Morgunblaðið - 17.08.1960, Side 11
Miðvik'udagur 17. ágúst 1^30
MORGVNBLÁÐ1Ð
11
2000 laxar
NÆR 800 laxar eru komnir á
land á þessu sumri úr Víðidalsá,
en röskir 1200 úr Miðfjarðará.
Laxveiði tíefur verið dágóð í sum-
ar þrátt fyrir, þurrkatíð og árnar
þar af leiðandi vatnsliclar sérstak
lega fyrri hluta sumars. Hey-
skapur hefur gengið vel, mena
yfirleitt getað hirt eftir hendinni,
og nýting heyja því góð. Þeir
sem á sjó hafa farð héðan, hafa að
eins og orðið var, en fiskurinn er
vænn. Segja má að Miðfjörður
hafi verið fiskilaus sl. 12—13 ár.
Hvammstanga, 11/9 1960,
Fréttaritari.
Olíusvæði
ú Svolboiða
ý leið opnuð á
reindýrasldðir
Samfal við Jónas Pétursson alþ.m.
JÓNAS PÉTURSSON, al-
þingismaður og bústjóri á
Skriðuklaustri í Fljótsdal,
varð á vegi okkar hér í bæn-
um á dögunuf. Við tókum
tal saman.
★
— Ert þú ekki sjaldséður hér
á þessum tíma?
— Ég hef nú lítið gert að því
að víkja mér frá búi á heyskapar-
tímanum, en ég var ásamt tveim-
ur öðrum skipaður í nefnd til að
endurskoða lögin um ræktunar-
samþykktirnar og fjárþörf rækt-
unarsambandanna. Með mér eru
í nefndinni þeir Haraldur Árna-
son, verkfæraráðunautur, og Pét-
ur Pétursson, fyrrum alþingismað
ur. Við unnum að þessu í nokkra
daga núna en munum svo koma
saman síðar til að ljúka verkefn
inu. Það er gott að hugleiða málið
r.okkru betur eftir nokkurn tíma.
V ið komum okkur þó niður á höf-
uðlínurnar, en ekki meira um
það.
Júlí rigningasamur
— Hvernig hefur heyskapurinn
gengið í sumar?
—• Júlímánuður var erfiður í
Fljótsdal, mjög rigningasamur.
Þó kom þurrkakafli eftir miðjan
mánuð, sem nýttist allvel en síðan
þornaði ekki fyrr en í ágústbyrj-
un en þá náðust hey inn. Úrkom-
an í júlí var meiri um ofanvert
Hérað en utanvert, þar til þá ef
til vill í síðustu vikunni. Talsvert
var búið að heyja í júlíbyrjun en
á Efri-Jökuldal spratt síðar og
byrjaði sláttur þar ekki fyrr en
kom fram í júlí. Þeir náðu engu
inn fyrr en í ágúst en vonandi
hefur lagazt vel fyrir þeim nú
að undanförnu.
Slægja í flóum
— Grasvöxturinn var góður?
— Já, með fádæmum mikii
spretta. Sérstaklega held ég að
heiðalöndin séu grösug. Þegar
ég rak síðasta fjárrekstur frá
Skriðuklaustri í Rana í byrjun
júlí, var girnileg slægja í mörg-
um flóanum á leiðinni og síðan
hefur án efa mikið sprottið. Væri
gaman að reyna heiðargróðurinn
til vetrarfóðurs — afla hans að
Jónas Pétursson
sumri og gera fóðurtilraun að
vetri — t. d. í samanburði við
töðu, en það verður að bíða í
þetta skiptið.
Góð samgöngubót
— Ég sá um daginn að vegur
hefði verið lagður upp á Fljóts-
dalsheiði hjá Bessastöðum. Varst
það þú, sem stóðst fyrir þeirri
ágætu samgöngbót?
— Það má segja það. Það
fengust 30 þús. kr. af'fjallvegafé
til þessa verks, sem framkvæmt
var í byrjun júlí. Gekk verkið
ágætlega og hefur verið ekið á
jeppum norðvestur undir Lamba-
kíl. En júlí var eins og áður
Framh. á bls. 12
Sporvagnaslysið í Vín
HINN 2. ágúst s.l varð mikið
slys í Vínarborg, er tveir spor-
vagnar rákust á — eins og
skýrt hefir verið frá í fréttum.
í árekstri þessum, sem var af-
skaplega harður, létu átján
manns lífið, en um 80 manns
slösuðust meira og minna —
og mun þetta vera með meiri
háttar sporvagnaslysum, sem
um getur.
★
Ökumaður annars vagnsins,
sá sem árekstrinum olli, beið
bana í slysinu, en við líkskoð-
un, sem fram fór í sambandi
við rannsókn máisins, komust
læknar að raun um það, að
ökumaðurinn mundi hafa ver-
ið undir áfengisáhrifum, er
slysið varð. Töldu læknarnir,
að hann hefði verið búinn að
drekka rúman lítra af léttu
víni skömmu áður en hann tók
við stjórn vagnsins í þessari
ferð, sem endaði með svo
hörmulegum hætti.
★
Þessi mynd sýnir, hvernig
úmhorfs var á slysstaðnum,
eftir að búið var að flytja
burt alla látna og særða. Má
gera sér glögga hugmynd um,
hve harður áreksturinn hefir
verið, af brakinu, sem sést á
myndinni.
OSLÓ, 13. ágúst. — í sumai
hefur mjög verið hert á olíu-
leit á Svalbarða, en víst þyk-
ir að olía finnist þar í jörð.
