Morgunblaðið - 13.08.1960, Qupperneq 1
16 síður og Le^bók
47 árgangur 182. tbl. — Laugardagur 13. ágúst 1960 Prentsmiðia Morgunblaðsins
Dagur Bandaríkjanna í geimrannsóknum:
Hylkí næst til jarðar - Radíóloítbelgur
umhverfis jörðu - Flogið í 39,3 km hæð
Sjónvarp um allan heim
mógulegt
WASHINGTON, 12. ágúst. — Síðasta sólarhring hafa Banda-
ríkjamenn verið sérstaklcga athafnasamir og náð miklum
árangri á sviði hálofta- og geimrannsókna.
1) Hylki, sem skotið var úr gervitunglinu „Könnuður 13“
náðist heilt og óskemmt.
2) Skotið var upp risastórum loftbelg, sem nefnist Berg-
mál. Snýst hann umhverfis jörðina líkt og gervitungl
og reynist vel til að endurvarpa og dreifa sjónvarps-
og radíósendingum um stóran hluta jarðar.
3) Hinni mönnuðu rakettuflugvél X-15 var flogið upp í
131 þúsund feta eða 39,3 kílómetra hæð.
Könnuður 13
Á miðvikudaginn skutu Banda
ríkjamenn á ioft eldfiaug frá
Vandenberg-eldflaugastöðinni í
Kaliforníu. Var þetta þrettánda
eldflaugin af tegundinni „Könn-
uður“ og var henni skotið með
þeim hætti, að annað stig hennar
fór á sporbaug kringum hnöttinn
beint frá norðri til suðurs og yt-
ir báða pólana. Þegar eldflaugin
hafði í gær farið sautján hringi
kringum jörðina studdi maður
einn í Vandenberg stöðinni á
hnapp og fylgdi því að eldflaug-
in sleppti úr sér iitlu hylki með
ýmsum mæiitækjum og skaut
henni í áttina til jarðar. Pegar
ihylkið kom inn í lofthjúp jarðar,
opnaðist fallhlíf á því svo það
sveif hægt niður í Kyrraihafið
um 480 km norðvestur af Hawai-
eyjum.
Undirbúið hafði verið að grípa
hylkið í net sem fiugvélar dróu
um loftið, en það heppnaðist
ekki. Hins vegar fundu þyrlur
frá flugvélamóðurskipi hylkið
þar sem það flaut í sjónum.
Yfirmaður þessara fram-
kvæmda Bernard Schriever
hershöfðingi segir að þetta sé
mikilvægur atburður og hafi
verkið heppnazt jafnvel fyrr
en búizt var við. Tólf tilraun-
ir misheppnuðust en áætlun
hafði verið gerð um 35 til-
raunir. Nú segir Schriever að
næsta stigið verði að skjóta
lifandi dýrum eða öpum á
loft, og ná þeim lifandi til
jarðar aftur í sams konar
hylki.
Bergmál
Loftbelgnum Echo (Bergmál)
var skotið upp með eldflaug í
morgun. Honum var komið fyrir
í litlu eldflaugar hylki, sem var
aðeins tvö fet í þvermáli. í>ar
var loftbelgshjúpurinn saman-
brotinn eins og harmonika. En
þegar eidflaugin var komin í
1600 km hæð, opnaðist hylkið
með smelli. Innan í loftbeigs-
Ihjúpnum var komið fyrir sér-
stöku dufti, sem gufar skjótt upp
er það hitnar og var bessi upp-
gufun nægileg í hinu loftþunna
rúmi til að blása belginn upp
svo að hann belgdist upp og varð
í einu vetfangi á stærð við 10
hæða hús eða um 30 metrar i
þvermál.
Loftbelgurinn fer nú á spor-
baugi í kringum hnöttinn. Mesta
fjarlægð hans frá jörðu er 1866
km en sú minnsta 1648.
Ræða Eisenhowers
Það þykir merkast við
þennan geimloftbelg, að hann
er gagnlegur til að endur-
varpa radíóbylgjum og getur
það haft stórkostlega þýðingu
fyrir radíósamskipti í heim-
inum. Fyrsta radíósendingin
sem endurkastað var frá loft-
belgnum var stutt ávarp frá
Eisenhower forseta. Hann tal-
aði í veika útvarpsstöð í Kaii-
forníu en hópur fréttamanna
í Washington heyrði útvarps-
sendinguna greinilega, eins og
hún kæmi frá útvarpsstöð í
nágrenni þeirra. Eisenhower
sagði í ávarpi sínu, að loft-*>
belgurinn „Bergmál“ væri
merkilegur áfangi í radió-
tækni heimsins og gætu allar
þjóðir heims notað sér þenn-
an loftbelg til að endurkasta
útvarpssendingum til fjar-
lægra sfaða.
Framh. á bk 2.
SÖNGKONAN heimsfræga
Maria Callas var í fyrrinótt
stödd í Maona, — nýjasta
næturklúbb Monte Carlo.
Þar tilkynnti hún að hún
hefði ákveðið að giftast
skipaútgerðarmanninum og
milljónamæringnum Onass-
is. Ekki er enn ákveðið,
hvenær giftingin fer fram,
þvi nokkur hængur er á því,
Callas og Onassis giftast
María Callas er enn löglega
gift og fær ekki skilnað frá
Giovanni Menighini.
