Morgunblaðið - 20.12.1959, Síða 7

Morgunblaðið - 20.12.1959, Síða 7
Sunnudagur 20. des. 1959 MORCUNItT, AÐIÐ 7 aflestrar gömlum Islendingi. í>ar er bæði gaman o-g alvara á ferð- um og margar hnittnar visur, sem skemmta lesandanum: — Tveir haenn voru að deila um það, hvort menn mættu hafa fleiri en eina konu. Segir annar: „Hver vill sanna, að hilmir hæða hafi bannað konur tvær? sem að manni geðið glæða. Gegni hann, sem til er fær“. Hinn svarar þá: „Ein var meyjan Adam gefin, oss það segir ritning skær. Minn því hneigist að því eíinn að aðrir megi hafa tvær“. Síðan lagði svo þriðji maður sitt til málanna og vitnaði í biblí una, en í þeirri bók er sagt frá mörgum stórhöfðingjum, er létu ' sér engan veginn nægja ein-' kvæni; nægir að benda á Davíð konung og sjálfan Salomon: „Kóngur Davíð, kempa mesta, kunni að skrafa baugs við nó. Yfir hafinn hölda flesta, hann var afargóður þó. Lofungs sonur, listahraður lukkan honum veitti nóg. Saiómon var sómamaður, sand af konum átti þó“. í>arna er sagt nokkuð frá Frið- birni i Staðartungu, tengdaföð- ur Kristjáns skálds frá Djúpa- læk, og vísum hans, en þær eru margar ágætar. — Þetta kvað hann um tvo nágranna sína, mann og hund: „Sá ég hund með mann á móti, á melnuTn, fyrir handan á. Léttfættur á leir og grjóti. Listaskepna er hvutti sá. Glöggt ég þekkti granna mína. Greindi líka að það var tap fyrir veslings Sam að sýna sig í slíkum félagsskap“. Eftirtektarverð saga er „Vof- an í Laufási, við Eyjafjörð“. Um dularfulla hluti fjallar einnig sagan um „Líkklæði gömlu kon unnar". „Kirkjugarður ris“, er enn ein dularfull sögn, en „Glat að tækifæri“ er sögn um miðils- fundi; tækifærið sem glataðist, var í því fólgið, að nokkrir pilt- ar söfnuðust um andaborð, studdu á það hönaum og kom brátt í það andi nokkur. Spurðu þeir hann einskis en báðu hann að skreppa fyrir sig og ná í sjálf- an andskotan, skyldi hann koma an andskotann, skyldi hann koma þyrftu nauðsynlega að rabba dá- iítið við hann. Borðið stanzaði þá sem snöggv ast, en siðan tók það haröan kipp, og síðan hvern kippinn af öðrum svo æsilega, að brakaði í því og allt lék á reiðiskjálfi. Kipptu þá piltarnir að sér höndum og gáðu þess ekki að hafa tal af gestinum, sem í borð ið var kominn! Skruddur Ragnars Ásgeirsson- ar eru skemmtilegar bækur, sem gaman er að eiga og líta í sér til gamans. Þær eru eins kon ar „Kokkteill" þjóðlegra fræða, og þar hefur mörgu góðu verið bjargað frá gleymsku. Ragnar hefur skopskyn gott og glöggt auga fyrir því, sem gaman er að í þjóðlegum fræðum, kann auk þess vel að segja frá því. Þessir eiginleikar hans gera Skrudd- urnar að mjög svo geðþekku lestrarefnj. Ástaraugun. Frægar astasögur frá ýms- um löndum. Guðmundur Frímann valdi og íslenzkaði. Útgáfan Dögun. Þetta er snotur bók, full af góðum skáldskap, þýddum sög- um af ýmsu þjóðerni. Bezt og áhrifaríkust er fyrsta sagan Vilma eftir Sándor Hunyaday. Hún fjallar um unga sveita- stúlku, sem festir ást á her- manni af ofurlítið hærri stigum en hún. Það sem íslendingum mun veita dálítið erfitt að kingja, í sögukorni þessu, er hin gifurlega áherzla sem höf. legg- ur á stéttarmun, sem í þessu til- feili er í rauninni sáralítill. En svona var þetta nú á þeim stað 1 ' og tíma, sem sagan gerist á. Hún gefur meira að segja glögga mynd, einmitt af því ástandi sem í þeim málum ríkti, um það leyti sem fyrri heimsstyrjöldin skall á. Þetta gerist í Transsylvaníu. Ánægju lesandans skal ekki spillt með því að rekja söguefnið, en ég hygg að engin muni gleyma þessari frásögn, sem les hana, þar fer allt sarnan sem góða sögu má prýða: ágæt umhverfislýs- ing, vel