Morgunblaðið - 12.12.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.12.1959, Blaðsíða 11
Laugardagur 12. des. 1959 MORCllTSTtLAÐlÐ 11 sem Seltjarnarnesið yrði full- byggt utan flugvallarsvæðisins. Ekki sízt vegna þess, að land- svæði vantaði fyrir viðskipta- hverfi. Og ef slíkt hverfi á að vera í hagkvæmum tengslum við núverandi „miðbæ“ kemur flug- vallarsvæðið eitt til greina. Á einn hátt er þó hægt að gera sér nokkra grein fyrir verðmæti landsins, sem flugvöllurinn gerir nú óbyggilegt. Út við Skerjafjörð hafa að undanförnu verið seldar lóðir undir einlyft hús og hefur hver ferm. kostað allt að 150 kr.; þó þarf að krækja fyrir flug- völlinn til að komast að þeim. Nú er flugvallarstæðið í heild rúmir 300 ha. Sú hugmynd mun hafa komið fram, að þriðjungur af þessu svæði færi undir verzl- unarhús, hótel, opinberar bygg- ingar og þess háttar, annar þriðj- ungur færi undir allhá íbúðarhús og hinn þriðji færi undir götur og opin svæði. Nú mætti hugsa sér að þarna yrðu lagðar götur. og rétturinn til að byggja á hinum ýmsu lóðum yrði síðan boðinn upp smám sam- an á 10—20 árum og „seldur“ hæstbjóðanda (gjarnan mætti strax fara að nota þessa aðferð við úthlutun eftirsóttustu lóða, en taka ákveðið gjald á ferm. fyrir hinar og nota síðan peningana, sem inn kæmu, til að gera stór- átak við malbikun gatna). Hver myndi ekki vilja eiga 163 arréttindi á svo ágætum stað, sem ætti að byggj- ast á þennan hátt? Erfitt er að gera sér í hugarlund, hvert meðalverðið yrði, en það sýnist engin fjarstæða að láta sér detta í hug 1000 kr. á ferm., miðað við núverandi verðgildi peninga, þegar haft er í huga að hver ferm. í lóðum í miðbænum mun nú , seldur á 5—7 þúsund kr. Eitt J þúsund kr. á ferm. og 200 ha. þ.e. 2 millj. ferm., gera svo mikið sem tvö þúsund milljónir króna. Auðvitað þarf að taka tillit til mikilla vaxta, þar sem féð kæmi inn á löngum tíma, og áður en nokkuð kæmi inn þyrfti að sjá flugfélögunum fyrir heppilegu athafnasvæði — reyndar aðeins fyrir innanlandsflugið, eins og síðar mun að vikið. Og um þessa útreikninga má auðvitað bolla- leggja fram og aftur, en þeir ættu þó að benda til þess, að það væri engin fjarstæða að byggja nýjan flugvöll, jafnvel fyrir 300— 400 milljónir til þess að losa nú- verandi flugvallarsvæði. Hitt er ' svo annað mál, hvort nokkur á- stæða er til að eyða svo miklu fé, en fá svæðið samt til umráða eftir til dæmis einn áratug. Tvenns konar þróun Segja má, að þróunin í flugmál- unum stefni í tvær mismunandi áttir. Aannars vegar stækka millilandaflugvélarnar stöðugt og þarfnast æ lengri flugbrauta, en hins vegar er víða verið að gera tilraunir með flugvélar, sem ann- að hvort þarfnast nær engra, eða mjög stuttra flugbrauta, og mun það álit sumra sérfræðinga, að slíkar flugvélar verði alls ráð- andi á hinum styttri flugleiðum áður en mjög langt um líður. Með tilliti til þessa sýnist lítið vit í að fara að byggja hér flug- völl með 2 km löngum brautum. Slíkur flugvöllur gæti orðið milli landafluginu ófullnægjandi áður en hann yrði fullbúinn. Það virð- ist því sjálfsagt að flytja að- setur millilandsflugsins til Kefla víkur, strax og þangað hefur ver- ið lagður steyptur vegur. En fyrr er það vissulega ekki hægt. Og jafnvel án tillits til allra flugmála er bráðnauðsynlegt að þessi langfjölfarnasti vegur lands ins verði lagaður sem fyrst. Inn- lend sementsframleiðsla gefur vonir um, að unnt verði að gera það innan fárra ára. í>á yrði að- eins 30—40 mín. akstur frá Reykjavík til Keflavíkur, og væri þá engin frágangssök fyrir starfs menn millilandaflugsins að vinna í Keflavík og búa í Reykjavík, ef þeir kærðu sig um. Enda verða menn að muna, að því fylgja ekki tómir kostir að búa í þéttbýli og þeir sem það gera geta ekki haft allt við hendina. Því má bæta við, að margir flugmenn munu sízt andsnúnir þessari hugmynd um lausn vandamála millilanda- flugsins. Eðlileg lausn eftir nokkur ár Vegna innanlandsflugsins þarf eðlilega að hafa athafnasvæði í Reykjavík eða næsta nágrenni. Þar sem síðar verða væntanlega notaðar flugvélar, er munu lenda og hefja sig til flugs lóðrétt, gæti verið mjög athugandi að skilja eftir allrúmgott athafnasvæði fyr ir þær á núverandi Reykjavíkur- flugvelli; til dæmis suður vf flug skýli Loftleiða. Þetta