Morgunblaðið - 17.08.1960, Blaðsíða 2
2
MOJtr.THvnr, aðið
Miðviltudagur 17. agúst 1960
Skin og skúrir
í Skaftafellssýslu
■jœ,
Kirkjubseiarklaustri, 15. ágúst.
N Ú eru hér dýrðlegir dagar,
glaða sólskin og stafalogn og
heyskapurinn gengur eins og í
sögu. Svona hefur ágúst verið,
en júlí reyr.dist okkur ekki vel.
Þá byrjuðu að vísu margir dag-
ar með því, að sólin ljómaði frá
sumarbláum himni og menn
flýttu sér út að breiða og snúa.
En Adarn var ekki lengi í
Paradís. Upp úr hádegi komu
kafþykkir skýjabólstrar siglandi
upp á himimnn, svartir og ógn-
andi, eins og stjórnarandstaðan.
Og áður en varði helltist regnið
niður í hálfþurrt, iðgrænt heyið
oð fólkið flýð; inn í bæ og fékk
sér aukasopa til að hressa upp á
skapsmunina, sem ekki var van-
þörf á, því að aldrei er sveita-
maðurinn ergilegri en þegar
hann fær ofan í. — Svona gekk
þetta á hverjum degi í hálfan
mánuð’ að skúr kom dag eftir
dag, stundum fleiri en einn. Á
milli þeirra ljómaði sólin, og í
heitu skini hennar spratt grasið,
utan túns og innan, líklega
meira en nokkru sinni áður. —
En nú hefur sem sagt verið
bezti þurrkur á aðra viku. Hlöð-
urnar eru að fyllast og háin að
spretta til að fylla súrheysgryfj-
urnar á sínum tíma.
Jóhann — vertu viðbúinn!
Þá lætur blessuð kartaflan
ekki sinn hlut eftir liggja. Um
vöxt hennar verður að vísu ekki
fullyrt enn, því að miklu á hún
eftir að bæta við sig. Margir eru
farnir að taka upp í matinn og
er spretta afbragðs góð. Og svo
mikið er vist, að Jóhann í Græn-
metinu þarf að vera viðbúinn
miklu magni af jarðávöxtum á
hausti komanda, og er ekki ólík-
legt, að nú verði sprengdar allar
kartöfluhlcður.
Falieg lömb
„Mér sýníst lömbin bara vera
Biskup \ ísiterar
fyrir vestan
PATREKSFIRÐI, 13. ágúst. — í
gær visiteraði herra biskupinn
yfir íslandi Sigurbjörn Einarsson,
Patreksfjarðarkirkju.
Biskupinn og bisikupsfrú
Magnea Þorkelsdóttir ásamt 2
sonum, höfðu komið til Patreks-
fjarðar kvöldið fyrir. En þann
dag hafði biskup visiterað þrjár
kirkjur í Sauðlauksdalspresta-
kalli. Kl. 10:30 á föstudagsmorg-
un fór biskup ásamt sóknarpresti
í heimsókn í sjúkrahúsið. Kl.
11:00 var barnaguðsþjónusta og
var þar viðstaddur auk hinna
fyrrnefndu prófasturinn séra Jón
Kr. ísfeld.
Kl. 14:00 var almenn messa í
Patreksfjarðarkirkju. Sóknar-
presturinn léra Tómas Guðmunds
son þjónaði fyrir altari fyrir pré-
dikun en biskup prédikaði og
þjónaði fyrir altari eftir prédik-
un ásamt prófasti. Kirkjukór Pat-
reksfjarðar annaðist söng. Orgel-
leikari var Guðbjartur Eggerts-
son.
Að lokinni guðsþjónustu bauð
sóknarnefnd biskupi og föruneyti
hans ásamt prófasti og sóknar-
presti svo og öllu því fólki er
starfar við kirkjuna til kaffi-
drykkju.
KL. 17.00 hófst fundur í kirkj-
unni með sóknarnefnd, safnaðar-
fulltrúa og meðhjálpara. Um
kvöldið flutti biskup fyrirlestur
í kirkjunni um hvemig lesa
skyldi biblíuna.
I Öll skiptin var kirkjan mjög
vel sótt.
