Morgunblaðið - 25.02.1960, Síða 6
6
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmfudagur 25. febrúar 1960
Fær V-þýzki herinn birgða-
stöðvar erlendis?
BONN, London, París, Madrid og
Washington 23. íebrúar.
Hávær orðrómur hefur verið á
á kreiki um það, að v-þýzka
stjórnin hafi leitað eftir því við
Spánarstjórn, að v-þýzka hern-
um yrði léðar stöðvar á Spáni.
1 opipnberri tilkynningu frá v-
þýzku stjórninni í dag segir, að
slík málaleitun hafi ekki verið
borin upp við Spán, en umræð-
ur svipaðs eðlis hafi að undan-
förnu farið milli v-Þýzkalands og
fjögurra annarra ríkja.
Þar er um að ræða Frakk-
land, Danmörk, Holland og Belg
íu. Segir í tilkynningunni, að 2
ár séu liðin síðan viðuræðumar
hófust. Enn hafi samt ekki ver-
ið gerður neinn samningur. —
Stjóm Adenauers tekur þó ekki
af allan vafa um að hugsanlegt
sé að málið verði einnig tekið
upp við Spán.
Ófullnægjandi landrými.
Fyrrgreindar viðræður hafa
einkum snúizt um að viðkom-
andi ríki léðu v-þýzka hernum
landrými undir sjúkrahús, birgða
stöðvar og heræfingar. Að sögn
v-þýzku stjómarinnar er ástæð-
an sú, að landrými sé ófullnægj-
andi í V-Þýzkalandi og Atlants-
hafsbandalagið hafi ekkert sam
eiginlegt dreifingarkerfi.
Talsmaður spánska uatnríkis-
ráðuneytisins sagði í dag, að eng
ar viðræður hefðu verið teknar
upp við Þjóðverja um þetta mál.
Spánn hefur sérstakan samning
við Bandarikjamenn vegna her-
stöðva þeirra á Spáni, en landið
er ekki aðili að Atlantshafsbanda
laginu.
Birgffastöðvar og sjúkrahús.
í yfirlýsingu Bonnstjómarinn
ar var lögð áherzla á það, að hún
væri ekki að sækjast eftir her-
stöðvum erlendis. Hér væri ein-
ungis um varúðarráðstafanir að
ræða.
V-þýzka stjómin mun verða að
ráðfæra sig við Atlantshafsbanda
lagið, ef hún hyggur á viðræður
við Spán um þetta málefni. Hér
er um að ræða sameiginlegar
varnarráðstafanir, sagði Bonn-
stj ómin.
Talsmaður franska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í dag, að fyr-
ir nokkrum mánuðum hefðu ver-
ið hafnar viðræður milli Frakk-
lands og V-Þýzkalands í þessum
dúr. Kvað hann Þjóðverja hafa
hug á að reisa sjúkrahús og
birgðastöðvar í Frakklandi til af-
nota í neyð.
Bretar andvígir.
Frá Washington herma fregnir,
að stjórnmálamenn hefðu orðið
undrandi við fregnir um að V-
Þjóðverjar ræddu við Spánverja
um hugsanlegar æfingastöðvar
á Spáni.
Samkv. áreiðanlegum heimild-
um mun brezka stjórnin vera and
víg því að Þjóðverjar leiti eftir
stöðvum á Spáni. Talsmaður
stjórnarinnar lét hins vegar ekki
hafa nein slík ummæli eftir sér
og talið er vist, að stjórnin að-
hafist ekkert að fyrra bragði til
að koma í veg fyrir viðræður
Spánverja og V-Þjóðverja.
En haft er fyrir satt, að brezka
stjórnin sjái enga ástæðu eða
þörf fyrir v-þýzka herinn að afla
sér stöðva erlendis — og slíkt
mundi jafnframt vekja grun-
semdir víða um lönd. f þriðja
lagi yrði slíkt notað til áróðurs
gegn Vesturveldunum.
Forseti
S.V.F.Í.
í 20 ár
í DAG eru liðin tuttugu ár síðan
Guðbjartur Ólafsson var kosinn
forseti Slysavarnafélags íslands.
Öll þessi ár hefur hann starfað
af fórnfýsi og dugnaði að eflingu
slysavarnamála.
Ekki er þörf að kynna Guð-
bjart Ólafsson eða störf hans,
svo þjóðkunnur sem hann er. í
dag þakka allir landsmenn og þá
sérstaklega slysavarnafólk hon-
um dugmikla og farsæla forustu
á liðnum árum.
—B.
