Morgunblaðið - 16.02.1960, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 16. feb'r. 1960
MORCV1SBLAÐ1Ð
23
Sextugasta
uppboð
SIGUBÐUR Benediktsson heldur
sitt 60. listmunauppboð í dag og
hefst það kl. 5 e.h. í Sjálfstæðis-
húsinu.
Að þessu sinni eru eingöngu
bækur á uppboðsskrá Sigurðar.
Það merkasta á uppboði þessu er
Ijóðabókasafn upp á meira en
50 bækur og er það tilvalið fyrir
Ijóðasafnara, sem væri að byrja
.söfnun slíkra bóka.
Ljóðabækur
I safni þessu má nefna m. a.
yGrýlu Jóns Mýrdals, Ak. 1873,
Kvæði Benedikts Gröndals eldrá,
Viðey 1833 með áritun Benedikts
Gröndals yngra, dóttursonar
hans, Ljóðmæli Jóhannesar Bær-
ingssonar Kbhöfn 1876, Ljóðmæli
Jóns Arnasonar á Víðimýri, Ak
1879, Ögmundar-Geta Ógmundar
Sivertsen, Kbhöfn 1832, Kvæði
Jons Thoroddsens, Khöfn 1874,
Ljóðmæli Haraldar G. Sigurgeirs
sonar, Gimli Man. 1895, Ágrip af
æfisögu M. Lúters eftir Jón Árna
son Rvík 1852, Þórður gamli halti
M. A. sýnir Eftir-
litsmaiminn
AKUREYRI, 15. febrúar. —
Menntaskólinn á Akureyri frum-
sýndi í gærkvöldi sjónleikinn,
Eftirlitsmanninn eftir Nicolai
Gogol, og er Karl Guðmundsson
leikstjóri. Með aðalhlutverkin
Jónsdóttir, Iðunn Steinsdóttir og
fara Jón Sigurðsson, Aðalheiður
Pétur Einarsson. Leikarar eru
um 20. — mag.
listmuna-
Sigurðar
eftir H. K. Laxness, svo fátt eitt
sé nefnt.
Auk þess má geta bóka eins og
Njólu (Boðsritautg.) Björns
Gunnlaugssonar, Viðey 1842, Bréf
til Láru nr. 199/300 Þórbergs
Þórðarsonar, Rvík 1924, Þess isl.
evangelíska smábókafélags rita
(Ókompl.), Páskaræðu Páls Sig-
urðssonar í Gaulverjabæ, Rvík
1888 (Kápueintak). Margar
fleiri góðar og girnilegar bækur
eru á uppboði þessu.
Frakkar
Frh. af bls. 3.
Hin sameiginlega stofnun
Afríku- og Asíu-ríkja, sem hefur
aðsetur í Kaíró, gaf í dag út
áskorun til meðlimaríkjanna um
að slíta stjórnmálasambandi við
Frakka, frysta allar innstæður
þeirra og kæra framferði þeirra
fyrir Sameinuðu þjóðunum.
Útvarpsstöðvar í Kaíró í Eg-
yptalandi og í Sovétríkjunum
hafa haldið uppi stanzlausum
áróðri í fréttum og erindum á
tungumálum Afríkuþjóða, þar
sem því er haldið fram, að kjarn-
sprengingar Frakka í Sahara-
eyðimörkinni hafi í för með sér
stórkostlega lífshættu fyrir
Afríkuþjóðir.
Brezka blaðið Guardian segir,
að það geti verið að kjarn-
seprenging Frakka stuðli að
friði þannig, að mönnum verði
það nú loksins Ijóst, hve mikil
hætta vofir yfir heiminum, ef
ekki næst hið bráðasta samkomu
lag um bann við kjarnorkuvopn-
um.
Mikoyan
Framh. af bls. 2.
erum ekki árásarsinnaðir," sagði
Mikoyan.
Þá vék Mikoyan að því að Rúss
ar hefðu nýlega ákveðið að
minnka herafla sinn um þriðjung
og væri það enn eitt sönnunar-
gagn fyrir friðsemi Sovétríkj-
anna. Mikoyan taldi að flest ríki
heims væru friðsamleg og ekki
væri veruleg hætta á styrjöld.
Aðeins yrði að hafa stranga varð
gæzlu á Vestur-Þýzkalandi. Það
væri eina landið, sem ekki viður-
kenndi gildandi landamæri í
Evrópu, og landamæradeilur
hefðu oft leitt til styrjalda.
Skuggi á sambúðinni
Mikoyan minnti á heimsókn
Gerhardsens til Moskvu árið
1956, og sagði hann að Krúsjeff
hefði þá sannfærst um að ekki
væri nóg með það að norska
þjóðin vildi frið, heldur jafnvel
að norska stjórnin vildi frið.
