Morgunblaðið - 17.08.1960, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.08.1960, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 17. agust 1960 MORCUNBLAÐIÐ 19 i 1 i SKAK i 1 i Einvígið Friðrik: 1 Vt — Freysteinn: Vi. 1 SJÁLFSTÆÐISHÚSINU fer fram skákeinvígi þeirra Friðriks Ólafssonar og Freyteins Þor- bergssonar. Tveim skákum er nú lokið og urðu úrslit þau að 1. skákin varð jafntefli en aðra skákina vann Friðrik. Ég hafði ekki tækifæri til að fylgjast með gangi í. skakarinnar, en fróðir menn segja hana nokkuð góða á köflum, því báðir keppendur munu hafa sleppt tækifærum, en þó sér í lagi Friðrik, sem var kominn með létt unna stöðu stuttu fyrir bið. — Aftur á móti skaut skökku við í annarri skák- inni, því eftir byrjunina var eins og Freysteinn félli í „trans“ og framleiddi eintóma dellu eftir það. Þetta er að vísu nokkuð harður dómur, en þegar menn hafa unnið Islandsmeistaratitil- inn í skák, þá mega þeir ekki falla svona saman, þó að stór- meistari eigi hlut að máli. Að- sókn að einvjginu er vægast sagt léleg, þegar tekið er tillit til þess hve gott húsnæðið er sem teflt er í, og hitt að þama eig- ast við stóimeistari í skák og skákmeistari Islands. Hér á eftir rek ég 2. skákina í einvíginu, og nota um leið tækifærið til þess að leiðrétta sögusagnir um nýjung, sem ein- hverjir ófróðir hafa komið á kreik. HVÍTT: Freysteinn Þorbergsson SVART: Friðrik Ólafsson. Griinfelds-vöm. 1. d4, Rxffi, 2. c4, g6, 3. Rc3, cl5, 4. Bf4. Af mörgum álitinn einn traustasti leikurinn gegn Grún- felds-vöm. 4 — Bg7, 5. e3, 0—0, 6. Db3. Freysteinn þiggur ekki peðið sem Friðrik býður upp á, sem sé 6. cxd5, Rxd5. 7. Rxd5, Dxd5. 8. Bxc7 I kringum þessa peðsfléttu svarts hafa spunnizt löng afbrigði, sem ég hef rakið að nokkru í síðasta hefti af Skák. Sennilegt er að Freysteinn hafi viljað sneiða hjá hinum marg- brotnu flækjum sem koma upp eftir peðsi'ánið. 6. — dxc4, 7. Bxc4, Rcfi. Nokkrir ungir menn sem sátu með byrjanabók Pach- manns á hnjánum komu þeim — Öryggisráðið Frh. af bls. 1 arinnar og yrði umsátursástandið látið haldast í sex mánuði. Þá sagði Lumumba að ef Kongó fengi ekki innan 14 daga um- ráðarétt yfir gulli sínu, eignum og föðurarfi, sem Belgir hefðu flutt úr landi, sjái ríkisstjórnin sig tilneydda til að leggja eignar- hald á allar eigur Belga í Kongó. Vantraust rætt í Briissel Á morgun verður fundur í belgíska þinginu til að ræða van- traust á Kongóstefnu ríkisstjórn- arinnar. Gaston Eyskens forsætis- ráðherra Belgíu samþykkti í síð- usttr viku að kalla þingið saman til að ræða vantrausttillögu stjórn arandstöðunnar. Hefur stjórnin sætt mikilli opinberri gagnrýni undanfarið, og mun hún á morg- un leggja fram ítarlega skýrslu um atburðina áður og eftir að Kongó varð sjálfstætt ríki hinn 30. júlí sl. Umræðurnar í þing- inu munu sennilega taka tvo daga og að þeim loknum fara fram atkvæðagreiðsla. Stjórn- málamenn í Brússel efast ekki um að stjórn Eyskens muni ganga með sigur af hólmi. Eyskens hef- ur sjálfur tilkynnt að e£ svo verði, muni miklar breytingar gerðar á ríkisstjórninni í næsta mánuði. Biæðsla stöðvast ö Norðliiði orðrómi á kreik að hér sé um nýjung að ræða, af því að leik- urinn er ekki tilgreindur af Pach mann! Þessum staðhæfingum er þó ekki rétt að trúa, því dr. Trifunovic getur um þennan leik í bók sinni Grúnfeldsvörn, og | tilgreinir tvær skákir, þar sem L. Prins er stjórnandi svörtu mannanna. T. d. 8. Be2, b6. 