Morgunblaðið - 25.02.1960, Síða 11

Morgunblaðið - 25.02.1960, Síða 11
Fimmtudagur 25. febrúar 1960 MORCVISBLAÐIÐ 11 Maðurinn Ekkert mannlegt hefur veriS dr. Toth óviðkomandi. Sýning hans kemur víða við, tínir margt upp, og það, sem hún tínir upp, er aðeins eignað einum þjóð- flokki: manninum. Þá er hann vinnur fyrir sínu brauði, má sjá bónda í Bretagne plægja akur sinn, markaðssölukerlinguna selja eplin sín (Þýzkaland), kar- töflusáningu í Finnlandi o. s. frv. Þegar hann skemmtir sér má t. d. sjá við drykkju námumann f Frakklandi og Willy Brandt, borgarstjóra Vestur-Berlínar; spilaða whist í Belgíu, póker I Svíþjóð, rúllettu í Frakklandi og keiluspil á Spáni; dansað rokk f Þýzkalandi, sigaunadansa f Portúgal og tangó í Danmörku; munka spila fótbolta á Ítalíu og menn hlusta á götusöngvara f Englandi. Maðurinn daðrar (,,Æska“, Pólland; „Leðurjakka- hetjan“, Þýzkaland), elskar, hlær, trúir, hugsar — einnig grætur, efast, örvæntir, hræðist. Mjög þóttu mér flestar andlits- myndirnar vera góðar („Tár“, „Óánægður áhorfandi", Albert Schweitzer“), svo og myndir aí höndum og handapati („Sam- tal“, „Ræðumaður í Hyde Park“, „Framtíðin úr lófanum“ ). Og þannig mætti lengi, lengi telja, en auðvitað er slíkt alveg út f bláinn, og þegar komið meira en r.óg af svo góðu. Læt ég þvf staðar numið með upptalningar. Ásamt sýningunni „Ásýnd Evrópu" var haldin aukasýning, sem hét „Andlit Mtinchenarbú- ans“ (Das Gesicht des Munchen- ers). Eins og nafnið bendir til, eru þar sýndar svipmyndir úr lífi Munchenarbúans (300 mynd- ir), og eru þær valdar eftir sam- keppni, sem dagblaðið „Múnch- ener Merkur“ hélt. Einnig þessi sýning var mjög góð, margar myndir ágætar og heildarmúnch- enarsvipurinn, með sínum söfn- um og listalífi, listamannakrám og bjór, viðskiptum og alþýðu- lífi, afbragðsgóður. En sjón er sögu ríkari. Það er ekki unnt að lýsa Ijósmyndasýningu svo að vel fari, og því tek ég gðeins undir með Maurois hinum franska um sýninguna „Ásýnd Evrópu“: „Ég er viss um, að þeim hefur tekizt þetta“. ólm. þangað komnir vegna þess, að þeir geti öskrað hærra en aðrir. Sama er að segja um sýningu Steichens, sem valdi sínar mynd- ir úr 11 þúsundum mynda. Og einmitt þess vegna væri saman- burður á mati þessara tveggja sýninga lubbalegur, og út í blá- inn að segja, að önnur væri betri en hin, því að þær eru einfald- lega hvor um sig víðfeðmar lýs- ingar á mannheimum, eins og þeir ERU. Ásy vróp Múnchen, í janúar. FLESTIR muna sennilega eftir hinni ágætu og heimsfrægu ljós- myndasýningu Edwards Steich- ens, „Fjölskylda þjóðanna", sem meðal annars var sýnd í Reykja- vík á sínum tíma við mikla at- hygli. Sú sýning sýndi á snilldar- legan og áhrifaríkan hátt, hversu furðumargt hinir kynlegu vöðva- sekkir með hjarta í miðjunni, til- heyrandi stofninum homo sapi- ens, eiga skylt í þessu hjarta sínu, hvort sem er í ást eða hatri, stríði eða friði, leik eða vinnu — að móðurást logar jafnheitt undir svörtu og hvítu hörundi, og breyzkleikinn kann að skjóta sér jafnt undir gult hörund sem rautt. Manni varð allt í einu ljóst, að alls staðar í mannheimi ríktu sömu geðhrif, sami „mann- leiki“. Fjölskyldumótin brugðust hvergi. Þess vegna var sýningin sannlegur ljósberi hálfbrjáluð- um heimi, gerð af næmum skiln- ingi og, mér liggur við að segja, mannkærleika, og skírskötaði því nokkur augnablik til hins títtnefnda elements í sekknum, hjartans. — Slíkur boðskapur bræðrahugs og umburðarlyndis er sannarlega lofsverður, enda aðkallandi í heimi, þar sem and- skotinn ríður húsum, stríð og fjöldamorð vofa yfir og broddar. stjórnmálanna brosa hver fram- an í annan, en gnísta tönnum í brosinu. Og reyndar er nú svo, að með hraða og djöfulgangi nú- tímans hefur þróunin á mörgum sviðum beinzt í þá átt að sam- eina ólíkar þjóðir og þjóðflokka til að starfa og lifa saman. Sjá þjóðflokka Afríku og tollabanda- lög (því miður þó tvö) Evrópu. Sameining Evrópu Nokkru eftir síðari heimsstyrj- öldina fékk hugmyndin um sam- einingu Evrópu byr undir báða vængi, og þykir nú