Morgunblaðið - 23.12.1959, Page 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 23. des. 1959
Eisenhower lýkur
langferð sinni
Madrid og Casablanca,
22. des. (Reuter). —
EISENHOWER gisti í Madrid sl.
nótt. Um morguninn átti hann
viðræður við Francx) einræðis-
herra. Síðdegis var hann kominn
með þotu sinni til Casablanca,
stærstu borgar Marokko, þar
sem aragrúi fólks fagnaði hon-
um. Um kvöldið ætlaði hann að
stíga aftur upp í þotu sína og
vera kominn til Bandaríkjanna
eftir 6 klst. flug.
Viðræður við Franco
1 tilkynningu um fund þeirra
Eisenhowers og Francos segir,
að viðræður þeirra hafi farið
fram í vináttu og skilningi. Eis-
enhower rakti fyrir Franco hver
hefði verið tilgangur hans með
förinni til ellefu ríkja í Evrópu,
Afríku og Asíu og að hverju
væri stefnt með hinni væntan-
legu ferð hans til Rússlands
næsta vor.
Þeir þjóðhöfðingjarnir voru
sammála um það að mikilvægur
árangur hefði náðst í varnar-
samstarfi Bandaríkjanna og
Spánar og kváðust þeir vona, að
þátttaka Spánar í Efnahagssam-
vinnustofnuninni gæti orðið
grundvöllur efnahagslegra fram
fara í landinu. Ekkert var
minnst á hugsanlega aðild Spán
ar að NATO. Fréttamenn segja
að það hafi verið eftirtektarvert
að — isenhower minntist lítið á
Franco einræðisherra í ræðum
sínum og ávörpum. Hann talaði
fremur til „spænsku þjóðarinn-
ar“.
Fagnaðarlæti í Marokkó
Þegar kom til Casablanca í
Marokko, mætti Eisenhower for
seta einn þéttasti manngrúi, sem
heilsað hefur honum í hinni
löngu för hans. Á flugvellinum
við Casblanca buðu konungur,
krónprins og forsætisráðherra
Marokko hann velkominn. En á
leiðinni inn í borgina stöðvaðist
bílalest forsetans og fylgdarliðs
hans nokkrum sinnum og tafðist
enn frekar á öðrum stöðum,
vegna þess að manníjöldinn
gerði „aðsúg“ að forsetabílnum
til að hylla Eisenhower. Með-
fram allri leið þeirri sem Eis-
enhower ók um stóð manngrúi
og veifaði fánum. í hópnum var
m. a. fjöldi blæjuklæddra
kvenna. Á einum stað hafði ver-
ið komið upp spjaldi þar sem á
var letrað: Eisenhower gerðu
Framh. á bls. 23
9 þús. tunnur vantar
upp i samninga
Vona
Magnús Jónsson — í Ieikbúningi
að ég fái Tosca
HEILDARSÖLTUN Suðurlands-
síldar nemur nú tæpum 50 þús.
tunnum, samkvæmt upplýsingum
sem blaðið fékk í gær hjá Gunn-
ari Flóvenz, framkvæmdastjóra
Síldarútvegsnefndar.
Saltað hefur verið að fullu
upp í þá samninga, sem eingöngu
gera ráð fyrir smárri síld og
heilsaltaðri, svo sem til Austur-
Þýzkalands og Rúmeníu. Aftur á
móti vantar ennþá um 9 þús.
tunnur upp í Rússlandssamninga,
en samkvæmt þeim verður helm-
ingur síldarinnar að vera stór-
síld, en helmingur má vera milli-
síld, þó ekki smærri en 650 stk. í
tunnu,
Þá er ennfremur eftir að salta
til viðbótar nokkurt magn fyrir
Rússlandsmarkað, sem ekki tókst
ð afgreiða frá Norðurlandi.
Síldarútvegsnefnd hefir nú náð
samkomulagi við hina rússnesku
kaupendur um framlengingu
söltunartímans til miðs janúar,
og má því búast við að söltun
haldi áfram enn um skeið.