Þá ræddi Mikoyan um verzlun-
arviðskipti landanna og sagði að
hægt væri að auka þau og myndi
Sovétstjórnin stefna að því. Hins
vegar kvaðst hann ekki geta þag-
að yfir því, að myrkan skugga
bæri á sambúð þjóðanna og það
væri þátttaka Noregs í Atlants-
hafsbandalaginu. „En við hugg-
um okkur við það, að það sé að-
eins tímabundin yfirsjón. Þegar
kalda stríðið hverfur mun hið
árásarsinnaða NATO bráðna í
hlýindunum.“
Ungverjalandsmálið
Um kvöldið flutti Mikoyan
fyrirlestur í norska stúdentafé-
laginu um ástandið í alþjóðamál-
um. Áheyrendur voru yfir þús-
und og gáfu þeir Mikoyan gott
hljóð meðan hann flutti fyrirlest-
urinn. En að erindinu loknu var
spurningatími og beindust spurn-
ingar stúdenta brátt að Ung-
verj alandsmalinu. Mikoyan virt-
ist þá verða fremur óstyrkur og
hrópaði hann: „Hendur hinna
ungversku stúdenta, sem flýðu
land, eru ataðar blóði. „Ri.su á-
heyrendur þá upp og höfðu í
frammi hróp og hávaða til að
mótmæla þessum orðum. Hann
neitaði að svara spurningu frá
einum stúdent um það hvort ung
verska þjóðin hefði sjálf fengið
að ráða stjómarformi sínu. „Þessi
spurning er aðeins til þess gerð
að koma mér í vandræði." Hann
hélt því fram að uppreisnin í
Ungverjalandi hefði stafað af mis
tökum Rakósi-stjórnarinnar. En
það hefðu verið flugumenn
bandarísku leyniþjónustunnar,
sem hefðu komið uppreisninni af
stað. Við þessa yfirlýsingu Mik-
oyans varð almennur hlátur í
salnum.
Önnum kafinn
Á öðrum degi heimsóknarinn-
ar, mánudeginum, var Mikoyan
mjög önnum kafinn. Snemma
morgun átti hann viðræður við
norsku stjórnina, en tilkynning
hefur ekki verið gefin út um
hvað var rætt. Því næst gekk
hann á fund Ólafs konungs. Hann
lagði blómsveiga á leiði fallina
norskra frelsishetja við Akers-
hus-kastala og á leiði rússneskra
hermanna í Vestrakirkjugarði.
Þá heimsótti hann hina svo-
nefndu Tandberg-viðtækjaverk-
smiðju og fór í kynnisferð um
Oslóarborg. Um kvöldið sat hann
veizlu, sem rússneski og kín-
verski sendiherrann héldu sam-
eiginlega til að minnast þess að
10 ár eru liðin síðan undirritaður
var vináttusamningur milli Kína
Og Sovétríkjanna. í veizlunni
voru og helztu ráðamenn í Nor-
egi.
Á morgun þriðjudag, mun Mik
oyan skoða ráðhús Oslóar, Kon-
Tiki flekann, Framhúsið og Vík-
ingaskipin, en flugvél hans legg-
ur af stað frá Fornebu-flugvelli
kl. 2 síðdegis.
NÆSTI fundur mátfunda-
námskeiðsins verður í kvöld
í Valhöll við Suðurgötu.
Hefst fundurinn kl. 20.30.
Fundarefni: Er alheims-
stjórn eina lausn alþjóða-
vandamála?
Málshefjendur: Þór Þor-
björnsson, Jón Sigurðsson,
Guðmundur Ásgeirsson, Frið
rik Friðriksson, Auðunn Hin-
riksson og Ingólfur Hjartar-
son.
Ólafur Þorgeirsson og Viggó
Oddsson munu ennfremur
flytja stuttar ræður um sjáif
valin efni.
Fundurinn verður eins og
áður er sagrt í Valhöll og
hefst kl. 20.30.
Bjöm Pólsson sækir sjúkt born
ÞÚFUM, N-ls., 12. febr. — Um
síðustu helgi gerði hér geysi-
mikla úrkomu sem stóð hátt upp
í sólarhring. Var vatnsgangur
óvenju mikill, ár og lækir ófærir
yfirferðar, nema á brúm. Nokkr-
ar skemmdir urðu á vegum, en
ekki svo að ófærir yrðu, en eins
og kunnugt er, er jörð orðin auð
upp á fjöll. Er þetta vafalaust
snjóléttasti þorri, sem komið hef
ur á þessari öld, það sem af er
honum, og tíðarfarið líkara vor-
veðri.
Vel kemur sér starfsemi Björns
Pálssonar, hins fræga flug-
manns. I dag kom hann og sótti
veikt barn frá Laugalandi. Lenti
harm í Melgraseyraroddum og
gekk ferðin vel. Flutti hann
barnið til Reykjavíkur. — P. P.
