Morgunblaðið - 17.08.1960, Page 10

Morgunblaðið - 17.08.1960, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Míðvik'udagur 17. ágúst 1960 Utg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22180. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eint'akið. FRIÐARSTEFNA TÍMANS 44 TyfORGUNBLAÐIÐ skýrði frá því í gær að Þórarinn JÞórarinsson, ritstjóri Tímans, væri nú komin til Rússlands í boði „Friðamefndar Ráð- stjórnarríkjanna". Ekki veit blaðið nánari deili á stofnun þeirri, sem Rússar nefna „Friðarnefnd Ráðstjómar- ríkjanna“. Hitt vitum við, að menn þurfa að hafa til að bera ákveðna eiginleika og liafa sýnt sérstaka þjónustu- lipurð til þess að nafn þeirra sé tengt orðinu „friður“ á máli ráðamanna í Kreml. I stuttu máli sagt er sá ,,friðarsinni“ á máli kommún- Ista, sem berst gegn því að viðnám sé veitt gegn út þenslustefnu Ráðstjórnarríkj anna. Sérstaklega þarf sá maður að leggja sig fram um að veikja vamir lýðræðis- þjóða, leit.ast við að koma í veg fyrir samstöðu þeirra og reyna að efna til árekstra, ’hvenær sem færi gefst. Hann þarf svo auk þess annað hvort að vera kommúnisti eða ætíð fús til samstarfs við þá. Skal nú lauslega vikið að því, hvort Þórarinn Þórarins- son og blað hans Tíminn verð- skuldi „friðar“-nafnbót komm únista. Fyrst er þá spuming- in um það, hvort blaðið vilji veikja vamarmátt lýðræðis- þjóðanna. I því efni er bezt að láta Tímann svara sjálfan. Um það segir blaðið sl. sunnu- dag, er það ræðir um, hverju svara hefði átt málaleitun Breta um viðræður út af landhelgisdeilunni: „Ef þið byrjið á ofbeldi að nýju, munum við snúa okkur til stjórnar Bandaríkjanna og heimtum þá vemd, sem við eigum kröfu til, — samkvæmt samningi. — Ef því er neitað, ætti ekki að þurfa að tyggja í þessar þjoðir, hvert hlyti að verða okkar næsta skref“. Þama er haldið fram þeirri fáránlegu skoðun, að við eig- um að krefjast þess af Banda- ríkjamönnum að þeir segi Bretum stríð á hendur. Ef Bandaríkjamenn yrðu ekki við þessari kröfu, virðist til- ætlunin sú að við segðum okkur úr Atlantshafsbanda- laginu. Hefur raunar marg- sinnis áður verið látið að því liggja í Tímanum. Þannig uppfyllir blaðið fyrsta skil- yrði þess að geta á máli kommúnista nefnzt „friðar- blað“, enda neytir það vissu- lega slóttugra ráða til þess að vinna á móti vömúm gegn kommúnisma. Annað skilyrðið er að spilla vináttu og samstöðu lýðræð- isþjóða. Ákveðin fullnæging þess skilvrðis felst í þeim orðum, sem áður var vitnað til, en auk þess segir blaðið: „Það er talað um það að miklu þurfi að fóma fyrir vestrænt lýðræði og sam- heldni. Lýðræðisþjóðimar séu vinir okkar Islendinga. En málið er nú ekki svo einfalt, að við getum eða eig- um að vera vinir eða óvinir þjóða, eftir því hvaða stjórn- skiplag þær hafa á hverjum tíma“. Ótvírætt er þannig gefið í skyn, að við ættum eins að halla okkui í austurátt og treysta á vináttu og um- hyggju einræðisríkjanna. Og öll viðbrögð Tímans við á- kvörðun ríkisstjórnarinnar um að fallast á að reyna að gera tilraun til að leysa fisk- veiðideiluna friðsamlega, hlýtur að