Morgunblaðið - 23.12.1959, Page 22
22
MOKcrvrtT 4 t>ið
Miðvik'udagur 23. des. 1959
Öfgafyllsfu fjand-
menn Frakka taka
völdin
KAIRÓ, í Egyptalandi,
22. des.
(Reuter) —
I*AÐ er haft eftir áreiðanleg-
um heimildum, að gerbreyt-
ing hafi verið framkvæmd á
serknesku útlagastjórninni. —
Ferhat Abbas, forsætisráð-
herra, hefur sagt af sér, en
Kerim Belcacem, varafor-
sætisráðherra, hefur tekið við
forustu stjórnarinnar.
Jafnframt er skýrt frá því,
að hin nýja stjórn muni innan
skamms flytjast heim til
Alsír og hafast þá við neðan-
jarðar eða í fjalllendinu, sem
serkneskir uppreisnarmenn
hafa á valdi sínu.
Heimildirnar fyrir þessu era
svo öruggar, að enginn vafi þykir
leika á því, að fréttin sé rétt. f»að
er mál manna að þreytingarnar
hafi það í för með sér, að serk-
neska stjórnin snúist við þessar
breytingar til enn meiri fjand-
skapar við Frakka. Nú sé svo
komið að bilið milli Frakka og
Serkja sé nær því óbrúandi, með-
an Ferhat Abbas vildi ætíð leit-
ast við að ná samkomulagi við
Frakka um sjálfstæði Alsír.
f rauninni varð sýnt hvert
stefndi, þegar serkneska útlaga-
stjórnin tilnefndi fjóra fanga til
að taka þátt í samninganefr.d
sem ræða skyldi við Frakka uni
lausn Alsírmálsins. Ferhat Abbas
mun hafa viljað raunhæfar samn
ingaumleitanir við de Gaulle, en
skipun fanganna í nefndina sýr.di
að það var Belcacem sem réði.
Kerim Belcacem var einn af
upp hafsmönnum uppreisnarinn-
ar í Alsír. Hann skipulagði hina
vopnuðu baráttu frá upphafi og
er sá eini í útlagastjórn Serkja,
sem sjálfur hefur tekið þátt í bar-
dögum við Frakka.
Attræðis afmæli
á Búðardal
KRISTJÁN Jóhannesson, verka-
maður, Búðardal, er 80 ára í dag.
Hann er vel ern og var í sumar
í vegavinnuflokki frá Búðardal.
Hann er sennilega með elztu, ef
ekki elztur vegavinnumanna hér
á landi. Hann hefur stundað
vegavinnu sumar hvert síðan
laust eftir aldamótin.
Lange óttast
viðskiptastríð
PARÍS, 22. des. (Reuter) — Utan-
ríkisráðherra Noregs, Halvard
Lange, sagði á blaðamannafundi
í dag, að hann áliti að merkasta
samþykktin á Vesturveldaráð-
stefnunni sé sú, að komið verði á
fót efnahagssamvinnustofnun.
Sagðist hann óttast árekstra á
viðskiptasviðinu frekar en nokk-
uð annað. Kvað hann hættu á að
samkeppni milli markaðsbanda-
laganna tveggja gæti leitt til við-
skipiastríðs, sem gæti aftur
leitt til stjómmálalegrar sundr-
ungar. Þá skýrði hann frá því að
ráðstefnan hafi falið sérfræðing-
um að kynna sér tillögu er hann
hafði flutt þess efnis að vestrænu
leiðtogarnir leggi til á „toppfund-
inum“ með Krúsjeff að Sovétrík-
in taki upp samvinnu við Vestur-
veldin um aðstoð við þau lönd,
sem skemmst eru á veg komin,
og annist starfandi stofnanir Sam
einuðu þjóðanna framkvæmdirn-
ar.
Kona Marlons og
sonur í Keflavík
ANNA KASHFI heitir eig-
inkona kvikmyndaleikarans
Marlons Brandos, en þau
hjónin eru nýskilin og hafa
erlend blöð að undanförnu
séð um að lesendur þeirra
gætu fylgzt vel með deilum
þeirra hjóna um lítinn son
þeirra. í fyrrinótt gisti Anna
á Flugvallarhótelinu í Kefla-
vík með Christian litla son
sinn, sem er tveggja ára
gamall.
