Morgunblaðið - 05.01.1960, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.01.1960, Blaðsíða 12
12 MoncTnvniAÐiÐ Þriðjudagur 5. jan. 1960 Sendisveinn Röskan og duglegan sendisvein vantar okkur nú þegar. Vinnutími kl. 6—12 f.h. Sími 22480. Stúlka óskast í frágang allan daginn. Uppl. milli kl. 1—3 í dag. Prjónastofa Onnu Þórðardóttur h.f. Grundarstíg 12. Dagbók 1960 fyrir einstaklinga og fyrirtæki í bókinni er ein strikuð síða fyrir hvem dag ársins auk minnisblaða, samtals 376 síður. Bókin fæst í bókabúðum í Reykjavík og kostar í góðu bandi aðeins kr. 45.00. Bóksalar og fyrirtæki í Reykjavík og utan Reykja- vikur geta pantað bókina hjá Prentsmiðjunni Hólum h.f., Þingholtsstræti 27, sími 24216. Nýju námskeiðin hefjast þann 15. janúar. Verður skrifstofan opin frá kl. 10—7 alla daga meðan innritun stendur yfir. Námið við Málaskólann Mími hefur aldrei verið verið jafn fjölbreytt og nú. Hin sívaxandi aðsókn hef- ur gert oss kleyft að skipta nemendum nákvæmlega í flokka eftir kunnáttu, og jafnframt því hefur skóla- gjald lækkað ár frá ári. Við skólann eru nú kennd ellefu tungumál og starfa fjórtán kennarar á vegum hans. Náminu sjálfu er þannig hagað, að nemendur hafa bækur, sem þeir lesa heima eftir því sem þeir hafa tíma og tækifæri tiL, en í skólanum er alltaf talað um lesefnið á því máii, sem verið er að kenna. í öllum framhaldsflokkum kenna útlendingar, og kennir hver þeirra sitt eigið móðurmál. Nemendur venjast því að heyra málið hreint og ómegnað og að mynda setningar án mikillar fyrirhafnar. Er þetta ómetanlegt fyrir þá sem vilja kynnast hinni lifandi tungu og æfast í notk- un hennar. 1 byrjendaflokkum er námið gert eins auðveit og kostur er, og skýra Islendingar byggingu hinnar er- lendu tungu á einföldu og auðskildu máli. Losnar nem- andinn því við mikla erfiðleika og tímatap, sem jafnan íylgir þurrum utanbókarlærdómi og málfræðistagli. Málaskólinn Mímir er í miðbænum og strætisvagna- ferðir því sérstaklega hagkvæmar. Allar nánari upp- lýsingar gefnar í síma 22865. MÁI.ASKÓI.INN MlMIK Hafnarstræti 15 (sími 22865). Hafrannsóknarstöð á ströndinni. — Brazilía Framh. al bls. 11 mikla mun lá því fyrir höndum að vinna upp á sem allra skemmst um tíma og að því er unnið. — Hvað er helzt um haffræð;- deildina að segja? — Hún nefnist réttu nafni „Instituto Oceanografico" og er eina stofnunin í landinu, sem nokkuð kveður að á þessu sviði — og raunar í álfunni allri. Það eru því naumast aðrir, sem stunda hafrannsóknir á Suður-Atlants- hafi, og köllum við það því stund um mare nostrum — eða hafið okkar. Þarna er nú unnið af mikl- um krafti við oæði hafrannsókn- ir og kennslu, m. a. hafa verið haldin þar að tilhlutan UNESCO, Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, mörg nám- skeið fyrir ungt fólk víða að úr Suður-Ameríku. Við stofnunina starfa um 120 manns, þar af eru um 20 háskólamenntaðir. Stofn- unin er um 60 km frá sjó, en gagnasöfnun og ýmis önnur starf- semi á vegum hennar fer fram i 3 rannsóknarstöðvum niðri á ströndinni. Er sú næsta í Santos, hafnarborg Sao Paulo, önnur um 100 km þar fyrir sunnan en hin þriðja nokkru lengra í norður- átt. Á þessum stöðum eru athug- uð nákvæmlega ýmis sjávarskif- yrði og áherzla lögð á að le:ta uppi ný sjávardýr. Það sem aðal- lega hefur háð okkur er skips- leysi, en skip