Morgunblaðið - 17.08.1960, Side 16
16
M ORCVIS Bl AÐÍB
Miðvikudagur 17. ágúst 1960
PATRICIA WENTWORT7
Qamlor syndir
4e
L — í skónum á hægra fætin
um á honum. Hann hlaut að vita,
að hann var að stofna Iífi sínu
í hættu með því að hafa það á
sér, en hins vegar var engin Jif-
andi sála í heiminum, sem hanr.
gat trúað fyrir því. Og nú fer
hann sjálfsagt að hirða fjársjóð-
inn . . . ef hann þá hefur nokkurn
tíma verið til! Það virðist ekki
fylgja þessum ræningjafjársjóð-
um nein gæfa, og þessi gelur hin-
um ekkert eftir, hvað það snertir.
Maud Silver kom með spak-
mæli: „Sá, sem reynir að verða
Ujótt ríkur, verður ekki sak-
]aus“.
— Já, Salómon kailinn vissi
jafnlangt nefi sínu, sagði Frar.k.
En hvernig er það með þig? Ætl-
ar þú að verða hér eitthvað áfram
eða fara til borgarinnar?
— Ég ætla að vera hjá þeim
mæðgunum í nokkra daga. Ung-
frú Anning hefur náð í húshjálp
í bili; það er kona, sem var hjá
þeim, endur fyrir löngu, áður en
hún giftist, og ég veit hún verð-
ur fegin að hafa mig þarna, jafn-
vel þótt mamma hennar sé nú
orðin skemmtilegri í umgengni
en hún var áður.
— Ég er hræddur um, að þetta
fari illa með hana efnalega.
— Það er náttúrlega óumflýj-
anlegt, að hún bíði eitthvert
tjón af því. En hún hefur pant-
anir í september, sem hún vonar
að fari ekki út um þúfur. Það
eru þrjár mæðgur, sem eru þar
alltaf allan þann mánuð á hverju
ári. Hún hefur hringt ti! þeirra
og þær ætla alls ekki að breyta
þe?su í ár. Auk þess er eitthvert
vinafólk þeirra, einhver Bunting-
hjón, sem þær voru búnar að
benda á staðinn, og þau fara víst
heldur ekki að rifta sinni pöntun.
Að öllu samanlögðu vona ég, að
þær verði ekki fyrir neinu veru-
legu tjóni af þessu .
Frank Abbott, sem teygði úr
Cofvriríl P T B Bo» 6 CoprnKoQM
— Afsakið herra minn, en þér eigið líklega ekki eldspýtu?!
sér og lét fara vel um sig, sagði
að þær mættu teljast heppnar að
sleppa svona vel.
— Ég vona, sagði hann, — að
hún viti, að ef þú hefðir ekki
verið, hefði hún vafalaust verið
tekin föst áður en frú Castleton
kom upp um sig. Og líklega hefði
hún aldrei gert það ef ekki hefði
verið fyrir þinn tilverknað. En
hvernig í dauðanum fór þig að
gruna hana? Það hefur verið mér
hreinasta ráðgáta.
— Það voru svefnpillurnar
fyrst og fremst, svaraði Maud
Silver. — Þegar ég heyrði, að
hún hefði ekki einungis tekið þær
nn í viðurvist frá Hardwick held
ur auk þess beðið hana að Iíta
inn til sín til þess að sjá, hvort,
hún væri stofandi, þá fór mig að
gruna, að þarna væri verið undir-
búin rækileg fjarverusönnun.
Þetta var svo ólíkt manneskju,
sem var eins örugg með sjálfa
sig og frú Castleton. Svo fór ég
að athuga nánar samband hennar
við fólkið þarna í húsinu. Hún
hafði þekkt það allt mjög lengi.
Hún var frið og vel gefin og
heppin í því, sem hún tók sér
fyrii hendur, en engum virtist
geta þótt teljandi vænt um hana.
Hún var tengd frú Field eldgöml
um vináttuböndum, en það var
vinátta, sem virtist aðeins vera
komin upp í vana, en ekkert þar
út yfir. Heldur ekki virtist hafa
verið um neina ást að ræða í
hjónabandi hennar. Frú Trevor
hefur sagt mér, að eina mann-
eskjan, sem henni þótti nokkurn
tíma vænt um, hafi verið Irena
systir hennar, sem drukknaði
fyrir tíu árum. Og allir töldu,
að hún væri vön að fara sínu
fram og gera aðeins það sem
henni gott þætti. Hún var ein
þessara kvenna, sem láca aldrei
sveigja sig hænufet frá því, sem
þær hafa einu sinni ætlað sér.
Með öðrum orðum stórhættuleg
Lýttir húsmóðurinni heimilisstörfin
★ Á þessari frábæru þvottavél er rafmagns-
vintlunni stjórnað með fæti.
