Morgunblaðið - 25.02.1960, Síða 2
2
MORCIHS niAÐlB
FJmmtudagur 25. febrúar 1960
,,Bregður við, að geta
ekki átt von á Katalínu"
j Vestfirðingar missa eitt helzta sam-1
göngutæki sitt i nokkrar vikur
FLUGSAMGÖNGUR munu
nú leggjast niður við Vest-
firði og Siglufjörð um skeið
vegna þess að Katalínuflug-
bátur Flugfélagsins verður
tekinn til skoðunar og við-
gerðar. Flugbáturinn hefur
verið eitt helzta samgöngu-
tækið við Vestfirði og verð-
ur því erfiðara um samgöng-
ur en fyrr. Mbl. hefur átt
tal við nokkra fréttaritara
sína vestra og á Siglufirði og
innt eftir horfum í samgöngu-
málum.
Helztu samgöngutæki tsfirðinga
ísfirðingar hafa notað Kata-
línubátana margfalt meira en
önnur samgöngutæki um langt
skeið, segir fréttaritarinn á ísa-
firði. Síðustu árin hafa flugbát-
amir flutt til og frá Isafirði
helmingi fleiri farþega en íbúa-
tala Isafjarðar er. Að sumrinu
hafa verið daglegar ferðir, fólk
er orðið vant því að treysta á
flugvélina. Samgöngur á sjó eru
mjög stopular og engar landveg-
inn á þessum tíma árs. Til fólks-
flutninga verður sennilega ekki
um annað en Heklu að ræða,
hún er hér á þriggja vikna
fresti. Póstinn fáum við vikulega
með Særúnu, sem er í vöru-
flutningum milli Reykjavíkur og
hafna á Vestfjörðum. Ástandið
er því engan veginn gott miðað
við það, sem áður var.
Bregður við
Akvegurinn til Reýkjavíkur
er enn opinn, segir fréttaritar-
inn á Hólmavík, og er það mjög
sjaldgæft á þessum tima árs. Við
getum búizt við að hann lokist
þá og þegar og verða þá engar
samgöngur við Reykjavík milli
þess sem Skjaldbreið kemur
hingað hálfsmánaðarlega. Far-
þegarými er þar takmarkað, en
póstinn fáum við alla vega. —
Flugvélin hefur komið hingað
vikulega yfirleitt og hefur verið
mikil bót að því. Bílferðir suður
eru vikulega svo lengi sem fært
verður. En mikið bregður okk-
ur annars við að geta ekki átt
von á Katalínu.
Sakna flugsamgangnanna
Flugvélin hefur komið hingað
tvisvar í viku að sumrinu, einu
sinni að vetrinum — en þegar
við missum flugferðirnar er ekki
á neitt að treysta annað en
Hekluna á þriggja vikna fresti,
sagði fréttaritarinn á Flateyri.
Að vísu kemur Særún stöku
sinnum hingað með vörur og
póst, en hún tekur ekki far-
þega. Að vetrinum fer Djúpbát-
urinn Fagranesið milli Flateyr-
ar og ísafjarðar á fimm daga
Dagskrá Alfaingis
í DAG er boðaður fundur í sam-
einuðu þingi kl. 1,30 og fundir í
deildum að honum loknum.
Á dagskrá sameinaðs þings er
eitt mál: Fyrirspurn: Björgunar-
tæki. — Hvort leyfð skuli.
Tvö mál eru á dagskrá efri
deildar: 1. Einkasala ríkisins á
tóbaki, frv. — 2. umr. — 2. Með-
ferð drykkjumanna, frv. — 1.
umr.
Á dagskrá neðri deildar eru
tvö mál: 1. Almannatryggingar,
frv. — 1. umr. •— 2. Aukaútsvör
ríkisstofnana, frv. — 1. umr.
fresti. Við höfum því ástæðu til
að sakna flugsamgangnanna.
