Morgunblaðið - 05.02.1960, Page 1

Morgunblaðið - 05.02.1960, Page 1
20 síður Föstudagur 5. febrúar 1960 Prentsmiðja Morgunblaðsins Komið í veg fyrir atvinnuleysi og hrun Ríkisstjórnin hefur haft manndóm til að segja sannleikann kjark og þjóðinni Framsóknarmenn og kommun- islar, sem sátu hálft þriðja ár úrræðalausir í vinstri stjórn staglast nú á neikvæðum sleggjudómum og fullyrðingum VIÐBRÖGÐ stjórnarandstöðuflokkanna, Framsóknarmanna og kommúnista, gagnvart viðreisnartillögum ríkisstjórnarinnar, mót- ast fyrst og fremst af gersamlega neikvæðum fullyrðingum um að ríkisstjórnin eigi þá ósk heitasta að framkvæma sem mesta skerð- ingu á kjörum alls almennings í landinu. Telja þeir gengisbreyt- inguna vera stórkostlega „árás á aimenning". Mikojan hafði stutta viðdvöl á Keflavíkurflugvelli í nótt á leið sinni tii Kúbu. Þarna fer hann ásamt föruneyti til flugvallarhótelsins. Ljósm. Mbl., Ól. K. M., tók myndina, þegar hópurinn gekk á leið frá rússnesku flugvélinni undir væng bandarískrar herflugvélar, sem stóð framan við hótelið. Sjá nánari frásögn á bls. 3. De Gaulle stígur fyrsta skrefið Soustelle vikið Hlufi at forystuliði hersins í Alsír í stofufangelsi GENGISLÆKKUN V-STJÓRNAR DULBÚIN 1 þessu sambandi ber að hafa það í huga, að vinstri stjórnin, sem bæði kommúnistar og Fram- sóknarmenn áttu sæti í, fram- kvæmdi vorið 1958 stórfelda, en dulbúna gengislækkun. Þá var lagt 55% yfirfærslugjald á alla gjaldeyrissölu og stórfeldir aðrir skattar og tollar á almenning. Sú gengisbreyting, sem nú er verið að gera, er þess vegna fyrst og fremst staðfesting á ástandinu, sem skapazt hafði í peningamálum þjóðarinnar á valdatímabili vinstri stjórnar- innar. Sú raunverulega gengis- breyting, sem nú er framkvæmd, er miklu minni en sú sem vinstri stjórnin framkvæmdi með efna- hagsmálaráðstöfunum sínum haustið 1956 og vorið 1958. Miðað við það meðalgengi, sem í dag er á Bandaríkja- dollar í útflutningi, kr. 30,36, er hér um að ræða lækkun á gengi íslenzku krónunnar um 30%. En miðað við hið al- menna gengi, sem nú er á BandaríkjadoIIar í innflutn- ingi, kr. 25,30, er um að ræða 34% Iækkun á gengi íslenzku krónunnar. BENDA EKKI Á NEIN SJÁLFSTÆÐ ÚRRÆÐI Það er athyglisvert í málflutn- ingi Framsóknarmanna og komm únista, þessa dagana, að sjálfir geta þeir ekki bent á nein sjálf- stæð úrræði til lausnar þeim vanda, sem viS er að etja í ís- lenzkum efnahagsmálum, enda þótt þeir ráðist af hinu mesta offorsi á þær ráðstafanir, sem núverandi ríkisstjórn leggur til að gerðar verði til bjargar. — Tíminn og Hermann Jónasson láta sér nægja að tala um „sam- dráttar- og íhaldsstefnu ríkis- stjórnarinnar". En málgagn Framsóknar- flokksins minnist ekkert á það, að í hálft þriðja ár var Hermann Jónasson forsætis- ráðherra vinstri stjórnar, sem Iofað hafði „nýjum leiðum“ og „varanlegum úrræðum" í efnahagsmálunum. Hlutskipti þeirrar ríkisstjórnar varð að gefast upp eftir 2% ár algers úrræðaleysis. Hermann Jónas son lýsti því þá yfir, að „ný verðbólgualda væri risin ‘ og efnahagsmálasérfræðiugur ríkisstjórnarinnar sagði, að við værum að „ganga fram af brúninni". Þannig Iauk feigð- argöngu vinstri stjórnarinnar undir forystu kommúnista og Framsóknarmanna. En nú koma þessir menn og þykjast alltaf hafa verið með fangið fullt af snjallræðum til lausnar öllum vanda!! Á yfirborðshjali þeirra og mál- gagna