Morgunblaðið - 05.02.1960, Síða 18

Morgunblaðið - 05.02.1960, Síða 18
18 MOKcr\nr.4ÐiÐ Fostudaetrr 5. febrúar 1960. Guðmundur vann alla meistaratitla karla Guðmundur — beztur í bringusundi líka. Náði öðrum bexta tíma íslendings í 200 m bringusundi GUÐMUNDUR Gíslason sundkappi var sannarlega „maður kvöldsins“ er Sund- meistaramót Reykjavíkur fór fram í fyrrakvöld. Guðmund- ur varð þrefaldur Reykjavík- urmeistari — vann allar þrjár greinar karla á þessu móti og er því eini karlmaðurinn í Reykjavík, sem hlotið hefur meistaratitil í sundi 1960. Við bætist að afrek hans í bak- sundi, skriðsundi og bringu- sundi eru hvert öðru betra og sýna og sanna að hann er mesti sundmaður sem uppi hefur verið á íslandi. Að Guðmundur var frábær skriðsunds- og baksundsmaður vissu allir. Og í þeim greinum hef ur hann verið beztur íslendinga og á þar öll met sem skráð eru. En nú keppti Guðmundur í fyrsta sinn í 200 m bringu- sundi karla. Og þessi fyrsta 200 m ferð hans í bringusundi var ekki aðeins athyglisverð, heldur stórglæsileg. Hann skaut öllum keppinautum sín- um aftur fyrir sig — og meir en það. Hann náði öðrum bezta tíma er íslendingur hef- ur náð á vegalengdinni, 2.46.7 mín. Aðeins Sigurður Þingey- tngur á betri tíma, — íslands- metið fræga 2.42,6. Þetta af- rek Guðmundar er frábært og er nú vafamál, hvort hann á eftir meiri bringusundsæf- ingu frekar erindi í stórmót erlendis í „sínum gömlu grein- um“ eða á bringusundi. Frábær afrek Það hefur skeð áður að sami maður hafi unnið þrjá ólikar sund greinar á sama móti. En með slík- um afrekum í hverri grein, sem Guðmundur náði nú, hefur eng- inn komist í hálfkvist við hann. Hann synti 100 m. skriðsund á 58,8, sem er góður tími og 100 m baksund á tíma, sem enginn annar íslendingur hefur náð 1,12,5 mín. þó sjálfur eigi hann betri tíma, enda fór baksundið fram rétt á eftir hinu eftirminni- lega bringusundi. •k Góð efni Bringusundið var aðalgrein kvöldsins. Annar í röðinni varð Guðmundur Samúelsson, Akra- nesi. Hann kom mjög á óvart, náði 2,47,7 mín. og skipar sér 1 5 sæti á afrekaskrá íslands í þessu sundi. Hann er og maður sem ekki hefur sagt sitt síðasta orð í þessari grein. Sama má segja um Hörð Finnsson ungan Keflvíking, sem var þriðji á 2.48,8. Hinir „gömlu“ garpar, Sigurður Sigurðsson Akranesi og Einar Kristinsson A, urðu nú að láta í minni pokann. á Aðrar greinar Ágústa sigraði auðveldlega í skriðsundi og keppnislaust náði hún 1.08,8 mín. Hörð varð keppni Hrafnhildar Guðmundsdóttur ÍR og Sigrúnar Sigurðardóttir SH í 200 m bringusundi kvenna. Hrafn hildur kom á undan í mark en sund hennar var ógilt dæmt vegna aukataks í kafi í upphafi. Tími hennar var 3.06,8 mín. en Sigrún hlaut sigurinn eftir gott sund 3.07,0 mín. Þorsteinn Ingólfsson ÍR vakti athygli mesta í sundum unglinga. Hann sigraði í bringusundi og í skriðsundi drengja á mjög góð- um tímum í hans aldursflokki að vera. Er þar mikið efni á ferð. Úrslit í einstökum greinum öðrum urðu: 100 m skriðsund karla: Guðm. Gíslason ÍR 58,8 Siggeir Siggeirsson A 1.05,7. 100 m skriðsund kvenna: Ágústa Þorsteinsdóttir Á 1,08,8. Hrafnh. Guðmundsd. ÍR 1.25.2. 