Morgunblaðið - 17.08.1960, Side 5

Morgunblaðið - 17.08.1960, Side 5
Miðvikudagur 17. águst 1960 MORCVIS BL 4ÐIÐ 5 MENN 06 = mL£FNI= ÞETTA er Hayato Ikeda, hinn nýi forsætisráðherra Japana, sem tók við af Nobosuke Kishi fyrir nokkru. Kishi sagði af sér til þess að koma í veg fyr- ir auknar óeirðir í Tokíó, eft- ir að heimsókn Eisenhowers hafði verið aflýst. Seinasta verk hans var að ganga frá staðfestingu hins nýja varnar- sáttmála milli Japans og Bandaríkjanna. , Kishi þótti harður í horn að taka, en öllum ber saman um það, að Ikeda sé enn ódeigari í stjórnmálabaráttunni. Hann er rammur íhaldsmaður upp á gamlan máta og þekktur að því að segja hug sinn allan hvenær sem er, hvar sem er og við hvern sem er, enda þykir pólitískum vopnabræörum hann stundum helzt til opin- skár og hvassyrtur. Líkur er hann Kishi að því leyti, að báðir eru hlynntir samstarfi við Vesturveldin, fylgjandi frjálsu framtaki og frjálsri verzlun. Ikeda þykir ákaflega félagslyndur maður, heldur frægar veizlur, þar sem þekkt ustu „geishur“ landsins skemmta gestum, og meðal vina hans eru allir helztu stjórnmálamenn, listamenn og fræðimenn Japans. Vegna óeirðanna í Tokió héldu menn á Vesturlöndum, að sú stefna stærstu flokkanna i Japan að halda nánu sam- starfi við Bandaríkin á alþjóða vettvangi hefði beðið mikinn hnekki og væri orðin óvin- sæl meðal þjóðar.'imar. Það mun þó reginmisskilningur. Þeir, sem fyrir óeiröunum stóðu, voru aldrei annað en tiltölulega fámennur mintni- hluti, þegar miðað er við íbúa- tölu Tokíó, sem er nú rúmlega átta milljónir. Þar að auki á stjórnarflokkurinn aðalfylgi sitt utan höfuðborgarinnar. — Nýafstaðnar héraðskosningar í Japan sýna Ijóslega, að meiri- hluti þjóðarinnar styður stefnu frjálslynda flokksins — flokks Kishi og Ikeda — og að óeirðirnar í Tokíó voru alls ekki táknrænar fyrir afstöðu þjóðarinnar, þótt þær vektu mikla athygli erlendis og spilltu áliti Japana, — nema í augum kommúnista og e. t. v. íslenzkra framsóknarmanna, sem tala af fjálgleika um „al- þingi götunnar“ og „japanskt ástand“. Það mun sönnu nær, að að- dáun Japana á Bandaríkjun- um og eftiröpun þeirra á ame- rískum lífsháttum sé fullmik- il. Japanir voru fyrstir aust- rænna þjóða til að tileinka sér vestræna jmenningu. Það þótti einnig eftirtektarvert, að þeim tókst að samræma hina að- fluttu menningarhætti hinum innlendu, án þess að glata þjóðlegum erfðavenjum. Nú þykir ýmsum aftur á móti, að æskan kæri sig lítt um að halda í þjóðlega siði en vilji stæla allt eftir „fyrirmyndar- ríkinu í austri handan við haf morgunroðans“, eins og ungt skáld nefnir Bandarikin. Sum- ir halda því fram, að hvergi í veröldinni sé æskan eins „ame rísk“ og i Japan, — ekki einu sinni í Kaliforníu. Svo mik- ið er v'íst, að sta*rsti tyggi- gúmmímarkaður lieims ei i ( Japan, og að Japanir drekka t meira niagn af kóka kóla en / Bandaríkjamenn sjálfir. Óvíða 1 mun