Morgunblaðið - 12.12.1959, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.12.1959, Blaðsíða 13
12 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 12. des. 1959 Laugardagur 12. des. 1959 MORGUNBLAÐ1Ð 13 Útg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkværadastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Ami Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr 35,00 á mánuði innaniands. í lausasölu kr. 2.00 eintakið. ÖRYGGi OG VARNIR ÍSLANDS Óbreytt stefna RÉTT áður en Alþingi frest- aði fundum sínum, skýrði utanríkisráðherra frá því á þingi að fyrir nokkrum dögum hefðu hafizt viðræður milli is- lenzku ríkisstjómarinnar og full- trúa Bandaríkjjastjórnar hér á landi um skipan varnarliðsins á íslandi. Lýsti ráðherran því yfir, að ekki hefði verið um það rætt að draga úr vörnum íslands á nokkum hátt. Hins vegar hefði verið um það talað, hvort ekki væri nauðsynlegt að gera nokkr- ar skipulagsbreytingar á varnar- liðinu sjálfu og samsetningu þess. í framhaldi af þessari yfirlýs- ingu á Alþingi af hálfu íslenzku ríkisstjórnarinnar, hefur land- varnarráðuneytið í Washington gefið út tilkynningu um, að Bandaríkjastjóm hafi rætt við ríkisstjórn íslands um endur- skipulagningu á bandaríska varn- arliðinu á íslandi. Felur sú endur skipulagning í sér tilfærslu her- sveita úr landhemum til Banda- ríkjanna á fyrra misseri ársins 1960 og hugsanlega aukningu á öðrum varnarráðstöfunum á ís- landi. Jafnframt er því lýst yfir af hálfu Bandaríkjastjórnar, að hún muni standa áfram við skuldbind ingar sínar samkvæmt varnar- samningi frá 1951 um varnir ís- lands. XJm þessar skipulagsbreyting- ar, sem ráðgerðar eru á næstunni á varnarliðinu, sem hér dvelur er ástæðulaust að fara mörgum orðum. í þeim felst ekki nein breyting á stefnu fslands í ör- yggis- og varnarmálum. Það hef- ur ekki komið til mála að draga neitt úr vömum landsins. Um það er aðeins að ræða, hvernig þeim verði haganlegar fyrir komið, en verið hefur xmdanfarið. Ekkert er eðlilegra, en að ný viðhorf skapist í þessum málum við þær tæknilegu breytingar og þróun, sem stöðugt á sér stað. Til þeirra verður að taka tillit og miða varnir landsins við aðstæðurnar, eins og þær eru á hverjum tíma. Hornsteinn hinnar íslenzku stefnu Aðalatriðið er að landið njóti þelrra varna og þess ör yggis, sem mögulegt er. Yfir- gnæfandi meirihluti íslend- inga er þeirrar skoðunar, að þátttaka lands þeirra í varnar bandalagi hinna frjálsu þjóða sé óhjákvæmileg til þess að tryggja öryggi og sjálfstæði íslands. Sú skoðun er horn- steinn hinnar íslenzku stefnu í öryggismálunum VELFERÐARRÍKIÐ OG VERÐBÖLGAN HUGTAKIÐ „velferðarríki“ er, að minnsta kosti í nútímamerkingu, e k k i gamalt. Það var sett fram á árum heimsstyrjaldarinnar síðari af brezka hagfræðingnum Beve- ridge lávarði. Árið 1942 voru birtar kenningar hans um vel- ferðarkerfi, er átti að styðja fólk frá vöggu til grafar. Og 1944 gaf Beveridge út bók, er hann nefndi: „Full atvinna í frjálsu þjóðfé- lagi.