Morgunblaðið - 16.09.1960, Blaðsíða 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 16. sept. 1960
Bærinn afsalar sér
ekki rétti til ráðninga
Rætt nm skiptivinnu í bæiarstjórn
Á bæjarstjórnarfundi í gær
urðu umræður um skipti-
vinnu vörubílstjóra í Reykja-
vík. Er forsaga þessa máls á
þá leið, að í vor barst bæjar
ráði erindi frá stjórn Þróttar,
þar sem óskað var eftir auk
inni skiptivinnu bílstjóranna
hjá bænum. Var þessu erindi
Þróttar vísað til Ráðningar-
stofu Reykjavíkurbæjar.
• TRUFLAR VINNU
í umsögn sinni um þessa beiðni
Þróttar tók Ráðningarstofan fram
að sú regla hefði gilt að undan-
förnu, að skiptivinna hefði verið
framkvæmd yfir háveturinn, en
taldi að ekki væri heppilegt, að
hafa skiptivinnu um lengri tíma,
m. a. vegna þess, að hún truflaði
vinnu og samhæfni bílstjóra og
verkamanna yrði ekki eins góð,
ef skiptivinna væri. Treysti Ráðn
ingarstofan sér því ekki til að
mæia með breytingum á þessu.
• EKKERT HEYRBIST
FRÁ ÞRÓTTI
Var þessi umsögn Ráðningar-
— Kongó
Frh. af bls. 1
sem í borginni væru, hefðu verið
staðnir að því að útbreiða áróður
í herbækistöðvum Kongóhers. —
Væru menn þessir einungis borg
aralega klæddir hermenn. Kvaðst
Mobutu hafa fyrirskipað lokun
rússneska sendiráðsins svo og
sendiráða annarra kommúnista-
ríkja og gefið öllum aðilum
þeirra 48 klst. frest til að yfir-
gefa landið.
í morgun bárust þær fregnir
gegnum Tass-fréttastofuna rúss-
nesku, að Lumumba hefði
hneppt Mobutu í fangelsi og
hefði enn öll völd í landinu. —
Fréttir þessar voru rangar.
Berjasf fyrir utan griðastaðinn
í nótt dvaldist Lumumba með
Victor Lundula, herráðsforingja,
£ Leopold-herstöðinni. 1 morgun
var Lundula lokaður inni í
þvottahúsi herstöðvarinnar, en
Lumumba þá kominn í áttina til
bækistöðva Sameinuðu þjóðanna.
í dag voru gerðar tvær til-
raunir til að ráða Lumumba af
dögum. í fyrra skiptið reyndi
Kongó-hermaður að kasta að
honum handsprengju, en félagar
hans öftruðu því. Síðar ógnaði
annar Lumumba með vélbyssu,
en hermenn frá Ghana afvopn-
uðu hann.
Er Lumumba var kominn und-
ir vernd liðs Sameinuðu þjóð-
itnna komu þar að tveir flokkar
Kongóhermanna. Var annar
fylgjandi Lumumba en hinn and-
stæður. Lenti þessum flokkum
saman í bardaga frammi fyrir
griðastað Lumumba, en her-
mönnum frá Ghana tókst að
skilja þá um síðir.
Hermenn fóru víða um götur
Leopoldville í dag og hrópuðu
ókvæðisslagorð um Lumumba.
Hvítir fluttir
Frá Elisabethvilie berast þær
fregnir, að rólegra sé nú í Man-
ono, þar sem barizt var í gær og
fyrradag.
Um 70 manns létu lífið í bar-
dögunum, þar sem áttust við lög-
reglumenn frá Katanga og fylgj-
endur Lumumba. Er talið, að
upphaf bardaganna hafi verið
óknyttir 15 ára unglinga. — Lið
Sameinuðu þjóðanna vann aðeins
að brottflutningi hvítra manna
úr héraðinu, og kvartaði stjórn
Katanga mjög undan því að það
hefði látið bardagana að öðru
ieyti aískiptalausa.
stofunnar send stjórn Þróttar
snemma í júlí. Ekki bárust bæj-
arráði eða bæjarstjórn nein svör
frá stjórn vörubílstjórafélagsins
og leið svo ágúst, að ekkert heyrð
ist frá Þrótti í málinu.