Nelaveiði hafin
NES, Norðfirði, 15. febrúar. —
Bátar eru hér að byrja að taka
net. Vélbáturinn Hrafnkell, sem
verið hefur á línuveiðum, byrj-
aði netaveiðar á laugardag og er
það óvenju snemmt. — Frétta-
ritari.
. - . &
5KIPAUTGCRB RIKISINS
Skjaldbreið
vestur um land til Akureyrar
hinn 22. þ. m. — Tekið á móti
flutningi á morgun til Tálkna-
fjarðar, Húnaflóa- og Skaga-
fjarðarhafna, svo og til Ólafs-
fjarðar. Farseðlar seldir árdegis
á laugardag.
M.b. BALDUR
fer til Sands, Gilfjarðar- og
Hvammsfjarðarhafna á fimmtu-
dag. Vörumóttaka á miðvikudag.
Samkomur
Fíladelfía
Almennur biblíulestur kl. 8,30.
Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Samkoma í kvöld kl. 20,30. —
Ólafur Ólafsson kristniboði talar.
Barnasamkoma á hverju kvöldi
kl. 18. — Allir velkomnir.
KFUK — ad.
Fundur í kvöld kl. 8,30. Erindi
með skuggamyndum frá Róma-
borg. — Þórir Kr. Þórðarson,
prófessor. — Allt kvenfólk vel-
komið.
I. O. G. T.
Stúkan Frón nr. 227
Farið verður í heimsókn til st.
Daníelshers í kvöld. Þeir félag-
ar, sem ekki fara í eigin bíl, taki
áætlunarvagn Hafnarfjarðar kl.
8. — Æ. T.
Hafnarfjörður St. Daníelsher no. 4 Fundur í kvöld. no. 227 heimsækir. Stúkan Frón Fjölmennið. Æ.T.
St. fþaka
Fundur í kvöld.
Æ.T.
MAIMAFOSS
vefnaðarvöruverzlun
Dalbraut 1 — sími 34151.
Innilega þakka ég öllum þeim er sýndu mér virðingu
og vináttu á sextugsafmæli mínu 21. janúar.
Kristín Þorleifsdóttir,
Langholtsveg 138.
Elskuleg eiginkona mín og dóttir okkar
ÁSLAUG JÓNSDÓTTIB
Leifsgötu 27,
andaðist í Landspítalanum 14. þessa mánaðar.
Sveinn Björnsson,
Margrét Jónsdóttir, Gísli Jónasson.
Eiginmaður minn
FINNBOGI THEÓDÓBS
andaðist 13. þ.m. Jarðarförin ákveðin síðar.
Ingiríður Theódórs.
Móðir mín
GfSLÍNA P. SÆMUNDSDÓTTIB
verður jarðsungin fimmtud. 18. febr. Athöfnin hefst með
húskveðju að heimili hennar Vallargötu 25, Keflavík
kl. 2 e.h. Blóm og kransar afbeðin.
Sæmundur G. Sveinsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir
JÚLÍUS SIGUBÐSSON
prentari, Vesturgötu 5,
sem lézt 7. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 17. þ.m. kl. 1,30.
Sigurbjörg Eiríksdóttir, böm og tengdabörn.
Hjartanlega þökkum við öllum sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andyát og jarðarför
og vinarhug við andlát og jarðarför,
Aðstandendur
Hugheilar þakkir færum við öllum, sem sýndu vináttu
og hlýhug við andlát og jarðarför konu minnar og
móður okkar
SIGBÍÐAB SIGUBÐABDÓTTUB
Eskifirði.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki
Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað fyrir umhyggju
við hina látnu í banalegu hennar.
Björgólfur Bunólfsson,
Hulda Björgólfsdóttir, Bergur Björgólfsson.
Þökkum samúð og alla hjálp við andlát og útför
ÖNNU SIGBfÐAB JÓHANNSDÓTTUB
fyrrverandi ljósmóður.
Jónína Kristjánsdóttir,
Halldór Andrésson, Andrés Markússon.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu
HELGU ÞÓBÐABDÓTTUB
Sérstaklega þökkum við Jóni Gunnlaugssyni lækni og
Ólöfu Österby Selfossi fyrir veitta hjálp.
Böm, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAB BÓSMUNDSSONAB
frá Urriðaá.
Sigrún Guðmundsdóttir, Ágúst Hróbjartsson,
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir, Bósmundur Guðmundsson,
og barnaböm.
Við þökkum hjartanlega vináttu og hluttekningu við
fráifall og jarðarför
AÐALSTEINS GUÐMUNDSSONAB
verzlunarmanns, Þvervegi 12, Skerjafirði
Sigurbjörg J. Magnúsdóttir, Pétur J. Guðmundsson,
Eyþóra Valdemarsdóttir, Magnús V. Pétursson,
Þórey Hannesdóttir, Gunnar C. Pétursson.