9. h3 (Bf3). 9. — Bb7. 10. Rf3. Staðan er flókin. Landau-Prins, Amsterdam 1939. Aftur á móti „kombinerar" Friðrik með hug- mynd Smyslofs í Grúnfelds-vöm og leikur Rí-d7-b6. Sjálfur tefldi ég nokkrar hraðskákir við L. Prins í Júgóslavíu 1959 og kom þessi leikur þá fyrir. Aftur á móti kann vel að vera að Frið- rik hafi ekki þekkt leikinn, en fen gið hugmyndina yfir borð- inu, því óneitanlega stýrir þessi leikur inn í flækjur, sem betur henta Friðrik en Freysteini. 8. Be2, Rd7. Þessi skemmtilegi flutningur á riddaranum er kenndur við Smyslof. 9. Hdl! Hindrar svart í að leika e5, sem gæfi honum frjálsa stöðu. 9. — Rb6. 10. Bf3. Óþarflega þung- lamalegt. Emfaldast var strax 10. Rf3. 10. — a5! Leikið til þess að hrekja drottninguna af bezta reitnum um leið og Rb6 og c6 eru skapaðir möguleikar á sókn drottningarmegin. 11. Rb5? Al- varleg yfirsjón..Bezt var 11. a3, a4. 12. Dc2, Bf5. 13. e4 (Önnur leið er 13. Be4). 13. — Rxd4. 14. Hxd4, Dxd4. 15. Rge2 með geysiflókinni stöðu. 11. — a4! 12. Dc3? Betra var Da3. 12. — Rd5, 13. Bxd5, Dxd5. 14. Rxc7, Dxg2. 15. f3? Skárra var 15. Rxa8. 15. — Dxhl. 16. Kf2, Bh3! og Frey- steinn gafst upp. Vægast sagí léleg taflmennska af Freysteins hálfu! ÍRJóh. Nýr sveitarstjóri í lívera^erði f HVERAGERÐI hefur verið ráðinn nýr sveitarstjóri frá og með 1. ágúst síðastliðnum að telja.Er það Matthías B. Sveins- son, rafvirkjameistari, sem bú- settur hefur verið á Selfossi. NESKAUPSTAÐ, 16. ágúst: — í gærmorgun varð að stöðva bræðslu í síldarverksmiðjunni, vegna þess að állir lýsisgeymar voru orðnir fullir. Gengið hefur erfiðlega að fá skip til að flytja lýsið burtu til geymslu í öðrum höfnum, en þó kom Þyrill í kvöld er tekur 4—500 tonn af lýsi, og mun þá bræðsla aftur geta hafizt. Verksmiðjan hefur brætt látlaust nær hálfan mánuð, en sólarhrings afköst. hennar eru tæp þrjú þús. rnál. Mikill fjöldi skipa hefur legið liér undanfarna daga vegna brælu á miðunum. Síðustu vikurnar heí ur varla komið sá dagur, að ekki væru hér tugir síldveiðiskipa. Raimsólin heldur áíram UNNIÐ er að áframhaldandi ranrv sókn á árásarmálinu, sem sagt var frá í blaðinu í gær, er ráðizt var á konu í svefnherbergi henn- ar og hún gripin kverkataki. Maðurinn, sem handtekinn var og settur í gæzluvarðhald, er enn í haldi. Enda þótt framkoma sjómanna sé yfirleitt með ágætum, virðist nú orðið tímabært að hafa hér ríkislögreglu á sumrum, eins og í öðrum síldveiðibæjum. Fastir lögregluþjónar eru hér tveir, en þyrftu að vera fleiri á sumrin, þegar skipakomur eru tíðar. Að- staða