Morgunblaðið - 15.12.1959, Page 1
24 slður
46. árg««gm_____________280. tbl. — Þriðjudagur 15. desember 1959 Frentsmiðja MorgifftblaSsiiM
Fuflkomið samkomulag fulltrua framleiðenda og neytenda um:
Hvernig ákveða skuli framleiðslukostnað
og verðlagningu landbúnaðarafurða
Samkomulagið undirrit-
að aðfaranótt mánudags
Verðlag lantíbúrtaðarafuröa óbreytt þar
til nýr verðlagsgrundvöllur hefur
verið fundinn
UNDANFARIÐ hafa staðið yfir samningar milli fulltrúa
bænda og*neytenda um ákvörðun verðlags landbúnaðar-
afurða. Voru þessir samningar teknir upp fyrir frumkvæði
Ingólfs Jónssonar landbúnaðarráðherra. Um miðnætti að-
faranótt sl. mánudags tókst fullkomið samkomulag milli
fulltrúa aðila og munu í dag verða gefin út bráðabirgðalög
til staðfestingar því. Er hér um að ræða stórmerkan árangur
af baráttunni fyrir bættri samvinnu framleiðanda og neyt-
anda um þessi þýðingarmiklu mál. Eiga allir aðilar, sem að
samkomulaginu standa, miklar þakkir skildar fyrir það.
Fulltrúar neytenda og bænda, sem setið hafa á fundum undanfarið ásamt landbúnaðarráðherra
og skrifstofustjóra landbúnaðarráðuneytisins. — Talið frá vinstri: Eðvarð Sigurðsson, alþm., Sæm-
undur Ólafsson, Einar Gíslason, Ingólfur Jónsson, landbúnaðarráðherra, Gunnlaugur Briem,
ráðuneytisstjóri, Sverrir Gíslason, form. Stéttarsambands bænda, Sveinn Tryggvason, framkvstj.
Framleiðsluráðs landbúnaðarins og Sigurjón Sigurðsson í Raftholti.
Makarios forseti Kýpur
Tyrkir jafnt sem Grikkir fagna
Sex manna nefndin skipuð
að nýju
Aðalatriði þess samkomulags,
sem náðst hefur milli fulltrúa
framleiðenda og neytenda eru
þessi:
1) Sex manna nefndin verður
samkvæmt bráðabirgðalög-
unum skipuð að nýju. Tekur
hún væntanlega til starfa nú
þegar. Verður hún skipuð
þremur fulltrúum frá bænd-
um og þremur fulltrúum
neytenda. Er verkefni henn-
ar í fyrsta lagi að reikna út,
hvaða verð bóndi með meðal-
bú þurfi að fá fyrir búvöru
sína til þess að fá sambæri-
legar tekjur við aðrar vinn-
andi stéttir í landinu.
1 öðru lagi verður það
hlutverk sex manna nefnd-
arinnar að ákveða dreifing-
arkostnað landbúnaðaraf-
urða. Hafa framleiðsluráðs-
lögin ekki verið framkvæmd
þannig áður. Neytendur
munu því framvegis taka
þátt í ákvörðun dreifingar-
kostnaðarins.
2) 1 samkomulagi framleiðenda
og neytenda felst það einnig,
að ekki má hækka verðlag
landbúnaðarafurða innan-
lands, til þess að bæta upp
halla, sem kann að verða af
útflutningi landbúnaðaraf-
urða. Til þess að tryggja
bændum það verð, sem þeir
Framh. á bls. 23.
NICOSÍU, 14. desember. —
Það var opinberlega tilkynnt hér
í kvöld, að Makarios erkibiskup
hefði verið kjörinn fyrsti forseti
lýðveldis á Kýpur. Makarios sigr-
aði andstæðing sinn, John Kleri-
des, sem studdur er af 'kommún-
istum. — Hafði Makarios hlotið
66'/2% greiddra atkv. Einungis
grískumælandi eyjarskeggjar
höfðu kosningarétt við forseta-
kjörið. Hinir tyrknesku eiga að
kjósa varaforseta, en aðeins einn
er í framboði, Kutchuk, aðalleið-
togi þeirra, og verður hann sjálf-
kjörinn.
Mikil kjörsókn var á Kýpur og
snemma í dag fóru menn að und-
irbúa hátíðahöldin til þess að
fagna sigri Makariosar, því full-
víst var talið að hann yrði örugg-
ur sigurvegari. Mikil gleði er því
í þorpum grískra í kvöld. Þar
er dansað og sungið á götum úti.
Og meðal Tyrkja á eyjunni var
líka fagnað, því eins og Kutchuk
orðaði það, eru Tyrkir þeirrar
skoðunar, að kjör Makariosar
verði til þess að efla sjálfstæði
og einingu Kýpur til muna.
Þegar síðast fréttist var taln-
ingu ekki lokið, en Makaríosi
höfðu þá verið talin um 130 þús.
atkv. en Klerides 66 þús.
RÚSSNESKA sendiráðið hér
skýrði Morgunblaðinu svo frá í
gær, að sendiráðið hefði fengið
upplýsingar um flugválarflakið,
sem fannst á ísnum undan Græn-
landsströndum á dögunum. —
Flugvél þessi mun hafa heyrt
rússneskum visindaleiðangri til
og fórst á Norðurpólssvæðinu
1955. Segja Rússar að áhöfn henn
Framh. á bls. 6
★--------------—★
S / o / ð
veðurkortið á bls. 2
Flugvélarflakið á ísnum. — Myndina tóku flugmenn úr björgunarsveit varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, en vegna dimm-
viðris var erfitt um myndatöku. Önnur mynd er á 6. bls.