Morgunblaðið - 13.08.1960, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.08.1960, Blaðsíða 8
8 MORCVNBLAÐIÐ I*augardagur 13. ágflst 1960 Utg.: H.f. Arvakur Reykjavfk. Fraínkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Árni Öla, sími 33045 Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22130. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. í lausasöiu kr. 3.00 eintakið. UTANRIKISMAL ^TJÓRNMÁLADEILUR hérlendis eru oft býsna harðvítugar og eru menn ekki alltaf sem vand- astir að meðulum. Þegar um innanríkismál er að ræða, má þó segja að þess- ar áróðursaðferðir skipti ekki meginmáli. Menn venjast þeim og taka ekki alla hluti of alvariega. En þegar um ut- anríkismál er að ræða, horfir málið nokkuð öðru vísi við. Þá höfum við ekki lengur efni á að reka pólitíkina sem nokk urs konar sport. Tilefni þess, að nú er að þessu vikið, eru viðbrögð stjómarandstæðinga við frett inni af því, að íslenzka ríkis- stjómin hefði ákveðið að ræða við þá brezku í þeim til- gangi að leitast við að koma í veg fvrir frekari árekstra á íslandsmiðum. Sérstaklega er þó leitt til þess að vita, að Framsóknarmenn og málgagn þeirra Tíminn skuli ræða mál þetta jafn strákslega og raun ber vitni. Afstaða ríkisstjómarinnar hefur að sjálfsögðu vakið mikla gremju í herbuðum kommúnista í þessu máli sem öllum öðrum vakir að- eins eitt fyrir þeim; að reyna að nota það til að spilla sam- stöðu okkar með vestrænum þjóðum og greiða þannig fyr- ir útþenslustefnu alþjóða- kommúnisn'ans. Öll afstaða þeirra í iandhelgismálinu fyrr og síðar hefur miðazt við það eitt og skal ekki eytt að því orðum nú. En hvað er það sem Fram- sóknarmenn ætla að reyna að notfæra sér til pólitísks á- vinnings? I fáum orðum sagt er það þetta: Íslendíngar eru einhuga um rétt sinn í landhelgismálinu, ekki eingögu til 12 mílna fisk- veiðilandhelgi heldur til land- grunnsins alls. Sumar aðrar þjóðir og þá fyrst og fremst Bretar eru okkur andsúnir í þessu máli. Þess vegna þarf að beita í því í senn skynsemi og festu Hér tjóa engin stor- yrði, hótanir eða stráksskap- ur. Allt þetta vita Framsókn- armenn auðvitað fullvel en engu að síður á að reyna að nota þetta sjálfstæðismál ís- lendinga til að ala á tor- tryggni gegn þeim aðgerðum, sem skynsamlegastar eru. Þegar sakaruppgjöfin var ákveðin, sem vafalaust er eitthvað það skynsamlegasta sem við höfum gert í þessari deilu, var iitill fögnuður hjá þeim Tímamönnum. Þeir komust þó brátt að raun um, að allur almenningur var samþykKur þeim aðgerðum og hafa síðan látið máliðkyrrt liggja. En nú þegar íslenzka ríkisstjórnin ákveður að verða við formlegum tilmæl- um hinnar brezku um við- ræður, eru viðbrögð almenn- ings mjóg svipuð og við saK- aruppgjöfina. Framsóknar- menn reyna engu að síður að ala á tortryggninni nú fyrstu dagana a. m. k., en vonandi verður raunin sú, að þeir sannfærist brátt um það, eins og var við sakaruppgjöfina að málflutmngur þeirra hafi ekki hljómgrunn. í fyrsta lagi hljóta íslend- ingar að failast á þessar við- ræður, vegna þess að þeir eru meðal þeirra þjóða, sem kreíj ast þess að alþjóðleg deilumál séu leyst með viðræðum, en ekki beitingu vonpavalds. í öðru lagi er það alveg Ijóst, að okkur íslending- um er það kappsmál, að land- helgisdeilan valdi ekki vin- slitum við einn eða neinn og sérstaklega hljótum við að reyna að forðast, að það