Morgunblaðið - 15.12.1959, Page 3
I>riðjudagur 15. des. 1959
MORCVTSfíLAÐlÐ
3
Þegar
FRÉTTAMAÐUR Morgun-
blaðsins hefur átt tal af Guð-
mundi Daníelssyni, sem er ný-
búinn að gefa út samtalabók
á forlagri ísafoldar. Fyrstu
spurningunni sem var dálítið
einkennileg svaraði skáldið
svo:
— Hvers vegna ég hafi sent
frá mér þessa bók? — Ja,
líklega vegna þess mig lang-
aði til þess, — hvað annað
gæti það verið? Flesta menn
langar til að gera eitthvað
annað og fleira en þeir hafa
að daglegri iðju, — líka skáld-
in. Þessi bók er ekki skáld-
skapur, heldur blaðamennska,
hún gæti verið sýnishorn af
blaðamennskunni sem ég hef
stundað sem sport í nokkur
ár. Viðtöl eru einn skemmti-
’iegasti þáttur nútíma blaða-
mennsku, og þegar ég fyrr á
árum og fram eftir árum var
að lesa í Morgunblaðinu við-
töl Valtýs ritstjóra; þá varð
mér það smátt og smátt ljóst,
að þó viðtöl væru kannski
ekki skáldskapur í venjulegri
Guðmundur Daníelsson og einn þeirra, sem hann ræðir við, Adam Hoffritz, eða „Bauninn“
á Selfossi.
lá sjúkur á banasænginni. Ég
tróð mér inn á hann með nær-
göngulum spurningum og
neyddi hann til að auglýsa
sig, honum fannst ég hálft um
skjóta sér út úr gráu gufu-
hvolfinu og taka mynd af bak-
hlið tunglsins, eða eitthvað
svoleiðis, ég vona þú skiljir
hvað ég meina.
spútnikinn bregður Ijósi
á blekkinguna
merkingu, þá gætu þau að
minnsta kosti verið list, við-
talsformið listform. Ég held
að Valtýr sé upphafsmaður og
höfundur hins listræna við-
tals í okkar blöðum, og nú
erum við hinir lærisveinar
hans og sporgöngumenn. Þú
neitar því ekki — ég veit þú
ert mér sammála um að við-
talsformið geti verið búning-
ur listaverks, eins og til dæm-
is Ijóðformið, smásagan, leik-
ritið, jafnvel rómaninn. Ég hef
talsvert hugsað um þetta í
seinni tið, meira að segja gert
nýjar tilraunir í hreinum og
beinum skáldskap. Ég skrifaði
um daginn stutta sögu í þessu
formi: heimsótti mann sem
er dauður fyrir löngu og int-
ervjúaði hann blátt áfram,
það gerði ég — þar sem hann
hálft vera að taka eitthvað
frá sér, ræna sig einhverju,
en ég var ekki að því, ég tók
ekkert frá honum, nema illú-
sjónina. Hann sagði við mig að
lokum: „Þú ert maðurinn!"
sagði hann, eins og Natan spá-
maður við Davíð konung í
Síonsborg, þegar Davíð var
óafvitandi búinn að dæma
sjálfan sig. Og þessi fræga
setning varð titill sögrmnar
— hennar nafn. Já, maður gef
ur auðvitað fjandann í gamla
realismann, er það ekki? —
þennan óskáldlega hversdags
sannleika, sem segir að svart.
sé svart og hvítt sé hvítt og
dautt sé dautt, — hann er úr-
eltur þessi, og maður leitar
uppi annan betri hinum megin
við hlutina: ég meina, maður
reynir að breyta sér í spútnik,
Ég er ekki að segja að það
sé þetta sem ég geri í húsi
náungans, samt sem áður ætl-
ast ég til að bókin bregði upp
myndum frá annarri hlið efn-
isins en þeirri venjulegustu:
mitt verk var að leiða lifandi
manneskjur fram á sviðið og
láta þær sjálfar presentéra
sig. Auðvitað ráða þær hverju
þær segja frá og hverju þær
þegja yfir, þannig á það að
vera, — eins og þegar málari
gerir af sér sjálfsmynd.