Það hefur ekki farið fram
hjá þeim sem séð hafa þau
Callas og Onassis saman að
undanförnu að miklir kær-
leikar eru með þeim. Þau
hafa oft komið á Maona-
næturklúbbinn að undan-
förnu og dansað mikið sam-
an. Ekki hafa þau getað
dansað vangadans því að
hún er talsvert hærri en
hann. Sjónarvottar segja
hins vegar að það hafi ósjald
an komið fyrir að Maria
hafi komið með hökunni við
eyra Onassis og hafi hann
þá brosað innilega.
Ekki vill Onassis neitt
segja um giftingu en játar
að hann „haldi mikið upp á
Maríu“.
Brezkir togaramenn lengja
frestinn um 2 mán.
LONDON, 12. ág. (Reuter) —
Guðmundur í Guðmundsson ut.
Hata þingmenn komm-
únista skipt um skoðun
í landhelgismálinu?
KOMMÚNISTAR ráku að
vonum upp mikið kvein við
ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um að taka upp viðræður við
Breta. Eftirtektarvert er þó,
að þeim virðist ganga dálítið
erfiðlega að átta sig á því,
hvernig þeim bezt geti tekizt
að ala á óánægju út af þeirri
ákvörðun. í gær finna þeir það
þó út, að líklega væri helzta
ráðið að krefjast þess að AI-
þingi verði kvatt saman.
Erfitt er þó að skilja, hvað
þeir hyggjast fyrir með þeirri
kröfu. í fyrsta lagi vitnar rík-
isstjórnin í tilkynningu sinni
beinlinis ti| samþ. Alfpingis
frá því í maí 1959, sem er
stefnuyfirlýsing íslendinga í
landhelgismálinu. Þannig er
því beint lýst yfir, að ekki sé
um að ræða neina stefnubreyt-
ingu.
Allir þingmenn greiddu at-
kvæði með þessari ályktun og
engin ástæða er til að ætla að
neinum þeirra hafi snuizt hug.
ur. Væri því heldur hjákát-
legt að fara að boða þá til þing
fundar um hásumar, til þess
eins að endursamþykkja álykt
unina. Þess vegna er þessi
krafa Þjóðviljans hreint vind-
högg og verður hann að Ieita
betur að vopnum í baráttu
sinni gegn því að landhelgis-
deilan leysist farsællega.
anríkisráðherra flýgur snemma
á morgun frá Lundúnum áleiðis
til Tel Aviv í ísrael. Engar ráð
stafanir hafa verið gerðar til
þess að hann gæti átt fund með
fulltrúum brezka utanríkisráðu-
neytisins, þennan stutta tíma,
sem hann hefur dvalizt hér.
Vilja „sanngjarna lausn“
Talsmaður brezka utanríkis-
ráðuneytisins segir, að íslenzka
og brezka stjórnin hafi samband
sín á milli til að ákveða hvenær
fundir verði haldnir um fisk-
veiðideiluna og hverjir tæki
þátt í þeim. Brezka stjórnin fagn
ar því að íslendingar féllust a
fundi um deiluna og segir að
Bretar muni koma til fundarins
lausir fordóma. Hún segir, að ts-
lendingar hafi lýst yfir tólf-
mílna landhelgi, sem Bretar geti
ekki fallizt á, þar sem þeir viður
kenni almennt aðeins þriggja
mílna landihelgi.
Brezka stjórnin er reiðubúin
að leita að því sem útánríkis-
ráðuneytið kallar sanngjarna og
réttláta lausn, þar sem jafnt sé
tekið tillit til hagsmuna íslem-ks
og brezks sjávarúvegs.
Tveggja mánaða framlenging
Brezkir togaraeigendur fallast
nú á það, eftir öllum kringum-
stæðum að framlengja um tvo
mánuði þann tíma, sem þeir
skipa togurum sínum að halda
sig utan tólf mílna, en fyrri
þriggja mánaða fresturinn átti
að renna út í dag.
f gær ræddu fulltrúar brezka
sjávarútvegsins við Christopher
Soames hinn nýja landbúnaðar-
og sjávarútvegsmálaráðherra og
stóð fundurinn í 40 mínútur.
Lýstu útvegsmenn yfir ánægju
með fundinn eftir á.
Árangur af stillingu
Sir Farndale Phillips forseti
sambands brezkra togaraeigenda
sagði að al’ir togaramenn fögn-
uðu því að íslendingar hefðu nú
fallizt á að ræða málið við Breta.
Það væri sérstakt fagnaðarefni,
að tilkynningin um þetta hefði
komið, þegar „vopnahléinu" var
að Ijúka. Kvaðst Phillips telja
að þetta væri árangur þess, að
brezkir togaramenn hefðu sýnt
stillingu og þolinmæði og hlýtt
fyrirmælunum um að halda sig
utan tólf míina. Sagði hann að
lokum að togarasambandið
myndi gera allt sem hægt væri
til þess að ná sanngiarnri og var
andi lausn á deilunnL
I