• DYLGJUR GUÐMUNDAR
Á bæjarstjórnarfundi 1. sept.
bar bæjarfulltrúi kommúnista,
Guðmundur J. Guðmundsson
fram tillögu þess efnis, að bær-
inn léti vörubílstjórafélaginu
Þrótti eftir að deila þeirri vöru-
bílavinnu, sem bærinn þarf á að
halda. Fylgdi hann þessari til-
lögu sinni úr hlaði með harðorð-
aðri ádeiluræðu, þar sem hann
dylgjaði m. a., að þrálátur orð-
rómur gengi um pólitíska mis-
notkun í sambandi við ráðningu
vörubíla í bæjarvinnu og ákveðn
ir starfsmenn, eins og hann orð-
aði það, hefðu þessa ráðningu að
féþúfu.
• GEKK TREGLEGA
Á fundi bæjarstjórnar í gær lá
fyrir tillaga fiá stjórn Þróttar,
sem gekk mjög í sömu átt og
þessi tillaga Guðmundar.
Auður Auðuns, borgarstjóri,
flutti ítarlega ræðu á fundinum
og rakti gang málsins frá upp-
hafi. Benti borgarstjóri á hina ein
kennilegu málsmeðferð, sem aug-
sýnilega væri gerð í þvi eina
augnamiði, að koma af stað póli-
tísku moldviðri og virtist sem
bæjarfulltrúanum hefði gengið
treglega að fá stjórn vörubílstjóra
félagsins til þessa leiks með sér.
Þá tók frú Auður fram, að
ekki kæmi til mála, að bær-
inn afsalaði sér réttinum til
að ráða vörubíistjóra í vinnu
og seldi hann í hendur utan-
aðkomandi aðila. Bar borgar-
stjóri fram frávísunartillögu
við tillögu Guðmundar J., og
var sú tillaga samþykkt með
10 atkv. gegn 3.
Hljómleikar
Steinunnar S.
Briem í kvöld
EINS og áður hefur verið getið
hér í blaðinu, mun Steinunn S.
Briem halda tónleika í Þjóðleik-
húsinu í kvöld kl. 8.30. Eru liðin
3 ár, síðan Steinunn efndi til
sjálfstæðra tónleika á íslandi, en
á Ítalíu kom hún fram opinber-
lega 1957, 1958 og 1959. Einnig
kom hún fram í Reykjavík sl.
vor á tónleikum Musica Nova,
þar sem hún lék „5 skissur fyrir
píanó“ eftir Fjölni Stefánsson, en
það verk var nýlega flutt á nor-
rænu tónlistarhátíðinni í Stokk-
hólmi.
Á efnisskránni eru verk eftir
Haydn, Schumann Chopin, Fauré
og Cyril Scott.
Símaklefar settir upp
við Reykjavíkurhöfn
HAFNARSTJORN hefur á fundi
sínum fyrir skömmu samþykkt
að semja við Landssmiðjuna um
smíði á fjórum símaklefum, sem
settir verða upp við Reykjavík-
urhöfn. Verða þessir símaklefar
til afnota fyrir sjómenn og aðra
er störf hafa með höndum við
höfnina.
Þessir símaklefar verða úr
aluminíum og smíði þeirra svo
einföld, að hún mun ekki taka
langan tíma. Hafnarstjóri hefur
fullan hug á að framkvæmdum
verði hraðað svo sem föng eru á,
sagði Einar Thoroddsen, yfir-
hafnsögumaður, Mbl. í gær.
Það hefur verið ákveðið að
einn þessara símaklefa verði efst
á Faxagarði, annar fremst á Ing-
ólfsgarði. við vitann, sem þar
er. Þá verður þriðji kiefinn
á Grandagarði, við togarabryggj
una, þar sem Brimnes liggur nú
bundið. Og fjórði símaklefinn
verður sennilega settur upp á
Ægisgarði.