Þrátt fyrir mjög góða veiði, það
MAGNÚS Jónsson, óperusöng-
vari, kom heim frá Kaupmanna-
höfn í gær og hyggst eyða jóla-
leyfi sínu hér, en utan fer hann
aftur í byrjun janúar. — Er
fréttamaður blaðsins hringdi til
Magnúsar í gær, skömmu eftir
að hann kom, kvaðst hann ekki
mundu halda neina hljómleika að
sinni, þar sem dvöl sín yrði svo
stutt. Ja, það er að segja — það
gæti verið að ég syngi eitthvað á
skemmtunum til þess að hafa
svolítið upp í ferðakostnaðinn,
sagði hann svo.
★
Magnús hefir undanfarið sung-
ið sömu hlutverk og í fyrra —
í Grímudansleiknum og La Bo-
heme, en þegar blaðamaðurinn
spurði, hvað væri nýtt á döfinni,
lét hann lítið yfir. — Það er að
segja, sagði hann svo, ég vonast
tli að ég fái tenórhlutverkið í
Tosca í vetur. Það er ekki ákveð-
ið ennþá — en ég vona sannar-
lega að af því verði. — Auk þess
gæti komið til mála, að ég syngi
í Ariadne eftir Strauss. Eins verð
ur II Trovatore e. t. v. tekin upp
aftur með vorinu.
Magnús kvað samning sinn við
óperuna renna út í vor, en sér
yrði væntanlega boðinn nýr samn
ingur, og vildi hann gjarna ráða
sig til eins eða tveggja ára í við-
bót. — Blaðamaðurinn innti hann
eftir, hvort hann hefði sungið á
hljómplöturn ytra. Kvaðst hann
nýlega hafa sungið á konsert í
stóra salnum í útvarpinu danska
— hefði hann verið tekinn upp
og yrði væntanlegur fluttur í
útvarpið hér. Einnig hefði hann
sungið sérstaklega inn á segul-
band fýrir Ríkisútvarpið. — Ekki
sagðist hann vita, hvort þessum
söng sínum yrði útvarpað nú um
hátíðirnar — en ejski væri það
ómögulegt.
Blaðamaðurinn spurði Magnús
loks, hvort hans væri von heim
— segir Magnús
Jónsson, ópsru-
söngvari, sem kom
heim í gœr
að sumri. — Já, ætli það ekki,
sagði hann, ég hugsa að maður
skreppi heim til að fá sér frískt
loft . . .
Benedikt Gröndal
form. útvarpsráðs
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur skipað Benedikt Gröndal,
alþingismann, formann útvarps-
ráðs yfirstandandi kjörtímabil
ráðsins, og Sigurð Bjarnason, rit-
stjóra, varaformann. (Frétt frá
menntamálaráðuney tinu).
sem af er desember hefir ekki
verið saltað eins mikið og við
hefði mátt búast, sökum verk-
falls síldarstúlkna svo og þess
að erfitt hefir verið að fá síldar-
verkunarfólk til vinnu síðustu
dagana vegna jólaundirbúnings.
Krúsjeff 9 eða 11
daga í Frakk-
landi
PARÍS, 22. des. NTB: — Það
þykir nú líklegt, að Krúsjeff
forsætisráðherra Rússa dvelj-
ist í níu til ellefu daga í
Frakklandi í hinni opinberu
heimsókn sinni til landsins í
marz n.k. Fyrir alllöngu var
ákveðið að Krúsjeff kæmi til
Parísar 15. marz, en nú er
verið að ganga ýtarlega frá
því hvernig hann skuli verja
tímanum í Frakklandsheim-
sókninni. Er nú búizt við að
hann dveljist fjóra eða fimm
daga í höfuðborginni París, en
fari síðan í fimm eða sex daga
ferð um sveitir landsins. Hann
nvun líklega heimsækja borg-
irnar Lyon, Marseille og skoða
gotnesku kirkjuna í Chartres.
S HA 15 hnúiar y/ SV50hnútor •)£ Snjó/coma > ÚÓi \7 Skúrír K Þrumur W&s, KuUaskH ^ HitaskH H Hceð L Latgð
Reykvikingar vöknuðu í hláku
ÞEGAR menn vöknuðu í
Reyk javík í gærmorgun,
var orðið frostlaust og
rigndi meira að segja fyrir
hádegið. Hafði lægðin, sem
á kortinu er 7-800 km. suð-
ur af íslandi náð að senda
okkur mildari austanátt um
leið og hún fór hjá. Fyrir
vestan Labrador (utan við
kortið) var mikið háþrýsti-
svæði, sem olli hvassri norð
vestanátt vestur af Græn-
landi og kulda austan til í
Kanada (21 stigs frost á
Goose-flugvelli). Á Norður-
löndum var hæg SV-átt
með skúrum og sums stað-
ar krapaéljum. Enn er
dimmviðri og rigningasamt
í Bretlandseyjum.
