Morgunblaðið - 20.12.1959, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.12.1959, Blaðsíða 8
8 MORCTJyrtr irtifí Sunnudagur 20. des. 1959 TAKIÐ EFTIR kvenkjólar í stærðunum 46, 47 og 48. Lækkað verð. LAUFIÐ, Aðalstræti ROT AF LEX Skermar eru komnir aftur Rotaflex eru lampaskermar framtíðarinnar. Nýtt form. Nýtt efnj Rotaflex lampaskermar gefa góða birtu, draga ekki mikið úr ljósmagni. Þægilegir til að vinna við og falleg- ir í útliti. — Fallegir litir. Rotaflex lampa í eldhús er hægt að lækka og hækka. Með hinum léttum og stílhreinu línum Rotaflex eru þeir hentugir til notkunar þar sem óskað er eftir fallegri og þægilegri birtu. Vesturgötu 2 — Sími 24-330. JÓLA GJAFIR fyrir herra Kjólskyrtur — kjólvesti — Treflar — Hanzkar — Minervaskyrtur — Manchetteskyrtur Náttföt — Treflar — Bindi atab'úðim Orkan GÍSLI H. JÓNSSON, bóndi á Stóra-Búrfelli í Svínavatns- hreppi, Austur-Húnavatns- sýslu, var staddur í höfuð- borginni á dögunum. Tíðinda- maður blaðsins hitti Gísla að máli og notaði tækifærið til að spyrja hann frétta úr sveit hans og sýslu. Við spurðum hann fyrst um veðrið, sem enn veldur miklu um búskap- arafkomu, þó nú sé það að vísu minna en áður var, vegna aukinnar véltækni í þágu landbúnaðarins. Um tíðarfar í Húnaþingi fórust Gísli m. a. orð á þessa leið: — Veturinn frá áramótum til vors var ákaflega mildur. Kom gróður með allra fyrsta móti. Var kominn sauðgróður til gagns þrjár vikur af sumri, en það er óvenjulegt hjá okkur, svo útlitið var mjög gott. En í maílokin gerði vont kulda kasti og komu tvö mikil vorhret, einhver þau verstu, sem koma norðanlands. Seinna hretið var 17. júní. Þá gerði svo mikinn snjó, að fé fór í fönn, en slíks vissu elztu menn fyrir norðan ekki dæmi fyrr. Fé misfórst í fjalllendinu austan Blöndu, í Engihlíðar- og Vindhælishreppi, þar sem það var komið upp um öll fjöll. í mínu nágrenni fórst aftur á móti ekkert og bjargaði hve góður gróður var kominn og fénu farið að líða vel. Sumarið var hlýtt og sérstak- lega mikil grasspretta svo grasið var víðast of miltið, það spratt svo ört. Nýting heyja var aftur á móti slæm, því þetta var með mestu votviðrasumrum, sem kom ið hafa hjá okkur. — Er heyfengur bænda þá lé- legur? — Heyfengur er yfirleitt feikna mikill, en mikið af heyjunum er illa verkað. Súgþurrkun og vot- heysgerð eru óvíða og er heyið því ekki verkað í stórum stíl. Votheysgerð er yfirleitt í byrjun hjá okkur. Hirðingin dróst fram á haust víðast hvar, því hvert stórúrfellið rak annað. Sem dæmi um rigninguna má geta þess, að þar sem tún voru raklend var orðið svo blautt, að jeppar, dráttarvélar og önnur Ævintýri í himingeimnum eftir Kristmann Guðmundsson er fyrsta vísindaskáldsagan, sem kom- ið hefur út á íslenzku. Bókin er samin eftir dagbókarblöfl- um Inga Vítalíns, og segir á f jör- legan hátt frá ferðum hans um geiminn. Ekkert skal fullyrt um sannleiksgildi hennar því slíkt er þýðingar- lítið. títgefandi. Gísli H. Jónsson flestum bændum er fólksleysið. Vinnukrafturinn er bæði svo dýr og eins oft enga hjálp að fá