Viðgerðir og varahlutir
að Laugavegi 170.
Sími 17295.
ÞVOTTAVELIN
★ sýður ★ þvær
, i
* i ★ vindur ★ dælir
Ný sending komin: Verð kr. 8.015,00. — Sendum gegn póstkröfu.
11 E K L A - Austurstræti 14 - Sími 11687
manneskja að reyna að kúga til
fjárút'áta.
— En þú vissir ekki, að verið
væri að reyna það.
Hún svaraði settlega: — Það
kom í ljós. Frú Field talaði mikið
við mig, og það kom greinilega
í ljós, að stjúpsonur hennar var
að reyna að hafa peninga út úr
henni með hótunum um að gefa
út bréf, þar sem systir frú Castle
ton var annar aðilinn. Hún sagði
mér ekki annað en það, að kven-
fólkið hefði alltaf verið á hæl-
unum á manninum sínum, og
hann hefði verið ofgóður í sér
til þess að bita frá sér. Hún sagði,
að ein hefði alveg sérstaklega
| hagað sér heimskulega, og þetta
hefði verið afskaplega leiðinlegt,
af að hún hefði drukknað á
sundi, um sömu mundir, en auð-
vitað hefði það verið af því að
hún hefði fengið sinadrátt. Það
var frú Trevor sem tengdi þetta
tvennt saman, þegar hún sagði
mér um ást frá Castleton á þess-
ari systur sinni, sem hefði farizt
á þennan hátt. Það er nú erfitt,
svona eftir á, að telja upp öll
smáatvik, sem geta staðfest grun
manns og aukið hann. En ef nú
þessi áðurnefndu bréf voru frú
Castleton álíka áhyggjuefni og
þau voru frú Field. var engin
ástæða til að halda, að Alan Field
sleppa hinu tækifærinu, sem þau
buðu upp á. En var frú Castleton
þannig innrætt, að hún myndi
láta undan hótunum eða þá láta
það viðgangast, að nafn systur
hennar væri saurgað? Nei, það
var hún ekki, þóttist ég viss um.
Ég hélt nú áfram athugunum mín
um og varð brátt vör við ein-
hvern spenning, sem virtist hafa
gripið flesta í húsinu. Pippa May-.
bury var að því komin að sleppa
sér. En frú Castleton, sem
hafði verið að kvarta um höfuð-
verið og tekið svefnlyf, virtist
nú vera hin hressasta. En undir
rólegri framkomu hennar, vaið
ég vör við eitthvað, sem ég kann
ekki að nefna. Sigurhrós er
kannske fullsterkt orð yfir það,
og ánægja nær því ekki fullkom-
lega heldur. Kannske kæmist ég
nær sanni að kalla það íullnæg-
ingu. Og það hélt áfram að auk-
ast jafnt og þétt og loks fór ég
áð verða óróleg og beinlínis
hrædd við það .... Hún brosti
og bætti síðan við:
— Þú sérð, að þetta var allt
ósköp einfalt mál.
Hann hló. — Það er það alltaf
hjá þér. En eins og ég var að
segja, þá eru það allmargir, sem
mega vera þér þakklátir fyrir
þetta. Til dæmis hefði Hardwick
vel getað hafa haldið áfram að
þegja ....
Maud Silver hristi höfuðið. —
Nei, hann hefði aldrei látið taka
saklausa mannekju fasta.
— Kannske ekki, en þú verður
nú samt að játa, að Adela hin
fagra hafði þarna sterka aðstöðu.
Gamall fjölskylduvinur . . . gest-
ur í húsinu .... Persóna með
stórum staf . . . . og svo ef út i
það er farið, var hins vegar ekki
annað en nokkuð sterkur grunur.
Hún hefði getað komið með sams
konar sögu og Pippa Maybury . .
sagzt hafa farið að hitta hann og
koinið að honum dauðum. Sann-
ast að segja, skil ég ekki, hvers
vegna hún kom ekki með slíka
skýringu.
Maud Silver hóstaði. — Nei,
1 það hefði hún aldrei gert.
I — Og hvers vegna ekki?
— Hún hefði aldrei komið
l fram með slíka játningu. Eins og
þú sagðir var hún persóna í þjóð-
félaginu. Nafn hennar hefur verið
á almannavörum í þrjátiu ár, og
aldrei hefur neitt komið fram
til að kasta skugga á það. Hún
hafði talsvert höfðingjastolt til
að bera og hefði heldur kosið
dauða — sjálfrar sín eða annarra
— en láta það vitnast, að hún
hefði farið á leynlegt mót með
manni eins og hr. Field.
Hann horfði á hana hálflokuð-
um augum. Þarna var Maud
! gamla lifandi komin.
| Hann stóð upp, og gekk til henn
' ar og kyssti á hönd hennar:
j — Yðar auðmjúkur þjónn,
göfuga frú! Ég kveð yður þangað
til næsta morð kemur á dagskrá.