Vikulegar flugrferðir
Um daginn gaf ekki að fljúga
í þrjár vikur. Við fengum engan
póst allan þann tíma, sagði
fréttaritarinn á Þingeyri. Við
höfum alltaf treyst mest á strand
ferðir Heklu og Esju. En nú er
Esja í viðgerð og á meðan er
það aðeins Hekla. Það hefði því
munað miklu að mega eiga von
á vikulegum flugferðum.
Hefur verið ómetanleg
samgöngubót
Á Patreksfirði er ástandið
betra. Þar kemur Særún reglu-
lega einu sinni í viku með póst
og vörur að sunnan. Að sumrinu
eru daglegar ferðir landveginn,
en fram til vors er ekki um slíkt
að ræða. Flugvélin hefur verið
okkur ómetanleg samgöngubót.
Björn Pálsson hefur stöku sinn-
um komið með farþega hingað
og það er gott að vita til þess,
að hægt er að fá hann til að
koma, þegar mikið liggur við.
Nýr bátur
til Akraness
AKRANESI, 24. febrúar. Nokkru
eftir hádegi í dag kemur nýr
bátur hingað, Höfrungur II. A.K.
150, 208 lesta stálskip, sem Har-
aldur Böðvarsson & Co. keyptu
í Noregi. Báturinn var tæpa 4
sólarhringa að sigla heim. — f
honum er 400 ha Völund-diesel-
vél.
Báturinn er búinn fullkomn-
ustu siglinga- og öryggistækjum
og neðan þilja er hann hinn glæsi
legasti.
Illugi Guðmundsson, skipstjóri
úr Hafnarfirði sigldi bátnum
heim, en með honum var Garðar
Finnsson, sem verður skipstjóri
á bátnum. Margt manna var við
höfnina, þegar báturinn kom og
bauð hann velkominn.
—Oddur.
Finna það bezt núna
Fréttaritarinn í Bolungavík
segir, að flugsamgöngurnar vest-
ur hafi verið Bolvíkingum ómet-
anlegar, enda þótt flugvélin
lendi ekki þar á staðnum. Til
ísafjarðar er aðeins 40 mínútna
ferð í bíl og yfirleitt hefur verið
hægt að treysta á flugvélina á
venjulegum komutíma. Bolvík-
ingar hafa notið þessara sam-
gangna mikið, bæði hvað fólks-
flutninga og vöruflutninga
snertir. Og þegar flugsamgöng-
urnar stöðvast er ekki um aðra
farþegaflutninga að ræða en
ferðir Ríkisskips, til ísafjarðar.
Og þá finna menn líka fyrst
verulega hve flugbáturinn hef-
ur verið ómetanlegur.
Mikið á þær treyst
Til Siglufjarðar hefur lítið
verið flogið í vetur, fjörðurinn
er það opinn fyrir hafi, að yfir-
leitt er sjór ókyrr þar, ef eitt-
hvað er að veðri. Auk ferða Rík-
isskips fer Drangur tvisvar í
viku milli Siglufjarðar og Ak-
ureyrar, segir fréttaritarinn þar
— og með þeim ferðum fá Sigl-
firðingar megnið af póstinum. —
Öðru máli gegnir á sumrin. Þá
eru flugferðir tíðari og mikið
r.otaðar — og mikið á þær treyst.
Málfundanám-
skeið Heimdallar
NÆSTI fundur málfundanám-
skeiðs Heimdallar verður í kvöld
og hefst kl. 20,30. Verður hann
í Valhöll við Suðurgötu eins og
hinir fyrri.
Umræðuefni fundarins verður:
Kapítalismi og kommúnismi.Máls
hefjendur: Ásgeir Thoroddsen
menntaskólanemi, Gunnar Gunn-
arsson menntaskólanemi, Ragn-
ar Kjartansson skrifstofumaður
og Þór Whitehead landsprófs-
nemi.
