Morgunblaðið - 20.12.1959, Blaðsíða 3
Sunnudagur 20. des. 195C
MORCTJNfíLAÐlÐ
3
’v> ' ^,ww"rv'> 'w' ■•■>■•
i
í EINNI af ritgerðum síníim,
sem birtast í bókinni Ferða-
bók dr. Helga Pjeturss raeðir
höfundur um ísland og fram-
tíðinda og kemst m.a. svo að
orði:
„Um aldamótin 2000 verður
ísland orðið eitt af skemmti-
legustu löndum jarðarinnar,
og veðurfarið mun þá ekki
verða því til fyrirstöðu að
fegurð landsins fái að njóta
sín. Loftslagsbreytingin er nú
þegar farin að gera vart við
sig á mjög eftirtektarverðan
hátt, þó að allt gangi enn
skrykkjótt um þær og allar
aðrar breytingar til batnaðar.
En þó þyrfti ekki svo að vera.
Um aldamótin 2000 verða
hagir mannkynsins orðnir
gerbreyttir frá því, sem nú er.
Væri um það langt mál að
rita, en ég mun að sinni aðeins
drepa á nokkur sérstaklega
mikilsverð atriði. Fyrst og
fremst verður heilbrigði og
farsæld miklu almennari og
meiri en nú gerist, því að
mjög miklu betur verður'
kunnað að færa sér í nyt það,
sem miðar til eflingar lífsins,
hvort sem það er ástin, ljós-
ið, eða fýri og ilmi (ozon)
loftsins. Hver maður mun þá
eiga þess kost miklu framar
en nú gerist, að ástunda að
verða sem fullkomnastur,
Minjasafn um Einar
Benediktsson
Um aldamótin 2000
bæði andlega og likamlega.
Mjög mikil breyting verður
orðin á atvinnuvegunum. Eng
inn maður verður þá að ala
aldur sinn við að brjóta berg
í þröngum námugöngum og
eiga á hættu, eins og oft hefir
borið við, að verða þar lifandi
grafinn og bíða hinn hræðileg-
asta dauðdaga. Þess verður þá
engin þörf, að farið sé niður í
jörðina til að sækja sólskin —
því að kol má segja að sé
margra milljón ára gamalt
sólskin í nokkurs konar álög-
um, sem það leysist úr, þegar
kolin brenria. Menn munu þá
kunna að nota sólskin samtíð-
arinnar. Jarðrækt mun verða
stunduð mjög mikið, en með
mjög breyttum og nýstárleg-
um aðferðum. Hraðrækt
mætti nefna það, og verða við
það notaðir geislar, sem menn
vita nú lítið um. Nýjar ávaxta
tegundir verða þá framleidd-
ar, miklu hollari og bragð-
betri en þær, sem nú þekkjast.
En ekki er ég með þessu að
segja, að hveiti og rúgur verði
þá úr sögunni, heldur munu
þá verða notaðir til fulls
bragð- og hollustumöguleikar
þessara ágætu ávaxta; en enn
sem komið er vantar mikið
á að það sé gert eins og mætti.
Alls ekki verður þá tíðkað að
ala upp skepnur til þess að
drepa þær. Gagnvart selum
og hvölum, þessum merkilegu
dýrum ,sem nú eiga svo hrylli-
legu miskunnarleysi að mæta
af mannanna hálfu munu
menn koma fram eingöngu
sem dýravinir og hafa mikla
ánægju af þeim á ferðum sín-
um. og það mun verða ferðazt
mikið. Allir munu eiga kost á
að sjá mikinn hluta jarðar-
innar. Styrjaldir verða engar,
enginn vill þá taka á sig hin-
ar óumflýjanlegu afleiðingar
af því að meiða eða drepa.
Einnig verða ýmsar deilur
flokka og einstakra manna
miklu minni en nú, auðveld-
ara að forðast deiluefnin og
koma á samtökum. Ósamkomu
lag um trúarbrögð verður úr
sögunni að miklu eða mestu
leyti. Menn munu eftir vís-
indalegum aðferðum leita sam
bands við lengra komnar ver-
ur á stjörnunum, og slíkar
verur verða hér jafnvel tíðir
gestir. Eins og nokkurs konar
æðra sólskin yfir öllu lífinu,
verður hin aukna víðsjá og
framsjá. Meir og meir munu
menn vita, hvers vænta má af
framtíðinni, og meir og meir
verður það, sem þó er óvænt,
betra en búizt hafði verið við,
svo að hið fornkveðna: margt
gengur verr en varir, verður
þá ekki sannmæli framar. Og
eins og ég hefi getið um hér
áður, verður mikil rækt lögð
við draumlífið, og svefnhvíld-
in notuð til að kynnast lífinu
á öðrum stjörnum“.
Jél í sól
NÝLEGA var haldinn aðalfundur
útgáfufélagsins Braga, en svo
sem kunnugt er, annast þetta fé-
lag útgáfu á öllum verkum Ein-
ars Benediktssonar, en auk þess
beinist starfsemi þess að því, að
halda á lofti minningu skáldsins
og hugsjónum. Félagið hefur með
höndum og áformar framkvæmd
margvislegra verkefna í sam-
ræmi við þessa stefnuskrá sína.
MINJASAFN
Aðalfundurinn samþykkti að
gangast fyrir stofnun minjasafns
um Einar Benediktsson, en það
mál hefur af hálfu BRAGA verið
undirbúið að undanförnu. Er
þetta viðamikið verkefni og
vandasamt, og mikið undir því
komið, að fyrstu framkvæmdir
fari vel úr hendi.