Á mánudagskvöld kl.
21.30 lenti á Keflavíkurflug
velli Boeing-707 farþega-
þota frá ástralska flugfélag-
inu Quantas, að því er
fréttaritari blaðsins á Kefla-
víkurflugvelli símaði. Flug-
vélin var á leiðinni frá
London til New York og
San Francisco. Þegar flug-
vélin kom út á flugvélar-
stæðið, kom í ljós að sprung
ið hafði á öðrum hjólbarða
á nefhjóli flugvélarinnar
og varð að fá lánaðan hjól-
barða hjá Pan American,
þar sem Qantas á enga vara-
hluti á Keflavíkurflugvelli.
Þar sem talsverð töf varð
af að skipta á hjólbarðan-
um og flugvélin hefði einn-
ig tafizt í London vegna
bilunar þar, ákvað áhöfn
flugvélarinnar að hvílast á
Keflavíkurflugvelli um nótt-
ina. Farþegarnir voru 56
að tölu og meðal þeirra
Anna Kashfi, kona Marlons
Brandos ásamt tveggja ára
gömlum syni þeirra. Flug-
vélin fór til New York kl.
10 á þriðjudagsmorgun.
Meðfylgjandi mynd var
tekin fyrir skömmu af þeim
hjónúnum fyrrverandi, er
þau komu fyrir rétt í Santa
Monica, vegna kæru Marl-
ons að Anna hindraði hann
í að sjá soninn.
Persar senda skrið-
dreka til landamœranna
Teheran í Persíu,
22. des. (Reuter). —
SKRIÐDREKAR, stórskotalið og
lóftvarnarbyssur hafa verið flutt
ar síðustu daga frá Mið-Persíu
til landamæra Iraks, vegna þess
að írakar hafa gert landakröfur
á hendur Persum og haft í
frammi ógnanir í sambandi við
það. Dagblöð í Teheran segja, að
það sé hugsanlegt, að Persar
kæri þetta mál fyrir Sameinuðu
þjóðunum.
Kassem, forsætisráðherra ír-
aks, lýsti því yfir fyrir nokkru,
að ríkisstjóm hans gerði kröfu
til fimm kilómetra breiðrar land
rærnu nálægt persnesku olíu-
höfninni Abadan. Síðan hafa tr-
akar haldið uppi áróðursherferð
gegn Persum, þar sem þeir
krefjast afhendingar landsvæðis-
isins.
I dag flutti Kassem aðra ræðu
í Bagdad-útvarpið, þar sem
hann sagði, að írakar myndu
aldrei linna látum fyrr en hið
umdeilda landssvæði væri kom-
ið undir þeirra yfirráð. Hann
bætti því við, að írakar myndu
ekki beita valdi til að taka svæð-
ið, fyrr en allar aðrar leiðir
væru lokaðar. írak myndi ekki
gefa upp hænufet af lands-
svæði sínu og það hefði herstyrk
til að hindra yfirgang Persa.
Útgáfuna annaðist Eiríkur
INGIMAR
SUNNANHÓLMAR
vakið hefur á sér
í tímaritum.
IMýj
6 ljóðskáld, bók
og talplata:
Einar Bragi, Hannes
Pétursson, Jón Óskar,
Matthías Johannessen,
Sigurður A. Magnússon,
Stefán Hörður Grímsson.
Hreinn Finnbogason
ERLENDVR SIGURÐSSON:
. — Fyrsta bók gáfaðs skálds, sem
athygli fyrir snjallar smásögur og ljóð
Almenna bókafélagið
ung!
★
Bókamenn.............................................
j
t 1 Bókaverzlun Stefáns Stefánssonar ht. Laugavegi 8
m O
(við hliðina á skartgripaverzlun Jóns Sigmundssonar)
táið þér allar jólabœkurnar — Simi 19850
• •
• • • • Aðalumboð Kvöldvökuútgáfunnar hf. Akureyri