lögreglunnar hefur einnig verið slæm, þar sem ekkert fanga hús er hér enn, þótt lengi hafi staðið til að koma því upp. —S.L. Kveikt í skúr FREMUR rólegt var hjá slökkvi liðinu í gær. Um kl. 5 síðdegis var liðið kvatt inn í Sindraport, þar sem kviknað hafði í skrani. Eldurinn var slökktur fljótlega og varð ekki teljandi skaði. Klukkan um tíu í gærkvöldi var slökkviliðið beðið að koma upp í Grænuhlíð. Þar höfðu strákar byggt sér allmyndarleg- an skúr, en einhverjir brennu- vargar borið eld að honum, sv( að hann skíðlogaði, þegar að var komið. Talin var hætta á, að ráður brotnuðu í næsta húsi vegna eldshitans. Brunavörðun- um tókst að slökkva bálið, áður en skúrinn féll, og urðu ek' skemmdir á öðrum hlutum er honum. Ketill Magsiússon 75 ára AKRANESI, 16. ágúst. — í dag, 16. ágúst, er Ketill Magnússon í Bolungarvík vestur 75 ára. — Hann á þrjú börn hár á Akranesi og dvelst nú ásamt konu sinni í boði þeirra hér syðra. Hafa þau hjónin m.a. brugðið sér til höf- uðborgarinnar, en þangað hefur Ketill ekki komið í 35 ár. Svo vel hefur hann unað sér í Bolungar- vík, sem löngum hefur verið vígi sókndjarfra sjómanna. — Oddur. — Kaupstefnan Framh. af bls. 3 í Leipzig hér, Kaupstefnan, af- hendir kaupstefnuskírteini, sem jafngilda vegabréfsáritun og veit ir allar upplýsingar. Viðskipti Islands og Austur. Þýzkalands minnka Holmelin gat þess, að viðskipti Austur-Þýzkalands og íslands hefðu dregizt saman að undan- förnu, og kenndi hinum nýju efna hagsráðstöfunum um. Fyrstu sex mánuði þessa árs hefðu viðskipt- in t. d. verið 30—40% minni en a sama timabili árið áður. Væru þó viðskipti þessara landa Is- lendingum hagstæð, að áliti hans. Þýzkur ræðismað- j ur á Patreksíirði PATREKSFIRÐI, 13. ágúst. — Mánudaginn 8. ágúst kom þýzka eftirlitsskipið Poseidon. Flutti það hingað þýzka sendiherrann hr. Hans R. Hirschfeld í tilefni af opnun ræðismannsskrifsitofu á staðnum, og um leið innsetningu hins nýja ræðismanns Friðþjófs Ó. Jóhannessonar forstjóra, sem skipaður hafði verið í það em- bætti. Hafði hinn nýskipaði ræðismað ur boðið allfjölmennum hóp í um boði þýzka sendiherrans til sam- kvæmis um borð í skipinu kl. 17 til 19. Flutti þýzki sendiherrann þar ræðu, tilkynnti hann skipan hins nýja ræðismanns og ámaði honum allra heilla í starfi, um leið og hann þakkaði unnin störf undanfarið vegna þjóðar sinnar. Tilkynnti sendiherrann og að Friðþjófur Ó. Jóhannesson væri ennfremur kjörinn heiðursræðis- maður fyrir Barðastrandarsýslu. Friðþjófur Jóhannesson þakkaði. Ennfremur flutti ávarp Árni G. Þorsteinsson, oddviti og árnaði hinum nýkjörna ræðismanni allra heilla. Dvaldi fólk síðan við ríf- legar veitingar til kl. 19. — Um kvöldið hafði svo hinn nýkjörni ræðismaður boð inni. — Trausti. — Ibnrekendur Frh. af bls. 20. Þátttakendur ráðstefnunnar eru: Frá Danmörku: Formaður In- dustriraadet, Aage L. Rytter, forstjóri, varaformaður J. C. Thygesen forstjóri, dr. techn. A. N. Neergaard forstjóri, Axel Odel framkvæmdastjóri, E. Car stens