Á síðasta fundi námskeiðsins,
sl. þriðj udagskvöld, var til um-
ræðu efnið: Fara áhrif kirkjunn-
ar minnkandi? Málshefjendur
voru þá: Gunnar Gunnarsson
menntaskólanemi, Þór Whitehead
landprófsnemi, Óttar Yngvason
stud. jur., Einar Oddsson mennta
skólanemi og Hilmar Björgvins-
son menntaskólanemi. Voru um-
ræður fjörugar og má búast við,
að þær verði það ekki síður í
kvöld.
Brezkir fiskimenn
áhyggjufullir
— vegna ákvörðunar togaraeigenda
L.ONDON, 24. febr. (Einkaskeyti
til Mbl.) — Brezkir fiskimenn,
sem með ákvörðun samtaka tog-
araeigenda hafa verið útilokaðir
frá veiðom á fslandsmiðum með-
an Genfarráðstefnan stendur,
spáðu því í dag, að íslenzkir tog-
arar mundu nú nota tækifærið til
þess að selja afla sinn í brezkum
Lýðræði eða einræði
Það getur oltið á ákvorðunum okkar,
hvort verður ofan á, sagði Eisenhower
í Rio de Janeiro
RIO DE JANEIRO, 24. febr.
(Reuter): — Eisenhower Banda-
ríkjaforseti kom í dag til Rio frá
Brazilíu, hinni nýju höfuðborg
Brazilíu, sem nú er í smíðum, en
þar hafði hann náttstað. — Eisen-
hower hélt mestu ræðu sína
hingað til í Suður-Ameríkuför-
inni, er hann ávarpaði þing
landsins síðdegis.
★ Viðvörun
— Vér munum líta á það sem
afsidpti af innanríkis- og einka-
málum sérhvers Ameríkuríkis, ef
eitthvert erlent vald reynir,
hvort heldur, með beinni árás,
þvingunum eða undirróðursstarf
S* NA 15 hnúiar / S/ 50 hnuiar ¥: Snjókoma > úii V Skúrir lí Þrumur 'W:z, Kuldaskil Hifaski/ H Hott L Lagi
Lægðin við írland kemur
LÆGÐIN við írland mun hafa
megináhrif á veðurlag hér-
lendis næsta sólarhring. Hún
þokast norður eftir og dýpk-
ar, en háþrýstisvæðið yfir
Grænlandi breytist lítið. Mun
því herða á NA-áttinni hér
íyrir sunnan land og einnig
hvessa hér við Suður- og Suð-
austurströndina.
Veðurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi SV-mið: vaxandi norð-
austan átt, hvassviðri bjart-
viðri. SV-land, Faxaflói, Faxa
flóamið: Vaxandi norðaustan
átt, bjartviðri. Breiðafj.
Breiðafj.mið norðaustan stinn
ingskaldi, skýjað. Vestf. til
Austfj. Vestfj. mið til Austfj.
miða. norðaustan kaldi, él á
annesjum. SA-land og SA-
mið: norðaustan átt hvass-
viðri til hafsins, víðst létt-
skýjað.
semi að hindra fólkið í að velja
sér stjórnarfar og þá lífsstefnu,
sem það helzt kýs. — Forsetinn
lýsti því yfir, að Bandaríkin
mundu framvegis sem hingað til
hvetja aðrar frjálsar þjóðir til
þess að verja sem mestu af þeim
upphæðum, sem kunna að spar-
ast við minnkandi vígbúnað, til
friðsamlegrar uppbyggingar í
öðrum heimsihlutum.
A Örlagaríkar ákvarðanir
— Við lifum nú á tímum, þeg-
ar taka verður örlagaríkar
ákvarðanir, sagði forsetinn, á tím
um ,sem krefjast þess af sér-
hverjum stjórnmálamanni, að
liann vinni af heilum hug að
sönnum friði. Styrjöld er nú al-
gerlega útilokuð — fráleit, sagði
Eisenhower — og hélt áfram: —
Fyrir liggur að taka ákvarðanir,
sem á getUr oltið, hvort ríkja
skal í heiminum — frelsi eða
harðstjórn, lýðræði eða einræði.
