður einn- ig efnt til sérstaks fundar á vegum Sambands flutninga- verkamanna út af þessum at- burðum og miklar líkur á, að þar verði teknar ákvarðanir sem tryggi það, að slíkt komi ekki fyrir í næsta skipti, þegar íslenzkur togari kemur til hafnar í Grimsby. Tilefni atburðanna Blaðið Grimsby Evening Tele- graph segir, að ástæðan til þessa ólöglega löndunarbanns sé reiði verkamanna aðallega vegna þess, að brezkir togarasjómenn fái ekki læknishjálp í íslenzkum höfnum. Hins vegar getur það komið sér illa fyrir brezkan almenning í vetur, þegar fer að draga úr fisk- flutningum til landsins, ef íslenzk ir togarar verða útilokaðir af markaðnum. Það mundi valda fiskskorti og hækkuðu verði. Ameiíkaninn vill það ekki! EGII.L Thorarensen skrifar grein í Tímann um „stór • veldið“ á Selfossi og mjólk- urmálin. Hann segir m. a„ að húsmæður í Reykjavík fái ekki heimsenda mjólk af því að ónafngreindur Amerí kani vilji það ekki! — Frá þessu hneykslismáli er nán- ar sagt á síðu 15. Einnig er nokkuð um það rætt í Reykjavíkurbréfi. Löndunarbannið Mills og Kemp báðir ræður, þar sem þeir skoruðu á verkamenn- ina að vinna sitt verk við íslenzka Grimsby Verður Islendingum tryggt á fundi á mánudag að slikt endurtaki sig ekki ? MBL. hefur nú fengið nánari fregnir frá fréttaritara sínum í Grimsby af atburðununi, þegar hafnarverkamenn þar í bæ neituðu að afferma ís- lenzka togarann Harðbak. Er litið á þetta sem stórmál þar í borg og standa miklar deilur um það. Það var hópur hafn- arverkamanna, sem tók það upp hjá sjálfum sér að neita að vinna. Verkalýðsfélagið, sem þeir eru í átti engan þátt i að skipuleggja bannið og Iýsti það því yfir síðar um daginn, að það væri algerlega mótfallið banni á íslenzka togara og harmaði að þetta skyldi hafa komið fyrir. Togarinn Harðbakur átti að koma til Grimsby snemma á mið- vikuvikudagsmorguninn 14. októ- ber. Á þriðjudagsmorgun var hafnarverkamönnum sagt fyrir, hvað þeir skyldu vinna næsta dag og var hópi þeirra tilkynnt, að þeir ættu þá að afferma íslenzkan togara. Tóku verkamennirnir þeim fyrirmælum mótmælalaust. En upp úr því munu þeir hafa farið að tala sín á milli um málið og kom upp hreyfing meðal þeirra um að neita að afgreiða íslenzkt skip. Framkvæmdastjóra félagsdeildar þeirra S. W. Mills var gert aðvart um það að verka- mennirnir ætluðu að neita að af- greiða skipið. Kom hann og vara- formaður félgasdeildar þeirra, Alfred Kemp, þegar í stað niður að höfninni. Verkamennirnir voru þá að afferma aðra togara, en hættu því og var þegar í stað skotið á skyndifundi. Fluttu þeir, skipið þegar það kæmi. Þeir minntu verkamennina á það, að félag hafnarverkamanna í Grims- by hefði samþykkt ályktun þess efnis, að íslenzk skip skyldu af- greidd, það væri stefna félagsins að gera ekki upp á milli skipa undir hvaða þjóðarfána sem þau sigldu. Forsprakkar löndunarbannsins héldu enn fast við ákvörðun sína og var þá látin fara fram atkvæðagreiðsla með þeim hætti að þeir hafnar- verkamenn sem vildu vinna gengu til einnar hliðar, en þeir sem vildu það ekki gengu til annarrar hliðar. Fór þetta fram á löndunarbryggjunni við höfnina. Af 400 verkamönnum, sem voru á fundinum var yfir- gnæfandi meirihluti gegn því að afgreiða íslenzka togarann. Þess •ber að geta að fæstum þeim sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni hafði verið skipað að annast af- fermingu íslenzka togarans. Þegar atkvæðagreiðslan hafði farið fram, lýsti S. W. Mills því yfir að þessar aðgerðir verka- mannanna væru ólöglegar og and stæðar stefnu verkalýðsfélagsins og tæki stjórn félagsins algerlega andstöðu gegn löndunarbanni. Stjórn félagsins kærði málið síðan fyrir Peter Henderson yfir- manni fiskideildar Sambands flutningaverkamanna. Strax þegar þetta varð kunn- ugt gáfu umbeðsmenn togarans honum fyrirmæli um að sigla til Þýzkalands. Síðar um daginn var haldinn fundur í stjórn félags hafnar- verkamanna í Grimsby, þar sem því var lýst yfir að hér væri um ólöglegt verkfall að ræða. Var yfirlýsing sú birt í frétt í Mbl. þann 14. okt. Yfirlýsingin var undirirrituð af Kemp varaformanni félagsins og George Freer ritara, en hún var var samþykkt einróma af stjónar nefndinni. Morguninn 14. október, þegar Harðbakur átti að landa afla sin- um í Grimsby var verð á þorski á markaðnum þar í borg um 5 sterlingspund fyrir kit. Skipið var með um 2650 kit, mest megnis þorsk og hefði því fengið yfir 13 þúsund sterlingspund, sem hefði verið góð sala.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.