mynfli geta átt sinn þátt í að gera liverfið þarna eitt nýtízkulegasta við- skiptahverfi er um gæti. En þar að auki þyrfti sjálfsagt einhvern lítinn flugvöll fyrir einkaflugvélar og ýmsar aðrar smærri vélar og þyrfti að finna honum stað, sem allra fyrst og láta „taka landið frá“, ef svo mætti segja. Það að nota milli- landaflugvélarnar til innanlands- flugs, eins og Flugfélag íslands gerir stundum, hlýtur að vera stundarfyrirbrigði, þegar yfir lengri tíma er litið Niðurstaðan er því sú, að nota skuli núverandi Reykjavíkurflug- völl áfram um árabil, án þess að kosta upp á breytingar á honum, MIKIÐ fæst alltaf í búðum hér af svokölluðum „litabókum“ — þ. e. myndabókum, sem börnum er ætlað að lita í. Er þetta góð „Grettir gekk þegar í einstigið, og þegar dýrið sá manninn, hljóp það upp með grimmd mikilli og í móti Gretti“ — Ein af teikning- unum í „Gretti sterka“ æfing fyrir unga hugi og hendur, enda una börn sér yfirleitt mjög vel við slíka iðju. — Og nú er en síðar mun hægt að leysa þessi mál á tiltölulega auðveldan hátt. Skipulag stórborgarinnar Þegar talað er um framtíðar- skipulag Reykjavíkur er það mik- il skammsýni að hugsa aðeins um Seltjarnarnes. Eins og öllum má ljóst vera, er að myndast sam- felld byggð frá Grafarvogi að Hvaleyri (sjá meðfylgjandi teikn- ingu). Álftanesið er einn heppileg asti staðurinn á þessu svæði fyr- ir íbúðarhverfi og m.a. af þeim ástæðum, má ekki taka helming- inn af nesinu undir flugvöll. Þegar íbúarnir á Álftanesi væru orðnir 20—30 þúsund mætti vel hugsa sér, að byggð yrði brú yfir Skerjafjörð, frá Eyri að Þor- móðsstöðum, og væri þá komin hin ákjósanlegasta samgönguæð við núverandi flugvallarsvæði, þar sem allar líkur benda til, að í framtíðinni rísi aðalviðskipta- hverfi stórborgarinnar Reykja- vík. Fleiri frumdrætti að þessari væntanlegu miklu byggð þarf að leggja nú þegar og eitt hið mikil- vægasta í því sambandi, er að ákveða nýtt vegarstæði frá aust- urenda Miklubrautar til Hafnar- fjarðar. Yrði þá að miklu leyti komizt hjá hinum slæmu mishæð- um núverandi Hafnarfjarðarveg- ar og leiðin til Keflavíkur yrði enn greiðfærari en ella, flugfar- þegum til útlanda og fjöldamörg- um öðrum til ánægju og þæginda. kominn út ný litabók um íslenzkt efni, sem nefnist „Grettis sterki“ — fjallar um útlagann og hetjuna Gretti Ásmundarson. Halldór Pétursson, listmálari hefir teiknað myndirnar í hefti þetta, og eru þar sýnd ýmis þrek- virki Grettis. svo sem glíman við Glám, bardaginn við björninn o. s. frv. — Stuttur texti fylgir og hverri mynd, og er jafnframt vitnað til viðkomandi kafla og blaðsíðutals í Grettissögu í ís- lendingasagnaútgáfu Guðna Jóns sonar, Reykjavík 1947. Skýringar á fáheyrðum og fornum orðum fylgja innan sviga. — Árni Böð— arsson cand. mag. hefir tekið sam an textana. Bókaútgáfan Hungurvaka gef- ur „Gretti sterka" út. í þessu hefti eru aðeins myndir úr fyrri- hluta sögunnar, en á kápusíðu segir, að gefið muni út annað hefti með myndum úr hinum helmingi hennar og jafnvel fleiri íslendingasögum, ef þess- ari tilraun verði vel tekið. — Straujárn Gufu-straujárn Hraðsuðukatlar Vöflujárn Ryksugur Hrærivélar Strauvélar Helgi IVfagnússon & Co. Hafnarstræti 19. Símar 13184 og 17227. Atvinna Kvenfólk og karlmenn .vantar til starfa í frystihúsi voru á komandi vertíð. Fæði og húsnæði á vinnu- stað. Hafið samband við verkstjórann, Björgvin Pádsson, sími 634. Fiskiðjan hf. Vestmannaeyjum. „Grettir sterki" ný litabók fyrir börn JOSS og ESTRELLA MANCHETTSKYRTUR hvítar — mislitar — röndóttar Amerískar SPORTSKYRTUR PEYSUR — SKINNHANZKAR margar tegundir SLIFSI NÆRFÖT NÁTTFÖT SOKKAR HERRASLOPPAR Vandað og smekklegt úrval. Gjörið svo vel og skoðið í gluggana. GEYSIR H.F. Fatadeildin. IMýkomið Prinsess ullargarn i öllum litum. — Einnig Baby-gam. Kvensloppar í miklu úrvali Nýjar vörur daglega. AÐVÖRUIM fra Bæjarsíma Reykjavíkur Af gefnu tilefni skal vakin athygli á, að símnot- endum er óheimilt að ráðstafa símum sínum til annara aðila, nema með sérstöku leyfi bæjarsímans. Brot gegn þessu varðar missi símans fyrirvara- laust ,sbr. XI. kafla 7. lið í almennum skilmálum fyrir talsímanotendur landssímans, bls. 304 í síma- skránni. BÆJARSlMI KEYKJAVÍKUR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.