Morgunblaðið - 24.09.1960, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.09.1960, Blaðsíða 8
8 MORCUNBT 4fílÐ Laugardagur 24. sept 1960 Teknar verði upp visinda- legar nútímavinnuaðferðir Rábstefnu íslenzkra verkfræðinga lauk i gær RÁÐSTEFNU íslenzkra verk- fræðinga lauk í gær og hafði staðið í tvo daga. Afgreiddi ráð- stefnan þrjár ályktanir. 1 gærmorgun flutti dr. Benja- mín Eiríksson hagfræðilegterindi á ráðstefnunni um fjárfestingu og framleiðni. Lauk hann ræðu sinni á þessum orðum: „Efnahagslegar framfarir hvíla á tveimur megin stoðum. Annars vegar er tæknin, hins vegar fjár- magnið. Hvort tveggja þarf að styðja og örva. En hvort um sig krefst sérstakra aðferða. Inn- leiðsla nýrrar tækni og aukning Krúsjeff í essinu sínu HÚSIÐ númer 680 við Park Avenue í New York er bæki- stöð sendinefndai Rússa hjá Sameinuðu þjóðunum. Yfir aðaldyrum eru rúmgóðar sval ir og þar birtist skyndiiega kl. 3,10 sl. miðvikudag Krú- sjeff forsætisráðherra Sovét- ríkjanna. Fyrir neðan sval- irnar beið hópur blaðamanna og ljósmyndara og ræddi for- sætisráðherrann við þá ofan af svölunum • í upp undir klukkustund. Krúsjeff kvaðst hafa snætt vel og langaði til að komast út undir bert loít og „þarna voruð þið þá“. — „Ég vissi ekki að þetta væri svona góður staður fyrir blaðaviðtal“, sagði hann bros andi. Meðan Krúsjeff var þarna á svölunum, tóku noKkrar stúlkur úr skóla sem er hand an við götuna, að syngja „God bless America". Aðspurður hvort hann vissi að stúlk- urnar væru að syngja „Drott- inn blessi Ameríku", svaraði Krúsjeff: „Leyfum þeim að syngja. Við syngjum einnig í Rússlandi — Internatioual- inn“. Og forsætisráðherran lyfti krepptum hnefanum og sörg hárri raust upphaf byitingar söngsiac .— Hve lengi ætlið þér að dvelja í Bandaríkjunum, spurði einn blaðamannanna. — í tvær vikur eftir að Alls herjarþinginu lýkur. — Veit forsætisráðherrar.n að þinginu lýkur ekki fyrr en i desember? — Ég hélt það yrði ekki fyrr en í janúar, sagði Kfú- sjeff. — Ég óska yður gleðilegra jóla, kallaði þá einn blaða- mannanna. — Og ég óska yður góðs nýs árs, svaraði Krúsjeff. Þá var nokkuð rætt um væntanlegar forsetakosningar í Bandaríkjunum og Krúsjeff spurður hvort honum þætti ekki sjálfum það illa gert gagnvart frambjóðendunum að taka frá þeim for- síður dagblaðanna, en Krú- sjeff kvaðst ekki álíta að þeir móðguðust yfir því. For- sætisráðherranum var þá bent á að ef áætlanir hans stæðust yrði hann í Bandaríkjunum þegar kosningar fara fram. — Hvað hefur það að segja? Ég má ekki kjósa. Auglýsing varðandi umsóknir um eftirgjafir á aðflutn- ingsgjöldum af farartækjum, vegna sjúk- dóms eða föílunar. Að gefnu tilefni, hefur nefnd sú, sem úrskurðar umsóknir urn eftirgjafir á aðflutningsgjöldum af farartækjurn sökum sjúkdóms eða fötlunar (lækna- nefndin) ákveðið, að allar slíkar umsóknir, sem liggja hja nefndinni og hafa ekki verið afgreiddar, þurfi að endurnýja. Þeir af oldn ums. og nýir ums., sem óska eftir að koma til greina á yfirstandandi ári, að því er tek- ur til fyrrgreindra eftirgjafa, verða að hafa Komið umsóknum sínum til ritara nefndarinnar, Þórðar Benediktssonar, SÍBS, Reykjavík, fyrir lok október mánaðar n.k. Eftirgjafir aðflutningsgjalda koma aðeins til greina af bifreiðum innfluttum frá Rússlandi eða Tékkó- slóvakíu. Nánari upplýsingar gefa: Formaður læknanefndar- innar, Páll Siguiðsson, Pósthússtræti 7, IV. hæð, viðtalstími, virka daga, nema laugardaga, kl. 1—2, sími 12525, og ritari hennar, Þórður Benediktsson, SÍBS, Bræðraborgarstíg 9, Reykjavík, sími 22150. Reykjavík, 23. september 1960 F.h. læknanefndarinnar. Þórður Benediktsson Kvikmynd frá íslenzku kristniboðsstöð- inni í Kongó verður sýnd í Bet- aníu, Laufásvegi 13, í kvöld kl. 8.30 og mánudaginn 26. sept. á sama tíma. Kristniboðssambandið. KFUM Aimenn samkoma annað kvöld kl. 8.30. Ólafur Ólafsson kristni- boði talar. Allir velkomnir. mm % J hennar byggist fyrst og fremst á menntun þjóðarinnar. Hún hvílir á víðum og víkkandi sjón- deildarhring. Tæknin heimtar menntun og þekkingu og menn- irnir, sem beita sér fyrir henni þurfa að hafa framsýni og fram- tak, og þetta hvort tveggja er bezt eflt með hæfilegri og réttri tegund af menntun og þjálfun. Ég þarf víst ekki að vera lang- orður til'þess að sannfæra