Morgunblaðið - 15.12.1959, Side 20

Morgunblaðið - 15.12.1959, Side 20
20 MORCVISBLAÐIÐ Þriðjudagur 15. des. 1059 9 J msmæmm oÞmjm hljóðfæranna, þannig skorti jafn vel hinar skemmtilegustu og glað værustu stundir okkar í her- mannaskálunum þann sérstaka svip, sem návist kvenna setur á alla mannfundi. Jafnvel þegar við fjórtán ára herskólasveinar höfðum gengið okkur til skemmt ur.ar um götur borgarinnar, tveir og tveir, í fallegu gullbryddu einkennisfötunum okkar og sát- um aðra pilta á okkar aldri, masa og gera að gamni sínu við stúlk- ur, fundum við til þess með sökn uði, að vegna hinnar klaustur- legu einangrunar hafði hið unga líf okkar verið rænt einhverju því, sem jafnöldrum okkar veitt- ist daglega, á götunum, í skemmtigörðunum, í járnbraut- arvögnum og á dansleikum: hispurslausu samneyti við ungar stúlkur. Einangraðir og lokaðir bak við járnrimla, störðum við á þessar pilsstuttu álfameyjar, eins og einhverjar töfraverur og lé'um okkur dreyma um eitt ein- asta samtal við unga stúlku, eins og eitthvert óhöndlanlegt hnoss. Slík vöntun gleymist ekki svo fljótt. Seinna, þegar við lentum í skjótliðnum og auðvirðilegum ævintýrum með alls konar kven fólki, bættu þau ekki að neinu leyti upp hina viðkvæmu drengja drauma og sú vandræðakennd eða feimni sem greip mig í hvert skipti sem ég var kynntur fyrir ungri stúlku (enda þótt ég hefði þegar hér var komið sögu, sofið hjá mörgum konum) sýndi betur en nokkuð annað, hvernig hin löngu einangrunarár höfðu rænt mig hinu einfalda og eðlilega hispursleysi, þegar konur áttu í hlut. Og nú hafði loks hin langþráða ósk mín rætzt, sú ósk, að kynn- ast ungum stúlkum, en ekki ein- vörðungu skeggjuðum, rudda- fengnum karlmönnum. Á hverju kvöldi sat ég, eins og ég væri heima- hjá mér, hjá stúlkunum tveimur. Hinn þýði, kvenlegi radd'hljómur þeirra (ég get ekki orðað það öðru vísi) veitti mér einhverja jákvæða, líkamlega vellíðan. Og það var með næst- um ótrúlegri hamingjukennd sem ég naut í fyrsta skipti sam- neytis við ungar stúlkur án þess að finna til feimni eða ófram- færni. En það sem sérstaklega gerði samband okkar hamingju- ríkt var sú staðreynd, að það var algerlega laust við þá æsandi spennu sem venjulega setur svip sinn á samband karls og konu. Þegar við sátum og röbbuðum saman, varð hvergi vart við hið heita andrúmsloft, sem venju- lega gerir téte á téte í hálfrökkr inu svo hættulegt. í fyrstu — og það viðurkenni ég fúslega — urðu hinar þrýstnu varir Ilonu, hinir holdugu armar hennar og sú munúð, sem birtist í mjúkum, liðugum hreyfingum hennar,' til að æsa mig, unglinginn, á þægi- legan hátt. Oftar en einu sinni hafði ég næstum látið undan þeirri freistingu, að vefja þessa heitu, mjúku veru, með dökku, hláturmildu augun, örmum og þekja hana með kossum. En Ilona hafði strax í upphafi kunn ingsskapar okkar trúað mér fyrir því, að hún væri búin að ampt er qóS ../ .../ folaqfof — ☆ — Verí L 595 Jfekla Austurstræti 14, sími 11687 vera trúlofuð lögfræðinema i Beskeret, undanfarin tvö ár og biði nú aðeins með giftinguna, þangað til Edith væri farið að batna eitthvað að ráði. — Ég ályktaði að Kekesfalva hefði heitið hinni fátæku frænku sinni heimanmundi, ef hún biði þannig með giftinguna. — Og þar að auki hefðum við gert okkur sek um fullkomið þroskaleysi, ef ekki hreina og beina sviksemi, ef við hefðum, án raunverulegrar ástar farið að kyssast og faðm- ast á bak við hina viðkvæmu og skapæstu stúlku, sem var hlekkjuð svo átakanlega við 1 sjúkrastólinn sinn. Hinn upphaflegi, holdlegi kveljandi seiðkraftur Ilonu hætti brátt að ónáða mig og kær leikshneigð mín beindist með vaxandi ákafa að hinni