Morgunblaðið - 25.02.1960, Page 20
V E Ð R I Ð
Sjá veðurkiírt £ bls. 2.
(jriginjibla
46. tbl. — Fimmtudagur 25. febrúar 1960
Asýnd Evrópu
Sjá bls. 11.
Þungíœrf
nyrðra
Tíðarfar hamfar rauð
magaveiÖi
ftÖSAVÍK 24. febrúar. Á laug-
«rdag brá hér til norðanáttar og
á sunnudag var iðulaus stórhríð,
ívo að varla sást milli húsa. Á
laugardag dró úr veðurhæð og
hríð, en þó hefur verið éljaveð-
•ur síðan. Sett hefur niður tölu-
verðan snjó, svo að færð er orðin
þung úr Mývatnssveit og Reykja
dal. Þó hefur verið hægt að flytja
anjól'k á trukkbílum. Vaðlaheiði
er ófær og Dalsmynni mun sömu
leiðis vera ófært. Samgöngur á
landi eru því engar við Akureyri.
Áætlunarferðin á mánudaginn
féll niður. Lítill snjór er á flug-
vellinum og flugvél kom hingað
í dag.
Bátar hafa eðlilega ekkert róið
síðustu dagana. Þorskafli hefur
verið lélegur undanfarið, en rauð
vnagaveiði er óvenju góð miðað
við árstíð. Mjög er þó erfitt að
*tunda þá veiði nú vegna hins
óstöðuga tiðarfars.
Fréttaritari.
IVorðangarður
á Grundarfirði
GRUNDARFIRÐI, 24. febr. — Nú
*ná segja „að nordan hardan
gerdi gard“, og hafa verið frá-
tök frá róðrum síðan á föstudag.
Allir bátárnir róa í dag í slæmu
veðri. Bátamir hafa ekki enn
tekið þorskanetin, en munu fara
«t með þau, er garðurinn geng-
«r niður. Afli hefur verið heldur
tregur og fiskurinn smár.
Heilsufar manna er hér gott.
Snjóþyngsli eru á vegum, og er
«kki fært öðru en jeppum úr
byggðarlaginu, en það er reynd-
«r ekki óveljulegt hér um slóðir
« þessum tíma árs. —Fréttaritari.
„Smedens
hús" flutt
í nótt
VERKAMENN frá Reykjavík-
urbæ unnu í allan gærdag við
að lyfta hinu forna timbur-
húsi, „Smedens hús“, við Póst-
hússtræti af grunni sínum.
Var verkið svó langt komið
í gærkvöldi, að byrjað var
með lyftitækjum að hefja hús-
ið upp, en síðan átti að skjóta
undir það vagni, og mun hafa
verið ætlunin að flytja gamla
húsið upp að Árbæ í nótt. Þar
mun það verða lagfært og því
búinn framtíðarstaður.
ÞESSI mynd var tekin á
Reykjavíkurflugvelli í gær, er
Katalínubáturinn Sæfaxi var
að koma að vestan. Þetta var
síðasta ferðin að sinni, því flug
báturinn fer nú til skoðunar,
sem mun taka a. m. k. 3—4
vikur. Á meðan verða engar
flugsamgöngur við Vestfirði
og Siglufjörð. Sæfaxi hefur
I annazt þessar ferðir einn í
liðlega ár, en þá var hinum
flugbáti Flugfélagsins lagt fyr
ir fullt og allt. Katalinu-bát-
arnir hafa gegnt þýðingar-
miklu hiutverki í samgöngu-
málum okkar síðustu 15 árin.
Flugfélagið fékk fyrstu Kata-
linuna 1944. Það var „Pétur
gamli“, eins og flugvélin var
kölluð, og „Pétur gamli“ var
einmitt fyrsta íslenzka flug-
vélin, sem fór í millilanda-
flug, það var til Kaupmanna-
hafnar. Flugfélagið fékk tvo
Katalínubáta til viðbótar 1946,
átti þá þrjá — og Loftleiðir
áttu um skeið tvo. Loftleiðir
seldu sína báta, „Pétur gamli“
var lagður á hilluna 1953, ann-
ar bátur 1958 og þá var Sæ-
faxi einn eftir. Hann var smíð-
aður í Bandarikjunum 1942
fyrir Bandaríkjaher, eins og
allir Katalíniubátarnir, sem við
höfum átt. Óhætt er að full-
yrða, að þeir hafi flutt langt
yfir 100 þús. farþega hérlend-
is. Árið 1958 flutti Sæfaxi einn
yfir 10 þús. Þetta er síðasti
flugbáturinn í flota íslenzku
farþegavélanna. Vestfirðingar
þekkja hann og binda miklar
vonir við að enn um skeið
verði Sæfaxi í förum vestur.
Sjá nánar frétt á bls. 2.
