Morgunblaðið - 16.09.1960, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 16.09.1960, Blaðsíða 9
Föstudagur 16. sept. 1960 MORGVNBLAÐIÐ 9 Reykjavíkurmyndir Sigfúsar Halldórssonar ÞAÐ er óþarfi að kynna Sigfús Halldórsson, hann er eins og aliir vita þúsund þjala smiður Tón- skáld, söngvari og leiktjaldamál- ari, eru allt titlar er hann ber ineð sóma. Listgáfa Sigfúsar er É mörgum sviðum og fjölbreytni hennar vekur fyrst og fremst at- bygli. Nú hefur Sigfús efnt til sýn- ingar í Listamannaskálanum á olíumólverkum, pastelmyndum, vatnslitamyndum og rauðkrítar- jnyndum. Einnig eru á þessari sýningu myndir gerðar með olíu- krít. Eins og á þessu má sjá, þá ieitar Sigfús fyrir sér á mörgum sviðum hvað sjálft efnið varðar En eitt eiga þessar myndir sam- eiginiegt, að fyrirmyndirnar að þessum verkum eru allar frá Reykjavík eða úr nágrenni henn- ar. Það er því sannarlega nafn með réttu að kalla þessa sýningu ,,Reykjavíkurmyndir“. Ég held að Sigfúsi takist einna bezt í sumum olíumáiverkum sínum og yfirleitt finnst méi , • hann þar hafa mest vald á sjálf- um litnum. Sumstaðar annars staðar virðist eins og þjálfun Sig- fúsar, sem leiktjaldamálara beri myndflötinn ofurliði og manni dettur í hug frekar leiktjöld en smámynd. En Sigfús gerir enga kröfu til þess að sýnast í þessum I verkum annað en það, sem hann j er. Hann kemur til dyra eins og j honum er eðlilegast á heiðarleg- | an hátt brosmildur og innilegur. 1 Það má margt að þessari sýn- , ingu Sigfúsar finna, en ég virði j viðleitni hans og hógværð meir ■ en svo að ég geri það í þessum fáu línum. Sigfús Halldórsson er mjög vin ' sæll tónsmiður og mörg af söng- , lögum hans hafa komizt inn að hjarta þjóðarinnar, í bókstafleg- ' um skilningi. Trú mín er sú að i vinsældir tónskáldsins minnki, ekki við þessa sýningu hans á Reykjavíkurmyndum. Það er ekki ósjaldan að sú gófa að hafa gaman að litum og yrkja í tónum og hljómum fer saman. Sigfús er einn af þeim, sem hafa fengið i vöggugjöf þann eiginleika. Auðvitað er það hans einkamái hve hörð átökin verða og hver árangur næst, en ánægjan aí kynnum við listagreinarnar verð ur ekki frá honum tekin og ég vona að hann eigi eftir að hafa bæði gagn og gaman að þeirri kynningu. Valtýr Pétursson. Úr Austur-Skagafirði BÆ, Höfðaströnd, 6. sept. — Það er eins og máttarvöldin séu að Islandsmót IJ.M.F.I. að Laugum næsta vor SAMBANDSRAÐSFUNDUR U.M.F.Í. var haldinn í Reykja- vík dagana 10. og 11. september. Aðalmál fundarins var lands- mót ungmennafélaganna, sem haldið verður að Laugum i Suður-Þingeyjarsýslu næsta vor. Keppnigreinar voru ákveðnar og ýmsar aðrar ákvarðanir tekn- a um mótið og tilhögun þess. Ákveðið var að næsta sam- bandsþing U.M.F í. yrði háð að Laugum dagana fyrir mótið. Meðal samþykkta fundarins voru þessar: Fundur sambandsráðs U.M.F.l. haldinn 10. septembei 1960 hvet- ur stjómir héraðssambandanna til þess að halda fyrir næsta Landsmót U.M.F.Í. tveggja daga, viku eða 10 daga námskeið tii þess að afla leiðbeinenda eða efla áhuga, kunnáttu og getu í einstaklings- sem hópíþróttum. Bendir fundurinn einnig á hinn félagslega þátt slíkra nám- skeiða. Bílddælingar kveðja sóknar- nrest sinn 9 BÍLDUDAL, 13. sept. — Sl. sunnudag messaði sóknarprestur- inn hér, séra Jón Kr. ísfeld, í síðasta sinni, áður en hann f.yt- ur suður til Reykj avíikur. Um kvöldið var prestshjónun- um haldið samsæti í félagsheim- iiinu. Margar ræður voru þar fluttar, og m.a. ávarpaði oddvit- inn, Jónas Ásmu.ndsson, séra Jón og þakkaði fyrir hönd bæjarbúa «11 störf hans fyrir byggðarlagið bæði in.nan kirkju og utan. Að lokum bar oddviti fram þá -ósk fyrir hönd bæjarbúa, að honum mœtti auðnast að koma aftur til Bíidudate sem ailra fynst og taka upp pi'ests&törf að nýju. f sambandi við kostnað af námskeiðunum vekur fundurinn athygli héraðssambandanna á samþykkt íþróttanefndar ríkis- ins um styrkgreíðslur til slíkrar starfsemi. Heitir stjór.a U.M.F.