Morgunblaðið - 16.09.1960, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.09.1960, Blaðsíða 15
Föstudagur 16. sept. 1960 MOncTiNnr aoið 15 Frá flugsýningunni í Farnborough. '1 Lightning SAMTIMIS því, að flug- sýningin stóð í Farnbor- ough gerðu Bretar og Bandaríkjamenn samning sín á milli um nána sam- vinnu um smíði þrýstilofts- Véla, sem fara með marg- földum hraða hlióðsins. — Samvinna á þessu sviði er báðum löndunum vafa- laust mjög mikilvæg, því mörg vandamál eru enn óleyst, enda þótt þegar hafi verið smíðaáar all- margar flugvélategundir, sem „brotið“ hafa hljóð- múrinr Á Farnborough-sýningunnl voru margar brezkar þotuteg undir sýndar, en óhætt er að segja, að enginn þeirra hafi vakið jafnmikla athygli og Lightnig, nýjasta orrustu- þota brezka flughersins. Mönn um þótti nóg um, er Lightning þaut yfir mannfjöldann, enda þótt aðeins tæplega helmingur hreyflaorkunnar væri notaður. Hún mátti ekki „brjóta“ hljóð múrinn þarna á sýningunni vegna þess hve mikill hávaði fylgir, en ekki var Lightning langt frá „múrnum" og stund um rak hún nefið alveg í hann. Einn af sterku hlekkjunum Lightning er nú öflugasta orrustuþota brezka flughers- ins. Hún er smíðuð bæðj sem dag- og næturorrustuþota, hefur flogið með meira en tvö földum hraða hljóðsins og er nú að verða einn af sterku hlekkjunum í vörnum Atlants hafsbandalagsins í Bretlandi. Við fyrstu sýn virðist Lightn ing ekki mikið annað en hreyfl arnir tveir. En staðreyndin er sú, að þessi litla þota er búin margbrotnari og ná- kvæmari mælitækjum og vopnum en nokkur önnur brezk eins manns orrustuþota. Lightning hefur bæði stórar vélbyssur og rakettur. — Og stjórntækin eru það fullkom- in, að flugmaðurinn getur gert „blindandi“ árásir. Hann getur elt uppi óvinaflugvél og grand að henni án þess að sjá hana nokkru sinni öðru vísi en í mælitækjum sínum. Með þreföldum hljóðhraða Lightning getur flogið í yfir 60,000 feta hæð og nær hagkvæmustu flughæð á tæþ- um þremur mínútum. Hrað- inn er geysilegur og það var skerhmtilegt að sjá fjórar Lightning í einum hnapp „reka nefið í hljómúrinn". ★ ★ ★ Enda þótt ekki sé langt liðið síðan brezki flugherinn fékk Lightning þoturnar og Eng- lish Electri^ sé nú í rauninni að hefja framleiðsluna fyrir í i.y i' Lightning-þotur í Farnborough. rak nefift í hljóðmúrinn alvöru eru Bretar langt komn ir með smíði næsta þrepsins í þessum stiga, sem aldrei virð ist ætla að enda. Bristol 188 er í smíðum og þegar er kom- ið á hana fluglag. Þessi þota á að fljúga með þreföldum hraða hljóðsins. Hún er srmð uð úr nýrri blöndu af ryðfríu stáli, soðin saman. Fyrsta 188- þotan verður einkum notuð við tilraunir varðandi „hita- vandamálin" í flugi með marg földum hraða hljóðsins. Langur undirbúningur 188-þotan er frábrugðin flestum bandarískum þotum, sem smíðaðar hafa verið í svip uSlum tilgangi, að því leyti, að húh er ekki flutt upp í há- loftin og sleppt þar frá stærri flugvél. 188 getur hafið sig til flugs af eigin rammleik. Það er býsna langt síðan undirbúningur var hafinn að smíði 188. Upphaflega voru gerðar tilraunir með margs konar aluminiumblöndur. Eng in reyndist þola hinn geysilega hita, sem myndast við loftmót stöðuna á margföldum hljóð- hraða svo að horfið var frá því að smíða 188 úr aluminium eins og flestar aðrar þotur^ Þá voru hafnar tilraunir með titaninum, en þær fóru á sömu leið. Titianium rann- sóknunum miðaði heldui ekki nógu hratt. Loks var horfið að stálinu. Löngu eftir að smíð in var hafin náðist mjög góður árangur með tveimur nýjum stálblöndum. En það var of seint fyrir þessa fyrstu þotu. Nýja stálið verður notað í þær næstu hafi ekki fundizt eitt- hvað annað, sem betur reynist. En aðeins með því að nota stál telja sérfræðingar búk þotunn ar tryggan í flugi með þreföld- um hljóðhraða. Jafnvel uppi í háloftunum þar sem jafnan er hörku gadd ur verður þotan um 200 stiga heit að utan vegna loftmótstöð unnar. Þess vegna verða kæli tæki stór hluti af útbúnaði hennar. Þar verður ekki loftkæling, heldur verður eldsneytið leitt í pípum til kæl ingar bæði flugmanni og stjórntækjum. h.j.h. Þinnig verður 188. Góður markaður fyrir niðursuðuvörur Verksmiójan á Bildudal endurbætt BÍLDUDAL; 13. sept. — Rækju- veiði mun hefjast hér núna eftir helgina, en verksmiðjan hefur ekki starfað síðan í júní. Verður bæði unnið að hraðfrystingu og niðursuðu. — Verksmiðjan hefur verið mjög endurbætt í sumar að vélakosti og frágangi öllum. Undanfarið hefur verið mikill og góður markaður fyrir niður- suðuvörur, svo sem grænar baun- ir, ket o. fl. Ný framleiðsla hefur verið tekin upp, og er það fisk- bollur og fiskbúðingar. í verk- smiðjunni munu milli 40 og 50 manns starfa. Pétur Thorsteinsson hefur land að hér í síðustu viku 30 tonnum af fiski. Einn bátur hefur róið héðan með þorskanet, en afli verið fremur tregur. mest 2 tonn í lögn. Smokkur í Arnarfirði. Smokkurinn hefur gengið í síðustu viku, og þar sem hann er eftirsóttur í beitu, eru marg- ir bátar farnir á smokkfiskaveið ar, bæðj héðan og eins aðkomu- bátar. Afli er þó ekki eins góður enn og hann var í fyrra, mest rúm 200 kg. á mann yfir nóttina. Fyrir hvert kíló (fryst) fæst hæst fjórar krónur. — H. F. ðdýru prjúnavörurnar seldar í dag eftir kl. 1. UliarvörubúSin Þingholtsstræti 3. almennar LOKAÐ í DAG VEGNA FLUTNINGS OPNUM Á MORGUN í HINÚM NÝJU HÚSAKYNNUM OKKAR í PÓSTIÚSSTRÆTI 9 ALMEItlNAR TRYG0INGAR HF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.