það, er við áttum áður, brann. Við höfum nú að- eins einn bát til ranrsókna. Sem betur fer er þó séð fram á lausn á þessu, því að ákveðið hefur ver- ið að láta smíða nýtt hafrann- sóknarskip í Danmörku. Stendur för mín hingað raunar í sambandi við undirbúning þess máls. Baðgestum veitt mikilvæg aðstoð — Hvaða verkefni önnur en bú hefur þegar getið um hafa komið til þinna kasta, síðan þú byrjaðir störf í Brazilíu? — Eins og flestir vita, eru sér- staklega glæsilegar baðstrendur þarna suður frá, sandurinn fín- gerður og svo hvítur að engu lík- ist fremur en mjöll. Baðstrandir þessar eru mjög vinsælar og ligg- ur fólkið þar gjarna daglangt, t. d. fara mæður þangað oft með króa sína og halda þar til frá því snemma á morgnana og fram til kvölds. Þykir slíkt líka heilnæmt mjög — þ. e. a. s. þar sem ekki vill svo illa til, að skolp- ið úr nágrenninu, sem þarna eins og annars staðar er leitt til sjáv- ar, sækir að ströndinni afturistað þess að hverfa á brajt En þannig hefur einmitt verið ástctt víða og af því stafaði mikil vandræði. Það er ekki einungis óskemmtilegt fyr ir baðgesti að geta stöðugt átt á hættu að drekka sama vatnið tvisvar, heldur er líka mikil sýk- ingarhætta samfara svona a- standi. Þessu afleita vandamáli hefur okkur tekizt að ráða bót á með því að finna, hvar við ströad ina straumar liggja með botni út til hafs, en á slíkum stöðum hefur reynzt öruggt að láta skolpið skilja við leiðslurnar. í þessum erindagjörðum hef ég ferðazt milli allra borga, stórra og smárra, á strandlengjunni eða 7—8000 km, og hefur sannast að segja mjög verið eftir því sótzt, að fá leyst úr þesuro erfiðleikum. Börnin tala a. m. k. 4 tungumál — Segðu mér að lokum, Ingvar, er mikið um Norðurlandabúa í ná grenni við ykkur? Af hvaða þjóð- ernum er helzt runnið það fólk, sem þið umgangizt? — Það er talsvert af Norður- landabúum þarna, Danir, Svíar og Norðmenn skipta hverjir um sig hundruðum, og félag þeirra er orðið um 80 ára gamalt, elzt slikra félaga og mikið líf í því. Á næstu grösum við okkur búa ana- ars mest Hollendingar, margir komnir frá Austur-Indíum, þar sem framtíðarmöguleikar þeirra eru nú minni en áður var. Svo er allmikið um Englendinga og inn- flytjendur úr öllum áttum. Þesst fjölbreytni hefur m. a. orðið til þess, að börnin, sem eru á þeim aldri, að þeim veitist létt að læra, tala meira eða minna tungumál allra þesara þjóða, auk islenzku og portúgölskunnar, sem er aðal- málið í landinu. Þau leika sér líka til skiptis við þessa nágranna, sem okkur fellur yfirleitt mjög vel við. — Eruð þið nokkv.ð farin að ræða heimflutning af alvöru? — Nei, ætli það verði næsta árið a. m. k. Eins og ég sagði þér, var ég upphaflega ráðinn til 2ja ára, en nú erum við búin að vera þarna í sex. Það er ekki hægt að hlaupa frá hálfköruðu verki V A N X A R Aukastarf Maður, sem vinnur vaktavinnu óskar eftir auka- starfi. Hefi mjóg góðan tíma. Þaulvanur öllum skrif- stofustörfum m.a. bókhaldi og vélritun. Góð mála- kunnátta. Allt kemur til greina. Hefi góðan bíl til umráða. Tilb. sendist Mbl. fyrir 10. jan. merkt: „Hag- kvæmt — 8111“. Til sölu alveg nýr og ókeyrður, FALCON 1960. Mjög glæsilegur. BÍLLINM Varðarhúsinu — Sími 18-8-33. R afmagnsperur . Langhæzt sala s.l. ár. (S.l. 5 ár 4500000 stk.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.