Hún leit á hann ástaraugum.
— Æ, góði Frank minn . .
(Sögulok).
21.40
22.00
22.10
22.30
a
r
í
li
ð
Markús eyðir nokkrum ánægju
legum dögum í fylgd með Tóm-
asi Ludlow við veiðar á vatna-
rvæðmu.
— Tómas, þetta er dásamlegt
land. Líttu bara á fuglana fljúga
þarna í sólsetrinu. Ef ég gæti
málað mundi ég velja mér svona
fyrirmyndir.
— Eg hefi málað myndir af 1
mörgum fuglum og dýrum Mark-
ús. —
— Er það? Ég vissi ekki að þú
værir listamaður Tommi!
— Mi — mig langar til að
verða Það Markús. Langar þig til
að sjá nokkrar af myndum mín-
um?
gBUtvarpiö
Miðvikudagur 17. ágúst.
i 8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn. —
8.15 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. —
8.40 Tónleikar. — 10.10 Veðurfr.)
12.00 Hádegisútvarp.
i 12.55 „Við vinnuna": Tónleikar.
j 15.00—16.30 Miðdegisútvarp.
Fréttir kl. 15.00 og 16.00).
■ 16,30 Veðurfregnir.
J 19.25 Veðurfregnir.
19.30 Operettulög.
( 19.40 Tilkynningar.
| 20.00 Fréttir.
' 20.30 Ur Grænlandsferð; II: Frá Bratta
j hlíð til Garða (Sveinn Einarsson).
21.50 Islenzk tónlist: „Systurnar í
Garðshorni‘% svíta fyrir fiðlu og
píanó eftir Jón Nordal (Björn
Olafsson og Wilhelm Lanzky-
Otto leika).
21.15 Afrek og ævintýri: Biðin langa,
— þriðji og síðasti hluti frásagn-
ar Olivers La Farges (Vilhjálmur
S. Vilhjálmsson rithöfundur).
Tónleikar: NBC-hljómsv. leikur
ungverska rapsódíu nr. 2 eftir
Liszt og rúmenska rapsódíu nr. 2
eftir Enesco; Leopold Stokowski
stjórnar.
Fréttir og veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Trúnaðarmaður 1
Havana" eftir Graham Greene;
I. (Sveinn Skorri Höskuldsson
magister þýðir og les).
Um sumarkvöld: Gustav Winckl-
er, Alma Cogan, Haukur Morth-
ens, Jörgen og Greta Ingmann,
Mouloudji, Mary Thomas, Giu-
seppe Scarola, The Little Gaeíis
Singers og Deep River Boys
skemmta.
Dagskrárlok.
Fimmtudagur 18. ágúst
—10.20 Morgunútvarp (Bæn. —
8.15 Tónleikar — 8.30 Fréttlr —
8.40 Tónleikar — 10.10 Veðurfr.).
Hádegisútvarp.
(12.25 Fréttir og tilkynningar). .
„A frívaktinni“, sjómannaþáttur
(Guðrún Erlendsdóttir).
Miðdegisútvarp.
(Fréttir kl. 15.00 og 16.00).
Veðurfregnir.
Veðurfregnir.
Tilkynningar.
Fréttir.
Erindi: Um fallstrauma (Hjört-
ur Halldórsson menntaskóla-
kennari).
21.00 Samleikur á knéfiðlu og píanó:
Mstislav Rostropovitsj og Djukin
leika:
a) Dans úr „Igor fursta“ eftir
Borodin.
b) Intermessó eftir Granados-
Cassado.
c) Alfadans eftir Popper.
21.15 Upplestur; Kristján frá Djúpalæk
les frumort ljóð.
21.25 Frægir söngvarar: Cesare Siepi
syngur ítalska söngva.
21.40 Um kartöfluframleiðslu: Edwald
B. Malmquist talar við Friðrilc
Friðriksson kaupmann og Magnúa
Sigurlásson verzlunarstjóra að
Miðkoti í Þykkvabæ.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldsagan: „Trúnaðarmaður 1
Havana" eftir Graham Greene;
II. (Sveinn Skorri Höskuldsson),
22.30 Nútímatónlist flutt af sinfóníu-
hljómsveit Chicagoborgar undir
stjórn Rafaels Kubeliks:
a) Sinfonische metamorphosen,
sinfónískar ummyndanir eftir
Paul Hindmith á stefjum eftir
Carl Maria von Weber.
b) Fimm hljómsveitarlög op. 16
eftir Arnold Schönberg.
23.10 Dagskrárlok.
8.00
12.00
15.00
I 16.30
19.25
19.30
| 20.00
f 20.30
SYNDIÐ 200 METRANA