verði til þess að veikja Atlantshafs- bandalagið og rjúfa samstöðu okkar með vestrænum þjóð- um. í þriðja lagi er það einnig ljóst, að það mundi mjog skaða málstað okkar og al- menningsálit víða um heim, ef við neituðum að verða við tilmælum um að ræða málið. Af öllum þesspm sökum er ekki einungis skynsamlegt heldur beinlínis bráðnauðsyn- legt að fara að eins og ríkis- stjórnin hetur ákveðið. Á bað má benda, að það hefur frá upphafi verið stefna Sjálfstæðisfiokksins, að neica ekki að ræða þetta mál, þótt að sjálfsögðu felist ekkert undanhald í slíkum viðræð- um. Þannig lýsti Sjálfstæðis- flokkurinn því yfir, þégar sumarið 1958 að hann teldi eðlilegt að viðræður færu fram meðan nokkur von væri til, að pær gætu borið árang- ur. Það er gamalkunnugt, að sjálfstæðisbarátta smáþjóðar er ævarandi. í utanríkismál- um verður því á hverjum tíma að gæta fyllstu skyn- semdar og hófsemi. Þar verð- ur að líta raunsætt á málin, hugleiða þau rólega og um- fram allt að forðast að láta stjórnast at tilfinningum. — Þess vegna er mjög áríðariai að Iýðræðissinnar noti mál þessi ekki til þess að leitast við að ná pólitískum stund- arhagnaði. ii^BUTAN ÚR HEIMI SOS, hjálpiö mér! INiíu - sjö - Charlie kallar á Love flugvöll EINKENNILEG hljóð heyrð- ust í talstöðinni og milli þeirra heyrðist óljóst rödd konu, sem virtist í mikluin taugaæsingi. En mennirnir í flugturninum á Love-flug- vellinum við Dallas í Texas fengu enga merkingu út úr orðunum. En allt í einu he; rðist rödd- in greinilega: — Hjálp, Love-flugvöIIur, SOS, SOS, hjáipið mér! Reynt var árangurslaust að ná samhandi við konuna. Þegar það gekk ekki var gef- in fyrirskiun um að reka all- ar flugvélar af flugbrautun- um, og stuttu síðar sást til vélarinnar. Það var lítil einka flugvél af Bonanza-gerð. Hún kom úr norðri og vaggaði ein- kennilega. „Lyftið vélinni” — Drottinn minn hún Plýgur beint á húsin hrópaði einn mann anna í flugturninum Maðurinn við talstöðina hróp aði inn í hljóðnemann: lyftið vélinni, lyftið vélinni. Litla einkavélin snar-hækkaði flugið. Síðan flaug hún umhverfis flugvöllinn og kom aftur. Hún steyptist niður í bröbtu aðflugi, lenti ramskökk á flugbrautinni, hentist aftur í loft upp en datt síðan niður á flugbrautina 300 m. framar. Augnablikskyrrð ríkti á flugvellinum síðan gullu við sírenur björgunarbifreiðanna Slag við stýrið Hjónin Elisabet og Spencer Black höfðu farið í sumarleyfi í einkarflugvél sinni. Um kvöldið hinn 14. maí voru þau á heimleið til Dallas og fimm barna sinna. Allt í einu þagnaði Spencer Black Svo gaf hann frá sér hálf kæfða stunu og valt upp að öxl konu sinnar. Hendur hans misstu tak á stýrisstönginni Elisabeth hrópaði í mann sinn en hann svaraði ekki. Hún reyndi að rétta hann við í sætinu, en það tóksc ekki. Tveimur árum áður hafði hann fengið slag. Alt í einu skildist henni að hann hefði fengið slag. — að hann mundi ef til vill deyja. En hvað um vélina? Hún þaut áfram gegnum næturmyrkrið í 700 metra hæð Frú Black varð gripin örvæntingu. Hún hafði oft Brúðkáííþsmynd af Elisabeth og Spencer Black farið með manni sínum í flugvél þeirra, en aldrei stýrt vélinni sjálf. Nú varð hún að lenda vél- inni. Líf þeirra beggja var í húfi. s. o. s. * Hún reyndi að muna hvað Spencer hafði sagt henni um flug stjórn. Svo teigði hún sig yfir eiginmanninn og greip um stýrls- stöngina. Hún ýtti stýrisstönginni