ykkur, kæru verkfræðingar, um þetta atriði. Hitt atriðið, aukning fjár- magnsins, er ákaflega háð and- rúmsloftinu í þjóðfélaginu. And- rúmsloftið þarf að stuðla að því að menn vilji geyma verðmæt- in til morgundagsins, að menn vilji leggja fyrir, að menn vilji spara, að menn sjái sér einhvern hag í því að spara, að þetta sé lofsverð viðleitni ,að menn séu hvattir til þess, að. menn sjái dyggð í því að einhver leggi til hliðar fjármagn, eða leggi fram fjármagn, sem síðan sé hægt að kaupa fyrir vélar, tæki, skip, byggja hafnir, vegi, brýr, leggja í framkvæmdir í jarðrækt og margt fleira, og þá náttúrlega að menn fái hæfilega greiðslu fyrir slíka þjónustu, því hún byggist á sjálfsafneitun. Hér getur löggjafinn orkað miklu með heppílegri lagasetn- ingu, en launþegasamtökin geta hér haft mikil áhrif til góðs, með því að koma fram með sann- girni og skilningi.“ Athuganir á nýtingu vinnu- afls og fjármagns Að erindi dr. Benjamíns loknu, fóru fram umræður og tóku margir til máls. Eftirfarandi tillögur voru samþykktar: „Ráðstefna íslenzkra verkfræð- inga, haldin í Reykjavík 22. og 23. september 1960, telur tíma- bært að gerðar séu ráðstafanir til að hafnar séu reglubundnar athugai»ir á nýtingu (fram- leiðni) vinnuafls og fjármagns í íslenzku atvinnulífi og niðurT stöður slíkra athugana birtar reglulega. Telur ráðstefnan slík- ar athuganir nauðsynlegar til þess að þróun íslenzks atvinnu- lífs samræmist sem bezt hags- munum þjóðarinnar.“ Tæknimenntun endurskoðuð Ráðstefna íslenzkra verkfræð- inga vekur athygli á því ástandi, sem í dag ríkir í tækni og vís- indamálum þjóðarinnar. Ráðstefnan skorar á stjórnar- völdin að beita sér þegar fyrir nákvæmri athugun þessara mála með það fyrir augum að skapa heildarstefnu í vísindamálum, þar sem lögð sé áherzla á að verja stöðugt auknum hluta þjóðarteknanna til tækni- og vísindaþróunar. Ráðstefna íslenzkra verkfræð- inga 1960 telur nauðsynlegt, að tæknimenntun í landinu ve'rði tekin til gagngerðrar endurskoð- unar, þannig, að hún verði auk- in og endurskipulögð í samræmi við kröfur tímans. Loks var samþykkt eftirfar- andi tillaga: „Það er álit ráðstefnunnar að Islendmgar geti ekki fremur en aðrar þjóðir viðhaldið lífskjör- um sínum hvað þá bætt þau, nema þeir taki upp vísindalegar nútíma-vinnuaðferðir í rekstri atvinnuvega sinna, og raunar í rekstri þjóðfélagsins alls. Til þess að þetta sé mögulegt verður nú og framvegis að leggja hina ríkustu áherzlu á að þjálfa með þjóðinni mikinn fjölda vel menntaðra sérfræðinga á sviðum hvers konar náttúruvísinda, tækni, viðskipta- og efnahags- mála, og nota þekkingu þeirra við úrlausn hinna margvíslegu vandamála, sem steðja að í fram- leiðslustarfseminni og rekstri þjóðfélagsins. Þó eitt brýnasta viðfangsefnið í bráð sé vafalaust það að auka afrakstur þeirra framleiðslu- tækja, sem þjóðin ræður nú yf- ir, þá ríður ekki minna á að einbeita kröftunum að því, að kanna og undirbúa hagnýtingu hráefna og orkulinda landsins á fjölbreyttari hátt en nú er gert og með stofnun nýrra framleiðslu greina fyrir augum. Á þessu sviði bíður fjöldi rann- sókna- og tilraunaverkefna, sem ekki má fresta um of, því öll rannsókna- og tilraunastarfsemi tekur óhjákvæmilega . langan tima. Þau vandamál, sem hér hafa verið gerð af umtalsefni, eru vissulega ekkert sérmál verk- fræðingastéttarinnar, heldur varða þau þjóðina alla. Ráð- stefna íslenzkra verkfræðinga heitir því á stjórnarvöld lands- ins, forráðamenn rannsóknar- starfsemi, atvinnufyrirtækja og almenning allan að gefa þeim fyllsta gaum.“ Að fundi loknum í gær skoð- uðu verkfræðingarnir ýmis fyr- irtæki. Þá hafði félagsmálaráð- herra síðdegisboð inni í ráð- herrabústaðnum fyrir þátttakend ur ráðstefnunnar og í gærkvöldi héldu verkfræðingar sameigin- legt hóf á Hótel Borg. Sumkomur Zion, Óðinsgötu 6 A Samkomur á morgun. Almenn samkoma kl. 20.30. Hafnarfjörð- ur. Almenn samkoma kl. 16. — Allir velkomnir. Heimatrúboð leikmanna. Börn! Filadelfía Bænasamkoma kl. 8.30. Allir velkomnir. Dansnámskeiðin eru að byrja!— Innritun er á mið- vikudaginn, 23. sept. frá kl. 2 e.h. í Skátaheimilinu Röðun í flokka sama dag kl. 5—6. Gömludansarnir — Innl. og erl. þjóðdansar Þjóðdansafélag Reykjavíkur sími 12507

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.