vera fullgild sönn- un þess fyrir Moskvumenn, að Tíminn vilji spilla sam- s'töðu lýðræðisþjóðanna. Þann ig er þá öðru skilyrðinu full- nægt. Um þriðja skilyrðið, að vera kommúnisti eða starfa með kommúnistum, er það að segja, að Þórarinn Þórarins- son og blað hans verður varla ehn með réttu kallað komm- únistikst. Samt fer alls ekki milli mála, að þriðja skilyrð- inu fyrir „friðar“-nafnbótinni er fullnægt. Hafa Framsókn- armenn nú alls staðar mjög nána samvinnu við kommún- ista og engum dettur í hug að þeir séu ekki reiðubúnir til stjómarmyndunar með þeim, ef þeim tækist sameiginlega að ná meinhluta. Og með til- liti til þess, að Framsóknar- flokkurinn verður ekki nefnd ur kommúnistaflokkur, er hann Rússum miklu nytsalh- legri en hinn eiginlegi ís- lenzki kommúnistaflokkur. Að öllu samanlögðu er því ritstjóri Tímans velkominn að nafnbótinni „Friðar-Þórar- inn“. —1 Hins vegar getur varla hjá því farið, að Magnúsi Kjart- anssyni, ritstjóra Þjóðviljans, finnist hann ólánsmaður í þjónustusemi við erlend ríki, því að einnig í þetta skipti er honum vanþökkuð lipurð, þar sem ritstjóri Tímans einn er talinn verðugur viðurkenri- ingar. UTAN UR HEIMI 1 t átrúnaðargoð — Jean-Paul Belmondo heitir hann — og er nefndur „James Dean Frakk- lands H A N N getur alls ekki tal- izt fallegur eða glæsilegur maður — og sennilega munu flestir geta verið sammála um, að hann sé jafnvel fremur „óhugguleg- ur“: — lotinn og mjór og krangalegur — með úfið hár, söðulbakað nef, stóran og ó- lögulegan munn, og augun, sem lýsa í senn frekju og óljósum ótta. Þá er ekki held- ur hægt að segja, að hann klæðist snyrtilega. Venjulega gengur hann í óhreinum, víð- um skinnjakka, með skyrt- unna fráhneppta í hálsinn — og stundum ber hann kryppl- aða skygnishúfu, sem er greinilega búin að lifa sitt fegursta. — Hann virðist ekki hafa neitt sérstakt „við sig“, eins og sagt er, — öllu frem- ur sýnist hann fremur klunna legur og klaufalegur, a. m. k. við fyrstu sýn. — Fínir og vel klæddir herramenn munu vafalaust líta á hann sem ó- uppdreginn götustrák. — ★ — En yfir eirihvers konar töfr- um hlýtur þessi ungi maður að búa, því að unglingsstúlkur þyrpast um hann, hvar sem hann fer og virðast hrífast af honum í einu og öllu. — Hann virðist á einhvern sérstæðan hátt tjá æsku nútímans, tilfinningar hennar og ' ÁTRUNAÐARGOÐIÐ — Jean-Paul Belmondo. sjá sjálfa sig „ganga aftur“ í mynd Belmondos. Og auðvitað hafa duglegir og framsýnir aug- lýsingamenn gengið drjúgum á það lagið. — ¥ - Sú kvikmynd, sem aflað hef- ur honum mestra vinsælda og frægðar, er hin umdeilda mynd „A bout de souffle" (sem á ís- lenzku gæti e. t. v. heitið „Á heljarþröm“ eða eitthvað slíkt), þar sem hann leikur á móti Jean Seberg. — Hann fer þar með hlutverk ungs bílþjófs, sem ekur með æðingengnum hraða í átt til Parísar og á leiðinni drep- Ur lögreglumann, sem reynir að stöðva hann. Takmark hans með Hann túlkar viðhorf þeirrar æsku, sem segir: — í eyrum okkar hljómar hávaði frá herflug- vélum og loftvarnaflautum — og óp flemtraðs fjöldans. Æskunnar, sem ber gróm