Morgunblaðið - 25.02.1960, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.02.1960, Blaðsíða 18
18 MORCT'Nnr ÁfíiD Fimmtudagur 25. febrúar 1960 Aftur saust bros á aust urrískum andlitum Hinterseer og Leiiner unnu siifur og guli í drdtmatiskri keppni AUSTURRÍSKU skíðamennirnir björguðu áliti lands slns sem beztu skíðaþjóðar heims í alpagreinum, er þeir í síð- ustu greininni, svigkeppninni, unnu gull- og silfurverðlaun. 27 ára gamall garðyrkjumaður, Ernst Hinterseer, vann fyrstu gullverðlaun lands síns með glæsilegri og öruggri „keyrslu“ í afar erfiðum og krefjandi svigbrautum. Landi hans, Matthias Leitner, hreppti silfrið í þessari dramatísku keppni — en bronsið hirti Frakkinn Bozon. Eftir þetta afrek Austurrík- ismannanna, sást fyrst bros á austurrískum andlitum í þátt- takendahópnum, en þar hefur ríkt allt annað en gleði eftir misheppnaðan árangur í stór- svigi og bruni. Með þessu fékk hann önnur verðlaun sín á leik vnum Fyrr hafði garðyrkju- maðurinn fengið bronsverð- laun í stórsvigi. ★ Svigbrautirnar Sól skein á heiðum himni í Squaw Valley í dag er síðasta alpagreinakeppni karla fór fram og sú sem mestrar almennings- hylli nýtur, svigið. Þó veðrið væri fagurt átti þó ýmislegt mis- jafnt eftir að ske. Keppnin varð Frn æ'sta heiðri til mestn óheppni WILLY Bogner hinn kornungi Þjóðverji náði öllum á óvart beztum tíma í fyrri ferð svig- keppninnar í gær. Gullið blasti við honum. Og þegar hann stóð tilbúinn til að fara síðari ferðina tilkynnti þulur- inn að næstur kæmi hinn lik- legi Olympíusigurvegari. Og af stað fór hann. En skammt hafði hann farið er I hann datt og ' hrasaði fram- hjá tveinur hliðum. Snar 1 e g a s t ó ð hann á fætur og b y r j a ð i „fjallgönguna“ til að komast l að hliðunum tveim — og síð- an fékk hann góðan kafla. En þegar hann átti tvö hlið eftir i brautinni féll hann aftur — og nú öllu ver en fyrr. Enn spratt hann á fætur, en í öllum flýtinum sleppti hann öðru hliðanna og „keyrði" að markinu. Um leið og hann fór yfir marklínuna, féll hann hið þriðja sinn og nú svo illa að annað skíðið hrökk af honum. Þessi kornungi Þjóðverji — sem stundu áður hafði átti von ir um Olympíuguil — var óhamingjusamasti maður í Squaw Valley. III örlög það, að falla frá æðsta heiðri sem við blasti til hyldýpstu óham- ingju. hádramatísk. Færið var mjög gott er fyrsti keppandinn Wiliy Bogn- er Þýzkalandi var ræstur efst i brautinni. Svigkeppnin fór fram í tveim umferðum og tveim mismunandi brautum. Sú sem fyrr var farin var með 88 hliðum og lögð af Norðmanninum Stein Eirikssyni sigurvegara í stórsvigi á OL 1952. Sú síðari var lögð af Karl Moitor gömlum svissneskum alpagreina- meistara. Brautirnar voru jafn- langar 590 metrar og fallhæð þeirra hin sama, 216 metrar. — Brautirnar voru svo harðar að sérfræðingar sögðu að aðstöðu- munur fyrstu 20 manna væri lítill sem enginn. if Bogner tók forystu Þegar 12 menn höfðu farið brautina hafði Willy Bogner bezt- an tíma. Margir af „stórmeistur- unum“ fengu fall í brautinni og misstu þegar alla möguleika til góðs sætis í keppninni og jafn- framt