Engar uppiýsingar hafa enn
verið gefnar um hvað mikil
olía hefur fundizt þar, en
Caltex-olíufélagið sem leitaði
á Svalbarða í fyrrasumar
hefur nú sent fjölda leitar-
manna novðureftir' og hafa
þeir meðferðis öll hin full-
komnustu tæki, borturna,
tæki til jarðlagarannsókna og
hóp af þyrilvængjum. Hefur
norska námueftirlitið á Sval-
barða ekki við að gefa út olíu-
leitarleyfi.
Caltex-félagið leggur nú
aðaláherzlu á rannsóknir við
Bullsund og Edgeeyju, en
forráðamenn félagsins vilja
enn ekki segja hver árangur-
inn hafi orðið. Fara olíufélög
oftast mjög leynilega með
slíkt.
íslendingur íann
aóferðina með
upp ve/ð/-
rafmagni
VEGNA hugvekju í Morgunblað-
inu 11 þ. m., um það hver hafi
fyrstur átt hugmyndina að því að
veiða fisk með rafmagni, og'
vegna ýmissa frásagna um raf-
magnsveiðar, sem birtzt hafa í
hérlendum blöðum, þar sem
ýmist Þjóðverjum eða Rússum
heifir verið veittur heiðurinn af
því að hafa fundð upp rafmagns-
aðferðina, þykir mér rétt að ekki
liggi alveg í þagnargildi að ég
sótti um einkaleyfi á aðferð til
að veiða fisk með rafmagni bæði
í gildrur og troll árið 1938 í Dan-
mörku og framkvæmdi tilraunir
og mældi áhrif rafmagns á fisk-
í bæði fersku og söltu vatni.
Ég var um þessar mundir for-
stjóri fyrir stærstu fiskniður-
suðuverksmiðju Dana, Esbjerg
Hermetikfabrik og hafði tekizt
að veiða sumarbrisling í Esbjerg-
flóanum sem reyndist hin góm-
sætasta vara, niðursoðinn, og
eina danska fiskniðursuðan sem
valin var til að hafa á boðstólum
í dönsku pavillioninni á heims
sýningunni í New York, sakir
gæða. Vandinn var hins vegar sá,
að vegna stmuma í flóanum var
mjög erfitt að veiða brislinginn,
því fiskigildrur stóðust ekki, en
tilraun til að trolla síldina mis-
tókst.
Mér datt þá í hug að reyna að
mynda einskonar ósýnilegan raf-
magnsvegg með rafmagnsköpl-
um. Væri annar liggjandi við
botninn en hinn fljótandi, og
skyldi fiskurinn leita meðfram
straumsvæði rafmagnsins, inn í
þar til gerðan háf eða gildru.
Jafnframt hugsaði ég mér veið
arfæri, er væri einskonar troll,
sem myndað væri af köplum, er
gerðu litla mótstöðu í sjónum og
sem unnt væri að draga með mikl
um hraða yfir fisktorfur, án þess
að fiskurinn yrði þess var, en sem
með rafmagnssviðum beindi síð-
an fiskinum inn í pokann á enda
troilsins.
Ég ræddi þessar hugmyndir við
einn helzta rafmagnssérfræðing
Dana, prófessor Jörgensen við
tækniháskólann í Kaupmanna-
höfn og fleiri. Hafði hann aldrei
heyrt þess getið að reynt hefði
verið að veiða fisk með aðstoð
rafmagns. Þá ræddi ég við Próf-
essor Van Deurs, sem var góður
vinur minn og forstjóri fyrir fisk-
veiða og fiskiðnaðarrannsóknar-
stofnun Dana, Fiskeriökonomisk
Forsögslaboratorium. Hafði hann
aldrei heyrt um fiskveiðar með
rafmagni. Lét hann mér í té til-
raunastofu og áhöld til að mæla
áhrif rafmagns á fisk og viðbrögð
fisksins og gerði ég þarna nokkr-
ar tilraunir. Kom m. a. í ljós af
þeim, að fiskurinn er því næmari
fyrir rafmagni sem hann er
stærri, vegna þess að með
ákveðnu spennufalli á centimeter
verður spennufallið meira á stór-
um fiski en litlum. Spennufall
þetta mældi ég.
Ég kynnti mér nú öll þau gögn
sem til voru í danska einkaleyfis
safninu, um áhrif rafmagns á
fisk og leitaði að umsóknum, er
synnu að hafa borizt um einka-
leyfiskröfur á rafmagnsveiðiað-
ferðum, en þær fundust engar,
hvorki danskar eða erlendar.
Varð því úr að ég sótti um einka-
leyfi á aðferðum þeim, er ég
hugði að nota. Er mér ekki
kunnugt um annað en að einka-
leyfiskröfur þessar séu hinar
fyrstu er nokkurs staðar hafa
verið settar fram um rafmagns-
veiðar.
Áður en málum þessum væri
komið lengra áleiðis skall á heims
styrjöldin og fluttist ég til ís-
lands um haustið 1939. Reyndi ég
þá að vekja áhuga íslenzkra aðila
á áframhaidandi tilraunum, en
árangurslaust. Sjálfum var mér,
af eigin rammleik, ofviða að gera
slíkar tilraunir.
Sambandið milli Danmerkur og
íslands rofnaði nú um nokkurra
ára skeið. En þegar viðskipti hóf-
ust milli landanna á ný, barst
mér bréf frá dönsku einkaleyfisr
stofnuninni með fyrirspurn, um
hvort ég vildi halda áfram einka-
ieyfiskröfum mínum.
Með því að ég hafði, að feng-
inni reynslu, litla trú á því að
ég myndi geta hagnýtt mér einka
leyfisumsókn mína, nema með
gífurlegri vinnu og tilkostnaði,
ákvað ég að taka ekki á mig
Framh. á Dls. 12