Morgunblaðið - 15.12.1959, Side 22

Morgunblaðið - 15.12.1959, Side 22
22 MORGVNfírAÐIÐ Þriðjudagnr 15. des. 1959 Skrifstofustjóri Stórt iðnfyrirtæki skammt fyrir utan Reykjavík vill ráða bókhaldara, skrifstofustjóra, gjarnan við- skiptafræðing. Nokkur málakunnútta æskileg. Lyst- hafendur sendi upplýsingar um sig og störf sín í pósthólf 932, Reykjavík. diri^c ar um: + KVIKMYNDIR + «. + 0-*,+ 10<*.***\&-* * »*’.+.* *-+ + -0..0:. +.0 0 0 0 0 0,0 0\ 7% skuldabréfalán vegna Héraðssjúkrahúss Skagafirðinga. Út hafa verið gefin af sýslunefnd Skagafjarðarsýslu og bæjarstjóm Sauðárkróks handhafaskuldabréf fyrir kr. 1.000.000.00 vegna Héraðssjúkrahúss Skagfirðinga á Sauðárkróki. Skuldabréfin eru gefin út til 5 ára og verða greidd með jöfnum afborgunum samkvæmt árlegum útdrætti á næstu 5 árum, 15. júlí ár hvert, í fyrsta sinn 15. júlí 1960. Þau bera 7% ársvexti og eru tryggð með eignum og tekjum Skagafjarðarsýslu og Sauðárkrókskaupstaðar in solidum. Skuldabréfin eru að fjárhæð kr. 100.00, kr. 200.00, kr. 500.00 og kr. 1000.00, og eru þau til sölu hjá eftirtöld- um aðiljum: 1. Á Sauðárkróki: í sýsluskrifstofunni, bæjarskrif- stofunni, Sparisjóði Sauðárkróks og Kaupfélagi Skagfirðinga. 2. f hreppum Skagafjarðarsýslu hjá sýslunefndar- mönnum. 3. f Reykjavík: Hjá Sigurði Hafstað deildarstjóra, Skóiabraut 11 á Seltjarnarnesi, og Pétri Hannes- syni póstafgreiðslumanni, Ásvallagötu 9. 4. Á Akureyri: Hjá Albert Sölvasyni forstjóra, Eiðsvallagötu 28, og Eyþóri Tómassyni forstjóra, Brekkugötu 3. 5. Á Siglufirði: Hjá frú Halldóru Jónsdóttur, Hverfisgötu 31. Skagfirðingar og aðrir velunnarar Skagafjarðar! Styðjið gott málefni með því að kaupa nú þegar skulda- bréf Héraðssjúkrahússins og flýtið með því, að unnt verði að gera rekstrarhæft sjúkrahúsið, sem ætlað er að ljúka á þessum vetri. Sauðárkróki, 10. desember 1959. F. h. sjúkrahússtjórnarinnar Jóh. Saltberg Guðmundsson. Trípólí bíó: Blekkingin mikla. Þetta er ein af hinum mörgu frönsku „Lemmy”myndum, sem hvarvetna njóta svo mikla vin- sælda. „Lemmy“ er hér eins og jafnan mikið kvennagull, og kann líka nú sem fyrr að berja frá sér ef þess gerist þörf. Hann er ofurseldur spilafíkninni, og eins og margir, sem þannig er ástatt um, er hann snauðuraf öllu nema dirfsku og ævintýraþrá. — Hann kynnist ungri stúlku, sem honum lízt dável á, og trúir henni fyrir því, að hann geti gert hina furðulegustu hluti með blekking- um einum. Til þess að sanna mál sitt, sezt hann að í einu dýr- asta hóteli Parísarborgar. Kemur 200 ferm. hœð til leigu til leigu er 200 ferm hæð, fokheld, við höfnina (vestur). Uppl. í síma 14010. HÚSMÆÐUR l Nýjung ! Snúruhöldur á strauborð koma í verzlanir í dag. iiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiaaiaiiiiiiBi ■ Hýjasta Saqan-bókin ti:\3 u 11 ■ Dálð þér m Brahms... ii Eftir Franoise Sagan Hin nýja Sagan-bók, ,,Dáið þér Brahms...