Morgunblaðið - 24.09.1960, Blaðsíða 19
Laugardagur 24. sept 1960
MORCVNRLAÐIÐ
19
— Guðmundur
Arnason
Framh. af bls. 6.
kosningadúxum. Fjórar eða fimm
af kyninu hafa tekið þátt í feg-
urðarsamkeppni, allt frá Tí-
volí til Themsarbakka, þar á
meðal Ágústa dóttir Guðmund-
ar. Hún varð fegurðardvottning
íslands. I>á varð gamli maðurinn
glaður og setti skilti á front fyr-
irtækis síns: „Lokað í 5 mínút-
ur“, en kom ekki aftur fyrr en
eftir 5 daga.
Það er óneitaniega gaman, að
slíkir skrautfuglar með jafn
skemmtilegan hugsunargang séu
ennþá til meðal vor á sjálfri at-
ómöld. Það er ekki þar með
sagt, að allri þjóðinni færi jafn
vel að haga sér þannig. Svona
skemmtilega hefði enginn brugð
ið við slíku atviki nema ef vera
kynni þeir misskildu listamenn
Sölvi Helgason eða Sólon ísland
us, Jóhannes blápungur, Sæfinn
ur á 16 skóm, Símon Daiaskáld
og Guðmundur nafni hans og
frændi dúllari, sem allir væru á
topp-listamannastyrkjum í dag
ef þeir væru uppi.
Ungur að árum var hann sett-
ur til mennta á Flensborgar-
skóla. Skólar gera meira af því
að valda tjóni og sálarskemmd-
um á slíkum fágætum furðufugl
um, en betrumbæta. Því var það
lán, að Guðmundi lét betur að
leika við lostfagrar meyjar en
gefa sig að grúski og bókar-
mennt í ,,den tid“. Þó var hann
enginn eftirbátur skólabræðra
sinna, er til prófrauna kom.
Frumstæður einstaklingskraft-
ur mannsins er oft meiri en svo,
að ein skólaganga fái þar um
'þokað. Skólar eru eins og skap-
aðir fyrir normalt og leiðinlegt
fólk. Þó getum við víst ekki án
þeirra verið. Lífið er að verða
of innviklað og óskemmtilegt.
Annars hefði Guðmundur orðið
sómaprestur og sálusorgari og
fyrirgefið mannlegan breizk-
leika sóknarbama sinna af
meiri skilningi en margur dyggð
ugur og skírlífur presturinn. Sá
einn skilur. sem hefur reynt sæt
leika syndarinnar sjálfur. Að
skílja er sama og fyrirgefa, seg-
ir einhvers staðar,
Heilagur Franz frá Assisi var
playboy, flagari og fyllibytta áð-
ur en hann reis og steig upp úr
svaðinu og spillingunni eins og
svo margir ef ekki allflesíir dýr
lingarnir. Aðeins slíkir eiga sína
upprisu og endurfæðingu í lif-
andi lífi. Athugunarefni fyrir
upptökuskilyrði í guðfræðideiid.
Guðmundur hefur alla tíð ver-
ið við hestaheilsu. Hann taiar og
malar mikið um sjúkdóma og
tekur sjúkdóminn með stjórn-
lausu hugmyndafluginu aður en
hann nær að smitast. Þannig
Ibólusetur hann sjálfan sig óaf-
vitandi, svo að flestir sjúkdómar
hræðast hann og leggja á flótta
undan honum nema timburmenn
og tilheyrandi taugaflækjur, sem
leysast fljótt af sjálfu sér. En
góð heilsa og hreysti er miklu
fremur ávöxtur réttra lífsvið-
horfa og lífs-innstillingar. Þó
sótti á hann einhvers konar
asthma, andþrengsli eða súrefn-
isstífla fyrr á árum. í þessum
andarteppu-köstum sínum fannst
Guðmundi eins og trekkspjaldið
fungeraði ekki í nefinu á sér,
svo að hann lagði land undir fót
og sótti heim einhvern heims-
frægan trekkspecialist vi.askuid
í skozku hálöndunum, en þar er
misvinda og þar er uppáhalds-
mjöður Munda bruggaður, sem
er Haig and Haig, White horse,
Jonny Walker, Yat 69, Higland
Queen og Ballantine. — Trekk
specialistinn hjó upp hið klass-
íska Adonisnef hans með hamri
og meitli eins og sjálfur maistari
Michelangelo væri að meitla
hornin í höfðinu á Móses gamla.