samræmd atburðalýsing unum, sem allar eru ljóslifandi, og áhrifamiklar persónulýsingar, einkum af aðalpersónunni, Vilmu, sem er listasmíð. Rauða-Barbara eftir Líam O’Flaherty er saga af frum- stæðri konu og frumstæðu fólki, vel gerð eins og smásögur O’Flahertys almennt eru, en skil- ur heldur lítið eftir að lestri lokn um, þó eru báðar aðalpersón- urnar, Barbara og maður henn- ar vefarinn, gæddar lífi, og les- andinn sér þær vel. Vitiaus í stráka eftir John de Meyer er indæl og lifandi saga um ástir unglinga og það djúp sem staðfest er á milli hugsunar háttar kynslóðanna. Það er sjálf ur blær sögunnar er gerir hana hugþekka, en persónulýsingarnar eru líka góðar, þó yfir þeim sé viss „blámóða“, en til þess er auðsjáanlega ætlast af höíundar- ins hendi. Næst er Hagnýtur tímareiking- ur eftir A. P. Tjekov, er lítil skemmtisaga, bráðfyndin, en að öðru leyti ekki mikilsverð. Eva, eftir Finn Gerdes, er fal- leg saga um holdlega bernskuást, lipurt skrifuð, og listilega gerð. >á er sagan Á engjum eftir H. E. Bates. Það er haglega gert riss um girnd og fryggð, — lifandi atburðalýsingar og skýrar en nokkuð einhliða persónulýsing- ar, sem lesandinn trúir þó á. Hér er um að ræða mjög frumstæðar persónur, og sagan er sama eðl- is og Kona manns, er þótti á sín- um tíma nokkuð bersögul. — Eftir sama höf. er Serkurinn sem fjallar einnig um frumstæða girnd og ótæmdar villtar ástríð- ur. Sú saga er ekki nándar eins vel gerð og þó all-læsileg. Án blóma, eftir Pantelejmon Romanoff, er frásögn af ástum rússneskrar æsku undir ráð- stjórn. Er þar málað með skrambi dökkum litum, en Ro- manoff er góður rithöfundur, og honum tekst að gera þetta svo lifandi, að lesandann hryllir við. Lýsingin af piltinum er sérstak lega góð. Maður með mönnum, eftir Celso Al. Carunungan, er skemmtilega framandi og skrítin, enda gerist hún í Austurlöndum. Það er yfir henni ferskur en ókunnlegur blær, sem minnir á angan af þroskuðum banönum. Ég held að mörgum verði hún minnisstæð, þótt hún fjalli ekki um stóra hluti. Jarðarberjauppskeran, eftir Erskíne Caldwell. Hún er vel gerð eins og all-margar sögur Caldwells, en hún skilur skrambi lítið eftir lestri loknum. Opinberun, eftir Rhys Davies, er aftur á móti mjög geðþekk saga, enda þótt íslenzkum nútíma lesendum kunni að koma efni hennar spænskt fyrir. Sagan fjall ar nefnilega um það, að námu- mann einn langar til að sjá kon- una sína nakta. En það er ekki til siðs þar í sóknum, enda bregzt frúin í fyrstu hið versta við. — j Þetta lagast þó allt og frásögnin af því er mjög vel gerð. Þá er Tartarahöfðinginn eftir Maxim Gorki. Það er fræg smá- saga, eða öllu heldur ævintýri eftir gamla manninn rússneska, forkunnar vel gerð og minnir á sígaunahlj ómlist. Loks er Gamla skrauthliðið eftir André Maurois. Lítil saga, snotur og angurvær, gerð af list- rænni tækni, eins og flest eftir Maurois. Falleg bók eins og fyrr er að vikið. Þýðingarnar eru yfirleitt vel gerðar, en eitthvað minnir mig að ég sæi af prentvillum! JÓLABÆKUR BÓkFELLSÚTGÁFUlAR FAGRAR \Ð FRAGANGI FROÐLEGAR AB EFEVI SKEMMTILEGAR AFEESTRAR MENN OG MINNINGAR eftir Valtý Stefánsson ÍSOLD HIN SVARTA sjáfsævisaga Kristmanns Guðmundssonar FERÐABÓK Dr. Helga Pjeturss Á FERÐ OG FLUGI endurminningabók Oscars Clausen BISKUPINN í GÖRÐUM saga Árna Helgasonar Á meðal þessara bóka finnið þér örugglega jólagjöf, sem hentar, hvort heldur ung- um eða öldnum, körl- um eða konum, því að þetta eru allt úrvals bækur, hver á sína vísu. Bláa drengjabókin STEINAR sendiboði keisarans Rauða telpnabókin KLARA og telpan, sem strauk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.