Morgunblaðið - 24.09.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.09.1960, Blaðsíða 1
20 siðc£r og Lesbók Frá Allsherjarþinginu ■ gær: Krúsjeff vill láta Hammarskjúld hætta IÁstæða til að flytja aðalstóðvar Sþ til Sviss9 Austurríkis — eða jafnvel Moskvu Lið Sþ i Kongó verði aðeins notað til stuðnings Lumumba Sameinuðu þjóöunum, New York, 23. sept. — (NTB-Reuter). — 1 LANGRI ræðu sinni á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna hér í dag gerði Krúsjeff, forsætisráðherra Sovétríkj- anna, það að tillögu sinni, að Dag Hammarskjöld, sem hann veittist mjög að vegna Kongó-málsins, yrði látinn hætta störfum — og einnig að aðalstöðvar Sameinuðu. þjóðanna yrðu fluttar til Sviss, Austurríkis eða jafnvel Moskvu, þar sem hægt væri að tryggja öryggi fulltrúa á þingum þess. I»á lagði hann fram tillögur í þrem liðum um allherjar afvopnun á fjórum árum, mjög svipaðar fyrri tillögum Sovétríkjanna. Loks lýsti hann yfir stuðningi við ný- lendurnar í heiminum og þær þjóðir, sem nýlega hafa öðl- azt sjálfstæði. — Miklar bollaleggingar eru uppi um það, hvort Hammarskjöld muni segja af sér, vegna ummæla Krúsjeffs um hann. Margir stjórnmálaleiðtogar gerðu þegar að ræðunni lokinni athugasemdir við ýms ummæli hans. Nikita Krúsjeff var annar á mælendaskránni í dag, næstur á eftir Nkrumah, forsætisráðherra Ghana. Eisenhower forseti Banda ríkjanna var ekki á fundinum, meðan Krúsjeff hélt ræðu sína. Afvopnunartillögur í þrem liðum Afvopnunartillögur Krúsjeffs voru sem fyrr segir í 3 iiðum og við það miðað, að þær yrðu fram kvæmdar á fjórum árum: 1) ÖU farartæki, sem flytja eiga kj arnorkusprengj ur, sikulu fjarlægð úr herbúnaði hinna ýmsu landa; jafnfraimt skal laigt bann við framleiðslu nýrra og þær birgðir, sem til eru, eyðilagð- ar. 2) Algjört bann við kjarnorku- vopnum og öðrum gereyðingar- vopnum, framleiðslu þeirra hætt og birgðir eyðilagðar. Jafnframt skal fækkað í herafla þjóðanna og dregið úr herbúnaði þeirra að því marki, sem samkomulag næst um. Mobutu handtekur tvo samsærismenn Þeir voru báðir ráðherrar i stjórn Lumumbc Leopoldville, 23. september. — (NTB—Reuter). — ANTOINE GIZENGA, sem var aðstoðarforsætisráðherra í stjórn Patrice Lumumha, var tekinn höndum hér í morgun. Var það Mobutu hershöfðingi sjálfur, sem gaf út tilkynningu um þctta, en hann virðist enn vera „sá sterki“ í Kongó. Powers hjónin og Krúsjeíf NÉw YORK, 23. september. — (NTB — Reuter). — Oliver Powers og eiginkona hans komu í dag til New York í von um að geta náð fundi Krúsjeffs. Munu þau bera fram við hann ósk um að sonur þeirra, Francis Powers, flugmaður U-2 þotunnar, verði náðaður. >au hjónin reyndu árangurslaust að fá viðtal við Krúsjeff í Moskvu, meðan rétt- arhöldin yfir syninum stóðu yfir þar. Hann skýrði einnig frá þvi, að annar ráðherra, Maurice Mpole, hefði verið handtekinn, en í ljós hefði komið, að báðir þessir menn hefðu staðið að samsæri gegn sér síðastl. sunnudag. Engin áform um Lumumba Mobutu var að því spurður í dag, hvaða áform hann hefði varðandi Lumumba. Svaraði hann því til, að eins og sakir stæðu væru þau engin. Liðsmenn Sameinuðu þjóð- anna úr her Sameinaða Araba lýðveldisins og Túnis bættust í dag í hóp þeirra hermanna frá Ghana og Súdan, sem staðið hafa vörð um bústað Lumumba. Sænskt lið norður á bóginn Frá JElisabethville berast þær fregnir, að fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Ian Berendsen, hafi í dag skýrt frá því, að sveit sænskra hermanna úr liði SÞ hafi verið send til Pwete, um 400 km norður af borginni. Búast stjórendur liðs SÞ Framh. á bls. 2. Þessar myndir voru teknar fyrr í vikunni af Krúsjeff geispandi undir ræðuhöldum á þingi Sameinuðu þjóðanna; — í gær hefur hann svo hrisst af sér slenið. 