Vinna var öll lögð niður frá
hádegi hinn sama dag og heim-
sókn biskups stóð yfir. — Trausti.
stór. Ég trúi ekki öðru en dilk-
amir verði vænir“, segja menn
ef þeir mæta fé á förnum vegi.
Og hvemig á líka annað að
vera, þegar allt fer saman: vel
framgengnar ær, samfeld blíða
í allt heila vor og kafgras í sum-
ar. Sá, sem þessa frétt sendir,
var um daginn á ferð austur á
Brunasandi. Þar er sauðland
gott. Þar vom einlembingarnir
orðnir svo stórir, að maður
þekkti þá varla frá mæðrunum
í nokkrum fjarska. Þetta kemur
sér líka vel. Nú kvað dilkakjötið
vera uppetið, og sumarslátrun
senn hafin. — Fréttaritari.
Lát Glíasar F.
Hólm
í FRÁSÖGN Mbl. í gær af láti
Elísar Hólm, var sagt að lögregl-
an hefði fyrst komið að honum.
Það rétta í málinu er, að sonur
Elíasar ætlaði að heimsækja föð
ur sinn á sunnudagskvöldið, en
kom þá að læstum dyrum. Þótti
honum það grunsamlegt, þegar
enginn svaraði, og kallaði hann
því á lögregluna til að dýrka
upp hurðina. Þegar hann hafði
komizt inn með lögregluhjálp,
fann hann föður sinn látinn í
rúminu. Er líklegt að Elías hafi
dáið síðdegis á laugardaginn.
Matsalniun á Keflavíkur-
flugvelli lokað á næturnar
Lögfræðingarnir borðuðu í biðsal
Alan Paton fær
frelsisverðlaim
RITHÖFUNDURINN Alan Paton
hefur verið sæmdur Frelsisverð-
iaununum 1960. Ein þekktasta
bók hans er Grát ástkæra fóstur-
mold, sem komið hefur út í ís-
lenzkri þýðingu á vegúm Al-
menna bókafélagsins.
Félagið Freedom House veitir
árlega Friðarverðlaun og meðai
þeirra sem áður hafa hlotið þau
eru sir Winston Ohurohil (1955),
Eisenhower, sem þá var hers-
höfðingi (1945), fyrrverandi ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna
George C. Marshall (1947) og ó-
þekkta ungverska frelsishetjan
(1957). Markmið Freedom House
er að berjast gegn hverskonar
einræðisstjórn og einræðisstefn-
um.
KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 16.
ágúst: — Allt frá árinu 1951 hef-
ur varnarliðið rekið mat- og veit
ingasölu á flugvallarhótelinu á
Keflavíkurflugvelli. Matur hefur
bæði verið seldur í borðsal, þar
sem þjónustustúlkur annast fram
reiðslu og einnig hefur sjálfsaf-
greiðsla verið í svokallaðri kaffi-
teríu. Kaffiterían hefur verið op-
in allan sólarhringinn nema á
því tímabili sem ræsting hefur
farið fram. Borðsalur hefur hins-
vegar verið opinn að næturlagi
aðeins fyrir flugfarþega. Hefur
fyrirkomulag þetta þótt gefast vel
og verðlagi verið stillt í hóf.
Nú brá svo við að 1. ágúst sl.
hækkuðu veitngar um 135% fyr-
ir þá sem greiða fyrir sig með ís-
Þorskurinn hverfur frá
Grænlandsströndum
KAUPMANNAHOFN, 16. ág.
Einkaskeyti frá fréttaritara
Morgbl.
FI SKI F RÆÐI NGURI NN Jens
Kreutzmann, sem stendur fyrir
fiskirannsóknarstöðinni í Godt-
háb og hefur í fjölda ára rann-
sakað þorskmagnið við strendur
Grænlands, skýrir frá því i Kaup
mannahafnarblaðinu Dagens Ny
heder að þorskurinn sé að hverfa
frá Grænlandsströndum. Fækk-
ar þorskinum þar örar en búizt
hafði verið við. Aldursflokkur-
inn frá 1957 er nú mest áber-
andi, en þetta er smáfiskur sem
ekki er söltunarhæfur.
