Morgunblaðið - 20.12.1959, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.12.1959, Qupperneq 1
 II Sunnudagur 20 des. 7959., IMý gerð af sjúkra börun Ý M S A R tilraunir hafa verið gerðar til þess að leysa þann vanda, hvernig koma mætti alvarlega slösuðum manni frá slysstað til sjúkrahúss, án þess að hann yrði fyrir hnjaski, sem leitt gæti til þess að meiðsli hans versnuðu. Sársaukinn og hættan á því að eitthvað gangi úr skorðum, er mest, þegar sjúklingnum er lyft frá gólfi eða jörðu upp á börur eða annað og síðan lyft aftur á sjúkraborð. Þessi vandi virðist nú að mestu leystur með notkun nýrra sjúkrabara, sem farið er að nota erlendis. Við notkun þessara bara þarf ekki að lyfta sjúkl- NÝ gerð af sjúkrabörum hefur verið reynd hér á landi. Börurnar eru einfald- ar að gerð, eins og sjá má af myndin'ni, en eiga e. t. v. eftir að breyta mjög til bóta flutningi slasaðra. Ljósmyndari Morgunblaðs ins, Ól. K. Magnúss., tók myndirnar fyrir nokkru við Slökkvistöðina í Reykjavík, en brunaverðir annast hér allan sjúkraflutning, sem kunnugt er. Júlíus Sesar" jólaleik- rít Þjóðleikhússins // ANNAN jóladag verður frum. sýnt í Þjóðleikhúsin, stórverkið Júlíus Sesar, eftir Shakespeare. Þjóðleikhússtjóri og Lárus Pálsson, leikstjóri, skýrðu blaða mönnum frá því á fundi á föstu- dag, að lengi hafi verið í ráði að sýna þetta rismikla og glæsilega verk, en framkvæmd af ýmsum ástæðum dregizt þar til nú. Það væri einn þátturinn í starfsemi Þjóðleikhússins að kynna íslenzk um leiklistarunnendum verk eft- ir Shakespeare, og þegar hefðu verið sýnd tvö verk eftir hann: „Sem yður þóknast", 1952, og ,,Jónsmessunæturdraumur“, en það var jólaleikrit Þjóðleikhúss- ins 1954. Milli 50 og 60 leikarar Aðalhlutverk hafa með hönd- um: Haraldur Björnsson sem leikur sjálfan Sesar, Rúrik Har- aldsson í hlutverki Brútusar, Markús Anton leikur Helgi Skúlason, Kajus Kassíus Jón Aðils og Kaska Róbert Arnfinns- son. Aðeins tvær konur koma þarna við sögu, og fara þær Guð- björg Þorbjarnardóttir og Her- dís Þorvaldsdóttir með hlutverk þeirra. Alls koma fram milli 50— 60 leikarar. Helgi Hálfdanarson þýddi verkið, en hann hefur einnig þýtt önnur Shakespears- verk, sem sýnd hafa verið í Þjóð- leikhúsinu. Magnús Pálsson mál- aði leiktjöld og teiknaði búninga. Vopn og hjálmar voru léðir er- lendis frá, ásamt nokkrum bún- ingum, en þeim breytt hér heima. Leikstjóri er Lárus Pálsson, eins og áður er sagt. Starfsemin eftir áramót — Æfingar standa nú yfir á barnaleikritinu: ,,Fólk og ræn- ingjar í Kardemommubæ" eftir Norðmanninn Thorbjörn Egner, sagði Þjóðleikhússtjóri ennfrem- ur, og er búizt við að sýningar á því hefjist um miðjan janúar. Þetta barnaleikrit hefur notið mjög mikilla vinsælda erlendist og er ekki að efa að svo verður hér einnig. Leikstjóri verður Klemenz Jónsson. Frú Hulda Valtýsdóttir og Kristján frá Djúpalæk hafa annazt þýðing- una. Sjúkraflutningsmenn ýta sinn hvorum burðarvængnum að líkama sjúklingsins. ingnum frá jörðu. Heldur er tveim burðarvængjum smeygt beggja meginn undir sjúklinginn og vængirnir