Mjög djúp lægð um 700
km suður af íslandi þokast
ANA.
Veðurhorfur: SV-land til
Breiðafjarðar og mið: NA
stinningskaldi víðast úr-
komulaust. Vestfirðir til
NA-lands og miðin: NA
stinningskaldi, slydda. Aust
firðir og SA-land og mið:
Allhvass og síðar hvass NA,
I KVÖLD verður dregið í
happdrætti sem skátar hér
í Reykjavík hafa efnt til.
Er ágóðanum af því ætlað
að renna í byggingarsjóð
nýs skátaheimilis og er
þetta teikning af því.
Yfír
1,300
farhegar siðustu
dagana
SJALDAN eða aldrei hafa verið
jafnmiklir jólaflutningar hjá
Flugfélagi íslands og einmitt nú.
Veður hefur líka verið mjög hag-
stætt svo að flugvélar félagsins
hafa varla stanzað. Siðustu sex
dagana hafa yfir 1,300 farþegar
ferðast með Föxunum, tæplega
900 innanlands og hátt á fimmta
hundrað milli landa, bæði til og
frá íslandi — og milli Grænlands
og Danmerkur.
Skymaster og Viscount hafa nú
verið notaðar meira í innanlands-
fluginu en áður. Skymaster fór
t. d. tvær ferðir til Akureyrar í
gær og þá var líka flogið til 7
annarra staða innanlands. —
Mikið hefur verið um vöruflutn-
inga. Síðustu dagana hafa rúm
42 tonn verið flutt innanlands og
er það óvenjumikið. — Póstflutn-
ingar til og frá útlöndum hafa
líka verið miklir. Sólfaxi kom t.d.
með fjögur tonn af pósti frá
Bretlandi í fyrrakvöld.
Um 150 manns hafa pantað far
út á land hjá Flugfélaginu í dag
og á morgun. f dag verður flog-
ið til Akureyrar, ísafjarðar,
Vestmannaeyja og Húsavíkur, en
á morgun, aðfangadag, verður
farið til Akureyrar, Kópaskers,
Þórshafnar, Egilstaða, Vest-
mannaeyja og ísafjarðar.
Á jóladag og annan í jólum
verður ekkert flogið innanlands
en á þriðja í jólum verður flogið
til Akureyrar, Egilstaða og Vest-
mannaeyja.
Síðasta ferð Flugfélagsins frá
útlöndum fyrir jól var í gær-
kveldi, frá Glasgow og Kaup-
mannahöfn. Næsta ferð utan verð
ur til sömu staða, mánudaginn
28. desember.
75 ára í dag;
Þorsfeinn Þorsteinsson
tyrrverandi sýslumaður
ÞORSTEINN Þorsteinsson, fyrr-
verandi sýslumaður Dalamanna
og alþingismaður, á 75 ára af-
mæli í dag. Hann var sýslumað-
ur Dalamanna í fjölda ára og
þingmaður í rúmlega 20 ár. Síðan
hann lét af sýslustjórn í Dala-
sýslu hefur hann verið búsettur
hér í Reykjavík og unnið fræði-
mannsstörf við hið mikla og
vandaða bókasafn sitt. Kona Þor-.
steins sýslumanns, frú Áslaug
Lárusdóttir prests í Selárdal, hin
merkasta kona, er látin fyrir
nokkrum árum.
Þorsteinn sýslumaður ber ald-
ur sinn vel og sinnir áhugamál-
um sínum enn sem fyrr af fyr-
irhyggju og dugnaði. Hinir fjöl-
mörgu kunningjar hans munu í
dag senda þessum merka manni
kveðjur og árnaðaróskir með 75
ára afmælið.
Morgunblaðið flytur honum
beztu afmælisóskir.