jafn- vel þó hátt kaup sé í boði þvf allir lausamenn leita sér atvinnu annars staðar. — Fækkar býlum eða fjölgar hjá ykkur? — Það fara alltaf einhverjar jarðir í eyði, einkum þar sem af- skekt er eða aðstaða á annan hátt erfið. En betur settum jörð- um er skipt og ég held því að býlum hafi ekki fækkað í hérað- inu. — Er nokkurt sérstakt mál, sem þú vildir ræða? — Já, það er eitt, sem við höf- um orðið illa afskiptir með í minni sveit, og það er rafmagnið. Við höfum ekkert rafmagn feng- ið og ekkert loforð um að við fáum það í bráð. Þó leggjum við til vatnsaflið í helztu virkjun í Húnavatnssýslu og verðum ár- lega fyrir miklum landspjöllum vegna þeirrar virkjunar og get ég þar trútt um talað. Stífla var Ijósið og ylurinn # * * * 0 & & « * & & 0 »& H & + & # & # # * 0 & * * 0 # & 0M IRætt við Gísla H. Jónsson bónda I á Stóra-Búríelli | tæki ristu gegnum grasrótina svo ófært var að keyra um túnin. — Hafa menn fækkað bústofni vegna lélegra heyja? — Nei. Það held ég menn hafi yfirleitt ekki gert. Við treystum á að gefa fóðurbæti með þessum hröktu heyjum. En það er fyrir- sjáanlegt, að þessi ótíð kemur til með að kosta mjög aukin fóður- bætiskaup. — Þykir ykkur fóðurbætirinn ekki dýr? — Jú, hann er orðinn afskap- lega dýr og hefur hækkað mikið á tveimur undanförnum árum. Það er a. m. k. óhætt að slá því föstu, að samanborið við afurða- verðið er hann mjög dýr. — Hefur veturinn ekki verið góður það sem af er? — Það hefur verið góð tíð, nema hríðin, sem gerði í nóvem- ber og var með verstu hríðum, en snjórinn stóð stutt. Að öðru leyti má veturinn teljast góður fram að jólum. — Er ekki búskapur yfirleitt blómlegur í Húnaþingi? — Jú, yfirleitt er það. Fram- kvæmdir hafa verið miklar og menn búa stórt miðað við það sem var. Það sem stendur fyrir gerð í Svínavatni og þegar hækk ar í vatninu, grefur undan bökk- unum og landið brotnar niður auk þess, sem hættur skapast fyr- ir skepnur. Rafstöðin var upp- haflega byggð fyrir Austur-Húna vatnssýslu, en síðar afhent rík- inu. Nú hefur verið lögð raflögn frá stöðinni að Hvammstanga án þess, að við í sveitinni, sem út- vegum orkuna og verðum fyrir spjöllum vegna virkjunarinnar, fáum nokkurt ljós eða yl frá því rafmagni sem framleitt er. En nú er svo komið í sveitum landsins, síðan góðar byggingar komust upp, að helzti munurinn á þæg- indum í sveit og kaupstað er raf- magnið. — Hefur ykkur ekki verið bætt það tjón á landi, sem stíflan hef- ur valdið ykkur? — Ekki enn. Það var á sínum tíma gerð umkvörtun og fyrir- spurn um þetta. Athugun var lofað, en engin leiðrétting hefur fengizt. — Nokkuð sérstakt, sem þú vildir taka fram að lokum? — Ekki annað en það, að ég hef mikla trú á framtíð sveit- anna. J.H.A. ÍBUÐ TIL SOLU 4ra herb. íbúð í Álfheimum 38 III. hæð, hægri dyr, til sölu. íbúðinni fylgir geymsla og þvottaherbergi í kjallara. íbúðin er laus 1. janúar 1960. íbúðin er til sýnis milli kl. 4—6, laugard. og sunnudag. GRÓÐRASTÖÐIN v/Miklatorg — Sími 19775, CTSALAN Laugavegi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.