Morgunblaðið - 20.12.1959, Síða 2
2
MORGUNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 20. des. 1959
Akur-
i
Gull-
og dyrir sieinar
Síðustu dagana hafa verkstæði okkar af-
greitt nokkra mjög fagra hringa, sem nú eru
til sýnis í verzluninni.
Sýnissafn okkar af skartgripum úr gulli og
dýrum steinum er stórt og fjölbreytt og
vandað.
Trúlofunarhringar.
}) ^da^ur cjripur
tii yndiá
er œ
Jðn SípmunJsson
Skartyripaverzlun
nesmgar
kveðja
SÍÐASTL. sunnudag flutti Axel
Benediktsson, skólastjóri, héðan
með fjölskyldu sína til Reykja-
víkur. Axel var skólastjóri Gagn-
fræðaskólans á Akranesi síðastl.
vetur, en hvarf frá því starfi og
tekur nú við kennarastöðu, er
hann gegndi áður. Vel hlýðir, að
senda Axel kveðju og þökk. Eigi
er ofmælt, að hann hafi hér í bæ
áunnið sér virðingu og traust
allra þeirra, er kunna að meta
drengilega framkomu og prúð-
mennsku. Þann tíma, sem hann
hafði á hendi ábyrgðarmikla
stöðu hér, mótaðist starf hans og
umgengni af þeim kostum, sem
samfélaginu eru nauðsynlegir, og
mættu vissulega vera meiri í
samlífi og samskiptum manna,
en raun er á, oft og einatt. Það
er því að vonum, að vinir Axels
og bæjarbúar almennt fylgi hon-
um á braut héðan með eftirsjá.
Jafnvel í fjölmennu bæjarfélagi
er það svo, að það má engan
missa, sem reyndur er að mann-
kostum og trúmennsku í starfi
sínu, á sínum stað. Við slíka
eru jafnan góðu vonirnar bundn-
ar.
Héðan fylgir Axel og fjöl-
skyldu hans heilhuga þökk og
góðar óskir. Megi þær óskir færa
honum og heimili hans ríkulega
blessun. Persónulega þökkum
við hjónin honum fyrir dóttur
okkar, sem naut leiðbeininga
hans, og hún sjálf virðir og
þakkar.
Með jólakveðju.
Akranesi, 9. des. 1959.
Jón M. Guðjónsson.
Blóm í könnu. Eitt af málverkum frú Sólveigar Eggerz Péturs-
dóttur, er sýnir um þessar mundir í glugga Mbl. Myndiir
er máluð í olíu, en frú Sólveig sýnir 4 olíumálverk og 7
vatnslitamyndir. —•
Lesið upphátt
1 bókinni „Lesið upphátt“
eru 11 ævintýri með mynd-
um.
•
Gefið börnunum þessa bók
og léttið þeim þannig lestr-
arnámið.
Barnabókaútgáfan
MÁNI
— Sími 33934 —
JÓLABÓK
YNGSTU LESENDANNA
JÓI OG
BAMSIO
Heillandi ævintýri
Mynd á hverri síðu
Stórt letur
Verð aðeins kr. 22.-
TILVALIN JÓLAGJÖF
handa öllum ungum lesendum
Útgefandi
(lýjar vinnubækur í landafræði
MIKIÐ hefur verið rætt um það
og ritað, að kennsla í íslenzkum
skólum væri harla gamaldags,
sumir hafa jafnvel haldið því
fram, að hún væri í mörgum
greinum allt að því 50 ár á eftir
tímanum.
Þeir gagnrýnendur, sem ekki
eru í kennarastarfi, hafa látið í
það skína, að kennarar gleymi
oft að kenna, leiðbeina og hjálpa
við námið, að þeir telji aðeins
dómarastarfið í sínum verka-
hring, þ. e. að athuga hvort nem-
endur læri það, sem þeim er sagt
að læra. Ef nemendur geti ekki
ráðið við námsefnið hjálparlaust,
þá verði annað hvort að fá hjálp
handa þeim utan skólans eða að
þeir falli á prófum að öðrum
kosti. Skólinn veiti ekki slíka
hjálp. —
Enda þótt ég sé kennari í ein-
um af þeim skólum, þar sem
nemendur kaupa mikla einka-
kennslu, þá finnst mér það alveg
rétt, að ef nemendur læra mest
utan skólans með hjálp lítt æfðra
leiðbeinenda, þá er eitthvað bog-
ið við starf skólans. Aðalstarf
skóla og kennara hlýtur að eiga
að vera að hjálpa nemendum að
afla sér þekkingar, auka skiln-
ing og þroska og sjá um að nem-
endur nái eins miklum árangri,
eins og hæfileikar þeirra leyfa.
