Morgunblaðið - 12.12.1959, Blaðsíða 24
12
dagar
tiI jóla
278. tbl. — Laugardagur 12. desember 1959
Hríngnœtur utrýma
reknetjunum
í TILEFNI af góðum síldarfrétt-
um undanfarið, átti blaðið símtal
við Sturlaug Böðvarsson á Akra-
nesi í gærkvöldi. Kvað hann
veiðina miklu betri núna en áður,
og væri það að þakka þeirri nýj-
ung að farið er að veiða með
hringnót úti á hafi.
Hefði áður þótt ágætt að fá
3—4 þúsund tunnur yfir allt
haustið á reknet, en nú væru t. d.
hringnótabátarnir Keilii og Höfr-
ungur þegar búnir að fá um 40U0
og um 6000, mest á háitum mán-
uði Hringnæturnar ættu senni-
lega eftir að útrýma reknetunum.
Auk þess kæmi til ný tækni, sem
ekki hefði verið til áður. T. d.
væri mikill munur að vinda upp
nótina með spili. Þrír Akranes-
bátar hefðu nú spil til þess, en
hefðu þó ekki allir nægilega
sterkar nætur. Einnig mundi
áreiðanlega í framtíðinni verða
farið að pumpa upp úr nótint.i
í stað þess að háfa. Hefðu þeir
reynt þetta 1956 og gefist vel.
Sem sagt væri að hefjast bylt-
ing á þessu sviði. Margt ætti eftir
að læra og að ári yrði þetta
áreiðanlega strax mun betra.
AKRANESI, 10. des. — 10 rek-
netjabátar lönduðu hér í dag.
Aílahæstir voru Bjarni Jóhann-
esson með 340 tunnur, Ólafur
Magnússon með á að giska 250
tunnur og allt niður í 24 tunnur
á bát. Meiri hlutinn af síldinni
er saltaður. Aðeins annar hring-
nótabátanna kastaði, Keilir, en
náði ekki síldinni af því hún stóð
svo djúpt.
Undanfarna daga hafa 8 triltu-
bátar róið nokkurn veginn stóð-
ugt héðan og stundum fiskað upp
í 300 kg. á bjóð. T. d. hefur ein
trilla, Sæljónið, farið 6 róðra í
röð. Aflahæstu trillurnar þessa
dagana hafa komizt upp í 1500 kg
á bát. en langróið er hjá þeim,
upp í 3 tíma. — Oddur.
Skírnarfonturinn
A VEGNA blaðaskrifa um skírn’
í arfontinn í Dómkirkjunni hef-'
rur sr. Bjarni Jónsson vígslu-(
?biskup, ritað grein sem birt-(
/ ist á 13. sáðu Mbl. í dag. Rek-/
lur hann þar sögu skírnarfonts,
Ains frá því Thorvaldsen sendil
khann til íslands með aðstoð'
f danskra stjórnarvalda og þang(
/að til hann er vígður í(
vReykjavík og Steingrímur/
Sbiskup þakkar fyrir hina höfð^
Ainglegu gjöf. (Sjá bls. 13).
SANDGERÐI, 11. des. — f dag
komu 15 bátar inn til Sandgerðis.
Hæðstur var reknetjabáturmn
Muninn II með 250 tunnur, næst-
ur Víðir II með 183 í hringnót,
þriðji Guðbjöm með 148 tunnur
í reknet.
KEFLAVIK, 11. des. — 21 bátur
komu inn í dag með 2108. Hæstir
voru hringnótabátarnir Vonin
með 557 og Jón Finnsson 108.
Af reknetjabátum voru hæsi’r
Svanurinn með 200 og Ólafar
Magnússon með 148.
Ennþá er ekkert saltað, en fryst
það sem frystihúsin geta tekið
við og annað flutt burtu til sölt-
unar. — Helgi S.
’-’m-
Takmarkanir á umferð
og aukin löggœzla
1 GÆR skýrði lögreglustjóri,
Sigurjón Sigurðsson, fréttamönn
um frá ráðstöfunum þeim sem
lögreglan hefur að venju gert
vegna aukinnar umferðar fyrir
jólin. f desembermánuði er um-
ferðin í bænum alltaf miklum
mun meiri en venjulega, bæði af
bílum og gangandi fólki. Bílar
eru nú 700—800 fleiri en í fyrra,
en á s.l. áramótum voru skráðir
8716 bílar í bænum. Auk þess er
þetta sá tími sem skammdegið er
mest og veðrabrigði tíðust og því
mest hætta af umferðinni.