gamals ótta vð hjartarætur .... viðhorf — og þá sérstaklega fólks á aldrinum 20—25 ára, því að það eru einkum stúlkur og pilt- ar á þeim aldri, sem hrífast af honum og fylla kvikmyndahús- in, þar sem myndir harxs eru sýndar. • ANNAR JAMES DEAN Ungi maðurinn heitir Jean- Paul Belmondo — og hann hefir þegar fengið viðurnefnið „James Dean Frakklands”. Og vafalaust er sú nafngift ekki alveg út í loftið. Heil kynslóð bandarísks æskufólks leit á James Dean sem sérstæðan fulltrúa sinn, þóttist sjá mynd sjálfs sín í honum — og hefur síðan tilbeðið hann, svo að næst gengur manndýrk- un — þótt hann sé látinn fyrir mörgum árum. Á sama hátt virð ist nú æska Frakklands — eða a. m. k.. mikill hluti hennar — hinum ofsalega akstri er að ná til ungrar, banadrískrar stúlku, sem hann vill reyna að fá til þess að flýja með sér. Hún leyn- ir honum nokkurn tíma fyrir lögreglunni, en síðan gefur hún upp dvalarstað hans — og hann er skotinn til bana. • MYND ÆSKUNNAR Menn hafa þótzt sjá svipmynd af hinni vonsviknu æsku nútím- ans í sambandi milli unga bíla- þjófsins og bandarísku stúlkunn ar í kvikmyndinni. — Nokkrir gagnrýnendur hafa þótzt finna mikla líkingu með aðalpersónu myndarinnar — í túlkun Jean- Paul Belmondos — og Meur- sault í skáldsögu Alberts Cam- us, „Hinn ókunni", en hann varð fyrir einum 18 árum eins konar samnefnari æsku þeirra tíma, sem talin var sljó og innibyrgð. — Hvað er hæft í þessu, skal ósagt látið. Hitt er staðreynd, að mikill hluti æskufólks í dag virð ist sjá „spegilmynd“ sína í þess ari persónu — og dásamar Bel. mondo fyrir það. — Einn af vin- um hans hefur sagt: — ★ — — Við erum öll hvert öðru lík. Af því við erum á sama aldri, lifum sömu aldahvörfin, eigum sams konar foreldra, sams kor.ar áhyggjur sömu gleði — sömu sorgir. Hann venur kom ur sínar á sams konar staði og við hin, — og talar með sama hætti og við. Han klæðir sig eins og er haldinn sama uppburðar- leysinu og viðkvæmninni í af- stöðu sinni til ungra stúlkna eins og við hinir. Líf okkar er hið sama í aðaldráttum. Innst inni erum við hræddir — og það er ekkert til að skammast sín fyrir. Lífið er harðleikið. Vand- inn er sá, að fá skilið það, án þess að lenda á allt of miklum villigötum. • FÍFLDJARFT — OG HRÆTT. Belmondo er 27 ára gamall. Þótt hann sé þannig eilítið eldri en flestir mestu aðdáendur hans virðist hann „falla inn í“ þann hóp og svara fullkomlega til þeirra hugmynda sem þetta unga fólk gerir sér um sig sjálft: Hart á yfirborðinu, en undir niðri veik lynt og viðkvæmt — kjaftfort, en í raun og veru feimið og ó- framfærið — ruddalegt en hald ið niðurbældri þrá eftir blíðu og ást. Fífldjarft og kærulausi — og hrætt .... — ★ — Faðir Belmondos er mynd- höggvari, móðir hans málari. Þar til hann varð hinn „nýi, ungi maður“ franskra kvik- mynda, hafði hann ekki afrek- að neitt í lífinu, utan það að verða allgóður knattspyrnumað ur — og mjög lélegur hnefaleik- ari. Hann getur ekki skrifað móðurmálið, svo að skammlaust megi teljast — og rithönd hans Framhald á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.