“ Þessar kenningar hafa haft mikil áhrif í ýmsum löndum, og sumir hafa viljað halda því fram, að útkoma bókarinnar hafi vak- ið meiri athygli, en innrás banda manna í Frakkland, er skeði um sama leyti. Beveridge lávarður er enn á lífi, nú 80 ára gamall, og lætur mikið til sín taka í lávarðadeild brezka þingsins. Hann vinnur nú að nýrri, endurskoðaðri útgáfu af sinni frægu bók. Það hefur komið fram í blaðaviðtölum, að nýja útgáfan verður á ýmsan hátt ólík hinni fyrri. Jafnvel svo mjög, að einhver hefur stungið upp á að titill hennar ætti að vera: „Mínar gömlu og nýju skoðanir“. Fimmtán ára tilraunir með vel- ferðaríki í Bretlandi og víðar hafa mótað hinar nýju skoðanir. Aðalhættan fólgin í verðbólgunni Beveridge segist ekki hafa haft verðbólguhættuna í huga, þegar hann skrifaði bókina á styrjald- arárunum, en þó er það einkum hún, og það hvernig verkalýðs- félögin nota vald sitt til að krefj- ast stöðugt hærri launa, sem ligg- ur honum sérstaklega á hjarta. Nú segir Beveridge lávarð- ☆ ur, að aðalhættan sé fólgin í verð bólgunni. Hún lami alla trygging- arlöggjöf og dragi stórlega úr sparnaðarviðleitni. Og enn segir hann, að verkalýðsfélögin megi ekki notfæra sér það ástand, þegar atvinna er næg, til þess að krefjast launahækkana, er eng- in framleiðsluaukning hafi orðið í þjóðfélaginu. Eitt meginhlut- verk ríkisvaldsins er að halda verðgildi peninganna sem stöð- ugustu, segir Beveridge, en það getur ekki tekizt, ef verðlag og kaupgjald hækka á víxl án tillits til þjóðarframleiðslunnar. Eini rétti mælikvarðinn Mörgum finnst, að þessar end- urskoðuðu kenningar Beveridge lávarðar hefðu mátt koma fram fyrr, og helzt um það leyti er Verkamannaflokkurinn komst til valda í Bretlandi eftir stríðið. Þá átti með allsherjar -trygging- um, ríkisaðstoð og ýmsu fleira að koma velferðarríkinu á. Og mörg önnur lönd fylgdu þessu fordæmi. Auðvitað átti margt af því rétt á sér. En stjórnarvöld- in kunnu sér ekki hóf og ekki var tekið nægjanlegt tillit til framleiðsluafkastanna, sem er eini rétti mælikvarðinn á það, hvað þjóðfélagsborgararnir mega í heild eyða miklu. Afleiðingarnar létu ekki standa á sér og komu meffal annars fram í því, aff stórlega rýrnaffi sparifé hinna ráffdeild arsömu, er höfffu sparaff til elliáranna. Ef þessi hefur orffiff raunin í nágrannalöndunum, þá hef- ur þaff sama skeff hér, affeins í miklu stærri stíL UTAN UR HEIMI ☆ Josephine Baker og börnin hennar tíu ★ Leik- og söngkonan, sem berst i, a&an fardámum na kvnhAffnhafri í HAUSTHEFTI tímarits- ins „Forum“, sem gefiff er út af Heimssandbandi æsk- unnar (WAY), birtist við- tal viff hina frægu leik- og söngkonu Josephine Baker, sem undanfariff hefir vakiff á sér athygli fyrir sérstætt framlag sitt í baráttunni fyrir kynþáttajafnrétti í heiminum. — Fer þaff hér á eftir í lauslegri þýffingu. ur þátttakandi í henni. — Eftir að Frakkland var leyst undan járnhæl naz- ista, sneri hún aftur til leik- sviðsins, en aðeins skamm- an tíma; hún eyddi sífellt lengri og lengri tíma á Les Milandes, jarðeign sinni í Dordogne. í fjölmörg ár fengu leikhúsgestir ekkert tækifæri til þess að hylla hana — en svo gerðist það Heima í Les Milandes. — Joshephine, maffur hennar og barnahópurinn. 