Afli að glæðast hjá Stykkishólms-
bátu
m
STYKKISHÓLMI, 17. febr. —
Undanfarna daga hefir verið
fremur kalt í veðri og frost
komizt upp í 10 til 11 stig. —
Stormur hefir verið nokkra
daga og því hefir kuldinn verið
tilfinnanlegri. Bátar hafa stund-
að hér vel veiðar í febrúar og
gæftir mega teljast góðar og afli
hefir glæðzt eftir því sem liðið
hefir á mánuðinn. Hæsti afli hef-
ir verið rúmar 10 lestir á bát í
róðri af góðum fiski. Seinustu
daga hefir aflinn verið miklu
jafnari. Frystihúsin hafa þvi
haft þó nokkra framleiðslu, þó
ekki jafnmikið og í fyrravetur.
Mjög seinkar bát þeim, sem Þórs-
nes h.f., útgerðarfélag hér, átti
von á úr Danmörku. Fór skips-
höfnin út fyrir nokkru til að
sækja bátinn en alltaf hefir dreg-
izt að hann hafi getað losnað
og er ekki farinn enn af stað
heim á leið, þó að um áramótin
stæðu allar vonir til að hann
yrði kominn hingað um sein-
ustu mánaðarmót. Formaður
bátsins, Grímúlfur Andrésson
skipstjóri og vélamaðurinn voru
famir út löngu fyrir hátíðar til
að fylgjast með lokasmíði báts-
ins.
Skipakomur
Skipakomur hafa verið með
minna móti hér frá því um ára-
mót eða ekki eins miklar og
um þetta leyti 1959. Lagarfoss
og Dettifoss voru hér í fyrra-
dag og tóku fisk hér til útflutn-
ings hjá fyrirtækjunum hér. —
Einnig flutti Baldur frá Ólafs-
vík fisk í Lagarfoss meðan hann
stóð hér við.
Góffar samgöngur
Vegir hafa ekki teppzt hér
neitt að ráði í vetur og hefir
því verið hægt að halda uppi
áætlunarferðum og aldrei út af
því brugðið. Vöruflutningar hafa
að mestu farið fram á landi og
hér eru tvær stórar bifreiðar,
sem annast flutningana til og frá
og hafa þær farið margar ferðir
milli Stykkishólms og Reykja-
víkur í haust og það sem af er
vetri. Þykir miklu hentugra og
betra að öllu leyti að fá vörur
fluttar landleiðina og hafa flest
fyrirtæki við Breiðafjörð fengið
sér fleiri og færri bíla til að
annast vöruflutninga til og frá
Reykjavík. Kaupfélögin í Dala-
sýslu munu eiga orðið góðan
bílakost til þessara flutninga og
hefir hann verið nýttur vel. —
ingum á sjó hingað til Breiða-
Hefir því mjög dregið úr flutn-
fjarðar og virðist þróunin í þá
átt að bifreiðar anni honum. —
Eins og áður er sagt hefir verið
hægt að halda þessum ferðum
uppi á landi til Reykjavíkur það
sem af er þessum vetri án hindr-
unar. Þá má geta þess að inn-
firðirnir eru fljótir að verða ísi
lagðir ef einhver frost eru að ráði
og torveldar það mjög sjósam-
göngur til þeirra staða.
Frestur verði róðinn æskulýðs-
iulltrúi þjóðkirkjunnur
Á MÁNUDAGINN var útbýtt á málaráðherra, talaði fyrir frum-
Alþingi frv. til laga um breyt-
ingu á lögum um skipun presta-
kalla, flutt af kirkjumálaráð-
herra. Er efni frv. á þá leið, að
biskupi skuli heimilt að ráða
prestvígðan mann sem æskulýðs-
fulltrúa þjóðkirkjunnar til þesss
að aðstoða og leiðbeina við æsku
lýðsstarfsemi í söfnuðum lands-
ins. Ráðningartími skal vera allt
að þremur árum í senn. Skulu
prestar þessir hafa sömu laun og
sóknarprestar, en ferðakostnað-
ur og húsaleiga skal greiðast úr
ríkissjóði, samkvæmt reikningi,
sem ráðherra úrskurðar.
Bjarni Benediktsson, kirkju-
skrifar or
daglega lífinii
j
HONG KONG, 17. febr. (Reuter)
Fréttastofan Nýja-Kína skýrði
frá því í dag, að Yao Yi-Lin hefði
verið skipaður verzlunarmálaráð
herra Kina.
* Standa ekki upp
fyrir móðu>r með
barn^
Velvakandi minntist á það
í dálkum sínum hér á dögun-
um hve umgengnisvenjum
barna virtist áfátt í strætis-
vögnum. Fleiri en blessuð
börnin virðast með þessu
marki brenndir, samkvæmt
svohljóðandi bréfi, sem borizt
hefur:
— Kæri Velvakandi!
Mig langar til að vekja
máls á því, sem varðar allar
mæður með ungböm, en það
er viðvíkjandi ferðum með
strætisvögnunum hér í bæ.