Þær ráðstafanir sem gerðar
hafa verið eru aðallega takmark
anir á umferð og verulega auk-
in löggæzla. Gilda reglur um
þetta 14.—24. des.
Einstefnuakstur og bannaðar
bifreiðastöður
Takmarkanir á umferð felast í
því að einstefnu-akstur verður í
Pósthússtræti milli Austurstræt-
is og Kirkjustrætis til suðurs. —
Bifreiðastöður verða bannaðar á
eftirtöldum götum: Týsgötu aust
an megin, Skólavörðustíg sunn-
an megin, fyrir ofan Bergstaða-
stræti, Ingólfsstræti austan meg-
m milli Amtmannsstígs og Hall-
veigarstígs, í Naustunum vestan
megin götunnar milli Tryggva-
götu og Geirsgötu, á Vesturgötu
frá Norðurstíg að Ægisgötu, á
Ægisgötu austan megin milli
Vesturgötu og Bárugötu.
f Pósthússtræti vestan megin
götunnar, milli Vallarstrætis og
Kirkjustrætis hafa stundum ver-
ið bannaðar bifreiðastöður fyrir
jólin, en í þetta sinn verður lát-
ið nægja að takmarka bifreiða-
stöður við 30 mín. frá kl. 9—19 á
virkum dögum. Laugardaginn 19.
des. gildir takmörkunin þó til kl.
22 og á Þorláksmessu til kl. 24.
Athygli skal vakin á því að bif-
reiðastöður á Laugavegi norðan
megin götunnar milli Frakka-
stígs og Rauðarárstígs eru tak-
markaðar við 15 mín.
Fjöltefli
Heimdallar
HEIMDALLUR, F.U.S., gengst fyrir fjöltefli í Valhöll við
Suðurgötu á morgun. Fjölteflið hefst kl. 2 e. h.
Friðrik Ólafsson, stórmeistari, teflir að þessu sinni á
vegum félagsins.
Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að taka með sér
töfl og mæta stundvíslega, en þeir munu að sjalfsögðu ganga
fyrir, sem fyrstir mæta.
Undanfarið hefur það létt um-
erðina all-verulega fyrir jólin,
að vörubifreiðir, sem eru yfir 1
smálest að burðarmagni, svo og
fólksbifreiðir, 10 farþega og þar
yfir, aðrar en strætisvagnar,
hafa verið bannaðar á umferðar-
götum. Nú verður umferðin bönn
uð á þessum götum: Laugavegi
frá Höfðatúni í vestur, Banka-
stræti, Austurstræti, Aðalstræti
og Skólavörðustig fyrir neðan
Týsgötu. Ennfremur er öku-
kennsla bönnuð á sömu stöðum.
Bannið gildir 14.—24. des. kl. 13
—18 alla daga nema 19. des til
kl. 22 og 23. des. til kl. 24 og 24.
des. til kl. 14.
Öil bifreiðaumferð er einnig
bönnuð um Austurstræti og Aðal
stræti 19. desember kl. 20—22 og
23. desember kl. 20—24, en þá
eru verzlanir opnar., Einnig er
mælzt til þess að vöruafgreiðsla
Komin á 1100 m.
dýpi á Reykjum
STÓRI borinn var eins og kunn-
ugt er fluttur upp að Reykjum
í Mosfellssveit, eftir að lokið var
borun í Nóatúnsholunni. Nú er,
búið að bora þar 1100 m niður,
en ætlunin er að fara niður á
2000 m dýpt.
Hefur ekkert gerzt ennþá í sam
bandi við borun þessa, að því er
Gunnar Böðvarsson tjáði blaðinu
í gær, enda var borstaðurinn val-
inn með það fyrir augum að forð-
ast vatnsæðar ofan við 1000 m,
í því skyni að trufla ekki vatns-
veitu sem þama er fyrir.
Auk þess sem leitað er eftir
heitu vatni með þessari borun
stóra borsins, hafa þeir sem að
þessu standa ýmislegt annað í
huga í sambandi við almenna
rannsókn svæðisins, eins og t. d.
að mæla hitann á 2000 m dýpi, en
það er mjög mikilvægt.
Utanríkisráðherra
á NATO-íimdi
UTANRÍKISRÁÐHERRA Guð-
mundur f. Guðmundsson er far-
inn utan til að sitja ráðherrafund
Atlantshafsbandalagsins, sem
hefst í París þriðjudaginn 15. þ.
m.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
í verzlanir og geymslur við
Laugaveg, Bankastræti, Skóla-
vörðustíg, Austurstræti og Aðal-
stræti og aðrar miklar umferða-
götur fari fram fyrir hádegi eða
eftir lokunartíma frá 14—24. des.