A Vel fagnað
Eisenhower var vel fagnað í
Rio, og er talið, að um 250.000
manns hafi verið á götum úti til
að fagna honum, er hann og
Kubitschek, Brazilíuforseti, óku
gegnum 'borgina. — Hvarvetna
mátti sjá spjöld með hinni frægu
áletrun: „I like Ike“ — en á einu
húsi blakti fáni, sem á var
ritað: „We like Fidel Castro“ —
við hliðina á stórri mynd af hin-
um skeggjaða forsætisráðherra
Kúbu.
höfnum. — Skipstjórar og stýri-
menn kölluðu í dag til áríðandi
fundar í Grimsby.
★
Forseti félagsskapar þeirra,
Dennis Weloh, sagði, að ástandið
væri litið mjög alvarlegum aug-
um, og menn væru áhyggjufullir.
Þá sagði hann, að „vissar ákvarð-
anir“ hefðu verið teknar, sem
hann vildi ekki greina nánar frá
að svo stöddu, en sagði, að þær
yrðu lagðar fyrir fiskimálaráð-
herrann og samband togaraeig-
enda á föstudaginn.
Islenzki ræðismaðurinn í
Grimsby, Þórarinn Olgeirsson,
sagði af þessu tilefni: — Ég veit
ekki, hve mörg af skipum okkar
kunna að landa afla hér, en vafa-
laust munu nokkur koma.
Háskólafyrirlestur
PRÓFESSOR Eugene N. Hanson,
forseti lagadeildar Ohio North-
ern University í Bandaríkjnum
og þetta kennslumisseri sendi-
kennari í lögfræði við Háskóla
íslands, flytur fyrirlestur um
stjómmálaflokka í Bandaríkjun-
um í dag, fimmtudaginn 25. febr.
klukkan 5.15 e. h. í I. kennslu-
stofu háskólans. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku og er öll-
um heimill aðgangur.
isborg komin
á veiðar
ÍSAFIRÐI, 24. febrúar. Tog-
arinn ísborg er nú farinn á
veiðar. ísborg hefur legið í
höfn síðan um áramót vegna
þess að ekki hefur verið hægt
að manna hana. En sem kunn-
ugt er strandaði Sólborg í
Sundunum fyrir skemmstu og
sr af þeim sökum frá veiðum
um skeið. Áhöfn Sólborgar fór
því á ísborg í þessa veiðiför.
Sólborg fór í slipp í Reykjavík
Dg við athugun þar kom í ljós,
ið „stýrisstamminn", öxullinn
úr stýrisblaðinu upp í stýris-
vélina, hefur bognað og mun
viðgerðin taka viku til tiu
daga. —J.B.
Stjórnarkreppa á Ítalíu
RÖMABORG, 24. febr. (Reuter).
— Antoni Segni, forsætisráð-
herra ítalíu kallaði til ráðuneytis
fundar í kvöd — og var þar
ákveðið, að stjórn Kristilega
demókrataflokksins skyldi segja
af sér. Fyrr í dag hafði Segni rætt
við forsetann, Giovanni Gronchi.
★
Allt síðan á sunnudag hefir
verið ljóst, að stjórnin myndi
segja af sér, en þá ákvað Frjáls-
lyndi flokkurinn að hætta stuðn
ingi við stjórnina — vegna þess,
að hún gerðist nú of vinstri- sinn
uð.
★
Ef Segni hefði kosið að sitja
áfram, ásamt stjórn sinni, hefði
hann orðið að styðjast við flokka
konungssinna og nýfasista, en
hvorki hann né flokkur hans mun
hafa kosið slíka lausn mála.