Það er erfitt þegar taka þarf
með sér barn á þriðja ári.
Fyrst er að lyfta barninu upp
himinháar tröppyr vagnsins,
síðan að vera snör í snúning-
um að koma sér í sæti, því
illmögulegt er að halda jafn-
væginu standandi með barnið.
En eins og kunnugt er em
vagnarnir oft fullir og maður
bíður skiljanlega eftir að sitj-
andi samferðamaður í vagn-
iium sjái aumur á vesalli móð
ur og rísi upp. En það verður
bið á því, og oft hefur farið
nær illa, þegar vagninn rykk-
ist af stað eða hallast í beygju.
Fólk gónir á þá, sem standa,
og aldrei hef ég orðið þeirrar
ánægju aðnjótandi, að staðið
væri upp fyrir mér og barn-
inu. Vil ég hér með biðja um
að þessar línur verði birtar
-í von um úrbót.
— Móðir.
• Fá orlofslaun
fe
\ V
Svo er mál með vexti, að
ég er svo óheppin að eiga ekki
bíl og þarf því að fara mikið
með almenningsvögnunum.
K. S. skrifar:
— í sambandi við frum.
varp það, er borið var fram
á Alþingi í sl. viku um orlofs-
laun til húsmæðra kom í huga
mér eftirfarandi staka:
Oft á kona í ýmsri raun
við eiginmanna flónið.
En nú fá allar orlofslaun
fyrir uppvaskið og bónið.
Vonandi verður frumvarp
þetta samþykkt svo að bless-
aðar konurnar okkar fái tæki-
færi til að lyfta sér svolítið
uppp á sumrin. Ekki veitir
þeim af.
— K. S.
* Lagði út af prent-
villu
wmmaammmm
Prentvillupúkinn leikur
okkur blaðamennina oft grátt.
Og illa fór hann með Velvak-
anda í fyrradag. Ég lagði út af
prentvillu, ái. þess að vita það.
Þannig er mál með vexti, að
í frétt í sunnudagsblaðinu
voru taldar upp dánarorsakir
árið 1956, skv. skýrslu land-
læknis, og í lok fréttarinnar
stóð að 231 maður hafði látizt
af „öðrum óþekktum dánar-
meinmu“, í stað öðrum og ó-
þekktum dánarmeinum, eins
og stóð í skýrslu landlæknis.
Ég rak augun í þetta og varð
alveg steini lostinn yfir því
að svo margir hefðu dáið á ár-
inu af óþekktum meinum, og
hefur það sjálfsagt komið fleir
um á óvart, einmitt af því, að
læknavísindin hafa tekið svo
miklum framförum og eru svo
langt á veg komin.
En sannleikurinn er sá, að
aðeins 13 menn dóu úr illa
skýrgreindum eða óþekktum
meinum, en hinir 218 úr öðr-
um sjúkdómum en þeim sem
búið var áður að telja upp.
Þetta breytir að sjálfsögðu
allri myndinni, og sér maður
þar hvað eitt lítið og getur
gert mikinn mun. Finnst mér
ánægjulegt að geta fært þær
frétir að svo fáir hafi látizt
af illa skýrgreindum og ó-
þekktum orsökum á þessu til-
tekna ári, jafnvel þó ég verði
að biðja menn um að gleyma
fyrri bollaleggingunum, sem
byggðar voru á röngum for-
sendum.
varpinu. Kvað hann það flutt að
beiðni biskups og yrði hér um
að ræða svipað starf og þess
ferðaprests, sem ráðinn hefði
verið, en hans starf hefði þótt
gefa góða raun. Þá hefði einnig
fyrir fáum árum verið ráðinn
æskulýðsfulltrúi með prests-
menntun á vegum Reykjavíkur-
bæjar og hefði sú ráðning þótt
gefast vel. Svipuð væri reynsla
annarra þjóða í þessum efnum.
Því frekar væri rétt að stuðla
að þessu, þar sem mörg presta-
köll væru nú auð og prestafjölg-
un í Reykjavík ekki eins mikil
og þó væri áskilið í lögum. Væri
það skoðun biskups og kirkju-
málaráðuneytisins, að brýn þörf
væri á stofnun þessa starfs, en
ekki yrði talið, að hér væri um
óeðlilega fjárkröfu að ræða eða
eyðslu þar sem svo mörg presta-
köll væru prestlaus sem raun
bæri vitni.
• SKÁK •
HAFNARFJÖRÐUR
ABCBEFGH
ABCDEFGH
KEFLAVÍK
19. Hd7xd4 Db4xb2
★
KEFLAVÍK
ABCDEFGH
ABCDEFGH
AKRANES
17. 15—Í6