80 lögregluþjónar í einu
Jafnframt þessum varúðarróð-
stöfunum verður löggæzlan auk-
in í bænum. Venjulega eru 16
varðstöðvar í bænum, en nú verð
ur þeim fjölgað upp í 25—30 og
þegar nær dregur jólum í 40. —
Til þess þarf að auka starfsliði
lögreglunnar og lengja vakta-
tíma. Verða allt upp í 80 lögreglu
menn á vakt í einu, þegar líður
að jólum og fleiri ef þörf kref-
ui.
Undanfarin ár hefur verið lít-
ið um slys og árekstra í jólaum-
ferðinni. Markmið lögreglunnar
er að gera jólamánuðinn slysa-
lausan. Vill hún því brýna það
fyrir gangandi vegfarendum, að
þeir noti gangstéttina og gang-
brautir yfir götur og að þeir fari
eftir ábendingum umferðarlög-
reglu og götuljósa. Ennfremur
ættu menn að forðast að stanza
í kunningjahóp á þröngum gang-
stéttum og gæta þess að börn séu
ekki ein á ferð, þar sem umferð-
in er mest.
Einnig er áríðandi að ökumenn
hlýði umferðarreglunum og geri
sér ljóst að nú er mesta skamm-
degið og veður breytileg. — Geta
má þess að lögreglan hefur nú
lagt mikla vinnu í að koma í veg
fyrir að bílum sé lagt utan við
aðra og tekur stranglega á því.
Þriðji báturinn
rekinn
HÚSAVÍK, 11. des.
NÝLEGA fannst gúmmíbát-
ur á Rifi á Sléttu. Er þetta
þriðji báturinn sem finnst á
þeim slóðum og líklegt þyk-
ir að þessi hafi rekið um
leið og hinir tveir. Þar sem
hann fannst er eyðibýli og
hefur því ekki verið gengið
þar á fjöru lengi. Eftir lýs-
ingu að dæma er hann eins
og hinir bátarnir að gerð.
Mun varðskip sækja hann
og flytja hann suður.
—■ Fréttaritari.
HVAÐ er á seyði — er
kviknað f Miðbæjarskólan-
um? — Það héldu börnin,
þegar brunakall hljómaði
skyndilega um skólann síð-
degis í gær í miðri kennslu-
stund og þeim var sagt að
flýta sér út. — En sem betur
fór var aðeins um brunaæf-
ingu að ræða. — Sjá 3. síðu.
Samið
við síldar
stúlkur
—- nema í Keflavík
NÁÐST hafa samningar við síld-
arsöltunarstúlkur í Vestmanna-
eyjum, Grindavík, Hafnarfirði
og Reykjavík, en viðræður við
síldarstúlkur í Keflavík stóðu
yfir í gær og hafði ekki náðst
samkomulag í gærkvöldi. Var
ekki saltað í Keflavík í gær. —
Samningarnir sem gengið hefur
verið að eru sem hér segir:
Fyrir að hausskera og slógdraga
1) stórsíld, 1—500 greiðist kr.
35,21 pr. tn. 2) millisíld, 500—700
greiðist kr. 40,10 pr. tn. 3) smá-
síld 700—900, kr. 49,88 pr. tn.
Fyrir að rúnnsalta greiðist: 1)
kr. 28,54 fyrir 1—500; 2) fyrir
500—700 kr. 26.40; 3) fyrir 700—
900 kr. 32,37. Skuli þessir samn-
ingar gilda frá 1 .nóv. og fram
yfir yfirstandandi vetrarvertíð.
Mjög mis-
heitt
Mjög er misheitt í nágranna-
löndum okkar og hafinu hér í
kring. Liggja t. d. greinileg hita
skil austur og suður frá suður-
odda Grænlands. 13 stiga frost er
á Labrador og 3ja stiga frost á
vesturströnd Grænlands, en 3ja
stiga hiti í Angmasalik, á aust-
urströndinni í Reykjavík og Lond
on er 5 stiga hiti, en aftur á móti
1 stigs frost í Kaupmannahöfn og
4 stiga frost í Osló. Betur er
hægt að sjá þetta á veðurkortinu
á blaðsíðu 2.
♦------------------♦
VARÐARKAFFI
í Valhöll í dag
kl. 3—5 síðd.