ógæfu- sömu stúlku, sem lífið hafði beitt svo hörðu, vegna þess að samúð manns með sjúkri manneskju er óhjákvæmilega og alltaf bland in ástúð. Að sitja hjá lömuðu stúlkunni, að hugga hana og kæta með rabbi mínu, að sjá bros mýkja hinn harða og eirðar lausa munnsvip, eða, þegar hún var í óvenjulega æstu skapi, að sjá reiðina víkja fyrir feimnis- legri undirgefni, við eina handar snertingu og fá að launum þakk látt tillit hinna gráu augna — allt þetta styrkti hina platonisku vináttu mína og veitti mér meiri hamingju en ástríðufyllstu ásta- mök við aðra konu hefðu getað veitt mér. Og það var þessari andlegu reynslu að þakka að ég uppgötvaði viðkvæmara tilfinn- ingasvið, áður óþekkt og ógrun- að. Óþekkt og viðkvæmt tilfinn- ingasvið — en hreinskilnislega sagt — jafnframt mjög hættu- legt, því að þrátt fyrir mjög ákveðnar tilraunir getur vinátta heilbrigðs manns og sjúklings, frjáls manns og fanga aldrei haldizt varanleg. Óhamingja ger- ir mann viðkvæman og stöðug þjáning óréttlátan. Eins og í sambandi lánardrottins og skuldunauts er alltaf um ágrein ingsefni að ræða, sem ekki verð ur ráðin bót á, þar eð annar gegnir óhjákvæmilega hlutverki veitandans, en hinn hlutverki þyggjandans, þannig býr sjúkl- ingurinn ávallt yfir leyndum reiðitilfinningum, sem eru ávallt tilbúnar að brjótast út við hvern minnsta, sýnilega nærgætnisvott. Maður varð stöðugt að vera á verði og gæta þess, að fara ekki út fyrir hin vart merkjanlegu takmörk, þar sem samúðin særði hana í stað þess að hugga og sefa. Annars vegar krafðist hún þess að allir þjónuðu sér eins og prinsessu og dekruðu við sig eins og krakka. En á næsta andartaki gat siík nærgætni fyllt hana beizkjublandinni reiði, vegna þess að hún sannaði enn greini- legar hennar eigin vanmátt og hjálparleysi. Ef maður ýtti t. d. litla stólnum nær henni til þess að spara henni þá áreynslu að teygja sig eftir bók eða bolla, leit hún á mann með reiði- glampa í augum og roða í kinn- um. — „Haldið þér að ég geti ekkj sjálf náð í það sem ég kæri mig um?“ Eins og dýr í búri ræðst stundum og án sýnilegra orsaka á gæzlumanninn, sem það er annars vant að flaðra upp um, þannig greip hana alltaf öðru hverju áköf, illgirnisleg löngun tii að spilla í einni svip- an hinu rólega, kyrrláta andrúms lofti, með því að fara allt í einu að tala um sjálfa sig, sem „ve- sæla örkumla manneskju". Á slíkum stundum varð maður að neyta allrar sinnar orku, til þess að ávíta hana ekki harðlega fyr- ir geðvonsku hennar og nöldr- unarsemi. En sjálfum mér til undrunar, varð mér aldrei þessarrar orku vant. Þegar maður hefur einu sinni öðlazt skilning á mannlegu eðli, vex sá skilningur með degi hverjum og sá sem reynt hef- ur með öðrum, jafnvel eina ein- ustu tegund af jarðneskri þján- ingu, öðlast við það skilning og þekkingu á öllum tegundum 'hennar, jafnvel þær sem eru mest framandi og fráleitastar. Þess vegna lét ég ekki hin til- viljanlegu uppreisnarköst Ediths rugla mig. öðru nær. Því órétt- SKREYTINGAR S K A L A R K Ö R F U R K R A N S A R K R O S A R GRÓÐRASTÖÐIN v/Miklatorg — Sími 19775. CT S A L A N L<augavegi. GOT EVERYTHINS WELU IN HANC* EH, TRAIL?...THAT IP IT POESNT CTART RAINING / a r í, £ / Baldur, þú skalt fura í bátnum *em Sidney Lockett og frú .... Súsaxma kemur með okkur Sirrí. ur verið hagstætt að missa bark- arbát. Þar sem við höfum misst öll tjöld og svefnpoka, ættum við En hvað það var gaman. Það get- að finna okkur náttstað snemma til að byggja okkur skýli og rúm- stæði úr trjágreinum. — Þú hef- ur þá séð fyrir öllu Markús, er það ekki? .... Það er að segja ef hann ekki rignir. látari og sárari sem þessi flog