Iðjukosningar
um nœstu helgi
Lisfi lýðræðissinna er B - listi
Sfúkraflug
frá
Crœnlandi
SIÐDEGIS í gær kom hingað
til Reykjavíkur önnur Kata-
línuflugvélanna, sem Danir
hafa nú staðsett á Narssarsuak
flugvelli í sambandi við sigl-
ingarnar gegnum ísbeltið, til
hafna á Grænlandi. Var flug-
vélin í sjúkraflutningi og
flutti hingað unga danska
konu frá Julianehaab. Er kon-
an þungt haldin og verður hún
send með Loftleiðaflugvél til
Kaupmannahafnar árdegis í
dag. Hjúkrunarkona var yfir
hinni sjúku konu meðan á
fluginu stóð. Það mun vera
einhverskonar blóðeitrun, sem
þjáir konuna.
NÆSTKOMANDI laugardag og
sunnudag fara fram stjórnar-
kosningar í Iðju, félagi verk-
smiðjufólks í Reykjavík. Tveir
listar hafa komið fram; A-listi,
borinn fram af kommúnistum, og
B-listi, borinn fram af stjórn og
trúnaðarmannaráði félagsins.
B-listinn er þannig skipaður:
Formaður, Guðjón Sv. Sigurðs-
son, Hörpu; varaform., Ingólfur
Jónasson, O. Johnson & Kaaber;
ritari, Þorvaldur Ólafsson, Kassa
gerðin.
Meðstjórnendur: Jóna Magnús-
dóttir, Ándrés Andrésson; Ingi-
björg Arnórsdóttir, Svanur; Guð
mundur Jónsson, Nýja skóverk-
smiðj an.
Varastjórn: Björn Jónatansson,
Kassagerðin; Búi Þorvaldsson,
Svanur; Klara Georgsdóttir,
Borgarþvottahúsið.
Endurskoðendur: Eyjólfur Da-
víðsson, Andrés Andrésson; Odd-
geir Jónsson, Framtíðin; varam.:
Halldór Ohristensen, ísaga.
Trúnaðarmannaráð: Þorvaldur
Aki Eiríksson, Sælgætisgerðin
Amor; Auður Jónsdóttir, Belgja-
gerðin; Ragnheiður Sigurðardótt-
ir, Leðurgerðin, Víðimel, Magnús
Pétursson, Efnalaug Reykjavík-
ur, Jón Björnsson, Vífilfell;
Anna Kristmundsdóttir, Toledo;
María Níelsdóttir, Belgjagerðin;
Agnar Einarsson, Kassagerðin;
Ásgeir Pétursson, ísaga; Rein-
hardt Reinhardtsson, Alafoss,
Þingholts.str., Anna Ámundadótt
ir, Freyja; Jakob Júlíusson, Ála-
foss, Mosfellssveit.
Varamenn: Betúel Betúelsson,
Frón; Eyjólfur Davíðsson, Andrés
Andrésson; Alexander Jóhannes-
son, Hampiðjan; Karl Gunnlaugs
son, Andrés Andrésson; Soffía
Sigvaldadóttir, Sjóklæðagerðin;
Jóhanna Magnúsdóttir, Harpa;
Kristján Bernhard, Dósaverk-
smiðjan; Anna Sigurbjönsdóttir,
Efnablandan.
Eyjabátar með loðnu
íslendingur
rændui í Höfn
KAUPMANNAHÖFN, 24. febr.
(Einkaskeyti til Mbl.) — Ekstra-
bladet segir frá því, að íslending-
ur nokkur hafi orðið af með um
það bil 2000 danskar krónur í
hóteli á Vesterbro í gær. Konu
einni tókst að ná af honum pen-
ingaveski hans, án þess að hann
yrði þess var fyrr en um seinan,
þannig að konunni tókst að
sleppa.
íslendingurinn kærði þjófnað-
inn þegar til lögreglunnar, en
hann gat aðeins gefið mjög ófull-
komna lýsingu á konunni.
Mnður slnsnsf í úrekstri í Vogum
VESTMANNAEYJUM, 24. febr.
í gær kom loðna á land hér í Vest
mannaeyjum. Nokkrir bátar fóru
að leita að loðnu og fengu allir
nokkurn afla. Allir línubátar 78
að tölu fengu nægilega mikið af
beitu í róðurinn í nótt og sumir
vel það og beittu þeir þá lengri
línu en venjulega, eða allt upp í
sextíu bjóð. Eitthvert magn var
sent suður með Herjólfi í gær.
Átti það að fara til beitu á Suð-
urnesjum.