Trekkspjaldið trillar og dúllar
síðan svo að ekki hefur slegið
niður í karli en hið klassíska
gríska nef hans skipti um bygg-
ingarstíl við aðgerðina, yíirgaf
klassíkina og hefir haldið sér að
rococo-stíl síðan öllum til mikils
augnayndis, einkum konum, sér
í lagi þegar nefbroddurinn hef-
ur sig upp og niður að framan
eftir skapslögum og geðsveiflum
Guðmundar.
Nú er Guðmundur orðinn fræg
ur málverkaspekúlant, sem
höndlar með nútímalist. Því er
aldrei að vita, hvaða stefnu nef-
ið á eftir að taka næst. Þar eru
margar áttimar, ismarnir og
stefnurnar eftir því.
Hann er bæði af Bolholts- og
Langholtsætt. Langholtsættin
hefur framleitt einhver lifandis
ósköp af gáfumönnum og mikil-
hæfum kennimönnum eins og þá
Birtingana frá Birtingaholti, séra
Magnús Helgason og bræður
hans, séra Magnús Andrésson á
Gilsbakka, Ásmund biskup og
ráðherrana Pétur Magnússon og
Guðmund í. Guðmundsson og ó-
‘tal feiri. Ættin brauzt út úr ó-
þekktum víddum og breiddum
almúgans og reis með Magnúsi
alþm. Andréssyni 1 Syðra-Lang-
holti og hefir ekki fallið né sigið
að gáfum og vitsmunum að ráði
síðan, þó að sumir kvistir henn-
ar séu að vísu misvitvir eins og
sagt var um sjáifan Njál.
Hugarvíls- og hugarangnrs
fólki er fyrir góðu að hitta mann
eins og Guðmund af og til. Gásk
inn og glaðværðin er engu að
síður smitandi en þjáningin og
þunglyndið. Stundum held ég, að
hann sé hvorki af Bol'nolts- eða
Langholtsætt heldur 1 sérflokki
kominn í beinan karllegg af
karli Bakkusi, stundurn bara í
2—3 ættlið eða óskilgetinn son-
ur hans. Hann er sannkallaður
hugarkætir, skapbætir og gleði-
bætir, fullur og ófullur. Hann á
sér skemmtilega og glæsilega
eiginkonu. Hún er Á°laug Sig-
urðardóttir slembis Sigurðsson-
ar skálds frá Arnarholti og apó-
tekara í Eyjum. Hann er talinn
af vísum og fjölfróðum framhjá-
tökusérfræðingum innan ætt-
fræðinnar óskilgetinn sonur
Friðriks áttunda Guðmundur er
þannig mágur Friðriks níunda
Danakonungs á forna vísu og fer
vel á því.
Hin heilbrigða samkeppni um
makann, sem návtúran þarfnast
sjálfri sér. til viðhalds og upp-
yngingar hefir fegrað hana og
viðhaldið æskufjörinu svo að
alltaf hafa verið áhugasamir
gaukar í kringum hreiðrið, sem
þó var aldrei hleypt of langt en
mátulega til að láta makann
vara sig. Þegar samkeppnin er
úti er hnignun á næsta leiti.
Þetta skilja gamlir og góðir í-
haldsmenn. Því mlssa margar
konur of snemma sjarma sinn,
skrautfjaðrir, kynþokka og að-
dráttarafl og líkaminn verður
um aldur fram ömurleg endur-
speglun sálarinnar.
Börnin eru þrjú. Það er of
snemmt að tala um barr.alán í
öllum tilfellum íyrr en börnin
eru öll, þ. e. fyrr en mannskepn-
an er búin að renna skeið sitt,
því að aldrei er að vita, hvenær
á skeiðinu hún rís hæst og dalar
lægst. En börn Guðmuvidar og
Ásu eru gjörvileg, góð og svip-
hrein og að vera góðar mann-
eskjur, er það ekki það æðsta
og bezta í þessu lífi? Það eru
alltof fáir.
Það á mikið vín ePir að renna
sina réttu boðleið áður en Guð-
mundur er allur Það er langt
þangað til hann dansar síðasta
dans og drekkur síðasta fuliið
í þessari blautu og safaríku sól-
skinstilveru.
See you later, alligator, in
a while crocodile.
Sæll að sinni, gamli pamfíll.
Súptu ekki eins og krókódíll!
Örlygur Sigurðsson.
- SJb.
Framh. af bls. 11.
inn með 46 atkvæðum, Thor
Thors fær 9 atkvæði og Nosek 25
atkvæði. Kapphlaup milli stór-
veldanna í austri og vestri veld-
ur því að Thor Thors fær ekki
fleiri atkvæði. Alllöngu fyrir
þingið var vitað að hann átti
miklu fylgi að fagna. En kosn-
ing Bolands hafði verið undir-
búin lengi og Bretland og Banda-
ríkin höfðu frá upphafi heitið
honum fylgi sínu. Rússar og
fylgiríki þeirra stóðu hins veg-
ar fast með Nosek og höfðu feng-
ið nokkur hinna hlutlausu ríkja
til stuðnings við hann.