'BT'völd eitt seint á þriðja tug þessarar aldar kom ung blökkustúlka frá New Orleans fram í Champs-Elysées-leikhús- inu í París. Á skammri stundu heillaði hún áheyrendur sína með töfr- andi framkomu og svell- andi lífsfjöri. Josephine Baker varð fræg á einni nóttu — ein af „drottn- ingum“ frönsku höfuð- borgarinnar. — ,,Það er tvennt, sem ég elska — landið mitt og París“, söng hún — og Parísar- búar endurguldu ástúð hennar. • í andspyrnu- hreyfingunni „Stjörnur" rísa og falla — en Josephine Baker hélt áfram að vera eftirlæti flóksins. — Svo brauzt styrjöldin út. Josephine og maður hennar, Jo Bouillon, fluttust til Dordogne-hér- aðsins, sem var ein af mið- stöðvum andspymuhreyfing- arinnar gegn þýzku nazist- unum (André Malraux stjórnaði aðgerðum hreyf- ingarinnar þar á staðnum) — og Josephine gerðist virk- fyrir nokkrum mánuðum, að hún sneri aftur til leik- sviðsins — tók að sér aðal- hlutverkið í íburðarmikilli revíu, sem sýnd var í Champs-Elysées-leikhúsinu. • Enn jafntöfrandi Hún gerði sér fyllilega ljóst, að áhættan var mikil —■ allt gat farið út um þúf- ur. Árin hafa liðið, og hún er komin af æskuskeiði. — En að lokinni sýningu ætl- aði allt af göflunum að ganga — hún hafði sigrað eftirminnílega. Sýningin heppnaðist prýðilega. En þetta var ekki nein venju- leg „endurkoma" (come- back) —- og til þess að frétta um ástæðurnar til þess, að Josephine Baker steig aftur upp á „fjalirnar", heimsótt- um við hana og spjölluðum við hana um stund. — Við komumst að því, að hún er enn jafntöfrandi og full af lífsorku og fyrrum. Fólk heimsækir hana í stríðum straumum, og hún gefur góð ráð á báðar hendur og veitir ýmiss konar hjálp og aðstoð. Hún var að greiða hár tveggja barna sinna og þurfti auðvitað að svara spumingaflaum þeirra — en þó gaf hún sér einnig tíma til að svara þeim spurningum, sem við lögð- um fyrir hana — svaraði þeim hlýlega, ljóst og sann- færandi: . — Hvað kom yður til þess að taka þá miklu á- hættu að koma á ný fram á sviði? — Það var „heimsþorp- ið“ okkar í Les Milandes. Það er dýrt fyrirtæki — og mér virtist þetta eina leið- in til þess að afla þess fjár, er við þurftum til þess. • Börnin tíu — Hvað eigið þér við með „heimsþorpinu"? — Ég kalla það svo vegna þess, að þar eiga helztu kynþættir sína full- trúa. Ég tók upp á því fyrir fimm árum að ættleiða börn — og nú eru tíu lítil systkin heima í Les Milandes, af mismunandi kynþáttum og þjóðum og upprunnin í mis- japanskur — og trúarbrögð- in eru Búddismi. Moise, sem er fjögra ára, er Gyðingur. Luis, sex ára, frá Kólumbíu, er kaþólskur — og það er einnig Jean-Claude, sex ára drengur frá París. Jari, sem er hátt á sjötta ári, kom frá Finnlandi og er af mótmæl- enda-fjölksyldu. Marianne er þriggja ára, frá Alsír, komin af kaþólsku foreldri. Brahim, þriggja ára, er Arabi, foreldrarnir Múham- eðstrúar. Koffi er frá Frönsku Vestur-Afríku; hann er tveggja ára, og fólk hans trúir á stokka og steina. Loks er svo Mara litla, sem er aðeins fjórtán