fram og vélin lækkaðí flugið. Hún togaði í stýrisstöngina og vélin hækkaði flugið. Allt í einu kom hún auga á háhýsi, sem hún kann aðist við. Hún var í nánd við Dallas. Úti við sjóndeildarhring- inn sá hún ljósin á Love flugvell- inum. Heyrnartæki tals'töðvarinnar voru enn spennt um höfuð Spenc- ers. Hún náði þeim af honum, en gat ekki spennt þau um höfuð sitt meðan hún stýrði vélinni, svo hún lagði þau í kjöltu sína. Einhver hljóð heyrðust í talstöðinni, en hún greindi ekki orðin, Þess í stað greip hún hijóðnemarm og hrópaði: Hjálp, Love flugvöllur, SOS, SOS, Hjáipið mér! Níu — sjö — Charlie kallar á Love flug- völl. Fyrsta tilraun Þegar hún nálgaðist flugvöll- inn, sá hún björgunarbifreiðir á leið að flugbrautunum. Og þegar flugvöllurinn var allt í einu bað- aður í ka.stljósum, vissi hún að heyrzt hafði til hennar. Hún reyndi að taka stefnu á flugbraut ina. Hæðarmælirinn sýndi 350 metra, svo 300 metra, svo . . . Þá heyrðist allt í einu hærra í hlustunartækjunum í kjöltu hennar. Hún gat greint orðin: Lyftið vélinni . . . niður á húsin. Hún kippti í stýrisstöngina, og vélin tók stefnu. til himins, 'síðan sveigði hún umhverfis flugvöU- inn, ýtti aftur á stýrisatöngina og starði á ljósin á flugbrautinni. Lendingin Hún vissi að hún beindi vét- inni allt of bratt niður og að hraðinn var allt of mikiil. En hvernig átti að hægja ferðina? Þá sá hún hnapp í mælaborðinu merktan „lofthemlar". Hún þrýsti á hnappinn og fann strax að dró úr ferðinni. Annar hnappur í mælaborðinu var merktur „Lend ingarhjól“ og þrýsti hún einnig á hann. Nú sýndi hraðamælirinn 160 km hraða, en einnig það var of mikið. Þá datt henni í hug að bezta leiðin til að minnka ferð- ina væri að slökkva á hreyflin- um, eins og hún væri í bifreið, Vélaskröltið dó út. Flugvallar- Ijósin komu þjótandi á móti henni og hún lagðist yfir mana sinn til að vernda hsuin. Þegar björgunarmennirnir komu að flugvélarbrakinu, sat Elisabeth Black utan við sig á öðr um vængstúf vélarinnar. Blóðið rann niður kinn hennar og ann- ar handleggur hennar lafði ein- kennilega. Hún spurði björgun- armennina um líðan eiginmanns- ins. Enginn svaraði og hún vissi að hann var látinn. Varð að komast heim Frú Spencer var handleggsbrot in og kjálki hennar þríbrotinn. En hún hafði lent flugvélinni án þess nokkurntíma að hafa flogið fyrr. Og hún komst heim til barn anna sinna fimm. Þetta hefur ekk ert með hetjudáð að gera, ég varð að komast heim til barn- anna, sagði hún í viðtali við bandaríska tímaritið „Parade“. Martin og Mitchell — sennilega „austantjalds" WASHINGTON. — Talsmað- ur bandariska varnarmála- ráðuneytisins hefir látið svo ummælt, að líkur séu til þess, að William Martin og Bernon Mitchell, bandarísku ör- yggisþjónustumennirnir, sem hurfu sporlaust á dögunum, hafi flúið land og séu komnir austur fyrir „járntjaldið". — Það var þó undirstrikað í þessu sambandi, að hvorug- ur þeirra hafi haft yfir að ráða upplýsingum, sem Banda ríkjunum gæti stafað hætta af að Rússar kæmust yfir. Lítið í reknetin SIGLUFIRÐI, 10. ágúst: — Nokkrir bátar frá Breiðafjarðar- höfnum létu reka í nótt hér hjá Grímsey. Fékk einn þeirra um 100 tunnur í netin. A Húnafióa höfðu aðrir látið reka en þar vav ekkert að hafa. Síldin er aðeins að óverulegu leyti söltunarhæf. — Guðjón, til vinstrb

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.