HEITUR SJÓR
Áður hefir verið sannreynt að
þorskurinn hverfur svo til sam-
tímis frá ströndinni og af veiði
svæðunum dýpra úti. Sjórinn er
óvenju heitur í sumar á veiði-
svæðunum, þar sem nú er aðal
vertíð togaranna, og þar er eng-
an þorsk að fá. Þorskurinn virð-
ist farinn suðureftir, sem senni-
lega á rót sína að rekja til
breyttra hafstrauma við Græn-
land, og er ýmislegt sem bendir
til breytinga á strandlengjunni.
Mikill hafís er við strendurn-
ar í ár. Virðist hann ekki ætla
að reka frá landi sem hanr. ann.
ars hefur gert undanfarin ár, en
þetta getur verið einstakt tilfelli.
Ýmsum íshafs fisktegundum fer
fjölgandi, svo sem flatfiski, ugak
sem er fjarðaþorskur og síldar-
tegundinni angmagssak.
Nýlega kom ég til þorpsins
Kapisigdlit við Góðrarvonarfjörð
en þaðan er mikil þorskveiði
stunduð. Nú er þar eingöngu
stunduð hreindýraveiði og af-
komu margra fjölskyldna hætta
búin, því þorskurin er horfinn.
Fliigmaðiirinn
mætti ekki
ÁÆTLUNARFERÐ Flugfélags Is
lands til Glasgow og Kaupmanna-
Jhafnar kl. 8 1 gærmorgun var
frestað á síðustu stundu til kl. 9
í gærkvöldi. Farþegarnir 52 tals-
ins höfðu þá fengið afgreiðslu
útlendingaeftirlitsins og var ekki
beðið eftir neinu öðru en farþeg-
um yrði boðið að stíga út í flug-
vélina.
Ástæðan fyrir þessari 13 stunda
töf var sú, að aðstoðarflugmaður-
inn mætti ekki, en hafði ekki boð
að forföll. Síðar bárust skilaboð
tun að maðurinn væri veikur.
Ekki kom til greina, að aðrir
flugmenn hlypu í skarðið en þeir,
sem komið höfðu heim kvöldið
áður og var hvíldartími þeirra
ekki útrunninn fyrr en í gær-
kvöldi.
Þetta er annar dagurinn í röð,
að millilandavél Flugfélags Is-
lands tefst af þessum sökum.
lenzkum peningum. Við verð-
hækkun þessa minnkuðu mjög
viðskipti flugvallarstarfsmanna
við greiðasöluna. Varnarliðið
mun ætíð hafa talið sig reka
greiðasöluna með halla og er við
skipti minnkuðu, var gripið til
þess örþrifaráðs að loka kaffi-
teríunni og matalnum frá kl. 8
að kvöldi til 7 á morgni og var til-
kynning send út um það í gær.
Heitan mat er hægt að fá fyrir
farþega, ef hann er pantaður með
5 stunda fyrirvara. Það þýðír að
panta verður mat fyrir farþega
af farþegaþotu, sem kemur frá
París rúmum tveimur stundum
áður en flugvélin leggur af stað
þaðan og geta menn gert sér í
hugarlund hvers slík þjónusta er
metin nú á þessari þotuöld. Að
næturþeli er opin kaffibar í bið-
sal flugstöðvarbyggingarinnar og
er þar selt kaffi og innpakkaðar
samlokubrauðsneiðar.
Sóttu matpakka í flugvélina
Sl. nótt kom til Keflavíkur flug
vél frá sænska flugfélaginu Trans
Air, til að sækja 80 lögfræðinga,
er setið hafa lögfræðingaráð-
stefnu í Reykjavík. Flugstjórinn,
sern ekki vissi um hina nýju
tilskipun, vildi fá mat fyrir far-
þegana áður en þeir legðu af stað
frá Keflavík. Var honum bent á
kaffibarinn og samlokurnar, en
þær veitingar taldi flugstjórinn
ekki boðlegar fyrir sína farþega.
Varð það úr að flugstjórinn fékk
leyfi hjá tollgæzlunni, til að
sækja matarpakka um borð í flug
vélina og var lögfræðingunum
boðið til snæðings standandi í bið
salnum.
Telja menn að þessi fyrir-
greiðsla verði lítt til að auka
flugumferð um Keflavíkurflug-
völl, en hún hefur mjög dregizt
saman upp á síðkastið. — B. Þ.
