Morgunblaðið - 15.12.1959, Síða 24

Morgunblaðið - 15.12.1959, Síða 24
9 dagar til jöla 280. tbl. — Þriðjudagur 15. desember 1959 dagar til jóla Féll of 4. hæð — slnpp með hnndleggshrot I>AÐ slys varð í gær laust eftir klukkan tvö, að maður féll af vinnupalli á fjórðu hæð við hús DAS við Laugaveg. Maðurinn heitir Þórir Snorrason til heim- ilis að*Landakoti í Fljótshlíð. Þórir handleggsbrotnaði á báð- um handleggjum og var fiuttur í Slysavarðstofuna. Af Slysavarðstofunni var Þórir bvo fluttur á handlæknlngadeild Landsspítalans og gert að brot- nm hans. Var hann illa brotinn á báðum framhandleggjum og auk þess illa skrámaður í andliti. Við fyrstu skoðun var ekki »ð sjá að Þórir hefði lilotið nein önnur meiðsli, að því er læknir handlæknisdeildarinnar tjáði blaðinu í gærkvöldi. Má því telja að hann hafi sloppið vel eftir svo hátt fall. Þórir Snorrason er innan við tvitugt. —--------------------------<t Steinpeningur á Yap-eyju, einhver furðulegasti gjaldmiðill sem þekkist meðal frumstæðra þjóða. Fyrrum bæjargjald- keri i Eyjum ákærð- ur um þjófnað VESTMANNAEYJAR, 14. des. — f morgun var kallaður saman bæjarstjórnarfundur og var þar lögð fram til samþykktar beiðni til bæjarfógeta um rannsókn í máli fyrrum bæjargjaldkera Vestmannaeyjakaupstaðar, Hall- dórs Arnar Magnússonar. Var beiðst rannsóknar bæjar- fógeta á sjóðþurrð og bókhalds- fölsun Halldórs Arnar Magnús- sonar, sem reyndist samkvæmt bráðabirgðayfirliti vera kr. 372,000. — Var einróma samþykkt að biðja um þessa réttarrannsókn. Bæjarfógeti gat ekki í kvöld gefið frekari upplýsingar varð- andi mál þetta. Hann kvaðst mundi taka málið fyrir seinni hluta dags í dag. Bráðabirgða- yfirlitið nær aðeins til ársins 1958. Hinn ákærði maður varð bæjargjaldkeri Vestmannaeyjar- kaupstaðar á miðju ári 1956 og gegndi því starfi til ársloka 1958. Lét hann af störfum eftir eigin ósk og gerðist þá kaupfélagsstjóri Kaupfél. Vestmannaeyja og gegn- ir því starfi nú. Halldór Örn fluttist hingað til Vestmannaeyja frá Hafnarfirði liðlega þrítugur að aldri. Prófaniinar á Efra-Sogs- stöðinni ganga að óskum „Frumstæðar þjóðir'— ný AB-bók með 212 myndum Gjafabókin i ár er þrjú Eddukvæði ALMENNA bókafélagið gefur nú út einhverja vönduðustu og glæsi legustu bók, sem sézt hefur hér á markaðmim. Heitir bókin „Frumstæðar þjóðir“ og er eftir Edward Weyer, þýðandi Snæ- björn Jóhannsson, cand. mag. — Hún er prýdd 212 myndum, þar af eru 58 litmyndir og margar þeirra heilsíðumyndir. Eru mynd imar prentaðar í Sviss, en bókin er að öðru leyti unnin hér í þrem ur prentsmiðjum, ísafoldarprent- smiðju, Víkingsprenti og Borgar- prenti. Bókfell h.f. hefur bundið bókina. Bókin er nálega 300 bls. og er hver bls. h. u. b. helmingi stærri en venjuleg bókarblaðsíða. Frágangur allur er einstaklega vandaður og svipar til frágangs- ins á Heiminum okkar, sem félag- ið gaf út á sínum tíma. Meginmál Frumstæðra þjóða er þó miklu meira en var í Heiminum okkar og efnið e. t. ▼. ennþá skemmti- legra. Höfundur Frumstæðra þjóða, dr. Edward Weyer, er þekktur amerískur þjóðfræðingur og ferðamaður. Verður bók þessi i höndum hans frábær og heill- andi lýsing í lifinu og fólkinu utan hinnar svonefndu siðmenn- ingar. I inngangi bókarinnar er dregin upp mynd af frumstæðum þjóðum nútímans og stöðu þeirra í heiminum f dag. Síðan koma fjórtán