Fyrsti almenningssíminn við
höfnina er nú kominn í hús það
sem hafnarvogin á Grandagarði
er. Þá er í ráði að setja síma-
klefa upp í námunda við gömlu
verbúðabryggjuna við Lofts-
bryggju.
Mjög aðkallandi er að slíkum
almenningssímum verði komið
upp við höfnina Tækin sjálí
munu komin til landsins.
og Ingvar efstir
Ingi R. vann Svein Johannessen
BIÐSKÁKIR úr 1. og 2. urmferð
Gilfers-mótsins voru teíldar í
Sjómannaskólanuim í gærkvöldi.
Leikar fóru þannig úr fyrstu um-
ferð, að Benóný vann Guðmund
Lárusson, Ingvar vann Jónas og
Arinbjörn og Guðmundur Ágústs
son sömdu jafntefli án þess að
tefla frekar.
Biðskákir úr 2. umiferð fóru
svo, að Ingi R. vann Svein Jo-
hannessen og Ingvar vann Gunn-
ar.
Staðan í mótinu eftir tvær um-
ferðir er þessi: 1.—2. Benóný
Benediktsson og Ingvar Ásmunds
son með 2 vinninga hvor, 3.—6.
Arinbjörn Guðmundsson, Friðrik
Ólafsson, Guðm. Ágústsson og
Ingi R. Jóhannsson með 1% v.
hver, 7.—8. Ólafur Magnússon og
Svein Johannessen með 1 v. bvor
og 9.—12. Guðm. Lárusson, Gunn
ar Gunnarsson, Jónas Þorvalds-
son og Kári Sólmundarson með
engan vinning.
í kvöld verður tefld 3. um/ferð
í Sjómannaskólanum og hefst kV
7,30 e.h. Þá tefla saman: Ólatfur
og Ingi, Ingvar og Friðrik, Benó-
ný og Gunnar, Arinbjörn og Jón-
as, Kári og Guðm. L. og Svein
Johannessen og Guðm. Ag.
Áhorfendum skal bent á að
tíðar strætisvagnaferðir eru í ná-
grenni Sjómannaskólans. Það eru
leiðir 8, 9, 16 og 17.
Gamli bíllinn þrjózkaðisf
— og lögreglan handtók ökumanninn
10 ára og unnið
allar
sinar
skákir
HAFNARFIRÐI: — Þremur um-
ferðum er nú lokið á afmælis-
móti Taflfélags Hafnarfjarðar, en
alls verða þær níu. í efstu sæt-
unum eru Leifur Jósteinsson og
Haukur Sveinsson, hvor með 3
vinning. Þó eru þeir Lárus
Johnsen og Björn Þórðarson
með IVz vinning hvor.
Leifur Jósteinsson, sem er að-
eins 10 ára gamall, hefur vakið
allmikla athygli. Hann hefur unn
íð allar sínar skákir, og það á
móti sterkum skákmönnum svo
sem Sigurgeir Gíslasyni, Birni
Jóhannessyni og Stíg Herlufsen.
Er hér vafalaust á ferðinni mikið
skákefni.
ÞING FRAMHALDSSKÓLA-
KENNARA
FULLTRÚAÞING Landssam-
bands framhaldsskólakennara
hefst í Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar kl. 4 e.h. í dag. Þingið
sækja fulltrúar úr frramhalds-
skóhim í öllum landshlutum.
I FIRRINÓTT handtóku lögreglu
þjónar tvo menn og eina stúlku,
sem voru í þann veginn að aka af
stað í bíl, er þau hugðust stelast
á í ökuför.
Þetta næturævintýri upphófst
eftir dansleik í einu samkomuhús
anna. Skyldi baldið til áframhald
andi skemmtunnar í húsi einu
í útjaðri bæjarins. Þar taldi ung
stúlka sig ráða yfir húsnæði svo
miklu, að hún bauð með hér 10
til 13 manns. Var þangað farið
í þrem bílum.