Það má ekki gleyma þætti
ljósmyndarans í bókum af
þessu tagi. þarna fá þeir gullið
tækifæri. Ég er ánægður með
samstarf okkar Ólafs Kr.
Magnússonar. Við ferðuðumst
saman urn mannabyggðir í
haust, einn lygnan úrhellisdag
frá morgni og langt fram á
nótt, til þess að ná nýjum,
sönnum ljósmyndum af minu
góða alskulega viðtalsfólki,
— finnst þér ekki árangurinn
sæmilegur? Það finnst mér.
STAKSTEI Wíi
Aliar byggingar mál-
aðar á árinu 1960
Samþykkt Bændafélags Þlngeyinga
Nordal um
Stephan G.
Stephanson,
sem Helgafell
gefur út núna
fyrir jólin.
Á aðalfundi Bændafélags Þing-
eyinga, sem haldinn var að Hólma
vaði 7. des. sl. voru gerðar sam-
þykktir um ýms mál. Hefur Mb).
áður skýrt frá samþykkt fundar-
ins um verðlagsmál landbúnað-
arins. Hér fara á eftir samþykkt-
ir hans um önnur mál:
Tryggingamál.
Aðalfundur Bændafélags Þing-
eyinga 7. des. 1959, telur réttlátt
að aliir íslenzkir ríkisborgarar á
aldrinum 16 til 67 ára hafi sömu
réttindi og skyldur gagnvart
slysabótum án tillits til þess,
hvaða atvinnu þeir stunda, eða
hvort þeir eru atvinnurekendur
eða vinnuþegar, og skorar á al-
þingi að breyta almannatrygg-
ingalögunum þannig, áð svo megi
verða.
Héraðsskjalasafn.
Aðalfundur Bændafélags Þing-
eyinga skorar á sýslunefndina að
koma á fót skjalasafni fyrir hér-
aðið svo fljótt sem unnt er.
Snyrting bygginga.
Aðalfundur Bændafélags Þing-
eyinga haldinn á Hólmavaði 7.
des. sl. lætur ánægju sína í ljós
yfir þeim stórbrotnu framkvæmd
um, sem orðið hafa í bygginga-
málum héraðsins á sl. árum. Þar
sem augljóst er, að mikið skortir
á, að utanhússmálningu bygg-
inga sé lokið, skorar fundurinn á
alla bændur héraðsins að setja
sér það mark, að máluð verði þök
og ytraborð veggja allra bygg-
inga í héraðinu á árinu 1960. —
Fundurinn beinir því til stjórn-
ar B.Þ., að hún leiti til sam-
vinnu við H.S.Þ. og Búnarsam-
band S.-Þing. um að taka má)
þetta til umræðu í vetur og beita
áhrifum sínum til þess að það
komist í framkvæmd á næsta
sumri.
Stjórnarkosning.
Stjórn félagsins var endurkjör-
in en hana skipa: Jón Sigurðsson,
Yztafelli (form.), Baldur Bald-
vinsson, Ófeigsstöðum, Þrándur
Inrriðason, Aðalbóli, Haraldur
Jónsson, Jaðri og Finnur Krist-
jánsson, kaupfélagsstjóri, Húsa-
vík.
Góðar sölur
íslenzkra togara
TOGARINN Keilir frá Hafnar-
firði, sem bættist í togaraflotann
nú fyrir skömmu, kom til Brem-
erhaven í gærmorgun. Seldi hann
mjög vel.
Keilir var með 110 lestir af
eigin þorskafla af heimamiðum,
er hann seldi fyrir 70 þúsund
mörk. Þá var togarinn með ís-
varða reknetjasíld, rúmlega 40
tonn. Salan á henni var einnig
mjög góð og fengust 38 þúsund
mörk fyrir síldina.
Togarinn Bjarni Ólafsson seldi
einnig í Bremerhaven 143 tonn
fyrir 91,200 mörk.
Þá seldi Kaldbakur frá Akur-
eyri í Grimsby, 158 tonn fyrir
10,884 sterlingspund.
Austur-þýzki Siglufjarðartog-
arinn Margrét mun væntanlega
selja ísvarða síld frá Vestmanna-
eyjum í Þýzkalandi í dag.