Utanríkísráðherrar Ame-
ríkuþjóðcs á fundi
San Jose, Costa Rica, 16. ágúst.
—• (Reuter) —•
I DAG hófst hér fundur utan-
J Z' NA /S hnútar | SV 50 hnútar Snjókoma > 06/ \7 Slúrir K Þrumur 'W%& Ku/dash/ Hitaski/ H Ha» L Lagi
„Freyr“ síglir
heim um Iielgina
UM NÆSTU helgi mun hin nýi
1000 tonna togari Freyr RE 7, sem
fsbjörninn h.f. hefur látið byggja
í Bremerhaven, sigla heim.
Framkvæmdastjóri fyrirtæ'kis-
ins, Ingvar Vilhjálmsson, mun
formlega taka við togaranum 20.
þessa mánaðar.
f dag fara héðan flugleiðis ut-
an átta menn af væntanlegrj á-
höfn togarans, en þegar eru nokkr
ir yfirmannanna komnir til Brem
erhaven. Skipstjóri á Frey verð-
ur Guðni Sigurðsson, en hann
hefur verið skipstjóri á Ask.
Fyrsti vélstjóri verður Aðalsteinn
Jónsson.
HÆÐ yfir Grænlandshafi og
lægðarsvæði yfir Norðurlönd-
um veldur norðanátt hér á
landi. Kalsaveður er norðan-
lands og víða rigning á annesj
og New York en 17 í Stokk-
hólmi.
Veðurspáin kl. 10
í gærkvöldi:
SV-land til Breiðafjarðar,
SV-mið til Breiðafjarðarmiða:
um og miðum, en sums staðar Norðanátt. stinningskaldi með )
bjart í innsveitum. Sunnan- köflum, bjartviðri.
lands er bjartviðri og þurrk- Vestfirðir: NA-gola eða
ur. Vestan Grænlands er stórt kaldi, léttskýjað sunnan til.
lægðarsvæði, sem veldur sunn Vestfjarðamið: NA-kaldi,
anátt og rigningu á suður- og þokuloft norðan til.
vesturströnd Grænlands. Norðuriand til Austfjarða,
Austan hafs er yfirleitt vest- Norðurmið til Austfjarðam.:
an- eða norðvestanátt og ber Norðankaldi eða stinnings-
mikið á skúrum og þrumu- kaldi, þykkt loft víðast hvar
veðri síðdegis. Hiti var 20 stig og rigning með köflum.
í Kaupmannahöfn og París, 16 SA-land og SA-mið: Norðan
stig í Lundúnum og 18 í Osló gola eða kaldi, léttskýjað.
ríkisráðherra 21 lýðveldis í
Ameríku. í rauninni er hér
um að ræða tvær ráðstefn-
ur. — Mun sú fyrri fjalla
um þá ásökun að háttsettir
embættismenn í Dominik-
anska lýðveldinu hafi átt þátt
í morðtilraun sem sýnd var
Betancourt, forseta Venesu-
ela, 24. júní sl., en sú síðari
um Kúbuvandamálið.
Hefur Fidel Castro lýst því
yfir að Kúba muni ekki viður-
kenna það sem skoðun íbúa land
anna í Ameríku þótt einhver
gagnrýni á Kúbu verði samþykkt
í San Jose, og utanríkisráðherra
Kúbu, Raul Roa, sagði við komu
sína til San Jose í gær:
„Við erum ekki komnir hingað
til að sæta ákærum, heldur til að
ákæra“.
Aróður
Tass-fréttastofan rússneska
hefur uppi mikinn áróður til
stuðnings Castro í sambandi við
þessar ráðsteínur og segir meðal
annars að Bandaríkin séu með
nýjum fjárveitingum til Amer-
íkuþjóða að reyna að skapa sam-
eiginlega andstöðu gegn Castro.
Bílslvs í Kopavogi
UM klukkan 1 í gærdag varð
lítil telpa fjrir bifreið í Kópa-
vogi. Telpan, sem er um fimm
ára gömul, skrámaðist á fótum
og var flutt í Slysavarðstofuna,
en fékk Dráðlega að fara heim
til sin.