tengdir saman með þverböndum úr málmi. Þá eru börurnar komnar undir sjúkling- inn, án þess að honum hafi verið lyft. Síðan eru börurnar leystar sundur undan sjúklingnum á sjúkraborðinu. — ^ V 4— Tvær giarðir “-*• snenntar uorinn í sjúkraum,,... yfir sjúklinginn — og hann Börur þessar eru einkum not- aðar við skyndiflutninga á mönn- um, sem slasast á götum úti eða á vinnustað. Brunaverðirnir í Reykjavík, sem hafa mikla reynslu í þessum efnum, hafa reynt börurnar og telja þær til mikilla bóta. Málmsmiðjan „Hella“ í Reykja- vík mun hefja smíði á svipaðri gerð sjúkrabara, eftir næstu ára- mót. — J. O. J. Jólin ollstaðar þou sömu, segir Sir Luurence Olivier — og fer til Banda- ríkjanna SOUTHAMPTON, Englandi, 17. des. (Reuter). SIR LAURENCE Olivier, hinn heimsþekkti leikari og leikstjóri, sigldi héðan 1 dag áleiðis til New York, en þaðan mun hann halda til Kaliforníu og eyða jólunum þar. Kona hans, leikkonan Vivien Leigh, var ekki með í förinni. Við brottförina neitaði Olivier að ræða sögusagnir um ósam- komulag þeirra hjóna. „Hvað mér viðvíkur eru jól í Bandaríkjunum engu verri en annars staðar", sagði hann. Oli- vier kvaðst fara til Hollywood til að endurtaka nokkur atriði úr kvikmynd, en ætlaði síðan að eyða jólunum með vinum sínum þar, áður en hann færi til New York til að stjórna uppsetningu á brezku leikriti á Broadway. Sjú skrífar Nehru brét PEKING, 18. des. NTB—AFP.; Kínverska kommúnistastjórnin hefur lagt til, að þeir Sjú En- læ forsætisráðherra Kina og Nehru forsætisráðherra Indlands hittist í Kína 26. desember til að reyna að finna lausn á landa- mæradeilu ríkjanna. í bréfi sem Sjú En-læ skrifaði Nehru segist hann vera reiðubú- inn að fallast á tillögu Indverja um að herliðið verði kallað til baka á Longsjú-svæðinu, enda verði hún grundvöllur viðræðna milli þeirra ráðherranna um að kalla til baka herlið á öllum þeim svæðum, sem deilt sé um. Bréf Sjú En-læ er svar við bréfi Nehrus frá 16. nóvember. Þar segir ennfremur, að vilji ind- verska stjórnin ekki fallast á fundarstað þeirra forsætisráð- herranna í Kína, sé kínverska stjómin fús til að fallast á Rang- oon í Burma, ef stjórnin þar geti sætt sig við það. Bréf Sjú En-læ kom til Nýiu Delhi í dag, og er indverska ut- anríkisráðið að kynna sér það nánar. Efni bréfsins var birt af kínversku fréttastofunni í dag. Sjú segir m. a. í bréfi sínu, að tillaga Nehrus um að kalla allt herlið burt frá Longjú-svæðinu eigi líka að gilda um tíu önnur svæði við landamærin, þar sem orðið hafa meiri eða minm árekstrar milli ndverskra og kín- verskra hermanna. Hann segir líka að hin gamla tillaga Kín- verja um að „friða“ öll landa- mærin séu enn í gildi. En kín- verska stjórnin sé reiðubúin að semja um hve gagngerð „frið- unin“ eigi að vera. Hins vegar kveðst Sjú ekki fallast á, að fjall- að verði um Ladakh-svæðið á sérstakan hátt, eins og Nehru leggur tih Vivien Leigh fer flugleiðis til New York eftir jólin, en hún á að leika aðalhlutverkið í leikriti, sem þar á að setja upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.