Eldur við Akra-
fjaH
I GÆRKVELDI sáu Reykvíking-
ar að eldur logaði glatt á móts
við Akrafjall og bjuggust menn
við að um stórbruna væri að
ræða. En samkvæmt frétt frá
fréttaritara blaðsins á Akranesi
var verið að brenna sinu í flóan-
um niður undan Reyni í Inmi
Akraneshreppi. Þeir Reynisbræð
ur höfðu brennt sinu í fyrra á
sama stað, en ekki eins snemma
og þeir gera nú.
Mikill handagangur.
Hér er ávallt mikill handa-
gangur í öskjunni, þegar loðnan
kemur. Allir beita, sem vettlingi
geta valdið, til að henni verði
beitt sem nýjastri.
Um afla er enn ekki hægt að
segja því að bátarnir eru ekki
komnir, en af þeim fréttum, sem
fengist hafa frá bátunum, er
Jhann misjafn. —Björn.
Togskipin farin
I GÆRMORGUN um klukkan
níu varð harður árekstur á Suð-
urnesjaveginum, í Vogunum.
Lítill rússneskur bíll frá Reykja-
vík, nýlegur, rakst á stærstu gerð
vörubíla frá varnarliðinu. Tveir
menn starfsmenn frá Sölumið-
stöðinni voru í litla bílnum,
bílstjórinn og farþegi, sem
sat við hlið hans. Varð hann fyrir
rnestum meiðslum og var fluttur
í hersjúkrabíl í Keflavíkurspít-
ala, en fékk að fara þaðan eftir
að læknir hafði búið um meiðsli
hans. Bílstjórinn hafði lítið
meiðzt.
Sá, sem ók Reykjavíkurbíln-
um, R-11104, lenti út í lausum
á veiðar
AKUREYRI, 24. febr. — Hér
hafa að undanförnu legið sex
hinna austur þýzku togskipa
vegna veðurs. Fóru þau öll út i
morgun ásamt fleiri togskipum,
sem gerð eru út fyrir Norður-
landi.
Skipin sem hér lágu voru Mar-
grét, Sigurður Bjarnason, Jón
Trausti, Bjarnarey, Björgvin og
Þór. Skipin höfðu legið hér und-
anfarna fjóra sólarhringa. Geta
má 0«. ss að bæði Sigurður Bjarna
son og Björgvin eru búnir að fá
yfir 10 tonna afla, frá því þeir
I hófu veiðar snemma í janúar.
'Prinsiitn hyllt-
ur í íslenzkri
landhelgi
ÞAÐ bar til tíðinda á lög-
brotasvæði brezka flotans út
af Ingólfshöfða á laugardag,
að herskipið Palliser tilkynnti
brezku togurunum, að það
mundi hefja mikla skothríð á
hádegi þann dag til heiðurs
hinum nýfædda prinsi Elísa-
betar drottningar.
Var togurunum tilkynnt, að
hátíðlegheitum þessum yrði
átvarpað í hlustunartækjum
togara á bylgjulengd þeirra.
Á hádegi þennan dag var
ivo skothríðin látin dynja í
hlustunartæki togaranna og á
þann veg fagnað fæðingu
brezka prinsins í íslenzkri
landhelgi. Hvorki meira né
minna en 41 skoti var hleypt
af við þetta tækifæri.
sandi og missti vald á bílnum.
A móti kom 20—30 bíla lest af
Keflavíkurflugvelli. Stakkst litli
bíllinn beint framan á vörubílinn
og stórskemmdist. Sjúkrabíllinn,
sem maðurinn var fluttur í til-
Keflavikur var í herbílalestinni.
Einnig var þar herlæknir, er
s’.rax kom til hjálpar. Voru bíl-
arnir á leið til Reykjavíkur. Stóð
þessi flutningur í sambandi við
herílutningana úr landinu, sem
nú eru að hefjast.
Hlutliafafundur
í Stuðlum
í DAG halda Stuðlar hf., styrkt-
arfélag Almenna bókafélagsins,
almennan hluthafafund. Er fund
urinn haldinn í Leikhúskjallar-
anum og hefst kl. 5. Á fundinum
mun verða rætt um byggingar-
framkvæmdir félagsins í Austur
stræti, en þar er nú, eins og
kunnugt er, að rísa stórhýsi, þar
sem framtíðaraðsetur Almenna
bókafélagsins verður.
Aðalfundur V.R.
nk. mánudag
AÐALFUNDUR Verzlunarmanna
félags Reykjavíkur verður hald-
inn n.k. mánudag í Breiðfirðinga-
búð kl 8,30.
Akveðið var að viðhafa alls-
herjaratkvæðagreiðslu um kjör
stjórnsr og trúnaðamannaráðs og
rann framboðsfrestur út sl. þriðju
dag. Aðeins einn listi kom fram,
listi stjórnar- og trúnaðamanna-
ráðs og er hann því sjálfkjörinn.
(Frétt frá V.R.)