Í. aðstoð sinni til öflunar kennara til starfa á nómskeiðum þessum. Fundurinn hvetur héraðsstjórn ir og stjórnir ungmennafélaga að vinna makvisst að því að starfsfræðsla unglinga verði tek in upp á sem flestum sviðum at- vinnulífsins, til bess m. a. að efla áhuga og virðingu unglinganna fyrir hverju nytsamlegu starfi. í því sambandi beinir fundur- inn því til forystumanna ung- mennafélaganna. að leita sam- vinnu við samtök atvinnuveg- anna, skóla og aðra þá aðila, sem stuðla vildu að starfsfræðslu. Vegna knýjandi þarfar at- vinnuveganna á aukinni verk- menningu í landi’'j bemir fund- urin því fræðsiumálastjórnar- innar að taka upp aukna starfs- fræðslu í skólum landsins og ráða sér&takan mann til að skipuleggja þennan þótt uppe'd- ismálanna. Felur fundurinn sambands- stjórn að vinna að þessu við yfir stjórn fræðslumálanna Fundurinn beinir bvi til sam- bandsstjórnarinnar að útvega héraðssamböndunum leiðbeinend ur í starfsíþróttum tii undirbú.i- ings keppninnar á iandsmótinu að Laugum. Sambandsráðsfundurinn fagn- ar því að samvinna hcfur ’eiuzt milli Ungmennafélags Islands og annarra landssambar.da, sem að- ilar eru að félagsheimilunum, um athugun á auknu menning- arstarfi í félagsheimi unum. Fundurinn telur þetta svo mik ilsvert og merkilegt mál, að það verði nákvæmiega að athuga. Því heitir fundunnn á nefnd þá, sem þetta mál hefur nú til með- ferðar, að halda starfi sínu á- fram og leggja síðai frani »t- huganir sinar. keppast um að gera okkur mann kertum til hæfis. Nú dásama all- ir veturinn, vorið áfallalítið, og sumarið eitt hið bezta er menn muna. nægilegt gras og nýting góð þó kafli kæmi í ágúst háif leiður. Það af lömbum, sem maður sér, virðist vera gott. Kartöfiu- uppskera er víða góð, en þar sem eingöngu var sáð í sand, hefir spretta brugðizt vegn3 þurrka. Berjaspretta er svo mikil hér að fóik er stuttan tíma að fyiia blikkfötur. Krækiber munu bó vera ennþá betur sprottin en bláber. Fólk kemur að jafnvel af Suðurlandi til að tma því þar er sögð minni spretta. Heyskapur er á einstaka stað búinn, en þó mun það ekki al- gengt, því þó hey séu orðin meiri en venjulega, sjá menvi eftir gras inu undir snjóinn. Fiskafli á Hofsósi hefir verið mjög sæmilegux nú um tíma, enda hægt að róa daglega. Er því útlit fyrir að .ilutur sjó- manna verði góður þetta sumar- ið. Langt er nú komið að lengja og endurbæta hafnarbryggjuna á Hofsósi, er hún lengd um 22 m og mikil aðgerð gerð á hafn- j armannvirkjuin, sem fyrir voru, sem og mikil þörf var á Mikil umferð hefir verið um ’ vegi i sumar. Fer það býsna I mikið eftir veðurfari, hvort margir bílar fara um. Þorsteinn j Björnsson, vörður við Austur-. Héraðsvatnabrú, segir mér að um átta þúsund bíiarj hafi farið um brúna í sum- ar. Þorsteinn er einn af hinum samvizkusömu mönnum og mun því um 8000 sinnum hafa gengið úr ■ sínum í sumar til að op g loka fyrir ferðamönn- um. Segir hann að undantekn- ingarlítið séu vegfarendur kurt- eisir og þakklátir fyrir að þurfa ekki að opna sjálfir. Skúrinn hans er á þjóðleið, enda eru víst ófáir kaffibollar sem þar eru veittir af mikilli ánægju núsiáð- anda. Töluvert kvillasamt hefir ver- ið og lagzt nokkuð þungt á sumt fólk, sérstaklega ef veikt er fyr- ir. Því miður erum við að missa lækni okkar og óvíst ennþá hvað við hrepouTa. B. Bjarni Helgason: Um ána- maðka BEZTA dæmið um starfsemi ánamaðkanna og annarra þeirra lífvera, sem éta sér leið um eða gegnum jarðveginn, sést í þeim löndum, þar sem bæði eru barrskógar og lauf- skógar. Ef laufskógajarðvegur er borinn saman við barrskóga- jarðveg, kemur í ljós, að und- ir þykkni lauftrjánna er jarð- vegurinn venjulega brúnleit- ur og „myldinn", eins og það er víst kallað. Ennfremur eru lífrænar leifar, eins og t. d. fallin laufblöð, svo blandaðar jarðveginum, að