Morgunblaðið - 23.12.1959, Side 15
MiðvikudagfPí’ 23. des. 1959
MORCTJNRLAniÐ
15
Tilkynning frá Hitaveitu
Reykjavíkur
Ef alvarlegar bilanir koma fyrir um hátíðarnar,
verða kvörtun veitt viðtaka í SÍMA 1 53 59 kl. 10—14.
Hitaveita Reykjavíkur
Ný sending
Greiðslusloppar
Fjölbreyttasta úrvalið í bænum.
MARKAOURINN
Laugaveg 89 — Hafnarstræti 5.
Þegar þú athugar nákvæmlega, veiztu að...
— Minningarorð
Framh. af bls. 14.
gleðibjarmi færðist yfir andlitið
er við minntumst liðinna daga,
þegar við stelpurnar vorum að
leika okkur og óþekktast. —
Nú er þetta allt liðið. Ég tei
mig ríka að eiga minninguna um
Ingibjörgu frá því ég var barn,
þessa stórbrotnu myndarkonu,
sem bognaði ekki undir byrði
sinni og bar höfuðið hátt til síð-
ustu stundar — Og nú vil ég
þakka góð og gömul kynni, og bið
Guð að leiða sál minnar kæru
vinkonu um ljóssins vegu.
Guðrún J. Guðmundsdóttir.
0 Jú, þegar hánn er kominn,
geturðu séð, að hún er OMO hvít!
BLÁTT OMO GEFUR
HVÍTASTA ÞVOTT í HEIMI
Jafnvel óhreinustu föt verða fjótt hrein í freyðandi Bláu Omo
löðri. En allur þvotturinn er hreinni, hvítari en nokkru sinn fyrr.
Þú sérð á augabragði, að OMO gefur hvítastan þvott í heimi.
— Og OMO skilar mislitum þvotti björtustum!
Kristmann Guðmundsson skrifar um
BÓKMENNTIR
Ferðabók Dr. Helga Pjeturss.
Vilhjáimur Þ. Gísiason sá um
útgái'una. Teikningar eftir
Halldór Pétursson. Bókfells-
útgáfan.
DR. HELGI Pjeturs var sérkenni-
legur persónuleiki og ógleyman-
legur þeim, er kynntust honum.
Á síðari árum sínum var hann
einna kunnastur fyrir Nýala sína
og þá athyglisverðu kenningu,
sem þeir hafa að færa. Þeir hafa
átt miklum vinsældum að fagna,
einnig meðal fólks, sem er lítið
trúað á stjörnuboðskap höfundar-
DR. Helgi Pjeturss var sérkenni-
ur meistari á íslenzkt mál að það
er í rauninni ekkert aðalatriði
hvað hann skrifar um.
Það er því mikið gleðiefni bóka
mönnum að út er komið — í einm
fegurst gerðu bók ársins — safn
af ferðasögum doktorsins. Þeim
hefur ekki áður verið haldið til
haga á þann hátt. Raunar hefur
sagan af Grænlandsförinni 1897
komið út áður, í ritinu: „Um
Grænland að fornu og nýju“, en
fyrri hluti þess er Grænlendinga1
saga Finns Jónssonar. Bók sú er
uppseld fyrir áratuguin síðan og
1 fárra höndum.
Vilhjálmur Þ. Gíslason hefur
séð um útgáfuna og leyst það
verk vel af. Gerir hann grein fyr-
ir henni í formála og segir m. a.:
„Þessi bók er ekki sérfræðilegt
vísindarit, þó að auðvitað konu
ýmislegt slíkt hér við sögu, eins
og höfundurinn setti það fram
alþýðlega fyrir íslendinga. Þetta
er fjölþætt persónuleg ferðabók
um rannsóknir og reynslu, gagn-
rýni og gleði brautryðjandi nátt-
úruskoðara og ágætis rithöfund-
ar.“
hann alloft og varð honum því
minna úr starfi en vonir stóðu tii.
Athyglisgáfu sinni hélt hann þó
óskertri og lifandi áhuga fyrir
öllu milli himins og jarðar. Mál-
snilldin eykst stöðugt og verður
að fágaðri list, en þegar líður á
ævina fer að gæta nokkurrar
þreytu hugans. Þættirnir verða æ
styttri. En alltaf eru þeir fullir
af fróðleik, sem er fram settur í
svo einfaldri frásögn, að hvert
barnið getur tileinkað sér hann.
lesandinn kynnist sjálfri sköpuu
íslands á þessum blöðum, sér það
mótast og taka breytingum: suð-
rænn gróður, kastaníur og vín-
lauf, þekur dali, er síðar hyljast
ís; hann les undir leiðsögn höí-
undarins hina töfrandi bók nátt-
úrunnar í sjávarklettum og gilja-
drögum — og er ríkari eftir en
áður, landið hefur fengið nýjan
svip í huga hans.
Þriðji og síðasti kaflinn heitir:
„Suður í lönd“. Þar eru margar
svipmyndir frá ýmsum Evrópu-
löndum, fróðlegar og skemmti-
legar.
Þetta er ein af þeim bókum
sem maður verður raunverulega
ríkari af að eiga.
Mikið úrval af
konfektkössum
Delesius epli, Vindlar í kössum og mikið
úrval af sælgæti.
Verzlunin Tóbak og sælgæti
Lækjargötu 2 — Opið frá kl. 9 f.h.—12 e.h.
0 Tilsýndar gæti skyrtan hans
verið hvít
0 Hann nágast . . .
hún sýnist hvít
Fyrsti kafli bókarinnar nefn-
ist „Grænlandsför 1897“, en þar
segir frá ævintýrum höf. í Græn-
landi. Fór hann þangað í leið-
angri Frode Petersen, sama ár og
hann lauk prófi í náttúrufræði
við háskólann í Kaupmannahöfn.
Það er mjög skemmtilegt að bera
þetta rit hinns unga Helga Péturs
sonar saman við seinni verk hans.
Ritsnilldin virðist honum í blóð
borin, þótt hún sé að vonum ekki
orðin slík sem síðar varð, en
þama er ungur, vakandi og ó-
þreyttur hugur að verki, skír og
sjálfstæð athyglisgáfa, sérstæður
skoðunarmáti, og lifandi áhugi,
sem hrífur lesandann. Hann er
vísindamaður og náttúruskoðari,
en andi hans frjór og áhuginn
altækur svo að nálega ekkert er
honum óviðkomandi. Fyrir bragð
ið er þessi fyrsta bók hans rík af
lifandi fróðleik, sem er fram-
reiddur mjög aðgengilega. Les-
andinn fær greinilega mynd af
náttúru Grænlands og íbúum
þess.
Annar kafli bókarinnar nefnist:
„Það líkist engum löndum" og
fjallar um ferðir og rannsóknir á
íslandi. Fyrsta þátttaka Dr Heiga
í náttúrufræðirannsóknum hér á
landi mun hafa verið sumartð
1890, er hann ferðaðist með Þor-
valdi Thoroddsen um Snæfells-
nes. Síðar fór hann víða um sveit-
ir og öræfi, en heilsuleysi bagaði