50 m bringusund drengja: Þorstein Ingólfsson ÍR 37,7. Ólafur B. Ólafsson Á 39.8. Jóhannes Atlason Á 40.0. Tottenham — SL. þriðjudag og miðvikudag fóru fram 6 leikir úr fjórðu um- ferð ensku bikarkeppninnar. Höfðu leikir milli sömu liða end- að með jafntefli sl. laugardag. Úrslit leikjanna urðu þessi: Burnley — Swansea 2:1 Preston — Bristol Rovers 5:1 Watfoad — Southampton 1:0 Blackpool — Blackburn 0:3 Tottenham — Crewe 13:2 Brighton — Rotherham 1:1 Leikurinn milli Tottenham og Crewe var í raun og veru aðeins sýningarleikur, því yfirburðir Tottenham voru það miklir. í hálfleik var staðan 10:1 og virt- ist sem leikmenn Tottenham vildu ekki setja fleiri mörk, því hraðinn í síðari hálfleik var eng- inn. Fyrir Tottenham skoruðu Allen 5 mörk, Smith 4 mörk, Jones 3 mörk og Harmer 1. Leikurinn milli Brighton og Rotherham var mjög spennandi og varð að framlengja, en allt kom fyrir ekki, liðin verða að leika aukaleik. Dregið hefur verið um hvaða lið leika saman í 5. umferð, og eru það þessi lið: Luton — Wolverhampton Bradford City — Burnley Preston — Rotherham eða Brighton. Manchester U. — Sheffield W Port Vale — Aston Villa Leicester — W. B. A. Sheffield U. — Watford Tottenham — Watford. Frægasti dávaldur og Eiugsanalesari Evropu 9 Oóleiðslo 9 Hugsanalest»r Dr. Peter Lei & íris Lei Sýna listir sínar á Kvöldskemmtun i kvöld töstudaginn 5 febrúar kl. 11,30 i Austurbæjarbiói Nœstu sýninpar Lauaardagskv'öldið g sunnuaagsKvóiáio Kl. II, JO e.h. Aðgöngumiðar fást í Austurbœjarúíói mmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmemmmmmmammm 50 m bringusund telpna: Svanhildur Sigurðard. Á 44.6. Ólöf Ólafsdóttir Á 46.4. Sigrún Sigvaldsdóttir KR 46,1. 200 m bringusund karla: Guðmundur Gíslason ÍR 2.46,7. Guðm. Samúelsson ÍA 2.47.7. Hörður Finnsson ÍBK 2.48.8. Sig. Sigurðsson ÍA 2.48.9 Einar Kristinsson Á 2.49.6. 50 m skriðsund drengja: Þorst. Ingólfsson ÍR 28.7. Jóhannes Atlason Á 30,7. Þröstur Jónsson Æ 32.8. 50 m skriðsund telpna: Jóhanna Sigurþórsd. ÍBK 37.6. Guðfinna Sigurþórsd. ÍBK 39.7. 100 m baksund karla: Guðm. Gíslason ÍR 1,12.8. Guðm. Samúelsson ÍA 1,20.5. Crewe 13-2 Leikurinn, sem mun vekja mesta athygli þann 20. febr. n. k., en þá fer fimmta umferð fram, er leikurinn milli Manc- hester United og Sheffield Wedn esday. Eru bæði liðin mjög sterk um þessar mundir og hafa fullan hug á að komast á Wembley. — Einnig verður gaman að fylgj- ast með hvernig Luton tekst til á móti Wolverhampton, og minn ast margir ófara úlfanna sl. ár á leikvelli Luton. Til gamans skal getið þeirra liða, sem komust í 5. umferð sl. ár, en þau eru: Arsenal, Sheffi- eld U., Birmingham, N. Forest, Blackpool, W.B.A., Bolton, Prest on, Burnley, Portsmouth, Evert- on, Aston Villa, Ipswioh, Luton, Tottenham og Norwich. -í W'""’ r>9 1* ) S s s s s s s s \ s s s s s s skemmti- ^ Opið í kvöld til kl. 1. Ókeypis aðgangur. Hinn bráðsnjalli kraftur: ÓMAR RAGNARSSON \ sem öllum kemur í gott skap S skemmtir. — S s s s s s s s s \ Tríó Reynis Sigurðssonar leik S Mat s i ur. S < s s s s s s s s s s s s s framreiddur frá kl. M A T S K R Á: ★ Súpa dagsins Kálfafilet ★ með grænmeti, kr. 35,00 ★ Wienarschnitzel kr. 30,00 ★ S Filletmegnon maisoan kr * ★ Lambakótelettur með grænmeti kr. 35,00 ★ Enskt buff kr. 35,00 ★ Franskt buff kr. 35,00 ★ í Steikt fiskflök S í dýfu kr. 30,00 • 35 s s S s s s s s s s s s Imeð cocktail ís með rjóma kr. 8,00 ★ Borðpantanir í síma 19611. ★ Skemmtið ykkur í Silfurtunglinu. SII.FTTRTTTNGLIÐ s s

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.