mörgum, að sú þróun hljóti að vera óhjá- kvæmileg. Nýtur sú skoðun meiri vinsælda í Þýzkalandi en víðast hvar annars staðar. Er ekki ó- sennilegt, að þessi hugmynd hafi að einhverju leyti stuðlað að til- komu hinnar nýju, „stóru Ijós- myndasýningar heimsfrægra og óþekktra ljósmyndara, „Ásýnd Evrópu“ (Das menschliche Ant- litz Europas)“, sem hljóp af stokkunum í Múnchen fyrir nokkru, þótt hún stundi á engan hátt áróður fyrir þessari hug- mynd. í myndaskrá sýningarinn- ar skrifar franska skáldið André Maurois: „Vér vitum það öll, að vér höfum margar hugmyndir og margar tilfinningar sameiginleg- ar, þótt við séum annars Frakk- ar, Þjóðverjar, Englendingar, ítalir, Grikkir og Spánverjar eða tilheyrum hinum norrænu þjóð- * um eða Balkanþjóðunum“. Enn- fremur: „Ósk þeirra manna, sem hafa staðið að þessari fallegu sýningu og hleypt henni af stokk unum, var aðeins sú að gera ljós- an þennan skyldleika. í þessum sölum vildu þeir túlka eitthvað stórkostlegt, eitthvað, sem engin Skelkuð Greið'asemi tunga fær tjáð, og þetta „eitt- hvað“ er e. t v. ekkert annað en hin evrópíska afstaða til lífsins. — Ég er viss um, að þeim hefur tekizt þetta“. Allir hafa ólík andlit, en . . . Aðalfrumkvöðull og höfundur þessarar sýningar nefnist dr. Tas Toth. Hélt hann evrópíska ljósmyndasamkeppni, og síðan valdi dómnefnd til sýningarinnar 274 af 4300 myndum, sem borizt höfðu frá flestum löndum álf- unnar (8 frá Islandi, en engin valin). Sjálfur leitaði dr. Toth svo uppi 256 myndir úr söfnum, tímaritum og ljósmyndastofum víðsvegar í Evrópu, og þannig urðu myndirnar á þessari mjög vönduðu og fallegu sýningu sam- tals 530. — Ósjálfrátt verður manni á að bera þessa sýningu saman við „Fjölskyldu þjóð- anna“ og dæma hana eftir henni, en við nánari athugun má sjá, að slíkt samanburðarmat er hlægi- legt og lágkúrulegt (sem og margur annar samanburður í mati á listum). Þessi sýning er ekki eins reglulega skipulögð og hin fyrrnefnda með öllum sínum (góðu) mottóum og spakyrðum. Hún er frjálslegar fram sett, Brosið stundum með snjöllum andstæð- um, og skapar því meira hinn sveiflandi, impróviseraða grunn- tón Ijósmyndarinnar, gómun augnabliksins ásamt öllum þess hræringum. Maður er á harða- þeysingi um allar trissur, eins og þjóðhöfðingi á heimsferðalagi, og áfangastaðirnir eru á öllum breiddar- og lengdargráðum sál- arlífsins. Og enn opinberast sá mikli (eða litli?) sannleikur, að einmitt þær tilfinningar, sem maður hefur alltaf eignað sér einum, geta einnig skinið út úr augum skítugs fiskistráks suður á Sikiley eða gamallar spuna- konu í Norður-Frakklandi. Slík- ur er boðskapur sýningarinnar Og þeirra orða, sem henni hafa verið valin að kjörorðum: Allir hafa ólík andlit, — en þó ekki mismunandi. (Ovidius) Orffin aff raunveruleika Hér verða þessi orð að raun- veruleika, miklu verulegri en í daglegu lífi, því að þar stelur straumur tímans frá manni augnablikunum. Maðurinn er eins og viðardrumbur keyrður ofan í miðja iðuna, sem þýtur hjá og mótar hann svolítið í leið- inni, en aldrei fær hann skynjað dropana. Allt í einu kemur myndavélin með sitt „tikk“, og sjá, flaumurinn er greyptur ímót, andartakið fær sína mynd, og maður getur virt það fyrir sér. Þar getur á að líta hugtök eins og „forvitni“, „óánægja“, „spenn- ingur“, „skelkur“, og „trú“, mót- uð utan á viðarbútinn. Þetta er helgi Ijósmyndalistarinnar og raddsetning. Eilífð andartaksins Ljósmynda- sýning sem opnuð var í Munchen ffyrir nokkru Í0 0 0>0'0 0 0 0 0 0 0 0 0-00 og andartak eilífðarinnar. Og þegar þannig er sungið er varla spurt um ljósop, hraða, lýsingu, fjarlægð eða linsu, heldur aðeins hrifizt af þessu andartaki mynd- arinnar, og einmitt á þeim grund velli hlýtur val myndanna að hafa farið fram. Enginn skal geta talið mér trú um, að hinar 530 á sýningunni séu endilega teknar með réttari lýsingu, ljós- opi og hraða en hinar mörg þús- und myndir aðrar, sem til greina komu, frekar en að söngvarar við Metropolitan-óperuna séu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.