Hinn nýkjörni forseti tekur nú
við fundarstjórn og er fagnað
með lófataki. Hann flytur ræðu
og lætur m. a. þá ósk í ljós, að
þetta allsherjarþing verði „þing
manúðarinnar."
Dagur hinnar svörtu Afríku
Nú er komið að inntöku nýrra
ríkja í samtök Sameinuðu þjóð-
anna. Á dagskránni eru inntöku-
beiðnir frá 15 ríkjum, Kýpur-
lýðveldinu og 14 Afríkuríkjum,
sem öll hafa nýlega fengið sjálf-
stæði. Forsetinn leggur til að
greidd verði atkvæði um hvert
einstakt ríki. Fyrst kemur inn-
tökubeiðni Kameroon lýðveldis-
ins til atkvæða. Hún er sam-
þykkt með samhljóða atkvæð-
um. Þá biður þingforseti sere-
moníumeistara þingsins að
sækja fulltrúa hins nýja þátt-
tökuríkis. Gerir hann svo og
fulltrúar hins unga lýðveldis
ganga í salinn og er vísað til
sætis. Er þeim fagnað með al-
mennu lófataki. Síðan er sam-
þykkt með samá hætti inntaka
13 nýrra Afríkuríkja. Fulltrúar
þeirra eru allir svertingjar,
margir vörpulegir og svipmiklir
menn, flestir klæddir að hætti
Evrópumanna en nokkrir bera
litríkar skikkjur, hátíðabúninga
þjóða sinna. Einnig er samþykkt
inntökubeiðni Kýpur-lýðveldis-
ins, þannig að samtals eru 14 ný
ríki tekin í samtökin á þessum
fyrsta degi allsherjarþingsins. —
Fulltrúar belgiska Kongó-lýð-
veldisins geta ekki tekið sæti á
þinginu, þar sem tvær sendi-
nefndir eru komnar þaðan og
óvissa leikur á því, hvor þeirra
fari með umboð stjórnar lands
síns.
96 þjóðir
Meðlimaríki Sameinuðu þjóð-
anna eru nú orðin 96. Af þeim
eru 25 í Afríku. Afríkuþjóðirnar
eru þannig orðnar fjölmennasti
þjóðahópurinn frá einstakri
heimsálfu. Þingforsetinn býður
hin nýju ríki velkomin. Frelsi
Afríkuþjóðanna hefur styrkt
Sameinuðu þjóðirnar, segir for-
setinn.
Flest þessara nýju ríkja eru
fyrrverandi nýlendur Frakka.
Það er líka utanríkisráðherra
Frakklands, sem fyrstur kveður
sér hljóðs úr hópi þingfulltrúa
til þess að bjóða þær velkomnar
í samtökin og óska þeim til ham-
ingju með inngöngu þeirra í SÞ.
Síðan er hver heillaóskaræðan
flutt á fætur annari. Til máls
taka m. a. fulltrúar Túnis, ítalíu,
Bretlands, Perú, Ceylon, Haiti,
Sovétrikjanna, Bandaríkjanna og
Afghanistan. Fulltrúi Finnlands
flytur þeim árnaðaróskir fyrir
hönd Norðurlandanna allra. Af
hálfu Bandaríkjanna talaði Hert-
er utanríkisráðherra og Gromyko
af hálfu Sovétríkjanna.
Þessi fyrsti fundur Allsherjar-
þingsins stendur framundir kl. 7.
Er þá enn ekki lokið að bjóða
hin nýju ríki velkominn. Er gert
ráð fyrir að því ljúki á kvöld-
fundi. En í fyrramálið munu
fulltrúar hinna nýju aðildarríkja
flytja þakkarávörp sín.
Nær eitt þúsund fulltrúar.
Fulltrúar á Allsherjarþinginu
munu nú vera orðnir nær eitt
þúsund talsins. Er það langsam-
lega fjölmennasta þing, sem al-
þjóðleg ríkjasamtök hafa haldið.
Dagurinn í dag hefur verið dagur
hinnar svörtu Afríku. Hann hef-
ur verið sigurdagur hins þel-
dökka kynstofns, sem haldið hef-
ur uppi langri baráttu fyrir frelsi
sínu og jafnrétti við hinn hvíta
mann. Með frelsinu kemur auk-
inn þroski og ábyrgðartilfinning.