þeirra getur vissulega enginn ábyrgur maður tekið hið minnsta mark. KJARASKERÐING HINDRUÐ Núverandi ríkisstjórn hefur ekki hikað við að segja þjóðinni þann sannleika, að hún verði að leggja nokkuð að sér um skeið til þess að sigrast á erfiðleikun- um, og leggja nýjan og traust- ari grundvöll að framtíðaraf- komuöryggi sínu. En jafnframt hefur stjórnin haft forystu um víðtækar ráðstafanir til þess að tryggja kjör efnaminnsta fólks- ins í þjóðfélaginu, fjölmennra barnafjölskyldna og elli- og ör- orkulífeyrisþega. í því skyni að koma í veg fyrir kjaraskerðingu hjá þessu fólki, verða fjölskyldu- bætur stórauknar. Kr. 2600 verða greiddar með hverju barni, hvar sem er á landinu. Munu því greiðslur til 3ja barna fjölskyldu nema 7800 krónur á ári í stað 1166 kr. nú á 1. verðlagssvæði og 874 kr. á öðru verðlagssvæði. Greiðsl- ur til 5 barna fjölskyldu myndi nema 13000 krónur í Framh. á bls. 19. I. umrœða í dag EFNAHAGSMÁLAFRV. rík- isstjórnarinnar verður tekið til 1. umræðu á fundi neðri deildar Alþingis, er hefst kl. 1,30 í dag. Forsætisráðherra, Ólafur Thors, sem er flutn- ingsmaður frumvarpsins f. h. ríkistjórnarinnar, fylgir því úr hlaði, en síðan má búast við miklum umræðum. PARÍS, Jf. febrúar. DE GAULLE er þegar byrj- aður að hreinsa til i stjórn sinni. Jacques Soustelle varð fyrstur í röðinni. Hann ræddi við de Gaulle stundarfjórð- ung í dag og skömmu síðar var tilkynnt, að Soustelle hefði látið af ráðherraem- bætti. Haft er fyrir satt, að de Gaulle hafi haldið yfir honum stutta skammarræðu og síðan sagt honum að fara. Aldavinir Soustelle hefur farið með mál- efni Sahara í stjórninni. Hann hefur auk þess verið kjarnorku- mála- og aðstoðarforsætisráð- herra. Soustelle er aldarvinur de Gaulle. Hann var yfirmaður lcyni þjónustunnar undir forystu de Gaulle i síðari heimsstyrjöldinni, varð síðar landsstjóri í Alsír og var einn af uppreisnarforingjun- um í maí 1958, þegar de Gaulle var kvaddur til valda. Hlynntur uppreisnarmönnum De Gaulle hefur þar með sýnt, að hann hyggst engum þyrma, hvorki vinum né vandalausum. Hann bað um alræðisvöld tii að treysta völd stjórnarinnar og ör- yggi ríkisins og þegar í dag voru þess glögg merki, að ekki átti að sitja við orðin tóm. Q------------------------n 3H®r0iuittMðfrife Efni blaðsins m.a.: Föstudagur 5. febrúar 1960 Efni blaðsins m.a.: BIs. 3: Er fiskur í kokkteilnum? — 6: Erfðasjóði aflað tekna. — 8: í fáum orðum sagt. — 10: Forystugreinarnar: „Gengis- breyting‘« og „Tvístirnið“. Þegar líkið handtók Stalín. (Utan úr heimi). — 11: Gengishalli gagnvart útlöndum 1955—1959. — 13: Erlendir viðburðir. — 18: íþróttir □------------------------D úr stjórn Soustelle er talinn hafa verið andvígur því að de Gaulle léti Fram'hald á bls. 19. Fór upp um ísinn — Washington, 4. febr. BANDARÍSKI kjarnorkukaf báturinn Sargo hefur 5 sinn- um brotizt upp um ísinn á norður-heimskautssvæðinu. Ishellan er þar allt að 10 feta þykk, meðalþykktin 6 fet, en þykknar eftir þvi sem nær dregur pólnum. Sargo hefur að undanförnu verið á ferð undir isnum og gert rannsóknir á hafsbotninum. Hann er einn 37 kjarnorku- kafbáta Bandarikjamanna, sem i í smíðum eða þegar komnir í notkun. Á síðasta ári sigldí hann 19,000 sjó- milur og þar af 18,800 í kafi. Þetta er mesta úthald banda- rísks kafbáts hingað til.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.