Hvað hafa Rússar látið-?
Stórhýsi Máls og menningar
við Laugaveg er nú komið undir
þak. Að því tilefni birtir Þjóð-
viljinn samtal við Kristin Andréa
son, sl. sunnudag. Kemst ritstjór-
inn þar m. a. að orði á þessa leið
í formála, sem hann ritar fyrir
samtalinu:
„Hin nýja fimm hæða bygging
Máls og menningar, Vegamót,
Laugavegi 18, er komin undir
þak — og fyrsti stjórnarfundur-
inn var haldinn þar á þakinu í
gær. Einstaka kunningi minn i
borgarastétt hefir spurtí trúnaði
á lágu nótunum: — Hvað hafa
Rússar látið hann Kristin fá mik-
ið gull í Vegamót? Aðrir í þeim
hópi, er hafa verið of gáfaðir til
að trúa því að málið væri svona
einfalt og auðvelt, hafa spurt: —
Hvernig fer hann Kristinn að
safna fé í slíka byggingu?
í eftirfarandi spjalli Ijóstrar
Kristinn upp leyndarmálinu um
auðinn, sem er öllu dýrmætari",
í samtalinu ljóstrar svo Krist-
inn upp „leyndarmálinu" ag
kemst þar m. a. að orði á þessa
leið:
„Félagið mun aldrei gleyma
þeim 200 manna hópi í Reykja-
vík og Hafnarfirði, sem á svip-
stundu varð við áskorun félags-
stjórnar og lagði fram nægilegt
fé til að kaupa Laugaveg 18 og
kom þar nýrri byggingu áleiðis.“
Þá vita menn það. Kristinn hef-
ur ekkert „rússneskt gull“ fengið
í sín Vegamót. Það eru bara ör-
fáir „velunnarar“ í Reykjavík og
Hafnarfirði, sem lagt hafa fram
þessar 7—8 milljónir kr., sem
lóðin og húsið á að kosta!
Fjársvikamál innan
Framsóknarflokksins?
Blað kommúnista skýrir frá þvi
undir stórri fyrirsögn á forsíðu
sinni sl. sunnudag, að nýtt fjár-
svikamál kunni að vera á döf-
inni innan Framsóknarflokksins.
Kemst blaðið að orði á þessa leið:
„Fyrir kosningarnar í vor og í
haust hafði flokkurinn mjög um-
fangsmikla fjársófnun í kosninga
sjóð sinn, bæði með frjálsum
framlögum og annarlegri skatt-
heimtu, frá fyrirtækjum, sem
Framsókn hefur sérstakan að-
gang að. Munu hafa safnazt mjög
verulegar upphæðir í sjóðinn.
Nú mun hafa komið í ljós, að
talsverður hluti af þessum fjár-
hæðum hefur alls ekki runnið til
kosningabaráttu Framsóknar-
flokksins heldur veitzt niður í
vasa flokksgæðinga, sem aðstöðu
höfðu til að nota sjóðinn i sína
þágu, og hafi reikningar veriá
falsaðir“.
Hannesi fallin endur-
skoðun
Kommúnistablaðið heldur síð-
an áfram frásögn sinni af þessu
þessu máli í innsta hring Fram-
sóknarflokksins og kemst þá að
orði á þessa leið:
„Hafa verið allmikil átök út af
þessu máli í innsta hring Fram-
sóknarflokksins að undanförnu
og nú síðustu dagana hefur skrif-
stofa fulltrúaráðs Framsóknar-
flokksins verið lokuð. Jafnframt
mun Hannesi Pálssyni hafa verið
falið að endurskoða alla reikn-
inga um fjársöfnunina, en þegar
hefur komið í ljós, að allmikið
af fylgisskjölum hefir glatazt“.“
Ekkert skal um það fullyrt hér,
við hvaða rök þessi frásögn Þjóð-
viljans styðst. Hitt er öllum ljóst,
að harðar hnútur fljúga nú um
borð milli kommúnista og Fram-
sóknarmanna, hinna fyrrverandi
tilvonandi samstarfsmanna i
nýrri ríkisstjórn.