hennar urðu, þeim mun meira hrærðu þau mig. Smátt og smátt skildist mér líka, hvers vegna faðir hennar og Ilona og heim- ilisfólkið allt, fögnuðu svo mjög heimsóknum mínum, návist minni. Langvarandi þjáningar eyða ekki aðeins þoli hins sjúka, heldur og lika meðaumkun ann- arra. Ákafar tilfinningar verða ekki framlengdar endaiaust. — Faðir Ediths og Ilona tóku full- komlega þátt í þjáningum hins vorkunnarverða, óþolinmóða sjúklings, en hæfileiki þeirra til að þjást var að vissu marki eydd ur. Þau höfðu afsaiað sér honum. Þau litu á sjúklinginn sem sjúkl ing, á lömun hennar sem stað- reynd. Þau biðu nú þögul og nið urlút, þangað til hinn stutti til- finningaofsi var liðinn hjá. En þau voru ekki lengur hrædd, eins og ég varð hrc.ddur í hvert skipti og þar sem ég var sá eini sem þjáningar hennar urðu stöð- ugt til nýrrar skelfingar, varð ég jafnframt sá eini, sem hún blygðaðist sín fyrir að sýna óstillingu sína og ósanngirni. — Kg þurfti aðeins að segja: „En, ungfrú Edith“, þegar hún missti stjórn á sjálfri sér. Þá renndi hún gráu augunum til jarðar, roðnaði í vöngum og það var sýni legt, að hún hefði helzt viljað 'hlaupa í felur, flýja sjálfa sig. En hinir máttvana fætur hlekkj- uðu hana við stólinn. Og aldrei skildi ég svo við hana, að hún segði ekki með bænarrómi, sem gekk mér nærri hjarta: „Þér ætl ið að koma aftur á morgun, er ......Pparið yðuj hlaup A milli maj-gra verziajm'- mm I) OtlUM MWM! - Austurstrðeti aitltvarpiö Þriðjudagur 15. desember 8.10—10.00 Morgunútvarp. (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8,30 Fréttir. — 8,40 Tón- leikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9,20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir og veðurfregfiir). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Amma segir börnunum sögu. 18.50 Fraburðarkennsla í Þýzku. 19.00 Tónleikar. — Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Utvarpssagan: „Sólarhringur*4 . eftir Stefán Júlíusson; VII. (Höf- undur les). 20.55 Við orgelið (Dr. Páll Isólfsson). 21.15 Erindi: Minnzt aldarafmælis Zamenhofs, höfundar alþjóða- málsins esperanto (Arni Böðvars son kand mag.) 21.40 „Myndir frá Leningrad**, reisu- þáttur eftir Thor Vilhjálmsson (Höfundur flytur). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Hæstaréttarmál (Hákon Guð- mundsson hæstaréttarritari). 22.30 Lög unga fólksins (Kristrún Ey- mundsdóttir og Guðrún Svavars- dóttir). 23.25 Dagskrárlok. Miðvikudagur 16. desember 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleik- ar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón- leikar. — 9.10 Veðurfr. — 9.20 Tónleikar). 12.15—13.15 Hádegisútvarp — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.50—14.00 „Við vinnuna"; Tónleikar af plötum. 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir og veðurfr.) 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Utvarpssaga barnanna: „Siskó á flækingi" eftir Estrid Ott; XIIL lestur (Pétur Sumarliðason kenn- ari). 18.55 Framburðarkennsla í ensku. 19.00 Tónleikar. — Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Daglegt mál (Arni Böðvarsson cand. mag.). 20.35 Með ungu fólki (Guðrún Helga- dóttir). 21.00 Tónleikar: Þjóðlög og dansar frá Júgóslavíu (Þarlendir listamenn flytja). 21.20 Framhaldsleikritið: „Umhverfis jörðina á 80 dögum**, gert eftir samnefndri sögu Jules Verne; VI. kafli. Þýðandi: Þórður Harðarson. Leikstjóri: Flosi Olafsson. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Leikhúsfcistill (Sveinn Einars- son). 22.30 Djassþáttur á vegum Jazzklúbbs Reykjavíkur. 23.10 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.