3) Öll ríki skulu leysa upp að fullu herafla sinn og einungis hafa léttvopnað lið til löggæzlu innanlands. Allt sem eftir er af öðrum vopnabúnaði skal eyðilagt eða tekið í notkun í friðsamleg- um tilgangi. Þá flutti Krúsjeff tillögur, einnig í þrem liðum, um að aðild- arríki Sameinuðu þjóðanna sam- þykktu yfirlýsingu, þar sem þess væri krafizt, að öllum nýlendum yrði veitt sjálfstæði. Árásin á Hammarskjöld í framhaldi af þessu gerði Krú- sjeff það svo að tillögu sinni, að Dag Hammarskjöld, fram- kvæmdastjóri Sþ, yrði látinn hætta störfum, og í hans stað sett á fót 3ja manna framkvæmda nefnd, skipuð einum fulltrúa Vesturveldanna,<einum frá komm / únistaríkjunum og þeim þriðja frá hlutlausum ríkjum. Krúsjeff veittist harkalega að Hammar- skjöld fyrir aðgerðir hans í Kongó og ásakaði hann um að hafa dregið taum nýlenduveld- anna. „Þetta skapar mikla hættu“, bætti hann við í aðvör- unartón. Sagði hann einnig m. a., að víta þyrfti Hammarsikjöld, svo að hann misnotaði ekki stöðu sína, heldur innti störf sín af Norskt hvalveiði skip týnt LÝST er eftir norsku hvalveiffi- skipi, sem lét úr höfn í Noregi 13. ágúst 'og hélt til veiða á Græn- landshafL Ekki er vitað til að neitt hafi heyrzt til skipsins síð- an og barst lögreglunni hér ósk um að lýst væri eftir því. Skipið er frá Molde. Það heitir Rodney og er 93 lestir að stærð. Samkv. fréttaskeyti NTB fiá Ósló í gærkvöldi er staðhæft, að Bandaríkjaher á íslandi muni hefja leit á svæðinu milli íslands og Grænlands. Ekki fékkst þetta staðfest hjá Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna, því engin slík beiðni hafði þá borizt Bandaríkja mönnum að sögn talsma Jpp- lýsingaþjónustunnar. - hendi í samræmi við sáttmála Sþ og samþykktir Öryggisráðsins. Þá lýsti hann þeirri skoðun sinni, að Sameinuðu þjóðirnar væru ein hliða og reyndu að leysa málin svo að ákveðinn hópur þeirra væru ánægðar. Vesturveldin mis- notuðu stöðu framkvæmdastjór- ans í þágu eigin hagsmuna og svo væri um annað starfsfólk sam takanna, sem einnig væri valið með slíkt fyrir augum. Aðalstöðvarnar fluttar? Þá lagði Krúsjeff til, að menn hugleiddu, hvort ekki væri rétt að flytja aðalstöðvar Sam- einuðu þjóðanna frá New York. Gerði hann uppástungu um Sviss og Austurríki, eða jafnvel Moskvu. Hann sagði, að fulltrúar á þessu þingi hefðu orðið fyrir margvíslegum óþægindum. Af öðrum atriðum, sem Krú- Framh. á bis. 2. Kommúnisfar ógna verkamönnum en láta undan í ASB EINS og Morgunblaðið hefur áður skýrt frá, ætluðu komm- únistar að beita sams konar ofbeldi í ASB, félagi afgreiðslu- stúlkna í brauða- og mjólkurbúðum eins og því er þeir beittu í verkamannafélaginu Dagsbrún, þegar þeir neituðu löglegri kröfu um allsherjaratkvæðagreiðslu um fulltrúa til Alþýðusambandsþings. í ASB létu kommúnistar kjósa full- irúa á fundi, en eftir uppljóstranir Morgunblaðsins á ofbeldi þeirra, hafa þeir nú snúið við blaðinu, ógilt fyrri kosningu og séð sig tilneydda til að láta fara fram allsherjaratkvæða- greiðslu. — Aftur á móti halda kommúnistar áfram að hundsa sjálf- sagða kröfu verkamanna í Dagsbrún um allsherjaratkvæða- greiðslu og í gærkvöldi barst blaðinu greinargerð félags- stjórnar þeirra, þar sem reynt er að klóra í bakkann og rétt- læta gerræðið í félaginu. Greinargerð þessi kemur ekki fram fyrr en kommúnistar hafa legið á framkomnum listum í sex daga. Þeir neituðu fulltrúum lýðræðissinna að fylgjast með málum og bera saman nöfnin á undirskriftalistunum við spjaldskrá félagsins þar til þeir töldu sjálfa sig örugga um sinn hag. Staðfestu þessi vinnubrögð kommúnistastjórnar- innar þann grun, að ýmsu þurfi að leyna í sambandi við félagsmál Dagsbrúnar. Þá er Morgunblaðinu ennfremur kunnugt um, að undanfarna daga hafa starfsmenn komm- únistastjórnarinnar í Dagsbrún, og einkum þeir Eðvarð Sigurðsson og Guðmundur J. Guðmundsson, heimsótt vinnu- staði og hringt heim til einstakra verkamanna sem mæltu með allsherjaratkvæðagreiðslu í félaginu og hótað þeim öllu illu, ef þeir ekki afneituðu fyrri afstöðu sinni. Ef þeir gerðu það „yrði þeim sleppt“ við frekari refsingar af hálfu stjórnar Dagsbrúnar, svo notuð séu þeirra eigin orð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.