langir kaflar um þjóð- flokka, sem hver um sig er full- trúi fyrir mismunandi fnumstæð menningarform. Þarna er m.a. fjallað um Eski- móa, Navahó-Indíána, Jivaróa, hausaveiðara í Suður-Ameríku, Búskmenn, Ainúa í Japan, Sam- óa, á Kyrrahafseyjum og hina frumstæðu Arúnta í Ástralíu, svo að eitthvað sé nefnt. Bókin er byggð á mjög vel grundvallaðri þekkingu. Höfund- urinn hefur dvalizt meðal margra af þessum þjóðflokkum allt frá hitabelti til heimskauts, og segir á lifandi og fjörlegan hátt frá klæðnaði þeirra, bústöðum, veiði og veiðiaðferðum, bónorðum, ást arsiðum og hjúskap, orrustum, töfrum og trúarbrögðum. Hann skýrir hvers vegna Jívaróar safna mannsöfðum, hvers vegna Eski- móar hegna aldrei börnum sín- um og hvers vegna Ainúkonur ala bjarnarhún við brjóst sér. Þann- ig mætti lengi telja. Má með sanni segja, að bók þessi sé stór- glæsileg. Gjafabókin Gjafabókin, Þrjú Eddukvæði er svipuð að stærð og gjafabókin í fyrra. Hefur Sigurður Nordal prófessor búið þau til prentunar og ritað mjög merkilegan for- mála fyrir þeim, þar sem lögð er áherzla á og sýnt fram á hvað Eddukvæðin eru í raun og veru alþýðlegur skáldskapur. Þau þrjú kvæði, sem hér um ræðir eru Þrymskviða, Völundarkviða og Völsungakviða hin forna, allt fagur skáldskapur, hin fyrsta mik ið gaman, tvö hin síðari harm- sögur. Kvæðin eru prentuð með eins miklum nútímasvip og fært þótti, en efniságrip fylgir hverju kvæði. í bókinni eru nokkrar fagrar myndir gerðar af Jóhanni Briem listmálara, Eru tvær þeirra litmyndir. Gjafabókina fá ókeyp is allir þeir félagsmenn Bókafé- lagsins, sem keypt hafa 6 bækur eða fleiri á árinu, en hún verður hins vegar ekki til sölu. Mánaðarbókin Mannlýsingar Einars H. Kvar- ans er mánaðarbók í desember ásamt Frumstæðum þjóðum. — Tómas Guðmundsson hefur ann- azt útgáfuna 1 tilefni af 100 ára afmæli höfundar. Hefur þessarar merku bókar áður verið getið í blaðinu. Á jólamarkaði A.B. er einnig bók Selmu Jónsdóttur, Dómsdag- urinn í Flatatungu, sem sagt var frá í blaðinu á laugardaginn. Afgreiðsla Bókafélagsins í Tjarnargötu 16 verður opin eins og verzlanir fram að jólum svo að félagsmenn geti fengið bækur sínar afgreiddar og nýir félagar orðið aðnjótandi þeirra ágætu kjara, sem félagið býður. Siðasta vonin er: Bátarnir hafi borizt upp undir Islandsstrendur A SUNNUDAGSKVÖLDIÐ lýsti Slysavarnafélagið eftir tveim dönskum fiskibátum, Stornovay og Jytte, sem báðir eru frá hin- um mikla útgerðarbæ Esbjerg. Ekkert hefur spurzt til þessara báta og er mjög óttast um að þeir hafi farizt. Fjórir menn mun hafa verið á hvorum þeirra. Að því er danska sendiráðið skýrði Mbl. frá í gær voru þessir bátar meðal fimm annara danskra Esbjerg-báta, sem voru á veiðum útaf norðurströnd Skot lands, er mannskaðaveðrið mikia brast á í byrjun fyrri viku. Tveir komu fram, einn fórst og fannst rekald úr honum, en ekki er vit- að um afdrif þeirra tveggja, sem nú hefur verið lýst eftir. A mið- vikudaginn var, hafði Stornovay látið til sin heyra. Var hann á siglingaleið milli Orkneyja og Shetlandseyja og rak undan vindi og sjó því stýrið var brotið. Frá hinum bátnum Jytte hefur aldrei neitt heyrzt. Flugvélar hafa leitað á því svæði sem bátarnir voru á. Það er aðeins veik von manna, að þá hafi hrakið norður undir Island. í gærkvöldi höfðu engar fregnir borizt um það, að önnur skip