þær eru ó- þekkjanlegar að útliti og ó- aðskiljanlegar frá öðrum hlutum jarðvegsins. í barr- skógamoldinni eru lífrænu leifarnar, sem aðallega eru visnaðar barrnálar, hins veg- ar ekki blandaðar jarðvegin- um á þennan hátt, heldur mynda þær sérstakt og injög dökkbrúnt eða svart lag ofan á honum. Þetta lag er mjög greinilegt og oftast skýrt markað frá hinum ljósleitari jarðvegi, sem undir liggur. I laufskógajarðveginum er jafnan fjöldi af smákvikind- um og mikið um ánamaðka, en aftur á móti er mjög lítið um siikt í jarðvegi barrskóg- anna og alls engir ánamaðkar. En i ljós kemur, að það eru einmitt smáverurnar og venjulega fyrst og fremst ána- maðkarnir, sem grafið hafa hin föllnu laufblöð og blandað þeim saman við aðra hluta jarðvegsins og þá um leið myndað svokallaða „humus“- ríka mold, eins og á var minnzt í síðustu grein. Annað gott dæmi um starf- semi ánamaðkanna má oft sjá í nýslegnum garðblettum, þar sem nýslegið grasið er látið liggja óhreyft í stað þess, sem margir gera, að hreinsa það burtu. Ef jörðin er sæmilega rök, hættir þetta nýslegna gras að sjást að fá- um sólarhringum liðnum. Þetta kalla margir, að grasið rotni niður í moldina. En skýringin er einmitt fyrst og fremst sú, að ánamaðkar hafa verið að verki og grafið það niður, étið það og melt og blandað moldinni, svo að venjulega verður ekki á milli séð hvað er mold og hvað er gras. Þá geta ánamaðkar mjög auðveldlega grafið niður fyr- irferðarmikinn lífrænan á- burð, t. d. húsdýraáburð, sem dreift hefur verið á jörðina og blandað hann moldinni, sem undir er. Það er algengt, að lífrænn áburður hverfi fljótara af yfirborðinu á ein- um stað en öðrum. í daglegu tali er þetta oftsist kallað, að áburðurinn rotni mishratt niður í jarðveginn, en ef bet- „Regn“-ánamaðkurinn er meðal algengustu ánamaðka í nágrannalöndum okkar, og verður hann oftast 10 til 25 sm langur. Annars er full- yrt, að stærstu tegundir ána maðka geti orðið meira en 3 m á lengd þótt hinir smæstu ánamaðkar séu svo litlir, að þeir sjáist varla með berum augum. ur er að gætt, kemur venju- lega í ljós, að fjöldi ánamaðk- anna hefur líka verið mis- munandi. Og ennfremur kem- ur í ljós, að það eru einmitt þessir sömu ánamaðkar, sem að mestu leyti eru valdir að hvarfinu. En þó skyldu menn varast að halda, að allt sé svo sem sýnist. Það e- algengt, það sem húsdýraáburður er notaður, t. d. í túnum, sem lítið er um ánamaðka í, að áburðurinn getur virzt alveg horfinn, þegar líða tekur á sumarið. En það er venjulega aðeins fljótt á litið, sem áburð urinn er ekki sýnilegur leng- ur. Ef betur er skoðað, sést, að mikið af áburðinum hefur aðeins þornað og molnað efst í grasrótinni án þess raun- verulega að hafa blandazt sjálfri moldinni nema þá að litlu leyti. Það hefur vantað ánamaðkana til að fullko nna verkið. - sus Framh. af bls. 8 til stjórnarkjörs. 1 stjcrn fjórð- ungssambandsins voru kosin: Formaður: Stefán Á. Jónsson, A-Húnavatnssýslu Meðstjórnendur: Stefán Frið- bjarnarson, Siglufirði; Árni Guð mundsson, Sauðarkróki; Magnús Stefánsson, Ólafsfirði; Þórhallur Snædal, Húsavík; Bjarni Sveins son, Akureyri; Magnús Stefáns- son, Eyjafj.sýslu. Varastjórn: Jón Björnsson, Skagafjarðar.<ýslu; Erna Ingólfsdóttir, Sauðárkróki; Steinþór Ólafsson, Skagaströr.d; Guðmundur Þór Benediktsson, Ólafsfirði; Leifur Tómassan, Ak- ureyri. Að stjórnarkjöri ioknu fóru fram almennar unuæður uni þj óðmálin og tóku ti'. máls Þór- hallur Snædal, Þór Vilhjálms- son, Steinþór Ólafsso.i. Jónas G. Rafnar, Árni Guðmundsson, og Leifur Tómasson. Á sunnudagskvóldið buðu Ak- ureyringar þin'iuiitrúum tjl kvöldverðar í Hótel KF.A, og þar fóru þingslit fram. Fjórðungsþingið sátu 25 full- trúar frá öllum íélögum á sam- bandssvæðinu neira F. U. S. á Siglufirði, en fuljtrúar þess voru bupdnir við önnui fundahöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.