“ fjallar hvorki um Brahms né tónlist. Hinn kornungi höfundur kann þá list að nota sér sögusvið af því tagi sem vinsælust eru í tímaritum fyrir kvenfólk — og koma svo lesandanum á óvart með þokkaríkri og launkíminni sannleiksmeðferð þessa efnis, markviss og óvægin sem skurð- læknir. Og hættir jafnskjótt og aðgerð- inni er lokið. í þessari bók er hún hjartaskurðlæknir. Thor Vilhjálmsson þýddi. Bókin er 180 bls. Verð kr. 98.00 BÓKAFORLAG odi>s bjornssonar iilliiBililiiiliHiílliliillililiiiIliliililillliil hann þangað í „kadiljók" og með fjölda „einkaritara“, en vinur hans einn hefur séð honum fyrir öllu þessu. Hann kynnir sig á hótelinu, sem milljónamæringirm Eddie Morgan og allir á hótel- inu, frá forstjóranum til lyftu- drengsins bugta sig og beygja fyrir honum og auðvitað byrjar hann á því að fá lánað stórfé hjá forstjóranum þangað til bank inn hans hafi sent honum það fé. sem hann hafi gefið skipun um að sér yrði sent. Hann kemst þarna í kynni við unga stúlku, sem er erfingi að olíulind eftir föður sinn, sem hefur dáið án þess að hafa haft efni á því að bora fyrir olíunni. Lemmy gerist trúnaðarmaður þessarar stúlku og tekst með því á hendur meiri vanda en hann hafði búizt við. Slungnir kaupsýslumenn eru að reyna að krækja í þessa olíulind fyrir lítinn penmg og gerast nú mikil átök milli þeirra og Lemmy. Kaupsýslumennrnir hækka stöð- ugt tilboð sitt, en Lemmy hafn- ar öllu. Loks láta þeir Lemmy hverfa og er þeim þá opin leið til kaupa olíulindanna, sem Lemmy hafði verið búinn að stofan hlutafélag um undir nafn- inu „Olía fyrir alla“ og fjöldi manna hafði keypt hlut í. En „Lemmy" kemst úr klóm óvina sinna, og er þá ekki að sökum að spyrja . . . Mynd þessi er, eins og flestar ’Lemmy’-myndanna bráðskemmti leg á köflum, en í sumum atriðum öfgakenndari en góðu hófi gegn- ir og missir gamanið þá marks. Eddi Constantine er í þetta sinn sem endranær prýðilegur í hlut- verki Eddi Morgans og aðrir leik- arar fara vel með hlutverk sín. — Minning Erarnh. af bls. 10 etta hennar þungu sjúkdóms- byrði. Guðný var góð sál, sem öllum vildi gott gera, þar sem hún gat því við komið. Ég vil nú, í lok þessara minningarorða, fyr- ir hönd Guðnýjar færa hennar þakkir til lækna og hjúkrunar- kvenna Elliheimilisins fyrir alla þeirra hjúkrun og aðhlynningu, sem hún naut í höndum þessa ágæta starfsliðs. Þá færi ég sér- stakar þakkir frú Guðrúnu frá Melgerði, sem var herbergisfé- lagi hennar í sex síðastliðin ár, og sem með sinni góðu greind og óvanalega miklum góðleik, gladdi hana marga stund. Að lokum þökkum við hjón og börn okkar öll þessari látnu heiðurskonu, og heimilisvini öll hennar fórnfúsu störf fyrir heimili okkar. Guðný verður jarðsungin í dag frá Fossvogskapellu kl. 1,30 e. h. í guðs friði. Sig. Á. Björnsson frá Veðramóti. ★ Dyggð í dagsins önnum Drottins náð þér veitti, þolinmæði í þrautum þig í elli skreytti. Tállaus var þín tryggðin trú þín mikils virði. — Um drauma duldx'a vona dæma ég ei hirði. Samfylgd þér ég þakka þótt við lægjum báðar, sendum bros og bending, báðar stundum þjáðar. Vertu sæl, þig signi Son guðs mildri hendi. Þér að lífsins leiðum ljóssins englar bendi. Drottin blessi þig um alla eil,fð. Guðrún Guðmundsdóttir frá Melgerði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.