mánaða gömul. Hún er Indí- áni frá Venezúela — og for- eldrar hennar eru tungl- dýrkendur! — Öll þessi ólíku börn, ég og eiginmað- ur minn erum ein fjöl- skylda. Þau kalla okkur öll pabba og mömmu. • í heimi hatursins — Hvaða ástæður lágu til þess, að þér ættleidduð þessi börn? Josephine Baker aflar fjár til „heims- þorpsins" síns — þar sem helztu kyn- þættir heims- ins búa sam- an í ást og eindrægni. munandi umhverfi, hvað trúarbrögðum viðkemur. — Akio er sjö ára gamall. Hann er frá Kóreu og er Shinto- trúar. Janot er fimm ára, Eigi alls fyr- ir löngu var Josephine boffiff meff börnin sin tíu til mikillar barnahátíff- ar í Hollandi. Mér sitja þau og bíffa þess, aff hátíðin hef jist. — Ég vildi freista þess að sanna, að hið ólíkasta fólk gæti lifað saman í fullri ein- drægni. Þefgar ég heyri nú einhverja reyna að sýna fram á, jafnvel með vísinda- legum rökum, að slíkt sé útilokað, þá segi ég bara: „Jæja, einmitt það — sjáið þið þetta.....“ — Var það nokkuð sér- stakt ,sem kom yður til að gera þessa tilraun? — Mitt í öllum þeim hat- ursanda, sem stríðið leysti úr læðingi, dreymdi mig um kyrrlátan stað, þar sem frið- ur og góðvild réðu ríkjum. Þegar hinn grimmilegi hild- arleikur var svo loks á enda, fannst mér tími til kominn að hefjast handa. Við gát- um ekki haldið áfram að lifa í heimi hatursins. • Rætur mannlegs lífs — Hvers vegna völduð þér börn til þess að byggja upp þetta samfélag yðar? — Vegna þess, að maður Sr- Bjarni Jónsson: Hvar á skírnar- fonturinn að vera ? Josepliine hefir marga munna aff fæffa og marga kroppa aff klæffa. — Eitt yngsta barniff fær hér nýja skó. verður alltaf að grafa að rótum hvers máls — og börnin eru rætur mannlegs lífs, ef svo mætti segja. ■ Starfið verður því að hefj- ast meðal þeirra. — Við getum ráðið vexti hins unga trés, þannig að stofn þess verði beinn og fagur — en við getum ekki rétt stofn gamla trésins, sem löngu er orðinn kræklóttur. — Alið þið börnin upp á nokkurn sérstakan hátt? — Nei, þau alast upp með sama hætti og hver önnur venjuleg og heilbrigð systkin. Við reynum að vaka yfir þeim — og láta eðli þeirra njóta sín og þróast eðlilega. — Hvers konar hleypidómar eru í andstöðu við hið eðlilega og náttúr- lega — og ef börn eru alin upp án allra fordóma, þá munu þau sjálf verða for- dómalaus. Börnin okkar læra að lifa saman í ein- drægni með því að matast saman, sofa í sama herbergi, ganga í sama skólann. 'k — Hvað um menntun þeirra? — Ég gef henni mikinn gaum — reyni að búa þau eins vel undir lífið og unnt er. Þau heyra stöðugt fimm tunginnál töluð í kringinn sig — af kennurum sínum, sem búa hjá okkur: ensku, þýzku, frönsku, ítölsku, spænsku — og nú erum við að bæta arabisku við. Þau læra málin á því að heyra þau töluð á hverjum degi, venjast þeim, næstum án þess að veita því eftirtekt. — Reynið þér að koma í veg fyrir árekstra með því að gera þau eins lík hvert öðru og mögulegt er? • Þroskavaki — Alls ekki — það væri óeðlilegt. Fólk er og verður hvert öðru ólíkt. Ég reyni einmitt að varðveita með- fædd sérkenni þeirra — en ég