dyikað \\ af jafnmikl I um aiiuga og Japán Hljóm- í skifuíalar segja, að allar teg- undir jazztóntisia*- séu vin- sæi star í Japan af öl 'am lönd um. Klæðaburður æskunnar er að verða amerískari en i „guðs eigin land:“. Holly- wood sendir kúrekamyndir í tngatali á japanska markað- inn árlega o s frFuiðu- legast er þó að fretta af nýrri t’zku, sem haldii hefur inn- reið sína í landið Nú þykir það „fínt“ að ba>’ i „vestrænt“ útliti og fólk lætur breyta and- litsdráttum sínuin i því skyni. Augnlæknar í Japai. hafa ekki unJan að gera smáaðgerð á fólki, sem vill fá „vestra'ii“ augu í stað hinna skásettu. Hinsim vísu landsfeðrum þykir nóg um þessi ósköp, en viðurkenna þó, að hin banda- rísku áhrif láti margt gott af sér leiða. Aukaatriði eins og rokk-og-ról-æði unglinga á götum úti vegi ckki upp á móti fullkominni tæknimenn- ingu, lýðræöislöggjöf, vestræn um hreinlætissiðum, heil- brigðislöggjöf og öðru. Áhrif bandarískra rithöfunda á jap- anska skáldsagnagerð hafi einnig verið mikilsverð, enda er talið, að bandarískir rit- höfundar skari fram úr öðrum um þessar mundir, ekki sízt á sviði smásagnagerðar. Á þessum tínvurn, þegar menning flestra þjóða er að verða næsta svipuð, er fróð- legt að fylgjast með samruna fornrar, þjóðlegrar hámenning ar og háþróaðrar nútímamenn- ingar, einkum þegar önnur er jafn „vestræn“ og hin banda- ríska, en hin „austræn“ eins og hin japanska. — Þetta er í síðasta sinn sem ég bið þig að renna upp rennilásnum fyrir mig. ★ Ferðamaðui', sem var að keyra bíl sínum gegnum lítið þorp, lenti í árekstri. Ferðamaðurinn: — Það er aug- Ijóst að ég átti réttinn, þegar þessi maður keyrði á mig og þó segið þér að sökin sé mín. Lögregluþjónninn: — Já, svo sannarlega. F.:— Hvers vægna? L.: — Vegna þess að faðir hans er borgarstjóri, bróðir hans lög- reglustjóri og ég er trúlofaður systur hans. — Dómari, sagði fanginn, ég veit ekki hvað ég á að gera. — Nú, hvað er að, spurði dóm- arinn. — Ég sór að segja sannleikann, en í hvert skipti, sem ég reyni það, mótmælir lögfræðingurinn. Arnað heilla Sjötugur er í dag Sæmundur Vilhjálmsson frá Smiðshúsum á Hvalnesi. Hann var um fjölda mörg ár sjómaður á brezkum tog — Ég get ekki munað hvað bókin heitir, en það er ástarsaga. Rcknetabátum fjökar SIGLUFIRÍÐI, 15. ágúst: — Rek- netabátunum er að fjölga og hafa tveir bátar frá Haraldi Böðvars- syni, sem voru með snurpu, nú tekið upp reknetaveiði. í nótt var veiði treg, en vitað er um einn bát, sem fékk 60 til 70 tunnur. Aðrir fengu minna. Rússneskt tankskip lestar hér á annað þúsund tonn af neyzlu- vatni handa rússneska veiðiflot- anum, sem fiskar úti fyrir Norð- urlandi. Hér er norðanátt, en frekar hæg, og sæmilegt driftaveður. — Guðjón. urum og vöruflutningaskipum. Til gamans má og geta þess að hann er handhafi ökuskírteinis númer eitt, útgefnu af sýslu- mannsskrifstofunni í Hafnarfirði. Han dvelst nú á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, Hæðar- garði 4, hér í bæ. 6. þ.m. voru gefin saman í hjónaband af séra Sigurði Ein- arssyni í Holti, ungfrú Ástrún Svala Óskarsdóttir, Lambhúshóli og Magnús Borgar Eyjólfsson, Hrútafelli. Heimili ungu hjón- anna verður í Vestmannaeyjum. