Morgunblaðið - 12.12.1959, Blaðsíða 15
Laugardagur 12. des. 1959
MORGTJNRLAÐIÐ
15
Stofnun til rannsókna
á vinnuhæfni fatlaðra
Merk starfsemi Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra
AÐALFUNDUR Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra var haldinn
að Sjafnargötu 14 í Reykjavík,
sunnudaginn 6. þ.m.
Formaður félagsins, Svavar
Pálsson, minntist í upphafi fund-
ar dr. Björns Sigurðssonar, sem
átti sæti í framkvæmdaráði fé-
lagsins, og vottuðu fundarmenn
honum virðingu sína og þakklæti
með því að rísa úr sætum.
Formaður flutti síðan skýrslu
stjórnarinnar. Ræddi hann m.a.
um stofnun Sjálfsbjargarfélag-
anna og að með þeim og Styrkt-
arfélaginu væri náin samvinna.
Þá ræddi hann um símahapp-
drættið, kvað félagið ekki hafa
talið ráðlegt ýmissa orsaka vegna
að ráðast í það á sl. ári, en nú yrði
að nýju að gera stórt átak, þar eð
mörg verkefni biðu úrlausnar, er
ekki þyldu bið, en efnaskortur
háði. Hann kvað æfingastöð fé-
lagsins aldrei hafa verið ætlað
annað hlutverk en að leysa einn
þátt vandamála lamaðra og fatl-
aðra, sem sé að veita nauðsynleg-
ar æfingameðferðir. Húsnæði fé-
lagsins er ekki meira en svo að
það nægi til þessara starfsemi.
En nú er að því komið, að koma
upp stofnun til rannsókna á
vinnuhæfni fatlaðra og lamaðra
og skrifstofu, sem taki að sér út-
vegun atvinnu og aðra fyrir-
greiðslu, sem falin sé sérmennt-
uðu starfsliði. Slíkar stofnanir
eru nú starfræktar hjá öðrum
þjóðum til ómetanlegs gagns fyr-
ir alla öryrkja og er nú viður-
kennd sem hin eina raunhæfa leið
til lausnar á öryrkjavandamálum
og leiði til eins fullkominnar end-
urhæfingar eins og nokkur tök
eru á að við verði komið. Stjórn
félagsins gerir sér ljóst að þetta
er stærra og meira verkefni tn
svo að félagið eit fái við ráðið,
mun þó eiga eins mikinn þátt í
lausn þeirra eins og hægt er og
fjárhagur þess frekast leyfir. Þess
vegna var, eftir beiðni stjórnat
félagsins, flutt tillaga á Alþingi
um skipan milliþinganefndar til
þess að rannsaka og finna heild-
arlausn á félagsiegum og at-
vinnulegum vandamálum ör-
yrkja. Tillagan var samþykkt, en
dráttur hefir á orðið að nefndin
tæki til starfa. Reynir á þannig
að samræma átök allra áhuga-
manna, öryrkjafélaga og hins op-
inbera til lausnar á þessum mikla
vanda. Er ætlun stjórnar félags-
ins að á annan hátt en þennan
verði ekki betur unnið til lausn-
ar á öryrkjavandamálum.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Sveinbjörn Finnsson, las því næst
upp reikninga félagsins og skýrði
þá, og gerði grein fyrir starfsemi
félagsins. Æfingastöðin var rek-
in með sama sniði og undanfarin
ár. Aðsókn fer vaxandi, og voru
veittar alls 8571 æfingameðferð-
ir. Auk þess voru veittar 1586
æfingameðferðir á sumardvalar-
heimilinu að Varmalandi. Tap á
rekstri æfingastöðvarinnar nam
kr. 460.607,64, og tap á rekstri
sumardvalarheimilis kr. 39.504,68.
Eins og fyrr fer fjáröflun félags-
ins að mestu leyti til þess að
greiða þennan rekstrarhalla, og
hefir félagið því ekki haft bol-
*•'
^ \ t / * S
7959
í
KRAKKAR, hér er óskaseðillinn. Skrifið á hann óskir ykkar
um jólagjafir — og látið listann síðan á eldhúsborðið hjá
mömmu eða skrifborðið hans pabba. — Það er að sjálfsögðu
erfitt að segja um, hver árangurinn verður — en ekki sakar
að reyna.
magn tíl þess að færa út starf-
semi sína eins og æskilegt væri.