Þóroddur Guðmundsson skáld
frá Sandi hefur tekizt á hendur
fyrstu framkvæmdir í sambandi
við stofnun minjasafnsins. Þór-
oddur er þaulkunnugur verkum
Einars og metur þau mikils.
TUTTUGU OG FIMM KVÆÐI
MEÐ SKÝRINGUM
Fyrir alllöngu ákvað Bragi
að hlutast til um útgáfu 25
viðamestu og torráðnustu
kvæða Einars Benediktssonar
með sérstökum skýringum.
Tók séra Sigurður Einarsson
skáld í Holti þetta verk að
sér, og hefur unnið að því um
nokkurt skeið. Mun þessi
nýstárlega bók koma út á
næsta ári, og er með útgáfu
hennar stefnt að því, að
skýra á einfaldan hátt það,
sem skýringar þarf við í þess-
um kvæðum, en leiða jafn-
framt í Ijós meginhugsun
skáldsins, gera grein fyrir list-
rænum vinnubrögðum þess og
fegurð verksins í heild. Án
efa verður bókin ekki síður
vinsæl en Sýnisbókin, sem
Almenna bókafélagið og Bragi
gáfu út sameiginlega árið
1957, og nú hefur velrið seld
í fullum 8000 eintökum.
MINNISVARÐI
Svo sem kunnugt er, hefur
Ásmundur Sveinsson, mynd-
höggvari, um nokkurt skeið
unnið að því að gera minnisvarða
um Einar Benediktsson, og mið-
ar því verki örugglega áfram. Ás-
mundur leggur sig mjög fram við
þetta verk, enda þekkti hann
Einar vel, og mat hann og list
hans mikils, og hefur um árabil
þróað með sér hugmyndir um
gerð minnismerkisins. Af hálfu
Braga er lögð áherzla á, að hraða
þessu verki svo sem auðið er.
Ýmis fleiri áform hefur Bragi,
félag Einars Benediktssonar, á
stefnuskrá sinni, þótt þeirra
verði ekki getið að þessu sinni.
Minna má á, að hifin 31. október
1958, á afmælisdegi skáldsins,
hafði félagið forgöngu um sér-
staka útvarpsdagskrá er helguð
var minningu Einars.
Stjórn útgáfufélagsins Braga
var öll endurkosin en hana skipa:
Magnús Víglundsson, ræðis-
Einar Benediktsson
maður, formaður; Jón Eldon,
fulltrúi; dr. Alexander Jóhannes-
son, prófessor, og Pétur Sigurðs-
son, prófessor.
Norskir stúdeníar
gegn Siðvæðingu
Á FUNDI norska stúdentafélags-
ins á laugaradginn, var rætt um
bækling þann, er Siðvæðingin
(Moral Rearmament) lætur nú
dreifa ,á Norðurlöndum og víðar.
Stúdentafélagið kvað ýmislegt
í bæklingi Siðvæðingar svo öfga-
fullt að það torveldaði þær til-
raunir sem gerðar eru til að
skapa grundvöll fyrir friði og
sambúð þjóða. Þá lætur stúdenta-
félagið í ljósi undrun sína á því
að ýmsir þekktir háskólaborgarar
Ijái nafn sitt og jafnvel vinni að
útbreiðslu bæklingsins.
Mikill fjöldi talaði á fundinum,
og frá öllum hliðum bárust á-
deilur, bæði á bæklinginn og á
opinberar umsagnir um málið.
í FRAMHALDI af þeirri sam-
vinnu um vetrarferðir til Mall-
orca, sem tekizt hefur með ferða-
skrifstofunni Sögu hér í Reykja-
vík og hinu danska ferðafélagi
Aero Lloyd, ætlar Saga að efna
til jólaferðar suður á Miðjarðar-
hafseyjuna Mallorca. Þátttöku-
gjaldið er mjög lágt, þó eingöngu
verði gist á góðum gistihúsum.
Héðan verður fyrst haldið með
íslenzkri flugvél til Kaupmanna-
hafnar og geta menn dvalizt þar
til 20. desember en þá fara allir
þátttakendurnir með flugvél til
Palma. Til Kaupmannahafnar
mun verða komið aftur þann 3.
janúar beina að sunnan. Þá munu
íslenzku þátttakendurnir geta
haldið heim með flugvél strax
næsta dag, ef þeir óska.
Meðan dvalizt er á Mallorca
geta ferðamennirnir gert sér
hvaðeina til yndis og ánægju,
t. d. stundað sól og sjóböð, því
sjórinn er eins hlýr og við Norð-
urlönd um hásumarið.
Mikið er um dýrðir þar syðxa
um jól og áramót. En á aðfanga-
dagskvöld verður efnt til „nor-
rænna jóla“ fyrir þátttakendur
og verður t. d. flutt með hópnum
jólatré frá Kaupmannahöfn.
proghess
Lampar I eldhús og borðstofur
til að draga upp og niður.
Jólahreingerning húsmóðuninnar
— plága húsböndans —
verður léttari ef PROGRESS ryksugan er við hendina
PROGRESS ryksugur eru heimsþekktar fyrir
hina snjöllu þýzku tækhi.
PROGRESS bónvélar eru endingargóðar, þægi-
legar í meðförum og sterkar.
PROGRESS vélarnar eru vélar framtíðarinnar.
Gjörið svo vel að líta
í gluggana um helgina.
Vestnrgötu 2 — Sími 24330.