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af séra Árelíusi Níels- syni, ungfrú Turid Jacobsen frá Kristianssund, Noregi, og Sigur- bjöm Bernódusson, sjómaður, Reykjavík Til sölu 3ja herb. hæð og kjallari með bílskúrsréttindum og fallegum trjágarði. — Skipti hugsanleg. Uppl. í síma 33179. Kona óskast til hreingerninga á stiga í fjölbýlishúsi við Hjarðar- haga. Upplýsingar i síma 16544 fyrir hádegi í dag og á morgun. Starfsstúlka í þvottahús óskast strax. Sjúkrahús Hvítabandsins. Kominn lieim Stefán Pálsson tannlæknir Stýrimannastíg 14 Sími 14432. 2ja herb. íbúð óskast til leigu. Viljum kaupa tvíburakerru. Upp- lýsingar í síma 35571. Iðnaðarhúsnæði til leigu, ca. 60—80 ferm. Tilboð óskast merkt. „Iðn- aðarhúsnæði — 0760“. íbúð óskast 6 herb. íbúð óskast 1. okt. Algjör reglusemi, örugg greiðsla. Tilboð, merkt: „758“, sendist afgr. Mbl. fyrir 31. 8. íbúð — Njarðvík Okkur vantar ibúð í Ytri- Njarðvík eða Keflavík. — Uppl. á staðnum, Ríóbar, Keflavíkurflugvelli. Róleg og reglusöm hjón með eitt barn á fyrsta ári óska eftir 2 til 3 herbergja íbúð til leigu sem fyrst. — Uppl. í síma 19273. íbúð Óskum eftir 2ja—3ja her- bergja ibúð. Tvennt í heim ili. Fyrirframgreiðsla. — Uppl. í síma 33990. Stúlka óskast í vist þar sem konan vinnur úti. Fátt í heimili. Upplýsingar í síma 11079 eftir kl. 8 á kvöldin. íbúð s Vantar 2ja herb. íbúð, 3 í heimili, 2 vinna úti. Fyrir- framgreiðsla óæskileg — kemur samt til greina. — Tilboð sendist Mbl. fyrir hádegi laugard., merkt: „Strax — 766“. Reglusöm systkin óska eftir að leigja íbúð, 2—4 herb., frá 1. sept. nk. íbúðin þarf að vera í Vest- urbænum. Tilboð sendist Mbl, merkt: „757“. Vasabók með peningum tapaðist við símaklefann við Granda- garð þ. 15. ágúst. Vinsaml. skilist til bryggjuvarðar. Trillubátur 6—7 tonna til sölu. Upp- lýsingar í síma 30305 eftir kl. 4 í dag. Stúlkur óskast í saumavinnu. Verksm. Skirnir h.f. Nökkvavogi 39. Barngóð kona óskast til að gæta barns á daginn. Herbergi getur fylgt, ef óskað er. Sími 33544. — íbúð Tvær stúlkur óska eftir 2 herb. íbúð innan Hring- brautar frá 1. okt. nk. Til- boð sendist MbL, merkt: „Góð umgengni — 767“. 8TEIIMDÓR vill sclja nokkrar fólksbifreiðar. Sími 1-1588. Vélstjórafélag íslands heldur félagsíund að Bárugötu 11 miðvikudaginn 17. ágúst kl. 20. Áríðandi mál á dagskrá. STJÓRNIN. Ford '57 4 dyra nýstandsett glæsileg bifreið til sölu. Til sýnis að Þverholti 15. Sími 11515. Vorulager — Vorulager Er kaupandi að stórum vörulager, ýmsar vörur koma til greina. lilboð sendist til blaðsins merkt: „Vörulager — 763“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.