reyni jafnframt að kenna þeim að líta á mis- muninn sem eðlilegan og sjálfsagðan. Þannig vil ég THORVALDSEN kom frá Róma- borg til Kaupmannahafnar haust- ið 1838. Var honum fagnað á hinn veglegasta og hátíðlegasta hátt. íslendingar tóku þátt í hátíðinni, og Jónas Hallgrímsson flutti hon- um kveðju íslendinga. Næsta sumar, 1839, var skírn- ar fonturinn, sem nú hefir um 120 ára skeið prýtt Dómkirkju landsins, fluttur hingað og vígð- ur af Steingrími Jónssyni bisk- upi. — Steingrímur biskup má teljast meðal hinna merkustu íslend- inga, lærdómsmaður hinn mesti og prýði íslenzkrar kirkju. Vaknar því hjá mér þessi spurning: Vissi Steingrímur ekki hvað hann var að gera? Var það honum líkt að vígja þenna fagra dýrgrip Dómkirkjunni til eignar, ef gjöfin hefði verið ætluð öðr- um? Þessu er hægt að svara. Thorvaldsen skrifar rentu- kammerinu bréf dags. í Khöfn 28. des. 1838. Þar skýrir hann frá því, að hann fyrir nokkrum ár- um hafi smíðað skírnarfont í marmara ,og ákveðið, að fontur þessi skyldi vera gjöf til Dóm- kirkjunnar (en Gave til Dom- kirken í mine Fædres Land Is- land). Getur hann þess í bréfinu, að skírnarfonturinn sé geymdur í vinnustofunni (Atelieret) í Charlottenborgarhöllinni, og von- ar hann, að hægt verði að senda fontinn með fyrstu skipsferð á næsta vori. Treystir hann því, að þetta megi vel takast, og telur sér það mikinn heiður, ef font- urinn megi prýða kirkjuna (jeg smigrer mig ved at dette Ar- bejde vil være en Prydelse for Kirken). Hvað gerði rentukammerið? Bréf frá því dags. 20. apríl 1839 er sent Bardenfleth stiftamt- manni. Þar segir svo: „Konfer- entsráð Thorvaldsen hefir með bréfi dags. 28. des. 1838 falið oss að annast flutning á skírnarfonti úr marmara til Islands, en þenna skírnarfont hefir hann gefið Dóm kirkjunni í Reykjavík. Hefir nú fonturinn verið sendur með skipi því, er María heitir, og er eign P. C. Knudtzons stórkaup- manns, en skipstjórinn er J. J. Möller. Sendist því skírnarfont- urinn til Reykjavíkur, og er því beint til stiftamtmannsins, að hann sjái um, að fontinum sé komið á ákvörðunarstaðinn.“ Skírnarfonturinn komst til Reykjavíkur, og til er viðurkenn- ing stiftamtmanns fyrir móttök- unni. Hvað gerist nú? Hátíð er haldin í Reykjavík 14. júlí 1839. Steingrímur biskup víg- ir fontinn. Fyrsta barnið, sem er vatni ausið úr fontinum, hlýtur nafnið Bertel Högni, og þáver- andi prestur, Helgi Thordersen, ritar athugasemd í kirkjubókina: „Barn þetta skírt, er vígður var fonturinn, sem Thorvaldsen hefir gefið Dómkirkju Reykjavíkur." Enn spyr ég: Hvað gerir Stein- grímur biskup,. er hann hefir vígt listaverkið? Hefir hann vit á að þakka? Gætum að, og lítum í bréfabók biskups 1839—40, bls. 268—69, nr. 535. Þar stendur skýru letri: „Til hr. Konferensráðs B. Thorvald- sen, Commandör af Dannebroge og Dannebrogsmand. 