stödd milli Færeyja og Islands hefðu orðið bátanna tveggja vör. Það mun í ráði þegar aðstæður leyfa, að senda björgunarflugvél til þess að kanna hafið suðaustur af Islandi. Leitarflugvélar með bækistöðvar í Danmörku, Noregi og Skotlandi hafa haldið uppi víðtækri leit, sem ekki hefur bor- ið árangur enn sem komið er. EINS og skýrt var frá hér í blað- inu sl. sunnudag var vatninu hleypt í jöfnunarþróna við Efra- Sog sl. laugardag. Á sunnudaginn um hádegið var vatninu síðan hleypt á aðra aflvél orkuversins, ■en hún framleiðir 13.500 kw. Hin vélasamstæðan verður svo vænt- anlega tekin í notkun um mán- aðarmótin febr.-marz, en hún er jafn stór. í þessari viku fara fram ýms- ar prófanir á hinni nýu aflvél og er þess vænzt að þeim verði lokið nú fyrir helgina og verði þá hægt að hleypa straumnum inn á aðalrafkerfi Sogsvirkjan- anna. 1 samtali við blaðið í gær sagði Ingólfur Ágústsson framkvæmda stjóri virkjananna, sem eni í eigu Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Sogsvirkjunar, að allar áætl- anir hefði staðið fullkomlega um byggingu hins nýja mannvirkis og hefði verkið gengið vel. Kona féll á hita- veitustokk ÞAÐ BAR TIL sl. sunnudag, að kona barði að dyrum á Háuhlíð 10, en er gengið var til dyra hné konan í yfirlið þar á tröppunum. Var þegar hringt í sjúkrabifreið og konan flutt á Slysavarðstof- una. Atvik eru þau, að kona þessi, Guðlaug Jónasdóttir, Hamrahlíð 31, hafði verið á gangi eftir hita- veitustokk. Varð henni fótaskort- ur á stokkinum, féll og skarst illa á fæti. Ekkert fólk var á ferli þarna nálægt, Guðlaug komst af eigin ramíeik heim að Háuhlíð 10 og náði að drepa þar á dyr, sem áður segir. Stormur á miðunum AKRANESI, 14. des. — Allir síld- arbátarnir fóru út í gær, en höfðu ekkert nema hrakninginn vegna storms, sem á þá gerði. Aðfaranótt sunnudagsins voru aðeins þrír reknetjabátar úti og fengu samtals tæpar 400 tunnur. Þeir voru Skipaskagi með 143, Farsæll 138 og Ólafur Magnússon með 100. Síldin er ýmist söltuð eða fryst — Oddur. Fyrstu athuganir, sem gerðar voru á virkjun Sogsins voru ein- mitt gerðar 1924 við Efra-Sog, þótt ekki væri byrjað á bygg- ingu þeirrar stöðvar fyrr en síð- ast, svo sem kunnugt er. Árið 1951 hófust athuganir og mæling- ar fyrir hinni nýju stöð, en verk- ið sjálft hófst um vorið 1957. — Hornsteinn var lagður við hátíð- lega athöfn sumarið 1958. Enn er nokkurt verk eftir við hið mikla raforkumannvirki, sem er hið annað stærsta, sem byggt hefir verið hér á landi. Mun því vænt- anlega lokið á næsta sumri. — Allar pröfanir hafa gengið vel til þessa og við vonum að allt gangi vel, sagði Ingólfur að lokum. Bandaríski sendi- herrann kveður r Island John J. Muccio BLADIÐ hefur frétt, að John Muccio sendiherra Bandaríkj- anna á íslandi sé á förum héð- an og muni taka við öðru starfi fyrir Bandaríkjastjórn. Fer hann ásamt konu sinni til Washington á miðvikudaginn og er í ráði að hann taki við embætti sem varð- ar málefni ríkjanna í Mið- og Suður-Ameríku. John Muccio hefur verið sendiherra á íslandi rúm fimm ár, og er það lengri starfstími en venja er til um sendiherra. Hefur hann á þessu tímabili eignazt hér marga vini, enda hefur hann látið sig hag íslendinga miklu skipta í starfi sínu. Ekki mun enn ráðið hver tekur við starfi hans hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.