En öll áform ungu stúlkunnar
um næturpartí fóru út um þúfur
og gestirnir, sem allir höfðu
hresst sig á brennivíni, urðu frá
að hverfa. En þrennt hafði misst
af bílnum og stóð eftir í nepju
næturinnar.
Þá sá annar mannanna hvar
gamall bíll stóð. Hann fór inn í
har.n, þvi hurðin var opin, og
sá að kveikjuláslykilinn stóð í á
sínum rétta stað. Hin tvö, sem
með honum voru, komu nú líka
inn í bílinn og hóf ökumaðurinn
að reyna við gamla bílinn.
En illa gekk að koma bílnum
í gang. Eyra eigandans var
næmt, hann vaknaði, og sá
hverju fór fram í bilnum. Hann
hringdi á lögreglustöðina. Brátt
þustu á staðinn lögregluþjónn á
bifbjóli og lögreglubíll. Var sá,
sem ók á mótorhjólinu kominn að
lítilli stundu liðinni. Gamli bíll-
inn hafði stöðugt þrjózkazt við
að fara í gang og er lögreglu-
þjónninn reif upp hurðina, sat
undir stýri bílsins ölvaður maður,
Var hann ásamt félögum sínum
handtekinn á stundinni. Að
vörmu spori kom svo lögreglu-
bíllinn og var fólkið flutt í hon-
um á lögreglustöðina.
★ • ★
Þessi bíll var ekki sá eini, sem
varð fyrir barðinu á óráðvöndu
fólki þessa nótt. Bíl var stolið á
Grímstaðaholti. Hann fannst
benzínlaus í Skerjafirðinum og
það tókst í gærdag að finna þá,
sem þar höfðu verið að verki,
tveir ungir menn, og hefur hvor-
ugur þeirra bílpróf.
S'NAIShnUr / SV 50 hnúfar & Sn/áhun* * ÚSi iSH. W’-J&Z'H-Z
. 5
Stœði fyrir rúml. 100
bíla við Arnarhól
LOKIÐ er að gera teikningar af
stærsta bílastæðinu í Miðbænum
og munu framkvæmdir hefjast
eftir helgina við það.
Höfnin hefur látið umferðar-
nefnd bæjarins í té mikla ióð
norðan Arnarhóls, þar sem eitt
sinn var um það rætt að reisa
nýja lögreglustöð Reykjavíkur.
Á þessu nýja stæði við Amarhól
verður pláss fyrir rúmlega 100
bíla. Með þvi verður hægt að
láta mikinn fjölda bíla, sem nú
nota aðliggjandi götur að hafn-
arhverfinu sem stæði, fá þarna
góðan samastað, um leið ætti um-
ferðin að liðkast miög á nær-
liggjandi götum.
NÝR stormsveipur er nú við
suð-vesturströnd Grænlands
og veldur m. a. SV-roki (100
km á klst.) á veðurskipinu
Bravo, sem er staðsett miðja
vegu milli Hvarfs og Labra-
dor. Sveipurinn hreyfist all-
hratt, um 60 km á klst., norð-
austur eftir og mun valda vax-
andi S-átt hér á landi í nótt
eða á morgun.
er 21 st. hiti í Hamborg, 15 í
London, 9 í Reykjavík og 12
í Brattahlíð. í New York var
20 st. hiti.
Veðurspáút
klukkan 10 í gærkvöldi.
SV-land til Vestfjarða og
SV-mið til Vestfj.miða: Vax-
andi SA átt, stinningskaldi og
allhvass og rigning með
í annan stað er víðáttumik- m°!:gn*num-
il en kraftlítil lægð yfir Bret-
landseyjum, og veldur hún N-
átt hér á landi og um austan-
vert Atlantshaf.
Eins og kortið ber með sér,
Norðurland, NA-land. norð
urmið og NA-mið: Hægviðii,
síðan SA kaldi, skýjað.
Austfirðir, SA-land, Aust-
fjarðamið og SA-mið: Breyti-
leg átt, skýjað.