skrifstofustjóri, E. Klæbel skrifstofustjóri. Frá Finnlandi: Formaður Fin- lands Industriforbund B. Láng ‘hjelm aðalforstjóri, varafor- maður Wald. Jensen konsul, fil. dr. C. E. Olin framkvæmdastjóri. Frá Noregi: Formaður Norges Industriforbund A. Monrad-Aas forstjóri, formaður fyrir Hjemme industrigruppen, Paul Steenhoff forstjóri, formaður fyrir Eksport industrigruppen, Th. Arentz for- stjóri, Knut Hald forstjóri, og aðstoðarframkvæmdastjóri R. Roem Nielsen. Frá Svlþjóð: Formaður Sve j riges Industriförbund Bror Lag- ercrantz, Axel Iverot frarn- kvæmdastjóri og Lennart Köm- er forstjóri. Frá fslandi: Formaður Félags ísl. iðnrekenda, Sveinn B. Val- fells, forstj. varaformaður, Axel Kristjánsson forstjóri, Gunnar J. Friðriksson íramkvæmdastj., Sveinn Guðmundsson fram- kvæmdastjóri, dr. ing. Jón E. Vestdal, forstjóri, Pétur Sæ- J mundsen framkvæmdastjóri og | Helgi Ólafsson skrifstofustjóri. J Með -hinum erlendu gestum eru konur þeirra, en þær munu ' m. a. heimsækja Reykjalund meðan á ráðstefnunni stendur. Agreiningur Framh af bls 1 ráðizt harðlega á kínverska kommúnista. 4. Frásögn rússnesku blaðanna um hátíðahöld í Norður-Kóreu í gær í tilefni þess að 15 ár voru liðin frá því landið komst undan yfirráðum Japana. í frásögnum blaðanna var getið um hópgöngu, þar sem borin voru spjöld með myndum af Marx, Engels, Lenin, Krúsjeff og Kim II Sung, leiðtoga Norð- ur Kóreu, en ekki m.innzt á myndir af kínverskum leiðtog- unum. Áætlað er að Krúsjeff fari til Norður Kóreu snemma í október. J Ýmsir stjórnmálamenn Vestur- veldanna spá því að hann muni þá koma við í Peiping til að reyna að draga úr ágreininginum. Þakka innilega öllum þeim mörgu, sem sýndu mér vinsemd og hlýhug með heimsóknum, gjöfum og skeyt- um á sextugs afmæli mínu 12. þ. m. % Sveinn Sæmundsson. Skrifstofur okkar verða lokaðar frá hádegi í dag 17. þ. m. vegna jarðarfarar. H. ÓLAFSSON & BERNHÖFT. Elskulegi maðurinn minn ILLUGl GUÐBJARTUR SIGURÐSSON Bolungarvík andaðist í Sjúkrahúsi ísafjarðar má.nudaginn 15. ágúst. Ilalldóra M. Sigurðardóttir, böm og tengdabörn Útför föður okkar KOLBEINS ÞORSTEINSSONAR fyrrverandi skipstjóra sem lézt á hjúkrunardeild Hrafnistu aðfaranótt 16. ágúst, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. ágúst kl. 10,30. Hrefna Kolbeinsdóttir, Þóra Kolbeinsdóttir Baldur Kolbeinsson, Ágústa Kolbeinsdóttir Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð- arför föðursystur okkar SIGRlÐAR JÓNSDÓTTUR frá Móhúsum, Stokkseyri Valgerður Andrésdóttir, Magnús Andrésson Innilegt þakklæti til allra er sýndu okkur hlýju og vinarhug við andlát og jarðarför GUÐRÚNAR HARALDSDÖTTUR fiá Hrafnkelsstöðum. Systkin hinnar látnu. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við andát og jarðarför ELfNAR VIGFÚSDÓTTUR Brekastíg 12, Vestmannaeyjum. Elinborg Pétursdóttir, tsleikur Jónsson, Sigríður Pétursdóttir, Sigurður Sveinsson, Jónína Pétursdóttir, Ólafur Jónsson, börn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.