En kennarar hafa einnig haft
nokkuð um þessi mál að segja. Á
uppeldis- og fræðslumálaþingum
bæði barna- og framhaldsskóla-
kennara hafa oft heyrzt raddir
um og jafnvel komið fram álykt-
anir um það, að lítt sé á valdi
kennara lengur að breyta kennslu
aðferðum, námsefni eða yfirleitt
að koma með miklar nýjungar
inn í kennslustarfið. Slíkt sé
starf námsstjómar og stjórnenda
skóla. Þeim beri að líta eftir því
að kennarar nái sem beztum ár-
angri í starfi, benda á hagkvæm-
ustu kennsluaðferðir, útvega
hjálpargögn til kennslu og um-
I fram allt skipuleggja námsefnið
I samxæmi við getu nemenda.
Þegar þetta sjónarmið kenn-
ara er haft í huga, þá er ekki við
miklum nýjungum að búast frá
hendi kennara. Það kemur alveg
á óvart, að enn skuli vera til
kennarar, sem reyna að bæta
eigin kennslu. Einn þeirra er
Jón Þórðarson. Hann hefur auð-
sjáanlega ekki verið ánægður
með að heyra nemendur sína í
lexíum námsbóka, heldur hefur
hann viljað viðhalda og þróa for-
vitni þeirra og starfsgleði. Þess
vegna viðar hann að sér alls kon-
ar fróðleik, sem hann nú hefur
sett saman í tvö vinnubóka hefti,
ísland la og ísland og Færeyjar
lb. í vinnubókum Jóns má fá
svör við fjölda spurninga um fs-
land og Færeyjar, merka staði,
sögu, hagfræði og fjölda margt
fleira, margt, sem ekki er ástæða
til að kunna, en þeim mun meiri
ástæða til að skilja, en raunveru-
leg landfræðiþekking er fyrst og
fremst háð skilningi á nokkrum
frumlögmálum raunvísindanna.
Það er margt, sem landfræðin
grípur yfir, fátt, sem henni er
óviðkomandi, en það er mjög tak-
markað, sem hægt er að þjappa
saman í tvö smá hefti, enda ekki
mikið, sem melt verður á skömm-
um tíma á unga aldri.
Vinnubækur Jóns bæta úr
brýnni þörf, því að engar vinnu-
bækur munu vera til um ísland,
en næstu vetur ætti ekki að vera
nauðsynlegt, að láta nemendur
þylja lexíur í öllum landfræði-
tímum, heldur geta þeir meið
miklu meiri árangri unnið sig
inn í efnið, valið og hafnað, æft
skrift, teikningu, lestur, náttúru-
fræði, sögu og fleira, jafnframt
því að þeir öðlast betri skilning
á landfræði en aðrir jafnaldrar.
Það má að sjálfsögðu ýmislegt
að vinnubókum finna og það þarf
nokkra æfingu til að nota þær.
Vinnubækur Jóns eru frumsmíði
og munu án efa taka nokkrum
breytingum í framtíðinni, en Jón
hefur unnið þrekvirki, að semja,
og gefa út á eigin spítur verk,
sem ekki er aðeins nothæft í
barnaskólum, heldur einnig í
framhaldsskólum, og því ber að
fagna en ekki gagnrýna, eða leita
uppi smágalla. Mér finnst eins og
fleiri kennurum að það sé starf
námsstjórnar að sjá kennurum
fyrir kennslugögnum. Það hefur
ekki. verið gert í landfræði. Nú
hefur vandinn verið tekinn af
námsstjórninni í þessari grein, og
þá finnst mér það minnsta, sem
hægt er að ætlast til að hún sjái
um að viðleitni eins og þessi til
að bæta kennslutækni, komi að
notum. Námsstjórnin ætti því að
senda vinnubækur þessar í alla
barna- og unglingaskóla og leið-
beina kennurum um notkun
þeirra. Annars er ekki sennilegt
að kennarar geri strax aftur fjár-
hagsfrekar tilraunir til að blása
lífi í kennsluna.
Reykjavík, 1. des. 1959,
Guðmundur Þorláksson.
LömiHiar-veiran
ljósmynduð
ALBANY, 18. des. NTB-AFP. —
Tveir læknar í Albany höfuðborg
New York ríkis, hafa Ijósmyndað
þróun veirunnar, sem veldur löm
unarveiki, í sellu mannslíkam-
ans. Myndirnar sýna að veiran
æxlast ekki í sellukjarnanum eins
og áður var haldið. Læknarnir
starfa báðir fyrir heilbrigðisyfir-
völdin í New York ríki. Þeir hafa
sýnt fram á að veiran kemur
fyrst í fljótandi efni, sem skilur
sellukjarnann frá selluveggnum.
Þeir hafa einnig sýnt fram á, að
á nokkrum klukkustundum getur
sella framleitt 100.000 smáagnir,
sem eru svo litlar að þær taka
aðeins 1—2% af því rúmi sem
þær hafa til umráða. Niðurstöður
læknanna eru taldar mjög merki-
legar. Rannsóknir voru kostaðar
af bandaríska krabbavarnafélag-
inu.