af möguleikunum til sig- urs í þríkeppninni (allar alpa- greinarnar samanlagðar) en það er sérstök grein sem verðlaun eru veitt fyrir. Meðal þeirra var sigurvegarinn í stórsvigi R. Staub Sviss, en hann varð og 5. í bruni og hafði hvað mesta möguleika til sigurs í þríkeppninni. Hann sagði eftir á að þessi braut væri vafaiaust ekki erfið fyrir Stein Eirikssen, en ,,hún er einhver sú lúmskasta braut sem ég hef komið í, einkum hengin“. Hann sagði og að brautin hefði grafizt mjög og verið erfið þeim sem ræstir voru síðar en nr. 5—6. Kvað hann þetta ekki afsökun fyr ir sjálfs síns gengi og sagði að tímar Bonlieu sem var ræstur nr. EFTIR að keppni er lokið í 17 al 27 greinum Olympíuleik- anna lítur listinn yfir feng- in verðlaun þannig út: Guil Silfur Brons Rússland Þýzkaland Sviþjóð Sviss Bandarikin Austurriki Noregur Frakkland Kanada Finniand Fólland Uoiiand 3 3 2 3 2 1 1 1 1 13 og Igaya sem var ræstur nr. 21 væru stórkostlegir. -k Fyrri ferð f fyrri brautinni reyndist hinn kornungi Þjóðverji Willy Bogner lagnastur og náði 1:08,8 min. — Sýndi hann nokkra yfirburði. — Næstir komu Frakkarnir Bonlieu og Bozon á 1:09,8 og í 4. sæti ítalinn Milianti á 1:10,1. Sjötti var Hinterseer Austurríki á 1:10,7 Leitner Þýzkalandi og Igaya Jap an á 1:10,9. Perillat Frakklandi náði 1:11,0. í níunda sæti var Mathias Leithner Austurríki á 1:11,1 og landi hans Stiegler 11. á 1:11,5. Það átti þó ekki fyrir þessum görpum að liggja að raða sér í fremstu sætin í keppninni þó svo Það voru Alpaþjóðirnar, sem höfðu vinninginn í stórsvigi, enda er það sérgrein þeirra. Að jafnaði eru það Austurríkis- menn, sem hafa staðið sig bezt í stórsviginu. en að þessu sinni var það „nágranni“ þeirra Svisslendingurinn Staub, er varð sigursælastur. Hann sést hér í miðjunni að keppni lokinni. Með honum eru tveir Austurríkismenn, sem komust honum næst, Pepi Stiegler nr. 2 vinstra megin og Ernst Hinterseer nr. 3 hægra megin. — 1 dag sigraði hann i svigi. vel hefði tekizt hjá þeim í fyrri brautinni sem farin var. Þvert á móti biðu hin illu örlög sumra þeirra á næsta leyti — og það svo ill örlög, að sumir þeirra fengu ekki lokið keppninni. •k Síðari ferð í síðari brautinni fór allt á ann- an veg en í fyrri. Hinterseer fékk Framhald á bls. 19. 9S& DAGSKRÁ Olympíuleikanna í dag verður þannig: 4x10 km boðganga karla 5000 m skautahlaup karla Listhlaup karla á skautum heldur áfram og sömu- leiðis keppni í ishokkí. G R I S J I N Bikarkeppni otj þrír íandsleikir AÐ ÞVÍ er KSÍ tilkynnti í gær er fyrirhugað að bikarkeppni fari nú fram í fyrsta skipti hér á landi, en þátttaka i keppninni er heimil öllum meistara og 1. fl. liðum á land- inu. Mun keppnin hefjast eftir 15. ágúst n.k. og er um hreina útsláttarkeppni að ræða. — Knattspyrnuráð Reykjavíkur mun sjá um framkvæmd keppninnar. Tryggingamiðstöðin h.f. hef ur óskað eftir að fá að gefa bikar til keppninnar. Landsleikir Ákveðið er að þessir lands- leikir verði háðir á komandi sumri: 1. Noregur — fsland hinn 9. júní í Ósló. 2. ísland — V.-Þýzkaland 3. ágúst í Reykjavík. 