Heildartekjur félagsins námu kr.
672.146,92 á reikningsárinu 1. okt.
1958 til 30. sept. 1959 og var varið
til greiðslu ofangreinds rekstrar-
taps. Hrein eign félagsins 30. sept.
1959 nam kr. 3.036.241,11.
Þá gat framkvæmdastjóri þess
að vinnulækningarnar væru rekn
ar á sama hátt og áður, en upp
hefði verið tekin sundkennsla í
laug æfingastöðvarinnar og hún
gefið góða raun. Þá færu og vax-
andi ýmiss konar fyrirgreiðslur,
sem félagið innti af hendi fyrir
fólk hvaðanæva af af landinu. Þá
skýrði hann og frá rekstri sum-
ardvalarheimilisins að Varma-
landi í Borgarfirði. Félagið stæði
í þakkarskuld við skólanefnd og
skólastjóra heimavistarbarna-
skólans að Varmalandi, en fyrir
velvilja þeirra og fyrirgreiðslu
var unnt að hefja rekstur sum-
ardvalarheimilisins. Um 40 börn
dvöldu þar í júlí og ágúst og nutu
útiveru, æfinga og sunds daglega.
Árangur var ágætur og má þessi
starfsemi ekki niður falla. Þá gat
framkvæmdastjóri þess að með-
limir Sjálfsbjargar í Reykjavík
hefðu haft til afnota húsnæði fé-
lagsins til ýmiss konar félagsstarf
semi. Er þetta einn þáttur í sam-
vinnu Styrktarfélagsins og Sjálfs
bjargar.
Læknir félagsins, Haukur Krist
jánsson, gaf skýrslu um lækninga
meðferðir á æfingastöðinni, kvað
hann mænuveikisjúklingum fara
fækkandi, en aðsókn annarra
sjúklinga vaxandi, einkum sjúkl-
inga með lamastjarfa. Þá ræddi
hann vandamál sjúklinga utan
Reykjavíkur og nágrennis, sem
þyrftu að koma til meðferðar,
en gætu ekki vegna þess að hús-
næði væri ekki fy.'ir hendi.
Því næst skýrði hann frá fundl,
sem haldinn var á vegum heil-
brigðismálaráðuneyta Norður-
landa og norrænu félaganna gegn
mænuveiki í Ósló fyrir mánuði
síðan. Fulltrúar frá íslandi voru
hann og framkvæmdastj. Styrkt-
arfélagsins. Umræðuefni fundar-
ins voru aðallega bólusetning
gegn mænuveiki og endurhæfing
lamaðra. Var þar rætt um hina
nýju tegund bólusetningar, með
svokölluðum lifandi vírusum, en
sú bólusetning er enn á tilrauna-
stigi. Þar var og rætt ýtarlega um
vísindalegar aðferðir til prófunar
á hæfni fólks, sem endurhæfa
þarf, og hin þjóðfélagslegu vanda
mál þar að lútandi.
Þá fóru fram kosningar í stjórn.
Voru endurkjörnir þeir Svavar
Pálsson formaður og Andrés
Þormar ritari. Björn Knútsson
gjaldkeri baðst eindregið undan
endurkosningu, og var í hans stað
kosinn Aðalbjörn Gunnlaugsson,
en Birni þökkuð með lófataki vel
unnin störf í þágu félagsins. —
Varaformaður var endurkjörinn
Friðfinnur Ólafsson og varagjald-
keri Baldur Sveinsson. Vararitari
var kjörinn Eggert Kristjánsson
lögfr. Þá var kjörinn í fram-
kvæmdaráð Páll Sigurðsson
tryggingayfirlæknir í stað dr.
Björns Sigurðssonar.
ELDURINN
CERIR EKKI BOÐ Á UNDAN 5ÉR
IRYGGIÐ í TÍMA trygcið fyrir sannvirði
TRYCCINC ER NAUÐSYN!
Álmennar Tryggingar
Austurstræti 10 — Sími 1-77-00
Umboðsmenn um land allt