Grundvöllur Sameinuðu þjóð-
anna hefur í dag breikkað að
mun. Vonandi hefur hann einn-
ig styrkzt. En þótt ekkert orð
sé oftar nefnt í ræðum manna
á þessu mikla þjóðanna þingi en
orðið „öryggi“ er það þó einmitt
öryggi, vissa un\ varanlegan frið
og mannhelgi, sem veröldina
skortir í dag.
Setningarfundi Allsherjarþings
ins er að ljúka. Þrjú högg ís-
lenzka hamarsins í hendi þing-
forsetans hljóma út yfir salinn.
Hið mikla þjóðahaf fellur eins
og straumþung elfa frá þessum
fyrsta fundi. Tvö þúsund og
fimm hundruð blaðamenn, út-
varpsmenn og ljósmyndarar
segja heiminum frá því, sem hér
gerðist. Sögulegur dagur er að
kveldi kominn. S. Bj.
5 útigangar
SKRIÐUKLAUSTRI, 23. sept. —-
Göngum er nú að ljúka á af-
réttum Fljótsdælinga. Á Vestur-
Öræfum fundust 5 útigengnar
kindur, 3 voru veturgamlir hrút-
ar, sem fundust á svonefndum
Maríutungum, norðaustan Vatna-
jökuls og 2 ær veturgamlar fund
ust skammt þar fyrir norðaustan.
Veður var ágætt í göngunum og
fé lítur vel út.
— Flugvöllur
Frh. af bls. 20.
lögð á hilluna fyrir" fullt og allt
í vor, sagði Hilmar að lokum.
Verður áreiðanlega góð
Björn Pálsson flaug nýlega
vestur til jsafjarðr.r og skoðaði
flugbrautina. Sagði hann í við-
tali við Mbl., að sér litist mjög
vel á mannvirkið, það væri vel
unnið.
— Þessi braut verður áreiðan-
lega góð, sagði Björn, en að vísu
verður ekki lent á henni í suð-
austan vindi. Hins vegar verður
í mörgum tilfellum hægt að nota
völlinn, þó vindhæð sé það mikil,
að ólendandi væri á sjó — og
þar á ég við norðangjóluna, sem
oftast blæs inn Skutulsfjörðinn,
sagði Björn.
Sá síðasti
Ekki verður byggð nein far-
þegaafgreiðsla við flugvöllinn á
Skiþeyri að sinni og engar ráða-
gerðir eru uppi um að setja nið-
ur lendingarljós, því samtímis
þeim yrðu að koma aðvörunar-
ljós á fjöllin umhverfis.
Svo sem Hilmar Sigurðsson
upplýsir mun Katalínu lagt í
vor. Allt frá stríðslokum hafa
Katalínubátarnir gegnt þýðingar
miklu hlutverki í samgöngumál-
um okkar, ekki hvað sízt við
Vestfirði nú síðari árin. — Um
skeið átti Flugfélagið 3 Kata-
línubáta og Loftleiðir 2 — og er
Sæfaxi, sem nú verður lagt, hinn
síðasti þeirra.
Hugheilar þakkir votta ég öllum þeim, sem með heim-
sóknum, gjöfum og skeytum, sýndu mér margvíslegan
hlýhug og virðingu á 80 ára afmæli mínu 30. ágúst sl.
Guð blessi ykkur öli.
Halldór Gamalíel Sigurjónsson
frá Hallbjarnarstöðum á Tjörnesi
Hugheilar þakkir færum við öllum, sem glöddu okkur
með heimsóknum, gjöfum og heillaóskum á gullbrúð-
kaupsdegi okkar 10. sept s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Svanborg Jónsdóttir, Stefán Kristjánsson, Ólafsvík
Lokað
í dag vegna jarðarfarar
*
Isborg
Miklatorgi
Útför mannsins iníns
KJARTANS JAKOBSSONAR
fyrrverandi vitavarðar frá Reykjarfirði,
fer fram frá ísafjarðarkirkju, laugardaginn 24. sept. kl.
2 með bæn frá heimili foreldra hans, Engjavegi 6.
Flóra Ebenezerdóttir
Jarðarför föður míns og fósturföður,
JÓNS SIGURÐSSONAR
skipstjóra frá Blómsturvöllum,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 27. sept. kl. 1,30.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast
hins látna er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Fyrir hönd okkar og annarra ættingja.
Vigdís Jónsdóttir, Gunnlaugur Kristjánsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar og tengdamóður
KRISTÍNAR RICHTER JÓNSSON
Soffía Ingólfsdóttir, Friðgeir Bjarnarson,
Anna Ingólfsdóttir,
Vilhelmína Markan, Einar Markan.
/