3. írland — Island 11. sept. i Dublin. Grisjin hálfféll en jafn- aði þó heimsmet sitt Þ A Ð munaði hársbreidd, að bezti skautamaður heims á 500 m. vegalengd, Evgeni Grisjin, hlyti ekki sitt verðskuldaða Olympíu- jull í sérgrein sinni. Eftir vel útfært hlaup rak hann skautann í snjókantinn og riðaði til falls. — En honum tókst að forða falli sg náði jafnvæginu furðufljótt. Það munaði einnig hársbreidd að áhorfendur skautahlaups- ins yrðu vitni að nýju heims- meti í 500 m skautahlaupi. Og það var sá hinn sami, sem rið- aði til falls á brautinni, sem þar var að verki. Grisjin jafnaði heimsmet sitt 40.2 mín. sem sett var viku fyrir Olympíuleikana í Cort- ina 1956. Það er ekki vafi á að Grisjin hefði náð vel undir 40 sek. hefði óhappið ekki hent hann. 39.7 sekúndur á að gizka, sögðu rússnesku farar- stjórarnir. ★ Silfrið. Bandaríski skautamaðurinn Bill Disney hreppti silfrið með 40.3 sek. Að svo fór, kom eng- um á óvart, því slíka afburða- menn hafa Bandaríkjamenn sýnt að undanförnu við æfingar á skautasvellinu í Squaw Valley. ★ Fallandi Rússar. Gratz, Rússlandi varð þriðji á 40.4. Hann varð einnig fyrir því óhappi að reka skautann í snjó- vegginn. Þriðji Rússinn, Maysja, var að falli kominn 30 m frá marki, en náði þó markinu, jafnvægislítill. Það er því skiljanlegt að Rúss- arnir voru hálf leiðir — þrátt fyrir tvenn verðlaun, og jöfnun heimsmetsins. it Góð keppni. Skautahlaupið var afburða skemmtilegt og fór fram við beztu skilyrði á afbragðsgóðum ís. 46 skautamenn reyndu sig í 500 m hlaupinu. Meðal þeirra var Svíinn Wilhelmsson, sem náði 4. sæti á 40.5, afburðatíma. í sjötta sæti var Norðmaðurinn Gjestvang og sóttu því Norður- löndin 4 stig í þessari hörðu keppni. — Ég fór of hratt á síðustu langhliðinni og ferðin var of mikil í upphafi síðustu beygju, sagði Grisjin eftirá. Þetta var gallinn við hlaupið og hefði hann ekki verið hefði nýtt heimsmet séð dagsins ljós. Grisjin er 28 ára gamall og heldur því fram að við góð skilyrði geti hann komið heimsmeti sínu í 39.8. Vill gjarnan komast í aðra keppni nú sem fyrst, á þessari vega- Iengd. Hann tryggði fimmtu gull- verðlan Rússa þessi liðsfor- ingi í Rauða hernum. Úrslit í 500 m skautahl. karla 1. Grisjin, Rússlandi .......... 40,2 2. Bill Disney, Bandaríkjunum ., 40,3 3. Rafael Gratsj, Rússlandi... 40,4 4. Wilhelmsson, Svíþjóð ........ 40,5 5. Voronin, Rússlandi .....• • • • 40,7 6. Alv Gjestvang, Noregi....... 40,8 7. Salonen, Finnlandi.......... 40,9 8. R. Medermott, Bandaríkjunum 40,9 9. F. Nagauro, Japan........... 41,1 10. Eddie Rudolph, Bandar...... 41,2 Mausjev, Rússlandi ......... 41,2 Van der Drifft, Holland ...... 41,2 13. Hickey, Ástralíu............ 41,3 14. Elvenes, Noregi ..........» 41,4 15. Andre Kouprianoff, Frakkl. .. 41,5 16. Jervinen, Finnlandi......... 41,8 Yoshitaka Hori, Japan .«.•••• 41,8 18. Gilloz, Frakklandi ......... 42,4 19. Tynkynen, Finnlandi •••••••• 42,1 20. Knut Johannessen, Noregi .... 42,3 Tilch, Þýzkalandi........... 42,3 Kuhnert, Þýzkalandi 42,3 Sollner, Þýzkalandi ....... 42,3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.