5. sept. (1839). Hinn forkunnarfagri skírnar- fontur, sem þér, herra konfer- entsráð, hafið gefið Dómkirkju forða þeim frá því að skammast sín fyrir að vera frábrugðin þeim, sem þau umgangast, eða líta niður á sérkennilega eiginleika ann- ars fólks. — Og þetta hefir ekki valdið neinum erfiðleikum? — Nei — þvert á móti. Tilbreytnin er hvetjandi. Forvitnin er þroskavaki vitsmuna og persónuleika. — Leiðið fólk saman, leyfið því að „blandast“ án íhlut- unar — og það mun lifa saman árekstralaust og í eindrægni, nema utankom- andi áhrif spilli þar fyrir. — Sjáið þau. (Moise óg Janet hafa verið að elta hvort annað fram og aftur um stofuna, meðan við höf- um talað við ,,mömmu“.) Þau eru óaðskiljanleg. — Sum barnanna kunnu hvorki að brosa né leika sér þegar þau komu til Les Milandes. Nú eru þau ham- ingjusöm, sjálfsörugg — með opin augu og opinn hug. — Hér er vissulega lexía, sem hinir fullorðnu gætu lært af. • Lifandi sönnun — Hefir þetta starf vak- ið áhuga annarra? — Já — við fáum fleiri og fleiri bréf í sambandi við það — og margir koma til okkar í Les Milandes: Heilar fjölskyldur, náms- fólk frá Þýzkalandi, Frakk- landi, Afríku — o. s. frv- — Allt kemur þetta fólk vegna þess, að hér finnur það lifandi sönnun þess, að gagnkvæmt umburðarlyndi og virðing er hið eðlilega og sjálfsagða í samskiptum manna — en hvers konar fordómar eru í sannleika móðgun og smán gagnvart mannlegri tilveru. 'k — Hvað munu börnin gera, þegar þau vaxa upp? -j- Þegar þau verða tólf ára, munu þau, hvert og eitt, hverfa til upprunalands síns og dveljast þar hjá inn- fæddri fjölskyldu í fjögur ár. Að svo búnu munu þau snúa aftur til Les Milandes, sem alltaf mun verða heim- ili þeirra. • Hjartað — síðasta orðið — Og hvað tekur svo við? — Þá kemur til þeirra kasta að taka ákvörðun. Að sjálfsögðu vonast ég til þess, að þau beri þann boðskap, sem þau kynntust í samlífi sínu hér, út um hinn stóra heim. En ég mun ekki leggja að þeim í því efni á nokk- urn hátt. — Hinir gagn- rýnu og vantrúuðu hafa stundum sagt við mig: „Já, þeim kemur svo sem vel sam an núna — en sjáið þið bara hvað gerist, þegar þau verða fullorðin." — Þá hefi ég gjarna svarað: „Leyfum þeim fyrst að vaxa upp, þá kemur það í ljós.“ — Og í raun og veru er ég bjart- sýn og hvergi smeyk. Við höfum gert allt, sem í okk- ar valdi hefir staðið til þess að varðveita hreinleika hjartans — og er það ekki hjartað, sem hefir síðasta orðið...... Skírnarfonturmn í Dómkirkjunni Reykjavíkur, kom hingað óskadd aður á liðnu vori, og var hon- um þegar valinn hæfilegur stað- ur í kirkjunni, og er hann nú hin fegursta prýði hennar. Hver, sem lítur þessa gjöf, mun hugleiða, hve ísland miklast af því að vera föðurland yðar. Skulu yðar hávelborinheitum hjartanlegustu þakkir tjáðar frá söfnuði Dómkirkjunnar og þjóð- inni allri.“ Við rannsókn þessa máls hafa góðir vinir mínir, hinir ágætu skjalaverðir, dr. Björn K. Þórólfs son og Kjartan Sveinsson, veitt mér mikilsverða aðstoð. Hafa þeir leitað að þeim skjölum, ep snerta þetta mál, fundið þau og afhent mér í afriti. Geta þeir, sem vilja, séð þau hjá mér. En skjala- vörðunum flyt ég innilegt þakk- læti fyrir leiðbeiningar, er þeir hafa látið mér í té. Sumarið 1839 var fögur vígslu- hátíð haldin hér í bæ. En haustið 1959 heyrast þau tíðindi, að á aðalfundi lista- manna