Morgunblaðið - 15.12.1959, Síða 19
Þriðjudagur 15. des. 1959
MORCUWBLAÐIÐ
19
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 12.
um eftir vopnahléð. Hann hefir
ekki gert það .....
Groussard átti einnig viðræð-
ur við Eden utanríkisráðherra,
og hann komst í náið og mikil-
vægt samband við brezku leyni-
þjónustuna. Hann reyndi einnig
að komast í samband við leyni-
þjónustu de Gaulles, en fékk þar
fremur kaldar móttökur — og
enga áheym fékk hann hjá de
Gaulle sjálfum. Þess vegna
komst aldrei á neitt samstarf
með gaullistum og andspyrnu-
mönnum í Vichy — en aftur á
móti var í þessarí för lagður
grunnur að samstarfi Vichy-
manna og Breta, sem jókst með
árunum.
★
Eftir að Groussard kom aftur
til Frakklands var hann hand-
tekinn af mönnum Darlans. Hunt
ziger gerði það, sem í hans valdi
stóð, til þess að fá hann leyst-
an úr haldi ,en árangurslaust —
enda hreyfði Pétain ekki hönd
til þess að hjálpa þessum manni,
þótt hann hefði sjálfur gefið sam-
þykki sitt til þess að hann færi
fyrrgreinda för sína til London.
'f- -‘.,t í! : '*
^P****"* JF ' ■ fis.
Útvarpsborð
með innbyggðum plötuspil-
ara kr. 3000,00. — An plötu-
spilara kr. 1900.
Radiostofa
VILBERGS og ÞORSTEINS
Laugavegi 72. — Sími 10259.
óskast sem fyrst helzt sem næst miðbænum.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 19. þessa mánaðar, *
merkt: „8028“.
Matsveina vana
vantar á Jón forseta.
Uppl. á skrifstofunni.
Sími 13324
Alliance
Tilvalin jólagjöf
Seljum hina vönduðu
tékknesku sjónauka (8x30) 950,00 kr.
Notið þetta sérstaka tækifærisverð
Verzlun O. Ellingsens hf.
Hetja til hinztu stundar
Heimsfræg bók um æfi Önnu Frank
eftir þýzka rithöfundinn Ernst Schnabel.
Allir, sem séð hafa leikritið, „Dagbók Önnu Frank“
þurfa að lesa þessa bók í hinni snjöllu þýðingu
Jónasar Rafnar, yfirlæknis.
Kristbjörg Kjeld ritar formálsorð að bókinni.
Kvöldvökuútgáfan
ELEKTROLIJX
Nýkomið:
Hrærivélar
Bónvélar
Ryksugur
Loftbónarar
Þeir sem hafa hug á að tryggja sér
þessar óviðjafnanlegu heimilisvélar til
jólagjafa í ár, eru vinsamlegast beðnir
að hafa samband við oss sem fyxst.
Þetta eru einustu heimilisvélarnar af
sliku tagi sem hafa árs ábyrgð.
Elnkaumboðsmenn:
Hannes Þorsfeinsson & Co.
Rjúpur
verða ekki fáanlegar í ár
En þess í stað bjóðum við yður
Ali-endur
(Peking-endur)
Eigin framleiðsla frá Ali-dýrabúi okkar
Síld & Fiskur
Iðja, félag verksmiðjufólks
Félagsfundur verður haldinn í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu, miðvikudaginn 16. des. 1959, kl. 8,30 e.h.
Fundarefni :
1. Lagabreytingar
2. Önnur mál
Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin
/séi Jfí// ☆
Hallbjorg Bjarnadóttir
°g
Haukur Morthens
Skemmta
með hljómsveit Árna Elfars í kvöld
Borðpantanir í síma 15327
Nú fer hver að verða síðastur að hlusta á
HALLBJÖRGU skemmta
R Ö Ð U L L