í Reykjavík hafi einróma verið samþykkt að taka skírnar- fontinn úr gömlu kirkjunni. Hefi ég nú samkvæmt skjal- festum heimildum leitt rök að því, að þeirri samþykkt ber ekki að hlýða. Skírnarfonturinn hefir verið á réttum stað ,og hann verð ur þar áfram, því að þar á hann heima. Vona ég, að þessar upplýsing- ar stuðli að því, að menn með aukinni gleði horfi á hið fræga listaverk, sem af góðum hug var gefið Dómkirkjunni og er rétt- mæt eign hennar. Ég samgleðst söfnuðinum, sem á hinn dýra grip ,og að endingu óska ég Bandalagi íslenzkra listamanna gleðilegra jóla. Stangaveiöimenn víta há boð í ve/ðfdr AÐALFUNDUR Landssambands íslenzkra stangveiðimanna var haldinn í Hafnarfirði þann 1. nóvember. Til umræðu voru fyrst og fremst klak og ræktun silungs og laxs, svo og árleigur. Sýndu full- trúarnir mikinn áhuga fyrir klak- og ræktunarmálunum og töldu eðlilegast að Landssamband ísl. stangveiðimanna hefði forgöngu í þessum málum, en það er orð- in aðkallandi nauðsyn að auka klak og eldisseiði frá því, sem nú er. Vegna hinna háu yfirboða í lax veiðiár, var eftirfarandi tillaga samþykkt með samhljóða atkvæð um: „Aðalfundur Landssambands íslenzkra stangveiðimanna hald- inn sunnudaginn 1. nóvember 1959 í Alþýðuhúsinu í Hafnar- firði, samþykkir að víta harðlega stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna og aðrar opinberar og hálf-opinberar stofnanir, sem nú eða áður bjóða óheyrilega hátt verð í veiðiréttindi í ýmsar lax- veiðiár, fordæmi, sem er stór- hættulegt og líklegt til að skaða stangveiðimenn almennt og veiði réttareigendur ekki síður, er fram líða stundir, fordæmi, sem skoðast verður sem bein árás á íslenzka stangveiðimenn, þar sem þeim er ómögulegt að greiða slíkar leigur, fordæmi, sem al- gjörlega er óþarft og auðveldlegá mátti komast hjá, þar sem aðrir möguleikar voru nærtækari og, sem hentað hefðu t.d. S.H. miklu betur“. f Landssambandi ísl. stang- veiðmanna eru nú 17 stangveiði- félög. Veiðimálastjóri, Þór Guðjóns- son var mættur á fundinum í boði stjórnar Landssambandsins. Stjóm Landssambands ísl. stangveiðimanna er nú þannig skipuð: Guðmundur J. Kristjáns- son, fulltr., Reykjavík, formaður; Friðrik Þórðarson, forstj., Borgar nesi, gjaldkeri; Hákon Jóhanns- son, verzlm., Reykjavík, ritari; Sigurpáll Jónsson, skrifstm., Reykjavík, varaform., Alexand- er Guðjónsson, forstjóri, Hafnar- firði. Jólablað Vikunnar JÓLABLAÐ Vikunnar er komið út, 52. síður. í blaðinu eru smá- sögur eftir Indriða G. Þorsteins- son og Helgu Dís, greinar um jólahátíðina að fornu og nýju og rithöfundinn Hemmingway. Þar er einnig verðlaunasamkeppni, sem er á þá lund, að 13 íslenzkir leikarar hafa verið færðir í jóla- sveinabúning og grætt á þá skegg. Keppnin er í því fólgin að þekkja andlitin og eru fern, góð verð- laun. Þá er greinarkorn um jóla- hátíðina og barnið eftir dr. Matt- hías Jónasson og frásögn af Mark Twain eftir Ævar R. Kvaran. — Jólakrossgátan er stærri en venju lega og mörg heilræði eru í blað- inu fyrir húsmæður i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.